Morgunblaðið - 16.01.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
✝ Svavar Gunn-ar Sigurðsson
fæddist á Ísafirði
29. ágúst 1935.
Hann lést á heim-
ili sínu í Gauta-
borg í Svíþjóð 19.
desember 2017.
Foreldrar hans
voru Sigurður
Pétursson, f.
1893, d. 1957, og
Gróa Bjarney Sal-
ómonsdóttir, f. 1897, d. 1982.
Alsystkini Svavars voru Pét-
ur, f. 1931, og Helga Guðrún,
f. 1934, d. 2014. Hálfsystkini,
samfeðra, tvíburarnir Guð-
rún Guðríður, f. 1924, og
Guðmundur Jósep, f. 1924, d.
1992.
Árið 1955 kvæntist Svavar
Ernu Sörensen frá Ísafirði, f.
1936. Foreldrar hennar voru
Arne Sörensen, f. 1899, d.
1973, og Sigríður Árnadóttir,
f. 1906, d. 1977. Svavar og
Erna eignuðust sex börn:
Kolbrúnu H., f. 1955; Sigríði,
f. 1957; dreng, f.
1959, d. sama ár;
Gunnar Örn, f.
1961, d. 1990;
Óttar Rúnar, f.
1965; Bjarna, f.
1966, d. sama ár.
Þau skildu árið
1976. Sama ár
fluttist Svavar til
Svíþjóðar og gift-
ist þar Britt Sig-
urðsson, f. 1939,
sem lifir mann sinn. Sonur
hennar er Jörgen Hanson, f.
1965.
Svavar lauk námi frá Iðn-
skólanum í Reykjavík og
sveinsprófi í bifvélavirkjun
1958 og starfaði þar til árs-
ins 1960. Rak eigið verkstæði
á Ísafirði þar til hann gerðist
hluthafi í Bílaverkstæði Ísa-
fjarðar. Hann var bifvéla-
virki í Gautaborg frá 1976.
Útför Svavars fer fram frá
Lundby Gamla Kyrka í
Gautaborg í dag, 16. janúar
2018, kl. 14.
Í dag er komið að kveðju-
stund, er ég fylgi elsku afa mín-
um til hinstu hvílu. Svavar afi,
sem var oftast kallaður „afi í Sví-
þjóð“, hefur nú hlotið hvíld frá
lífsins baráttu og er farinn til
endurfunda við syni sína sem á
undan eru gengnir. Ég er Guði
þakklátur fyrir að hafa gefið mér
hann, þó minningarnar væru ef-
laust fleiri, ef hafið hefði ekki að-
skilið okkur vinina öll mín 40 ár.
Afi hafði um nokkurt skeið átt
við mikil veikindi að stríða og
barðist af miklum hug en ég átti
þó ekki von á því að endataflið
yrði eins stutt og raun varð.
Afi flutti til Svíþjóðar áður en
ég fæddist. Þar giftist hann
Britt, seinni konu sinni. Man ég
óljóst eftir heimsóknum mínum
til þeirra með móður minni og
Kollu systur hennar og svo síðar
með mömmu og pabba fyrstu ár-
in mín. Afi kom nokkuð reglu-
lega til landsins mín uppvaxtar-
ár fyrir vestan og var þá alltaf
mikil tilhlökkun hjá mér við
hverja heimsókn. Það var alltaf
mjög gaman að fá póstkort frá
honum, stíluð á mig, þegar hann
var á ferðalagi með Britt, eða á
sólarströnd, en honum fannst
gott að komast í hitann eins og
öðrum Íslendingum. Ég passaði
vel upp á þessi póstkort og
hengdi þau upp á korktöfluna í
herberginu mínu. Þannig var afi
mér nærri og fannst mér þetta
tengja okkur á ákveðinn hátt.
Þegar ég var á 11. ári, fórum
við Erna systir mín með mömmu
að heimsækja afa og Britt og sú
ferð er mér ljóslifandi í dag. Þar
lék afi við hvern sinn fingur í því
hlutverki sem hann fékk of sjald-
an að leika með okkur barna-
börnunum. Árið 1999 fór ég einn
til Gautaborgar í heimsókn og
var sú ferð mjög eftirminnileg
og skemmtileg. Kannski kynnt-
ist ég afa best þar, því þá höfðum
við góðan tíma saman og kynnt-
umst hvor öðrum betur. Við spil-
uðum golf saman í þeirri ferð og
áttum góð samtöl við morgun-
verðarborðið og á rölti niður í
bæ, þegar hann sýndi mér þá
staði sem ég hafði heimsótt með
honum þegar ég var yngri. Eftir
þetta átti afi eftir að koma í
nokkrar heimsóknir til Íslands.
Sú síðasta var árið 2014, þeg-
ar hann kom til að fylgja Helgu
systur sinni til hinstu hvílu.
Ekki vissi ég þá að þetta væru
mínar síðustu stundir í návist
hans. Þó átti ég eftir að eiga
fleiri samtöl við hann í síma,
enda hringdi hann alltaf á að-
fangadag til að óska mér til
hamingju með afmælið og óska
gleðilegra jóla. Ég er mjög
þakklátur fyrir að afi fékk tæki-
færi til að hitta tvo elstu dreng-
ina okkar Ragnheiðar, en hann
færði þeim úr, í síðustu heim-
sókn sinni árið 2014, sem verða
vel geymd um ókomna tíð.
Nú er runnin upp sú stund
sem ekki er hægt að venjast né
verjast. Að kveðja afa verður
erfitt, því þrátt fyrir margar
góðar og skemmtilegar minn-
ingar um afa minn, sem ég er
Guði óendanlega þakkátur fyr-
ir, þá eru svo margar stundirn-
ar, sem maður óskar að hefðu
orðið, en ekki gafst tækifæri til
að eiga með honum. Minning-
arnar munu ylja mér um
ókomna tíð. Blessuð sé minning
afa míns.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á feginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró,
hinum líkn, er lifa.
(Úr Sólarljóðum)
Haukur Örn Davíðsson.
Svavar Gunnar
Sigurðsson
Fleiri minningargreinar
um Svavar Gunnar Sigurðs-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
✝ GuðlaugL.Gísladóttir
fæddist í Reykja-
vík 6. janúar 1922.
Hún lést á Hrafn-
istu í Reykjavík 3
janúar 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Gísli Sig-
urðsson og Anna
Einarsdóttir. Guð-
laug var fimmta í
röðinni af níu
systkinum. Gunnar Björgvin
lifir einn systur sína. Guðlaug
ólst upp á Óðinsgötu 16 (Klapp-
arholti) í Reykjavík. Þegar hún
stálpaðist aðstoðaði hún á
heimilinu utan einn vetur er
rún er gift Eiríki Inga Frið-
geirssyni og eiga þau tvö börn:
a) Friðgeir Ingi, giftur Söru
Dögg Ólafsdóttur. Þeirra börn
Julian Ingi, Ýmir og Kría. b)
Guðlaug Björk.
Guðlaug og Sigurður bjuggu
allan sinn búskap að Skeiðar-
vogi 22. Guðlaug var heima-
vinnandi framan af. Í kringum
1970 hóf hún vinnu í mötuneyti
Eimskipafélagsins og vann þar
til sjötugs. Sigurður lést árið
2001. Guðlaug bjó áfram í
Skeiðavoginum og þá oftast
með barnabörnin í kjallaranum
sem studdu hana og síðustu ár-
in sem hún bjó heima naut hún
stuðnings frá dótturdóttur
sinni Guðlaugu. Um mitt ár
2012 flytur Guðlaug svo á
Hrafnistu, þá komin með Alz-
heimer.
Útför Guðlaugar fer fram
frá Langholtskirkju í dag, 16.
janúar 2018, klukkan 13.
hún fór í hús-
mæðraskóla á Ísa-
firði. Þann 6. jan-
úar 1950 giftist
Guðlaug Sigurði
M. Jónssyni og
eignuðust þau tvö
börn: 1) Jón, sem
er giftur Eyrúnu
Hafsteinsdóttur,
eiga þau tvo syni:
a) Sigurður Magn-
ús, giftur Herdísi
Þorláksdóttur. Þeirra synir eru
Jakob Örn, Rafnar Örn, Óttar
Örn og Ívar Örn. b) Árni Þór,
giftur Írisi Hrönn Krist-
insdóttur. Þeirra börn eru Axel
Ingi og Lilja Guðrún. 2) Guð-
Nú hefur hún mamma kvatt
þennan heim, í hárri elli og þjök-
uð af Alzheimer. Hana vantaði að-
eins þrjá daga upp á 96 ár afmæl-
isdaginn. Hún lifði svo
sannarlega tímana tvenna. Fædd
árið 1920 í Reykjavík og ólst upp
á Óðinsgötunni (Klapparholti).
Hún talaði alltaf um Óðinsgötuna
með mikilli lotningu. Mamma var
alltaf í góðu sambandi við systkini
sín og þá sérstaklega voru þær
Dóra nánar. Gunnar „bróðir“ lifir
einn systur sína orðin 92 ára gam-
all. Mamma var ekki aðeins í góðu
sambandi við systkini sín, hún
ræktaði „frændgarðinn“ þeirra
pabba vel alla tíð meðan heilsan
leyfði. Og á ég ófáar minningar
um að fara með þeim austur á Sel-
foss, Stokkseyri eða að Minna-
Hofi. Í berjamó vestur á Hellis-
sand, eða bara að heimsækja ein-
hvern hér í bænum. Hún var líka
höfðingi heim að sækja, alltaf var
til nægur matur og alltaf fullt af
„bakkelsi“. Ef farið var á skauta á
Tjörninni, þá var sama hvort ég
kom með fimm eða tíu með mér
heim allir fengu heitt kakó og alls
konar kökur. Voru pönnukökurn-
ar hennar og konungsættin eitt-
hvað sem enginn gat gert eins vel
og hún. Svo var það garðurinn,
kartöfluræktin, rabarbarinn og
öll handavinnan.
Mamma byrjaði snemma að
hjálpa til heima hjá sér. Og sagð-
ist þar hafa gengið í öll störf. Hún
var síðan einn vetur á húsmæðra-
skóla á Ísafirði og þar kynntist
hún sínum bestu vinkonum og þar
á meðal henni Gauju en þær voru
bestu vinkonur alla tíð. Ég verð
einnig að minnast á aðra góða vin-
konu mömmu, hana Diddu, en
þær hafa þekkst lengi, voru ná-
grannar í Skeiðarvoginum, ég
held að það megi segja að þær
hafi drukkuð vikulega morgun-
kaffi hvor hjá annarri í nærri 60
ár.
Árið 1950 giftu þau pabbi sig
og fluttu í Skeiðarvog 22. Framan
af var mamma heimavinnandi, en
í kringum 1970 fór hún að vinna í
mötuneyti Eimskipafélagsins og
vann þar óslitið þar til hún varð
sjötug. Pabbi var þá orðinn sjúk-
lingur og hann dó 2001. Síðustu
tvö árin sem hann lifði dvaldi
hann á Droplaugarstöðum og
reyndist það mömmu erfitt að
geta ekki haft hann heima. Alla
tíð leigðu þau út frá sér kjallar-
ann og þar bjuggu margir, sem
héldu alltaf tryggð við þau. Öll
barnabörnin hófu líka búskap í
kjallaranum, og hafði amma
„auga“ með þeim. Enn síðustu ár-
in hennar í Skeiðarvoginum snér-
ist þetta við, þá bjó dóttir mín í
kjallaranum, og aðstoðaði hún
ömmu sína af fremsta megni og
fyrir hennar tilstilli gat mamma
búð lengur heima.
Um vorið 2012 var mamma
orðin það veik að hún gat ekki
lengur búið heima. Hún flutti þá á
Hrafnistu í Reykjavík. Fyrsta ár-
ið hennar þar var sæmilegt, enn
eftir það fór henni mikið hrakandi
og hafði sjúkdómurinn farið um
hana hörðum höndum. Hún var
ekki í jafnvægi og leið greinilega
ekki vel. Erfitt var að horfa á
hana hverfa smátt og smátt frá
okkur.
Ég kveð þig, elsku mamma.
Hvíl í friði.
Þín dóttir
Guðrún.
Guðlaug amma og langamma
kvaddi okkur í upphafi árs, þrem-
ur dögum fyrir 96 ára afmælið
sitt. Hún lifði í næstum heila öld.
Við Siggi hófum okkar sambúð í
kjallaranum á Skeiðarvogi 22, hjá
Guðlaugu og Sigurði, ömmu og
afa mannsins míns, þar leið okkur
vel. Þar gekk ég með okkar fyrsta
barn af fjórum sem jafnframt var
fyrsta langömmubarnið, hann
Jakob Örn. Amma var mikil
veislumanneskja, hélt þær ófáar
og lét sig ekki vanta í aðrar veisl-
ur. Amma var ávallt vel til höfð,
fór ekki í vikuinnkaupin nema
fara í lagningu fyrst og á kjörstað
fór hún ekki nema í háum hælum
með varalit. Guðlaug amma var
alltaf hress, brosandi og með
skellandi hlátur. Henni þótti það
meiriháttar sniðugt að við tvær
skyldum vera með sama kven-
sjúkdómalækni, ég þá 22 ára en
hún 74 ára. Mér þótti það pínu
skrítið en hún hló. Okkur og öll-
um strákunum okkar, Jakobi,
Rafnari, Óttari og Ívari, þótti gott
að koma til langömmu, hún hafði
svo góða nærveru, svo átti hún
alltaf kremkex og súkkulaði-
rúsínur og ósjaldan var skellt í
pönnukökur. En amma hataði
ketti meira en allt. Þeir vissu það
og sóttu sérstaklega heim að hús-
inu. Hún var alltaf tilbúin með
vatnsglas í glugganum og skvetti
hiklaust á þá og ef vatnsglasið
dugði ekki hótaði hún garðslöng-
unni. Þeim var sama, þeir komu
alltaf aftur. Ég skildi þetta ekki
en gekk í lið með henni einn dag-
inn þegar köttur komst inn í kjall-
arann og rústaði fyrsta prjóna-
gallanum mínum á ófædda
barnið. Hnykillinn lá um allan
kjallara. Prjónagallinn fór í ruslið
og við Guðlaug amma byrjuðum
upp á nýtt. Þegar Jakob dó 10 ára
gamall upplifði ég mikla breyt-
ingu á ömmu. Hún var orðin 86
ára gömul og þetta var mikið
áfall. Hún fór í meiri mæli að
muna gamla tíma og mundi það
sem hafði gerst áður en hann dó
en ekki eftir það. Hún þekkti mig
alltaf en var farin að kalla mig
konuna hans Sigga og þegar ég
sagði henni nafnið mitt svaraði
hún „já, ég veit það“ og hló. Hún
hélt stundum að Rafnar væri
Siggi og alltaf hafði hún orð á því
hvað henni fannst Siggi myndar-
legur. Þegar Siggi tók hólinu hló
hún hátt. Henni fannst líka eins
og hún sagði sjálf „strákarnir
hans Sigga svo sniðugir og
skemmtilegir“ þótt hún gæti ekki
munað nöfnin þeirra. Það var nóg
fyrir okkur. Þannig var amma.
Við kveðjum ömmu og langömmu
með þakklæti fyrir þá ást, velvild
og hlýju sem hún sýndi okkur
alltaf og vonum að Sigurður afi og
Jakob Örn hafi tekið á móti henni
með afmælisveislu í hennar anda
á góðum stað.
Herdís Þorláksdóttir.
Elsku amma Lauga lést 3. jan-
úar síðastliðinn. Þú varst alltaf
svo glæsileg og vel til höfð. Allt
fram á síðasta dag. Ég skildi það
lengi vel ekki hvaða nafn var á
hurðinni í Skeiðarvogi 22 – Guð-
laug Lilja Gísladóttir, þú varst
amma Lauga.
Það var einhvern veginn allt
svo glæsilegt í þínu fari. Lengi vel
skildi ég ekkert við hvað var átt
þegar þú fórst í lagningu, þú fórst
ekki í klippingu eða hárgreiðslu,
þú fórst í lagningu. Hárið svo
glansandi og fínt, allt fram á síð-
asta dag.
Í Skeiðarvogi 22, stórt og flott
heimili sem þú hélst svo glæsi-
legu alla tíð. Í Skeiðarvoginum
voru borðtuskur og viskustykki
straujuð, allt í þágu glæsileikans.
Á þessu tímamótum hef ég
hugsað til þess hversu stóru hlut-
verki Skeiðarvogur gegndi í mínu
lífi, óteljandi gistinætur á yngri
árum (og ekki þurfti að binda mig
við girðinguna, ég fór aldrei upp á
götu), enski boltinn með afa og
Bjarna Fel, poppkornið, sund-
ferðirnar þar sem ég kynntist
vinum afa sem af og til löbbuðu
óvart naktir út í laug, við gátum
hlegið að því, ristað brauð með
marmelaði og osti, steiktar kóte-
lettur (fæ vatn í munninn), seinna
gisti ég á verslunarskólaárunum
við próflestur og annað dekur, og
að lokum þegar ég bjó í kjallaran-
um með Herdísi í rúm tvö ár áður
en Jakob Örn fæddist og við flutt-
um í Kópavoginn. Þetta eru góðar
minningar.
Skeiðarvogurinn skipaði líka
stóran sess í veisluhöldum, og
glæsilegar veislur kunnir þú að
halda. Afmælið þitt á þrettándan-
um, þétt setið húsið, fullt út úr
dyrum af ættingjum og vinum.
Borðin gáfu næstum eftir með
glæsilegum kræsingum.
Draumatertan, smákökurnar,
flatkökur með hangikjöti og Kon-
ungsættin, maður lifandi, ég fæ
vatn í munninn.
Veislurnar á sunnudögum, þar
sem sunnudagstertan var alltaf
tilbúin, en afi borðaði aldrei
kremið, ég fékk það oftast á minn
disk. Ég gleymi því svo aldrei
þegar ljósakrónan hrundi niður á
borðstofuborðið, þvílík læti. Og
hvað við vorum hissa.
Þær eru skemmtilegar minn-
ingarnar úr Skeiðarvoginum,
hvort sem maður var að gramsa í
dótinu upp á skör, leika sér á for-
tóinu eða úti á altani.
Ég keyri ennþá Skeiðarvoginn
og athuga hvort einhver sé heima
eða einhver í heimsókn.
Ferðirnar sem ég fór í Eim-
skip, þar sem þú stjórnaðir mötu-
neytinu af myndarskap, þar var
alltaf hægt að fá ristað brauð með
marmelaði og osti, og stundum,
ég held oftast, laumaðirðu vasa-
pening á strákinn sem þurfti líka
að fá sér pulsu á bæjarins bestu.
Þú varst alltaf svo glöð að sjá
mann, og þó það væri brjálað að
gera, þá gafstu þér alltaf tíma.
Ferðirnar með ykkur afa aust-
ur á Hof i sveitina til Madda
frænda, sem ég fyrirgaf aldrei
fyrir að rífa nýju smekkbuxurnar
mínar, með viðkomu á Selfossi
hjá Ásgeiri og fjölskyldu. Þessi
hringur í sveitina var tekinn oft í
minningunni.
Eins og Óttar sonur minn
sagði þegar ég sagði honum að þú
værir farin, þú færð að hitta kær-
astann þinn aftur og Jakob. Þú
ert á góðum stað í góðum fé-
lagskap. Ég bið að heilsa þeim.
Mig langar að lokum að segja
þér hversu góð áhrif þú hafðir á
mig og mitt líf.
Kveðja.
Þinn
Sigurður (Siggi).
Guðlaug Lilja
Gísladóttir
Fleiri minningargreinar
um Guðlaugu Lilju Gísladótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR
verslunarkona,
Borgarnesi,
sem lést á heimili sínu, Böðvarsgötu 6 í
Borgarnesi, þriðjudaginn 2. janúar, verður
jarðsungin frá Borgarneskirkju föstudaginn
19. janúar klukkan 14.
Sigurður Halldórsson Ásta Kristín Guðmundsdóttir
Brynjúlfur Halldórsson Vigdís Hallgrímsdóttir
Hlynur Snær, Sigurlaug, Bryndís, Brynjar Tumi, Elín Ásta
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAREL JÓHANN JÓNSSON
prentari,
Súlunesi 6, Garðabæ,
lést föstudaginn 12. janúar á Land-
spítalanum, Fossvogi.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ, föstudaginn
19. janúar klukkan 13.
Ragna Guðmundsdóttir
Jóhann Kristinn Marelsson Eydís Helgadóttir
Rannveig Inga Marelsdóttir Baldvin Ómar Magnússon
Íris Marelsdóttir Árni Ingólfsson
Bergsveinn Marelsson Rósa Björg Óladóttir
Sigrún Marelsdóttir Tryggvi Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn