Morgunblaðið - 16.01.2018, Page 23

Morgunblaðið - 16.01.2018, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 ✝ Svavar Gunn-ar Sigurðsson fæddist á Ísafirði 29. ágúst 1935. Hann lést á heim- ili sínu í Gauta- borg í Svíþjóð 19. desember 2017. Foreldrar hans voru Sigurður Pétursson, f. 1893, d. 1957, og Gróa Bjarney Sal- ómonsdóttir, f. 1897, d. 1982. Alsystkini Svavars voru Pét- ur, f. 1931, og Helga Guðrún, f. 1934, d. 2014. Hálfsystkini, samfeðra, tvíburarnir Guð- rún Guðríður, f. 1924, og Guðmundur Jósep, f. 1924, d. 1992. Árið 1955 kvæntist Svavar Ernu Sörensen frá Ísafirði, f. 1936. Foreldrar hennar voru Arne Sörensen, f. 1899, d. 1973, og Sigríður Árnadóttir, f. 1906, d. 1977. Svavar og Erna eignuðust sex börn: Kolbrúnu H., f. 1955; Sigríði, f. 1957; dreng, f. 1959, d. sama ár; Gunnar Örn, f. 1961, d. 1990; Óttar Rúnar, f. 1965; Bjarna, f. 1966, d. sama ár. Þau skildu árið 1976. Sama ár fluttist Svavar til Svíþjóðar og gift- ist þar Britt Sig- urðsson, f. 1939, sem lifir mann sinn. Sonur hennar er Jörgen Hanson, f. 1965. Svavar lauk námi frá Iðn- skólanum í Reykjavík og sveinsprófi í bifvélavirkjun 1958 og starfaði þar til árs- ins 1960. Rak eigið verkstæði á Ísafirði þar til hann gerðist hluthafi í Bílaverkstæði Ísa- fjarðar. Hann var bifvéla- virki í Gautaborg frá 1976. Útför Svavars fer fram frá Lundby Gamla Kyrka í Gautaborg í dag, 16. janúar 2018, kl. 14. Í dag er komið að kveðju- stund, er ég fylgi elsku afa mín- um til hinstu hvílu. Svavar afi, sem var oftast kallaður „afi í Sví- þjóð“, hefur nú hlotið hvíld frá lífsins baráttu og er farinn til endurfunda við syni sína sem á undan eru gengnir. Ég er Guði þakklátur fyrir að hafa gefið mér hann, þó minningarnar væru ef- laust fleiri, ef hafið hefði ekki að- skilið okkur vinina öll mín 40 ár. Afi hafði um nokkurt skeið átt við mikil veikindi að stríða og barðist af miklum hug en ég átti þó ekki von á því að endataflið yrði eins stutt og raun varð. Afi flutti til Svíþjóðar áður en ég fæddist. Þar giftist hann Britt, seinni konu sinni. Man ég óljóst eftir heimsóknum mínum til þeirra með móður minni og Kollu systur hennar og svo síðar með mömmu og pabba fyrstu ár- in mín. Afi kom nokkuð reglu- lega til landsins mín uppvaxtar- ár fyrir vestan og var þá alltaf mikil tilhlökkun hjá mér við hverja heimsókn. Það var alltaf mjög gaman að fá póstkort frá honum, stíluð á mig, þegar hann var á ferðalagi með Britt, eða á sólarströnd, en honum fannst gott að komast í hitann eins og öðrum Íslendingum. Ég passaði vel upp á þessi póstkort og hengdi þau upp á korktöfluna í herberginu mínu. Þannig var afi mér nærri og fannst mér þetta tengja okkur á ákveðinn hátt. Þegar ég var á 11. ári, fórum við Erna systir mín með mömmu að heimsækja afa og Britt og sú ferð er mér ljóslifandi í dag. Þar lék afi við hvern sinn fingur í því hlutverki sem hann fékk of sjald- an að leika með okkur barna- börnunum. Árið 1999 fór ég einn til Gautaborgar í heimsókn og var sú ferð mjög eftirminnileg og skemmtileg. Kannski kynnt- ist ég afa best þar, því þá höfðum við góðan tíma saman og kynnt- umst hvor öðrum betur. Við spil- uðum golf saman í þeirri ferð og áttum góð samtöl við morgun- verðarborðið og á rölti niður í bæ, þegar hann sýndi mér þá staði sem ég hafði heimsótt með honum þegar ég var yngri. Eftir þetta átti afi eftir að koma í nokkrar heimsóknir til Íslands. Sú síðasta var árið 2014, þeg- ar hann kom til að fylgja Helgu systur sinni til hinstu hvílu. Ekki vissi ég þá að þetta væru mínar síðustu stundir í návist hans. Þó átti ég eftir að eiga fleiri samtöl við hann í síma, enda hringdi hann alltaf á að- fangadag til að óska mér til hamingju með afmælið og óska gleðilegra jóla. Ég er mjög þakklátur fyrir að afi fékk tæki- færi til að hitta tvo elstu dreng- ina okkar Ragnheiðar, en hann færði þeim úr, í síðustu heim- sókn sinni árið 2014, sem verða vel geymd um ókomna tíð. Nú er runnin upp sú stund sem ekki er hægt að venjast né verjast. Að kveðja afa verður erfitt, því þrátt fyrir margar góðar og skemmtilegar minn- ingar um afa minn, sem ég er Guði óendanlega þakkátur fyr- ir, þá eru svo margar stundirn- ar, sem maður óskar að hefðu orðið, en ekki gafst tækifæri til að eiga með honum. Minning- arnar munu ylja mér um ókomna tíð. Blessuð sé minning afa míns. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Haukur Örn Davíðsson. Svavar Gunnar Sigurðsson  Fleiri minningargreinar um Svavar Gunnar Sigurðs- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ GuðlaugL.Gísladóttir fæddist í Reykja- vík 6. janúar 1922. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 3 janúar 2018. Foreldrar henn- ar voru Gísli Sig- urðsson og Anna Einarsdóttir. Guð- laug var fimmta í röðinni af níu systkinum. Gunnar Björgvin lifir einn systur sína. Guðlaug ólst upp á Óðinsgötu 16 (Klapp- arholti) í Reykjavík. Þegar hún stálpaðist aðstoðaði hún á heimilinu utan einn vetur er rún er gift Eiríki Inga Frið- geirssyni og eiga þau tvö börn: a) Friðgeir Ingi, giftur Söru Dögg Ólafsdóttur. Þeirra börn Julian Ingi, Ýmir og Kría. b) Guðlaug Björk. Guðlaug og Sigurður bjuggu allan sinn búskap að Skeiðar- vogi 22. Guðlaug var heima- vinnandi framan af. Í kringum 1970 hóf hún vinnu í mötuneyti Eimskipafélagsins og vann þar til sjötugs. Sigurður lést árið 2001. Guðlaug bjó áfram í Skeiðavoginum og þá oftast með barnabörnin í kjallaranum sem studdu hana og síðustu ár- in sem hún bjó heima naut hún stuðnings frá dótturdóttur sinni Guðlaugu. Um mitt ár 2012 flytur Guðlaug svo á Hrafnistu, þá komin með Alz- heimer. Útför Guðlaugar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 16. janúar 2018, klukkan 13. hún fór í hús- mæðraskóla á Ísa- firði. Þann 6. jan- úar 1950 giftist Guðlaug Sigurði M. Jónssyni og eignuðust þau tvö börn: 1) Jón, sem er giftur Eyrúnu Hafsteinsdóttur, eiga þau tvo syni: a) Sigurður Magn- ús, giftur Herdísi Þorláksdóttur. Þeirra synir eru Jakob Örn, Rafnar Örn, Óttar Örn og Ívar Örn. b) Árni Þór, giftur Írisi Hrönn Krist- insdóttur. Þeirra börn eru Axel Ingi og Lilja Guðrún. 2) Guð- Nú hefur hún mamma kvatt þennan heim, í hárri elli og þjök- uð af Alzheimer. Hana vantaði að- eins þrjá daga upp á 96 ár afmæl- isdaginn. Hún lifði svo sannarlega tímana tvenna. Fædd árið 1920 í Reykjavík og ólst upp á Óðinsgötunni (Klapparholti). Hún talaði alltaf um Óðinsgötuna með mikilli lotningu. Mamma var alltaf í góðu sambandi við systkini sín og þá sérstaklega voru þær Dóra nánar. Gunnar „bróðir“ lifir einn systur sína orðin 92 ára gam- all. Mamma var ekki aðeins í góðu sambandi við systkini sín, hún ræktaði „frændgarðinn“ þeirra pabba vel alla tíð meðan heilsan leyfði. Og á ég ófáar minningar um að fara með þeim austur á Sel- foss, Stokkseyri eða að Minna- Hofi. Í berjamó vestur á Hellis- sand, eða bara að heimsækja ein- hvern hér í bænum. Hún var líka höfðingi heim að sækja, alltaf var til nægur matur og alltaf fullt af „bakkelsi“. Ef farið var á skauta á Tjörninni, þá var sama hvort ég kom með fimm eða tíu með mér heim allir fengu heitt kakó og alls konar kökur. Voru pönnukökurn- ar hennar og konungsættin eitt- hvað sem enginn gat gert eins vel og hún. Svo var það garðurinn, kartöfluræktin, rabarbarinn og öll handavinnan. Mamma byrjaði snemma að hjálpa til heima hjá sér. Og sagð- ist þar hafa gengið í öll störf. Hún var síðan einn vetur á húsmæðra- skóla á Ísafirði og þar kynntist hún sínum bestu vinkonum og þar á meðal henni Gauju en þær voru bestu vinkonur alla tíð. Ég verð einnig að minnast á aðra góða vin- konu mömmu, hana Diddu, en þær hafa þekkst lengi, voru ná- grannar í Skeiðarvoginum, ég held að það megi segja að þær hafi drukkuð vikulega morgun- kaffi hvor hjá annarri í nærri 60 ár. Árið 1950 giftu þau pabbi sig og fluttu í Skeiðarvog 22. Framan af var mamma heimavinnandi, en í kringum 1970 fór hún að vinna í mötuneyti Eimskipafélagsins og vann þar óslitið þar til hún varð sjötug. Pabbi var þá orðinn sjúk- lingur og hann dó 2001. Síðustu tvö árin sem hann lifði dvaldi hann á Droplaugarstöðum og reyndist það mömmu erfitt að geta ekki haft hann heima. Alla tíð leigðu þau út frá sér kjallar- ann og þar bjuggu margir, sem héldu alltaf tryggð við þau. Öll barnabörnin hófu líka búskap í kjallaranum, og hafði amma „auga“ með þeim. Enn síðustu ár- in hennar í Skeiðarvoginum snér- ist þetta við, þá bjó dóttir mín í kjallaranum, og aðstoðaði hún ömmu sína af fremsta megni og fyrir hennar tilstilli gat mamma búð lengur heima. Um vorið 2012 var mamma orðin það veik að hún gat ekki lengur búið heima. Hún flutti þá á Hrafnistu í Reykjavík. Fyrsta ár- ið hennar þar var sæmilegt, enn eftir það fór henni mikið hrakandi og hafði sjúkdómurinn farið um hana hörðum höndum. Hún var ekki í jafnvægi og leið greinilega ekki vel. Erfitt var að horfa á hana hverfa smátt og smátt frá okkur. Ég kveð þig, elsku mamma. Hvíl í friði. Þín dóttir Guðrún. Guðlaug amma og langamma kvaddi okkur í upphafi árs, þrem- ur dögum fyrir 96 ára afmælið sitt. Hún lifði í næstum heila öld. Við Siggi hófum okkar sambúð í kjallaranum á Skeiðarvogi 22, hjá Guðlaugu og Sigurði, ömmu og afa mannsins míns, þar leið okkur vel. Þar gekk ég með okkar fyrsta barn af fjórum sem jafnframt var fyrsta langömmubarnið, hann Jakob Örn. Amma var mikil veislumanneskja, hélt þær ófáar og lét sig ekki vanta í aðrar veisl- ur. Amma var ávallt vel til höfð, fór ekki í vikuinnkaupin nema fara í lagningu fyrst og á kjörstað fór hún ekki nema í háum hælum með varalit. Guðlaug amma var alltaf hress, brosandi og með skellandi hlátur. Henni þótti það meiriháttar sniðugt að við tvær skyldum vera með sama kven- sjúkdómalækni, ég þá 22 ára en hún 74 ára. Mér þótti það pínu skrítið en hún hló. Okkur og öll- um strákunum okkar, Jakobi, Rafnari, Óttari og Ívari, þótti gott að koma til langömmu, hún hafði svo góða nærveru, svo átti hún alltaf kremkex og súkkulaði- rúsínur og ósjaldan var skellt í pönnukökur. En amma hataði ketti meira en allt. Þeir vissu það og sóttu sérstaklega heim að hús- inu. Hún var alltaf tilbúin með vatnsglas í glugganum og skvetti hiklaust á þá og ef vatnsglasið dugði ekki hótaði hún garðslöng- unni. Þeim var sama, þeir komu alltaf aftur. Ég skildi þetta ekki en gekk í lið með henni einn dag- inn þegar köttur komst inn í kjall- arann og rústaði fyrsta prjóna- gallanum mínum á ófædda barnið. Hnykillinn lá um allan kjallara. Prjónagallinn fór í ruslið og við Guðlaug amma byrjuðum upp á nýtt. Þegar Jakob dó 10 ára gamall upplifði ég mikla breyt- ingu á ömmu. Hún var orðin 86 ára gömul og þetta var mikið áfall. Hún fór í meiri mæli að muna gamla tíma og mundi það sem hafði gerst áður en hann dó en ekki eftir það. Hún þekkti mig alltaf en var farin að kalla mig konuna hans Sigga og þegar ég sagði henni nafnið mitt svaraði hún „já, ég veit það“ og hló. Hún hélt stundum að Rafnar væri Siggi og alltaf hafði hún orð á því hvað henni fannst Siggi myndar- legur. Þegar Siggi tók hólinu hló hún hátt. Henni fannst líka eins og hún sagði sjálf „strákarnir hans Sigga svo sniðugir og skemmtilegir“ þótt hún gæti ekki munað nöfnin þeirra. Það var nóg fyrir okkur. Þannig var amma. Við kveðjum ömmu og langömmu með þakklæti fyrir þá ást, velvild og hlýju sem hún sýndi okkur alltaf og vonum að Sigurður afi og Jakob Örn hafi tekið á móti henni með afmælisveislu í hennar anda á góðum stað. Herdís Þorláksdóttir. Elsku amma Lauga lést 3. jan- úar síðastliðinn. Þú varst alltaf svo glæsileg og vel til höfð. Allt fram á síðasta dag. Ég skildi það lengi vel ekki hvaða nafn var á hurðinni í Skeiðarvogi 22 – Guð- laug Lilja Gísladóttir, þú varst amma Lauga. Það var einhvern veginn allt svo glæsilegt í þínu fari. Lengi vel skildi ég ekkert við hvað var átt þegar þú fórst í lagningu, þú fórst ekki í klippingu eða hárgreiðslu, þú fórst í lagningu. Hárið svo glansandi og fínt, allt fram á síð- asta dag. Í Skeiðarvogi 22, stórt og flott heimili sem þú hélst svo glæsi- legu alla tíð. Í Skeiðarvoginum voru borðtuskur og viskustykki straujuð, allt í þágu glæsileikans. Á þessu tímamótum hef ég hugsað til þess hversu stóru hlut- verki Skeiðarvogur gegndi í mínu lífi, óteljandi gistinætur á yngri árum (og ekki þurfti að binda mig við girðinguna, ég fór aldrei upp á götu), enski boltinn með afa og Bjarna Fel, poppkornið, sund- ferðirnar þar sem ég kynntist vinum afa sem af og til löbbuðu óvart naktir út í laug, við gátum hlegið að því, ristað brauð með marmelaði og osti, steiktar kóte- lettur (fæ vatn í munninn), seinna gisti ég á verslunarskólaárunum við próflestur og annað dekur, og að lokum þegar ég bjó í kjallaran- um með Herdísi í rúm tvö ár áður en Jakob Örn fæddist og við flutt- um í Kópavoginn. Þetta eru góðar minningar. Skeiðarvogurinn skipaði líka stóran sess í veisluhöldum, og glæsilegar veislur kunnir þú að halda. Afmælið þitt á þrettándan- um, þétt setið húsið, fullt út úr dyrum af ættingjum og vinum. Borðin gáfu næstum eftir með glæsilegum kræsingum. Draumatertan, smákökurnar, flatkökur með hangikjöti og Kon- ungsættin, maður lifandi, ég fæ vatn í munninn. Veislurnar á sunnudögum, þar sem sunnudagstertan var alltaf tilbúin, en afi borðaði aldrei kremið, ég fékk það oftast á minn disk. Ég gleymi því svo aldrei þegar ljósakrónan hrundi niður á borðstofuborðið, þvílík læti. Og hvað við vorum hissa. Þær eru skemmtilegar minn- ingarnar úr Skeiðarvoginum, hvort sem maður var að gramsa í dótinu upp á skör, leika sér á for- tóinu eða úti á altani. Ég keyri ennþá Skeiðarvoginn og athuga hvort einhver sé heima eða einhver í heimsókn. Ferðirnar sem ég fór í Eim- skip, þar sem þú stjórnaðir mötu- neytinu af myndarskap, þar var alltaf hægt að fá ristað brauð með marmelaði og osti, og stundum, ég held oftast, laumaðirðu vasa- pening á strákinn sem þurfti líka að fá sér pulsu á bæjarins bestu. Þú varst alltaf svo glöð að sjá mann, og þó það væri brjálað að gera, þá gafstu þér alltaf tíma. Ferðirnar með ykkur afa aust- ur á Hof i sveitina til Madda frænda, sem ég fyrirgaf aldrei fyrir að rífa nýju smekkbuxurnar mínar, með viðkomu á Selfossi hjá Ásgeiri og fjölskyldu. Þessi hringur í sveitina var tekinn oft í minningunni. Eins og Óttar sonur minn sagði þegar ég sagði honum að þú værir farin, þú færð að hitta kær- astann þinn aftur og Jakob. Þú ert á góðum stað í góðum fé- lagskap. Ég bið að heilsa þeim. Mig langar að lokum að segja þér hversu góð áhrif þú hafðir á mig og mitt líf. Kveðja. Þinn Sigurður (Siggi). Guðlaug Lilja Gísladóttir  Fleiri minningargreinar um Guðlaugu Lilju Gísladótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA SIGURÐARDÓTTIR verslunarkona, Borgarnesi, sem lést á heimili sínu, Böðvarsgötu 6 í Borgarnesi, þriðjudaginn 2. janúar, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju föstudaginn 19. janúar klukkan 14. Sigurður Halldórsson Ásta Kristín Guðmundsdóttir Brynjúlfur Halldórsson Vigdís Hallgrímsdóttir Hlynur Snær, Sigurlaug, Bryndís, Brynjar Tumi, Elín Ásta Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAREL JÓHANN JÓNSSON prentari, Súlunesi 6, Garðabæ, lést föstudaginn 12. janúar á Land- spítalanum, Fossvogi. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ, föstudaginn 19. janúar klukkan 13. Ragna Guðmundsdóttir Jóhann Kristinn Marelsson Eydís Helgadóttir Rannveig Inga Marelsdóttir Baldvin Ómar Magnússon Íris Marelsdóttir Árni Ingólfsson Bergsveinn Marelsson Rósa Björg Óladóttir Sigrún Marelsdóttir Tryggvi Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.