Morgunblaðið - 14.10.2017, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 14.10.2017, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2017 ✝ Pálmi Jónsson,bóndi, fyrrver- andi alþingismaður og ráðherra, fædd- ist 11. nóvember 1929 á Akri, Aust- ur-Húnavatnssýslu. Hann lést á Vífils- stöðum 9. október 2017. Foreldrar hans voru hjónin Jónína Ólafsdóttir, f. 1886, húsfreyja á Akri, og Jón Pálmason, f. 1888, bóndi á Akri, alþingismaður, landbúnaðarráðherra og forseti sameinaðs þings. Systkini Pálma voru Ingibjörg, f. 1917, Eggert Jóhann, f. 1919, Mar- grét Ólafía, f. 1921, Salóme, f. 1926, þau eru öll látin. Eftirlifandi eiginkona Pálma er Helga Sigfúsdóttir, f. 1936, húsfreyja á Akri. Börn þeirra eru: 1) Jón Pálmason, f. 1957, rafmagnsverkfræðingur, kvæntur Marianne Skovsgård Nielsen, f. 1958, félagsráðgjafa og þýðanda. Börn þeirra Níels Pálmi Skovsgård Jónsson, f. 1988, Henrik Skovsgård Jóns- son, f. 1990, Anna Elísabet prófi frá Bændaskólanum að Hólum árið 1948. Pálmi tók við búi á Akri 1953 og var þar bóndi til 1997. Hann var kosinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Norðurlandi vestra árið 1967 og sat á Alþingi til ársins 1995. Pálmi var landbúnaðarráðherra 1980-1983, var lengi í fjárlaga- nefnd Alþingis og formaður samgöngu- og allsherjarnefnd- ar. Pálmi var virkur í félags- störfum. Hann var formaður Jörundar, FUS í Austur-- Húnavatnssýslu, 1963-1964. Sat í hreppsnefnd Torfalækjar- hrepps 1962-1974. Í stjórn Ra- rik um áratuga skeið og sem formaður stjórnar 1978-1990. Sat í Hafnaráði 1984-1987. Í rík- isfjármálanefnd 1984-1987. Í stjórn Byggðastofnunar 1991- 1993. Pálmi sat á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna 1991. Hann var yfirskoðunar- maður ríkisreikninga 1992- 1995. Formaður bankaráðs Búnaðarbanka Íslands frá 1994- 2000. Minningarathöfn um Pálma Jónsson fer fram í Dómkirkj- unni í Reykjavík í dag, 14. októ- ber 2017, klukkan 11. Útför fer fram frá Blönduós- kirkju 16. október 2017 klukkan 14. Jarðsett verður í Þingeyra- klausturskirkjugarði. Skovsgård Jónsdóttir, f. 1994, unnusti Sturla Lange, f. 1994. 2) Jóhanna Erla Pálmadóttir, f. 1958, bóndi og framkvæmdastjóri, gift Gunnari Rún- ari Kristjánssyni, f. 1957, bónda og hagfræðingi. Börn þeirra eru Helga Gunnarsdóttir, f. 1983, og Pálmi Gunnarsson, f. 1989. 3) Nína Margrét Pálmadóttir, f. 1970, ferðamálafræðingur, gift Ómari Ragnarssyni, f. 1957, yfirlækni. Börn þeirra eru Helga Sólveig Ómarsdóttir, f. 2002, og María Rut Ómarsdóttir, f. 2003. Fyrir átti Nína Margrét Ragnar Darra Guðmundsson, f. 1993. Fyrir átti Ómar, Unni Björgu Ómarsdóttur, f. 1984, sambýlis- maður Hrafnkell Már Stefáns- son, f. 1984, og Frímann Hauk Ómarsson, f. 1986, kvæntur Tinnu Björk Gunnarsdóttur, f. 1985. Pálmi ólst upp á Akri í Torfa- lækjarhreppi við öll almenn sveitastörf. Hann lauk búfræði- Það var stjórnarkreppa í land- inu frá því í byrjun desember. Það var komið fram undir mán- aðamót janúar/febrúar. Kalt, hráslagaveður. Allir búnir að tala við alla. Gunnar Thoroddsen birt- ist á sviðinu og við fórum heim til hans við Steingrímur Her- mannsson. Hann fyrir Fram- sóknarflokkinn, ég fyrir Alþýðu- bandalagið. Við ræddum málefnaforsendur samstarfs en það á alltaf að byrja á því. Í ljós kom að það gat gengið, sjá bók mína Hreint út sagt 2012. „En hvað hefur þú marga með þér, Gunnar,“ spurðum við. Fengum óljós svör. Svo var haldinn fundur í Rúblunni að Laugavegi 18 á lög- mannsstofu Ásgeirs Thoroddsen, sonar Gunnar. Um að gera að hafa fundinn á afviknum stað. Við urðum samferða upp í lyftunni við Pálmi Jónsson, þekktumst varla. Við fundarborðið varð ég Gunnari á hægri hönd, Pálmi á vinstri, horfðumst í augu, yfir borðið. Gagnkvæm tortryggni. Svo var farið að tala saman. Og það gerðum við Pálmi síðan í rík- isstjórn Gunnars Thoroddsen nærri daglega í rúm þrjú ár. Milli okkar myndaðist traust og svo vinátta. Einu sinni vorum við spurðir af einhverju blaði sinn í hvoru lagi, óvitandi hvor af öðr- um, hvaða kosti við teldum mik- ilvægasta hjá einum stjórnmála- manni. Við svöruðum því sama: Að stjórnmálamaður standi við orð sín, sé orðheldinn. Við kunn- um báðir að meta það að ráð- herrar kynnu sína málaflokka í þaula. Það gerði Pálmi öllum mönnum betur, ég reyndi að læra mína. Svo tengdi okkur sveita- mennskan. Hann frá Akri þar sem þau Helga voru bændur; þar hafði hann alist upp hjá foreldr- um sínum, pabbi hans, Jón Pálmason, hafði verið alþingis- maður, ráðherra og bændahöfð- ingi. Þegar við sátum saman að tala um ekki neitt sérstakt var talað um sveitir og sauðfé. Einu sinni kepptum við í hrútadómum, innbyrðis að vísu. Segi ekki hvor vann. Pálmi var annars allra manna best íþróttum búinn og átti fjölda héraðsmeta í margs- konar íþróttagreinum. Sjálfstæðisflokkurinn tók því illa þegar Pálmi, Friðjón og Gunnar mynduðu stjórnina með Alþýðubandalaginu og Framsóknarflokknum. Fyrir- gangurinn í nokkrum þingmönn- um Sjálfstæðisflokksins gegn Friðjóni, Pálma og Gunnari var yfirgengilegur. Ekki varð það árásarmönnum alltaf til fram- dráttar. Þegar kom til kosning- anna vorið 1983 eftir Gunnars- stjórnina unnu ráðherrarnir sem höfðu starfað í Gunnarsstjórninni stærstu kosningasigrana fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Fylgið á Vesturlandi fór úr 30,9% at- kvæða í 34,7%, en fylgið í Norð- vesturkjördæmi úr 28,1% í 31,3% atkvæða. Listar sama flokks á Vestfjörðum og í Reykjavík töp- uðu fylgi. Fyrir tveimur árum komu þau Helga og Pálmi með okkur í Fé- lagi fyrrverandi alþingismanna til Vestmannaeyja. Það var gam- an og hlegið ótæpilega. Þau voru skemmtileg hjón. Á milli heimila okkar í Reykjavík er snerti- spölur. Þá hittumst við Pálmi stundum í Sunnubúðinni; þá tók lengri tíma að kaupa mjólkur- pottinn en venjulega. Orðheldinn og öflugur maður er fallinn. Pólitískt áttum við ekki oft samleið en vinátta okkar var heil. Helgu og niðjum þeirra send- um við Guðrún samúðarkveðjur. Svavar Gestsson. Árið 1991 urðu mestu breyt- ingar á skipan Alþingis frá árinu 1934, þegar allir alþingismenn voru í fyrsta sinn kjörnir á sama kjördegi. Þegar þing kom saman á vordögum árið 1991 vorum við nær 40 prósent þingheims sem settumst á þing í fyrsta skipti sem aðalmenn. Það var okkur nýjum þingmönnum hins vegar mikill styrkur að hitta fyrir góð- an hóp öflugra þingmanna með mikla þingreynslu, sem stuðluðu að festu sem hverju þjóðþingi er svo nauðsynleg. Í þessum hópi var Pálmi Jónsson, Pálmi á Akri, sem þá hafði setið á Alþingi í um aldarfjórðung, verið ráðherra og gegnt ábyrgðarmiklum störfum á vettvangi þingsins. Þetta kjörtímabil reyndist mjög andbrekkis. Samdráttur var í þjóðarbúskapnum og tekjur ríkissjóðs drógust saman. Stjórn ríkisfjármála var því strembin og mikið átak að koma saman fjár- lögum. Okkar, sem settumst í fjárlaganefnd á þessum tíma, beið því krefjandi starf. Þá var gott fyrir ungan þingmann að njóta í nefndinni leiðsagnar hins reynslumikla og virta þingmanns Pálma Jónssonar sem var öllum hnútum kunnugur í fjárlaga- nefndinni og kveinkaði sér aldrei undan því að takast á við erfitt verkefni. Ég hafði vitaskuld haft kynni af Pálma fyrr. Einkanlega á vett- vangi Sjálfstæðisflokksins en svo naut ég þess líka að ættir hans lágu vestur til Bolungarvíkur. Barst það oft í tal okkar í millum, bæði fyrr og síðar og var augljóst að báðum þótti gaman að og það styrkti vináttuböndin. Pálma var einkar létt um mál. Hann var vörpulegur í ræðustóli og flutti mál sitt þannig að eftir var tekið. Þó árin færðust yfir var Pálmi ætíð brennandi í sínum pólitíska anda. Hann mætti á stjórnmálafundi, jafnt fyrir norð- an sem og syðra og lét til sín taka. Undantekningarlaust tók hann til máls, lagði okkur góð ráð og hvatti til dáða. Síðast man ég hann í ræðustóli fyrir um ári síð- an á fundi á vegum Sjálfstæðis- flokksins; sem fyrr kempulegur og skýr og flutti mál sitt blaðlaust og áreynslulaust. Reynsla hans af störfum Alþingis og djúp þekk- ing á högum umbjóðenda sinna fyrir norðan gerði það að verkum að málatilbúnaður hans var ígrundaður og aldrei sú yfir- borðssigling sem stundum mætir manni á hinni pólitísku lífsins leið. Þetta skapaði honum virð- ingu og vinsældir, ekki síst í kjör- dæminu sem hann gjörþekkti. Pálmi á Akri var ekki einasta stjórnmálamaður. Hann var bóndi og það í merg og bein. Mað- ur þurfti ekki lengi að ræða við hann til þess að skynja hversu sterkum böndum hann var bund- inn átthögunum, búskapnum og landinu. Þó hann þyrfti oft að vera fjarri heimahögunum vegna starfa sinna á Alþingi slitnuðu ræturnar aldrei. Að fara heim var að fara heim að Akri. Pálmi Jónsson var minnis- stæður maður sem gott var sækja ráðin til. Konu hans Helgu Sigfúsdóttur, vinkonu okkar hjóna, sendum við Sigrún innileg- ar samúðarkveðjur sem og börn- um þeirra hjóna, Jóni, Jóhönnu og Nínu Margréti og fjölskyldum þeirra. Blessuð sé minning Pálma á Akri. Einar K. Guðfinnsson. Pálmi Jónsson á Akri var drengur góður. Það fékk ég að reyna sem samþingmaður hans í fjögur ár og áður sem varaþing- maður hans. Pálmi var sprottinn upp úr jarðvegi húnvetnskrar sveitar og verðugur fulltrúi þess besta sem þar var að finna. Hann var stoltur en laus við allan hroka. Hann lagði mikinn metnað í að rækta gott sauðfé og hafði yndi af fjárbúskapnum og vildi ekki gefa hann eftir þótt þing- mannsstörfin tækju drjúgan tíma og mikla orku. Pálmi var öflugur málsvari Norðurlandskjördæmis vestra á Alþingi án þess þó að vera óbilgjarn í garð annarra. Hann hafði mikla og góða yfirsýn yfir helstu málaflokka sem fjallað var um í þinginu og ávann sér mikla virðingu í störfum sínum í þingnefndum. Hann var málefna- legur og með skynsemina í fyrir- rúmi, rökfastur og ósérhlífinn. Hæfileikar hans nýttust sérstak- lega vel í störfum fjárlaganefnd- ar. Pálmi var í eðli sínu íhalds- maður af gamla skólanum í góðum skilningi. Hann þoldi illa lýðskrum og var ekki útbær á lof- orð í pólitíkinni nema hann væri nokkuð viss um að þau væri hægt að efna. Hann setti ekki fram óhugsaðar skoðanir heldur ígrundaði vel allan sinn málflutn- ing. Pálmi var enginn ójafnaðar- maður og studdi dyggilega allt sem stuðlað gat að almennri vel- sæld, framförum og velferð. Pálma stóðu landbúnaðarmálin nærri og þar hafði hann mikið fram að færa. Sem landbúnaðar- ráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen setti hann mark sitt á þau og minnisstæð er fram- ganga hans og Ragnars Arnalds sem þá var fjármálaráðherra í endurreisn Hólaskóla. Setu Pálma í ríkisstjórn Gunnars bar ósjaldan á góma í samtölum okk- ar og vangaveltum um menn og málefni. Mér var minnisstætt þegar hann upplýsti mig um að þeir félagarnir í ríkisstjórninni hefðu alls ekki viljað fara frá um sumarið 1982 þrátt fyrir að stjórnin hefði þá ekki haft nauð- synlegan styrk til að ráða fram úr málum. Ástæðan var sú að hann taldi að það væri óhjákvæmilegt að Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði fyrir fullt og allt ef stjórnin færi frá á þeim tíma. Og það kom líka á daginn að hann og aðrir Gunnars- menn komu inn í hópinn fyrir kosningarnar í apríl 1983. Erfitt hefði verið að ímynda sér Pálma annars staðar en í Sjálfstæðis- flokknum. Ég lærði heilmikið af Pálma í pólitíkinni. Hann sýndi mér fram á að það var alltaf best að vera maður sjálfur og samkvæmur sjálfum sér. Það var ekki endilega betra til að fá traust kjósenda að hlaupa eftir dægursveiflum og fjölmiðlafári heldur ræða málin af yfirvegun og án sleggjudóma og með virðingu fyrir öllum einstak- lingum og málefnalegum sjónar- miðum. Pálmi var mikill fjölskyldu- maður og hann og Helga voru af- ar samrýmd og samtaka. Hann hafði dyggan stuðning af fjöl- skyldu sinni sem hafði mikið að segja í öllu því vafstri og átökum sem fylgdu stjórnmálaþátttök- unni. Ég votta fjölskyldunni mína innilegustu samúð. Ég tel mig hafa verið lánsaman að fá að kynnast Pálma og starfa með honum. Hann er einn af þeim samferðamönnum í lífinu sem ég hef borið mikla virðingu fyrir. Guð blessi minningu hans. Vilhjálmur Egilsson. Pálma mun ég fyrst hafa kynnst um 1980 þegar hann var ráðherra landbúnaðar. Þá eins og oft síðar var vandi sauðfjárrækt- ar í landinu ærinn. Vandamálin voru á þessum árum í stöðugri umræðu í stjórnkerfinu og þar sem ég vann að skyldum málum í Bændahöllinni lágu leiðir okkar saman. Þar kynntist ég ákaflega málefnalegum og skýrum manni í umfjöllun mála. Þó að okkar stjórnamálalegu skoðanir lægju ekki í líkum farvegi var mjög auð- velt að ræða þessi málefni á fag- legum grunni við Pálma. Haustið 1982 fer ég fyrsta sinni á hrútasýningar á svæði Pálma. Þar kynntist ég honum sem fjár- ræktarmanni og eftir það áttum við mikil og góð samskipti á því sviði. Þó að hann ætti ákaflega vítt áhugasvið met ég út frá þeim kynnum að á fáum sviðum hafi áhuginn verið meiri og stríðari. Hæfileikar hans á því sviði voru einnig einstakir. Mat mitt er að hann hafi haft meiri hæfileika á því sviði en nær allir bændur í landinu. Þess vegna vil ég fara ör- fáum orðum um starf hans að þessu hugarefni, fjárræktinni. Í fyrrnefndri ferð 1982 var mér strax ljóst að fjárrækt Pálma bar af annarri á því svæði. Nær allir sem árangri náðu á svæðinu sóttu til hans kynbótafé og ráð og hafði svo verið þá á annan áratug. Búið á Akri er hins vegar í einu versta varnarhólfi landsins í ill- vígri baráttu við riðuveiki. Í upp- hafi tíunda áratugarins greindist þessi vágestur í fénu á Akri. Ára- tuga glæsilegt ræktunarstarf varð á svipstundu að engu gert á búinu. Margir bændur sem sótt höfðu kynbótagripi áður til Pálma nutu hins vegar starfa hans og gera enn. Þrátt fyrir þetta mikla áfall í þessu starfi lét Pálmi ekki deigan síga heldur tók strax nýjan fjár- stofn. Þar stóð hann öllum öðrum faglegar að verki. Hann þekkti ís- lenska sauðfjárrækt og fann þau bú á þeim svæðum sem hann mátti sækja fé til sem best stóðu að vígi í ræktun. Alla forsvar- menn þessara búa hef ég heyrt lýsa þeirri miklu hæfni sem Pálmi sýndi í fjárvalinu. Árang- urinn lét ekki á sér standa. Innan örfárra ára var kominn á Akri glæsilegasti fjárstofn svæðisins. Á þessum árum lét Pálmi fjárbú- ið í hendur Jóhönnu dóttur sinn- ar og eiginmanns hennar. Áfram fylgdist Pálmi með fjárræktinni af sinni kunnáttu og glögg- skyggni. Á þessum árum varð ég þeirr- ar ánægju aðnjótandi að koma á hverju hausti norður að Akri og meta lambakostinn. Þarna var Pálmi eins og kóngur í ríki sínu. Hann gjörþekkti hvern einstak- ling í hjörðinni þannig að í raun gerði mín umsögn ekki annað en staðfesta þann dóm sem hann hafði sjálfur þegar gert sér grein fyrir. Hann gladdist yfir þeim ræktunarárangri sem sjá mátti með hverju árinu. Þetta voru ein- stakir gleðidagar og yfirleitt há- punktur hauststarfanna á hverju ári. Pálmi var mikið glæsimenni sem sópaði að. Hann var ákaflega mikill frásagnameistari, gaman- samur, minnugur á menn og mál- efni. Hann þekkti búskap um allt land. Á kveðjustund skulu honum þökkuð hin ómetanlegu kynni í sambandi við sauðfé og sauðfjár- rækt. Helgu og öllum afkomendum þeirra hjóna flyt ég að lokum mínar innilegustu samúðaróskir. Jón V. Jónmundsson. Pálmi Jónsson var drengskap- armaður sem miðlaði góðu til okkar sem yngri vorum í pólitík- inni og var um svo margt góð fyr- irmynd í allri framgöngu sinni sem einstaklingur á vettvangi þjóðmálanna. Pálmi valdist til þingmennsku í blóma lífsins og fylgdi þar eftir föður sínum, þing- skörungnum Jóni Pálmasyni á Akri. Fljótt fann hann sinn eigin stíl og gerði sig mjög gildandi á Alþingi sem baráttumann bænda og landbúnaðarins og byggða- mála en ekki síður hvetjandi um að ríkisfjármálin væru ábyrg og raunhæf. Enda sat hann í fjár- veitinganefnd Alþingis og var formaður nefndarinnar um skeið. Ég minnist þess að Pálmi og Geir Gunnarsson af hinum kanti stjórnmálanna bundust tryggða- böndum og töluðu um efnahags- mál og fjárlög af mikilli þekkingu og gekk ekki hnífurinn á milli þeirra. Síðar átti ég eftir að sitja með þeim báðum í bankaráði Búnaðarbankans og tel það sjálf- um mér til tekna að hafa unnið með svo vönduðum mönnum og heilsteyptum. Pálmi var staðfast- ur Sjálfstæðismaður þótt hann á erfiðum tímum í pólitíkinni fylgdi glæsimenninu Gunnari Thorodd- sen og þeir Friðjón Þórðarson báðir, enda unnu þeir sína glæst- ustu kosningasigra eftir ráð- herraárin í Gunnarsstjórninni. Pálmi á Akri var góður frjáls- íþróttamaður á yngri árum, ekki síst hlaupari, hann unni íþróttum alla tíð og oft ræddi hann um unga frjálsíþróttafólkið okkar og var einstaklega glöggur að meta hæfileika hvers og eins. Pálmi var í pólitíkinni kappsfullur íþróttamaður, harður sprett- hlaupari þegar mikið lá við, en rökfastur og drengilegur and- stæðingur, sem hreif fólkið með sér. Hann var góður ræðumaður, flutti mál sitt hnitmiðað á góðri íslensku og talaði beint í salinn. En fyrst og fremst var hann góð- ur bóndi og einn fremsti sauðfjár- ræktarmaður landsins, átti af- burða fallegt fé á Akri. Hugur hans var fyrir norðan hjá dóttur og tengdasyni sem tóku við bú- skapnum og síðar dóttursyninum Pálma sem nú rekur fjárbúið. Pálmi gat sagt eins og skáldið: „Í dalnum er sál mín en hönd mín er hér,“ þótt þau hjón byggju í Reykjavík eftir þingmennskuna var hann kominn norður í sauð- burð og fjárrag að hausti, hugur hans var í sveitinni. Pálmi var víkingur til verka og þingmaður þeirrar gerðar sem alla flokka dreymdi um að eiga, hann var héraðinu sínu trúr og stundum sögðu mér Húnvetning- ar að þegar hátíð var í héraði og vont veður geisaði brást það ekki að hann kom utan úr hríðinni með Helgu sína á þorrablótið eða há- tíðina. Hann hélt vel utan um sveitunga sína og sýslunga eins og fjölskyldu og landið allt var baráttuvettvangur í hugsun hans og pólitíkinni. Hann var góður talsmaður landbúnaðarins og í störfum sínum sem ráðherra voru bæði til staðar hugsjónir hans og raunhyggja. Ógleyman- leg var heimsókn Koivisto Finn- landsforseta til Íslands árið 1982, þá komu ráðherrahjónin, Pálmi og Helga, sem gestgjafar með forsetahjónin og Vigdís Finn- bogadóttir okkar var með í för- inni að Brúnastöðum til foreldra minna, það sýndi vináttuna yfir landamæri flokkanna. Pálmi og faðir minn, Ágúst á Brúnastöð- um, bundust tryggðaböndum í þinginu og reyndar höfðu feður okkar Pálma verið góðir vinir og stundum fannst mér að ég hefði notið þeirrar vináttu og hlotið mörg heilræði frá Pálma fyrir bragðið. Við Margrét áttum margar gleðistundir með Pálma og Helgu hér heima og á Kan- aríeyjum og eru þær allar á einn veg ógleymanlegar. Pálmi er minnisstæður maður, hann sagði vel frá og var vinur vina sinna. Aldrei var hann jafn höfðinglegur og þegar heim að Akri var komið, höndin var hlý, gestrisni var honum í blóð borin, veitingar í stofunni hjá Helgu, bikarinn fullur, hláturinn lá í loft- inu. Ég sé hann standa á tröpp- unum glaðan og reifan, Pálmi er kominn heim. Við Margrét kveðj- um hann með virðingu og þökk. Guðni Ágústsson. Gamall vinur, Pálmi Jónsson á Akri, er kvaddur í dag. Síðan hann lést hef ég verið að hugsa um okkar kynni. Þau teygja sig hálfa öld aftur í tímann til Ak- ureyrar þegar þar var þing Sam- bands ungra sjálfstæðismanna á Norðurlandi. Með Pálma í för voru Stefán Jónsson á Kagaðar- hóli og Erlendur Eysteinsson á Beinakeldu, síðar bóndi á Stóru- Giljá. Góð kynni tókust með okk- ur Stefáni og Erlendi sem héld- ust þótt fundir yrðu stopulir. Það er margs að minnast. Kærust er mér minningin um það, þegar Helga og Pálmi buðu okkur Kristrúnu og Pétri syni okkar fjögurra ára að gista á Akri. Þetta var að vetrarlagi, hríðarveður og færð fór versn- andi. Pálmi beið mín á vegamót- unum. Heima á Akri var glatt á hjalla. Hann hafði boðið til sín vinum sínum svo að slegið var upp hraðskákmóti. Í fyrstu skák- inni mætti ég Jónasi Halldórs- syni á Leysingjastöðum, firna- sterkum skákmanni. Og það óvænta gerðist að ég vann skák- ina. Þá kom Pétur litli til mín og kyssti mig á kinnina án þess að segja orð. Forsagan var sú, að Pálmi Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.