Morgunblaðið - 16.01.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 16.01.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 AðalfundurViðskiptaráðs 2018 Miðvikudaginn 14. febrúar kl. 9.00 á Hilton Reykjavík Fulltrúum allra aðildarfélaga Viðskiptaráðs Íslands er heimilt að sækja fundinn. Frestur til að koma lagabreytingatillögum til stjórnar er þremur vikum fyrir auglýstan fund. Dagskrá aðalfundar er samkvæmt 9. grein laga ráðsins: 1. Skýrsla stjórnar 2. Reikningar bornir upp til samþykktar 3. Úrslit formanns- og stjórnarkjörs tilkynnt 4. Lagabreytingar 5. Kosning kjörnefndar 6. Tekju- og gjaldaáætlun kynnt og árgjöld ákvörðuð 7. Önnur mál Nánari upplýsingar um aðalfund, stjórnarkjör og atkvæðagreiðslu má finna á vi.is VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS -stofnað 1917- „Það er í raun bara alger pattstaða uppi og lítið annað að frétta en það að við ætlum að funda hjá ríkissátta- semjara,“ segir Guðríður Arnardótt- ir, formaður Félags framhaldsskóla- kennara, í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til þess að kjarasamningar félagsmanna í Fé- lagi framhaldsskólakennara og Fé- lagi stjórnenda í framhaldsskólum eru nú lausir og munu fulltrúar þeirra funda í húsakynnum ríkis- sáttasemjara í dag, en fundurinn hefst klukkan 9. „Það er nákvæmlega ekkert á borðinu og ég get ekki sagt að það sé nokkur gangur í neinum viðræðum,“ segir hún og bætir við að hún eigi því ekki von á „nein- um stórtíðindum“ eftir fundinn hjá ríkissáttasemj- ara. „Við förum fram á að fá sömu hækkun og aðrir hópar og að launaþróun okkar verði ekki síðri en almenn launaþró- un í landinu,“ segir Guðríður og bæt- ir við að launakröfur kennara séu „ábyrgar og hóflegar“ en að auki leggja þeir áherslu á tæknileg atriði á borð við breytingar á nýju vinnu- matskerfi. khj@mbl.is Pattstaða uppi hjá kennurum  Funda hjá ríkissáttasemjara í dag Guðríður Arnardóttir Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður um- hverfis- og skipulagsráðs, telur samning Reykjavíkurborgar og rík- isvaldsins um árlegt eins milljarðs króna framlag ríkisins til samgöngu- bóta hafa verið mikilvægan. Eyþór Arnalds, frambjóðandi í leiðtoga- prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, skrifaði grein í Morg- unblaðið í gær þar sem hann sagði að ákvörðun Reykjavíkurborgar að nýta féð í strætóferðir frekar en nauðsynlegar framkvæmdir á stofn- brautum hefði ekki skilað tilsettum árangri. „Ég tel að þetta hafi verið merki- legur og mikilvægur samningur og held það sé ekkert annað í stöðunni hérna á höfuðborgarsvæðinu en að efla almenningssamgöngur. Allir út- reikningar sem liggja að baki bæði aðalskipulagsgerðinni og svæðis- skipulaginu sýna það,“ segir Hjálm- ar og bætir við að þar með sé ekki sagt að það eigi ekki að vera hægt að keyra bíla í borginni. „Þvert á móti; eftir því sem fleiri nota almennings- samgöngur léttist bílaumferðin,“ segir Hjálmar. Spurður hvort hann telji að fjárveitingarnar hafi skilað árangri í að fjölga farþegum strætó segir hann alltaf mega gera betur. „Auðvitað hefðum við gjarnan vilj- að sjá miklu meiri aukningu en virð- ist hafa orðið í almennings- samgöngum. Strætó er nú að bregðast við því með því meðal ann- ars að fjölga ferðum,“ segir Hjálmar og bendir á að leið 1 og leið 6 fari nú á 10 mínútna fresti yfir háannatíma. „Það þýðir að þú getur gengið út að strætó og veist að þú munst ekki bíða meira en sex til sjö mínútur að með- altali. Í öðru lagi var samþykkt að keyra strætó lengur á kvöldin og svo eru næturvagnarnir byrjaðir að keyra á ákveðnum leiðum.“ Farþegum fjölgar á hverju ári Jóhannes Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs., segir að strætónotendum hafi fjölgað mjög. Strætó notast við fjölda svonefndra innstiga í aðsóknarmælingum sínum. Samkvæmt því fjölgaði ferðum far- þega um 4-6% á ári frá árinu 2009. Árið 2012 voru 9,6 milljónir innstiga í strætó en 11,2 milljónir árið 2016. Bráðabirgðatölur fyrir 2017 sýna um 11,6 milljónir ferðir farþega. „Eyþór er að vísa í ferðavenjur sem hafa ver- ið 4% frá 2009. Fólk notar sömu ferðavenjur til að komast til og frá vinnu og í skóla t.d. Sú tala hefur ekkert breyst, en innstigum hefur fjölgað verulega og tekjurnar hafa þá líka aukist verulega. Ferðavenj- urnar hafa lítið breyst og það eru svosem ákveðin vonbrigði,“ segir Jó- hannes. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri-grænna, segist afar hlynnt því að árlegi styrkurinn frá ríkinu sé nýttur í almenningssamgöngur og segir að þjónusta Strætó hafi aukist á tímabilinu. „Strætó ekur oftar á há- annatíma, leiðum hefur fjölgað og við erum að lengja tímann sem strætó er í akstri,“ segir Líf. „Eyþór segir í greininni að 96% ferðist með fólksbíl en það er ekki rétt, þetta eru bara vitlausar tölur. Það eru rétt rúmlega 70% ferða. Fólk velur sér sífellt fjöl- breyttari fararskjóta eins og t.d. reiðhjól, gengur meira eða notar al- menningssamgöngur. Þetta er allt að aukast.“ Bendir hún á að áætlað sé að íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgi um 70 þúsund fyrir árið 2040 og því verði að huga að umhverfis- vænum almenningssamgöngum. „Allt þetta fólk vill komast á milli staða með öruggum og skjótum hætti. Borgarlínan er bara enn einn fararskjótinn, það er engin bylting í almenningssamgöngum. Byltingin í almenningssamgöngum er fjöl- breytnin. Þeir sem þurfa að reiða sig á einkabílinn geti þá það en fjöl- breytnin léttir jafnframt á umferð- arkerfinu og fólk getur valið sér um- hverfisvænan farkost.“ Morgunblaðið/Hari Strætó Ferðum strætó fjölgaði á árinu og vonast borgarmeirihlutinn í Reykjavík til að fleiri nýti sér þann farkost. Farþegum fjölgar en ferðavenjur eins  Telur samninginn við ríkið hafa verið mikilvægan Tilraunaverkefni Strætó bs. um að bjóða upp á næturstrætó fór af stað um helgina og segir Jó- hannes Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó bs., að verkefnið hafi gengið ljómandi vel. „Við erum bara að taka saman tölur. Nýtingin var mis- munandi en stóðst alveg vænt- ingar en við viljum kannski sjá aðeins fleiri,“ segir Jóhannes. Hann segist hafa fengið jákvæð viðbrögð en jafnframt verður fylgst með verkefninu og tekið stöðumat eftir þrjá mánuði. Næturstrætó fer af stað STÖÐUMAT EFTIR 3 MÁNUÐI Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann á fertugsaldri, Eldin Skoko, í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu aðfara- nótt laugardagsins 1. júlí í síðasta ári. Einnig þarf hann, skv. dómnum, að greiða konunni 1,5 millj. kr. í miskabætur, auk vaxta. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa komið að konunni þar sem hún lá kastandi upp fyrir utan skemmtistað, farið með hana inn í íbúð og lagt í rúm. „Hafi hann þannig notfært sér að stúlkan gat ekki spornað við kyn- ferðismökunum sökum máttleysis- ástands og slævðrar meðvitundar hennar, auk þess sem hann notfærði sér að hún var einsömul, í ókunnugu húsnæði, sem hann hafði sjálfur fært hana í, og að hann var henni ókunnugur,“ segir Héraðsdómur. Maðurinn neitaði því að hafa haft samræði við konuna. Hélt því fram að mökin hefðu verið með fullu sam- þykki hennar. Meðal gagna sem lögð voru fram fyrir dómi í máli þessu var vottorð Kristbjargar Þórisdóttur sálfræð- ings. Þar segir að brotaþoli hafi upp- lifað mikla ógn, ofsaótta og bjargar- leysi í kynferðisbroti þessu og upplifað áfallastreitueinkenni sem varað hafi lengi. Sálræn einkenni hennar í kjölfar áfallsins samsvari einkennum sem eru þekkt hjá fólki sem hefur upplifað alvarleg áföll eins og líkamsárás, nauðgun og stórslys. Víðtæk áhrif á líðan „Ekki er hægt að segja til um með vissu hver áhrif meints kynferðis- brots verða þegar til lengri tíma er litið en ljóst þykir að atburðurinn hafði víðtæk áhrif á líðan,“ segir í skýrslu sálfræðingsins. Þar kom einnig fram að brotaþoli hefði eftir umræddan atburð átt erfitt með svefn og einbeitingu, bæði í námi og daglegu lífi að öðru leyti. Jafnframt hefði hún átt erfitt með að ræða um atburðinn við sína nánustu. Tók sál- fræðingurinn fram sem vitni fyrir dómi að brotaþoli fyndi enn afleið- ingar af meintu kynferðisbroti, en engu væri þó hægt að spá um hverjar afleiðingar þess yrðu til lengri tíma litið. Notfærði sér ölvunarástand  Fangelsi í tvö og hálft ár fyrir nauðgun „Þessi lægð ætl- ar að vera þrá- lát,“ segir Helga Ívarsdóttir, veð- urfræðingur hjá Veðurstofu Ís- lands. Veður- stofan spáir versnandi veðri nú í morgunsárið með norðvestan hvassviðri eða stormi og snjókomu norðan- og vestanlands, fyrst á Vestfjörðum. Á þessum slóðum má búast við mjög lélegu skyggni á köflum og er fólki ráðlagt að sýna aðgát og fylgjast vel með spám og færð. Óvissustig vegna snjóflóða var enn í gildi á norðanverðum Vestfjörðum í gær- kvöld. Helga veðurfræðingur sagði í samtali við mbl.is í gær að þetta slæma veður næði að líkindum inn á höfuðborgarsvæðið. Líklega yrði veðrið verst þar síðdegis, milli klukkan 14 og 16. „Það gæti skollið á með hvassri norðvestanátt og of- ankomu. En þetta ætti ekki að standa lengi yfir,“ segir Helga. Á Suður- og Austurlandi verði að mestu þurrt. Veðrið mun svo ganga niður er líður á daginn, fyrst vestantil á landinu. Vetrarveður Lægð yfir landinu. Þrálát lægð yfir landinu Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjar- stjóri á Akureyri, ætlar ekki að sækjast eftir embættinu áfram að loknum bæjarstjórnarkosningum. Hann hefur setið á stóli bæjarstjóra frá 2002; fyrst tvö kjörtímabil á Eg- ilsstöðum og tíminn á Akureyri verð- ur orðinn jafnlangur þegar kosið verður í vor. Var ráðinn nyrðra 2010 þegar Listi fólksins náði meirihluta í bæjarstjórn. „Þetta er orðinn ágæt- ur tími, krefjandi starf en mjög skemmtilegt,“ sagði Eiríkur í gær. „Ég held öllu opnu varðandi framhaldið og veit að reynsla mín og þekking nýtist áfram til góðra verka hvar sem það verður.“ Eiríkur Björn Björgvinsson Eiríkur situr ekki áfram

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.