Feykir - 31.05.2012, Síða 10
IO 21/2012
Fjölbrautaskóla Noróurlands vestra slitið
65 nemendur brautskráöust
Sagt er frá því á vef Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra að skólanum var slitið að viðstöddu
fjölmenni síðastliðinn laugardag við hátíðlega
athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í 33. sinn.
Alls brautskráðust 65 nemendur. Skólameistari,
Ingileif Oddsdóttir, setti athöfnina og fjallaði m.a. um
stöðu skólans og viðleitni hans til að mæta þörfum
atvinnulífsins fyrir aukna menntun.
Ásbjörn Karlsson, áfangastjóri, flutti vetrarannál
þar sem stiklað var á stóru í viðfangsefnum skólans
á síðasta skólaári. Þar kom m.a. fram að nemendur á
haustönn voru 405, en 532 á vorönn. Alls hefur 601
nemandi sótt nám til skólans á þessu skólaári.
Pálmi Geir Jónsson flutti ávarp nýstúdenta. Garðar
Víðir Gunnarsson flutti ávarp 10 ára stúdenta, Heiðdís
Lilja Magnúsdóttir flutti ávarp 20 ára stúdenta,
Kristín Aðalheiður Símonardóttir flutti ávarp 25 ára
stúdenta og Knútur Aadnegaard flutti ávarp 30 ára
brautskráningarnema. Margrét Petra Ragnarsdóttir
flutti tvö lög við undirleik Jakobs Loga Gunnarssonar
og þá flutti Sveinn Rúnar Gunnarsson sömuleiðis tvö
lög.
Anna Rún Þorsteinsdóttir hlaut flestar viður-
kenningar fyrir námsárangur en á heimasíðu FNV má
sjá allar upplýsingar um viðurkenningar nemenda og
ýtarlegri frásögn frá útskrift ardeginum.
/ÓAB Heimild: fnv.is
Við óskum ykkurtil hamingju m
Ártorgi 7 550 Sauðárkrókur © 455 4500 www.ks.is