Morgunblaðið - 16.01.2018, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.01.2018, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Hari svona alvarlega, af því að hann er líka síbreytilegur: tímarnir breytast stöðugt og hratt. Manneskjan hefur alltaf á öllum tímum lifað að hluta til í hugarheimunum. Internetið hýsir risastóra sameiginlega sápukúlu sem menn hittast í, þar er algjörlega nýr samskiptavettvangur sem við kunn- um ekki enn á og það verður spenn- andi að fylgjast með því hvernig úr mannlegum samskiptum rætist í þessum gígantíska sameiginlega hugarheimi. En svo verður maður líka að hafa annan fótinn á gólfinu. Gleymi maður sér lengi í hugarheim- unum er hætta á að maður lendi í harkalegum árekstri við raunheima – heldurðu það ekki?“ Á einum stað í bókinni segir: „ástríðuleysi fælir orðin burt“ og þá er ekki úr vegi að spyrja skáldið hvort hún missi stundum ljóðanátt- úruna, hvort ljóðin hætti að koma til hennar? „Jú, ég hef oft orðið galtóm og hef ekkert að segja, tæmist alveg, en ég tæmist ekki af ástríðum held ég, vonandi aldrei.“ Var léleg í handavinnu Krosssaumur kemur nokkuð við sögu í bókinni, þar eru ljóð til dæmis krosssaumuð í tunguna. „Mér finnst krosssaumur fal- legur og hann var mikill hluti af heimilum bernskunnar, púðar, klukkustrengir, risastórar vegg- myndir. Þá var lítil virðing borin fyr- ir þessum listaverkum nema í heima- húsum, ekki á opinberum vettvangi. Ég man hvernig var skrifað um sum- ar sýningar kvenna þegar ég var unglingur, alltaf talað um að þetta væri „snoturt,“ það var orð sem mik- ið var notað um listaverk kvenna. Noti karlkyns myndlistarmenn krosssaum í sín verk, þá fyrst hefur saumurinn þótt merkilegur. Annars er það ekki af aðdáun á krosssaumi að ljóðin eru krosssaumuð í tunguna, hér er einhver hryllingur á ferð sem ég veit ekki hvort eigi eitthvað sam- eiginlegt með krosssaumuðu púð- unum – jú, og þó, það hlýtur að vera. Ég var léleg í handavinnu þegar ég var lítil, vinkona mín saumaði stykk- in fyrir mig á meðan ég las upphátt úr námsbókunum.“ Ólík skynjun tímans Tíminn og klukkan koma mikið við sögu í bókinni. Hvernig líður henni að vera komin á seinni helm- inginn af ævinni? „Eins og aðrir skynja ég tímann mjög ólíkt eftir því á hvaða aldurs- skeiði ég er. Fyrir þrítugt skynjaði ég tímann brotakennt og þá skrifaði ég stuttar sögur en sögurnar hafa lengst með árunum. Þegar maður verður þrítugur þá öðlaðist maður meira útsýni – samhengið lengist – og þá skrifaði ég fyrstu skáldsöguna. Þegar ég varð fertug fékk ég enn betra útsýni, nánast endalaust. Núna þegar ég er orðin fimmtíu og fimm ára, þá greini ég hinn endann og skynja tímann með öðrum hætti, næstum því eins og rör,“ segir Krist- ín. Oft verið utan við tímann Kristín segir að frjáls mann- eskja þurfi fyrst og fremst að hugsa og það geti verið þrautin þyngri, að hugsa, maður nenni því ekki, þess vegna sé auðveldara að afsala sér sjálfstæðinu fyrir alls konar þægindi og freistingar og vélrænan lífsstíl, og það hafi hún oft gert, en í mun minna mæli þegar hún var yngri. „Ég hef oft verið utan við tím- ann og þegar ég var ung þá vissi ég ekki að ég væri ung og margar hljómsveitir fóru framhjá mér, eins og til dæmis Duran Duran og The Cure. Þegar ég varð 23 ára áttaði ég mig á því að ég þyrfti að passa mig sjálf, enginn annar gerði það; ég yrði að taka ábyrgð á lífi mínu, þess vegna tel ég mig seinþroska. Þá fyrst fattaði ég að ég væri fullorðin og þá fór ég að skrifa fyrir alvöru. Mér fannst ömurlega leiðinlegt að verða þrítug, við jafnaldra mín sátum á bekk á Klambratúni á afmælinu í þunglyndiskasti og höfðum ekki efni á að drekka kaffi á Kjarvalsstöðum. En við vorum ekki þunglyndar yfir peningaleysinu heldur yfir aldrinum. En það var líka skemmtilegt að vera á þrítugsaldri og aldrei hægt að end- urtaka þá skemmtun – ærið tilefni til þunglyndis þegar sá áratugur er frá. Að verða fertug fannst mér æðislegt og enn betra þegar ég varð fimmtug, á milli þess sem ég var í hláturskasti á afmælisdaginn hugsaði ég fullorð- inslegar og klisjukenndar hugsanir um sambönd og tilfinningar og póli- tík. Fólk verður síðan mjög upp- reisnargjarnt þegar það verður sex- tugt hef ég tekið eftir.“ Skáld Kristín í stofunni heima. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 6 1 2 2 RENAULTTRAFIC TIL AFGREIÐSLU STRAX Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði, ríkulegum búnaði og úrvali sparneytinna dísilvéla. Komdu og kynntu þér Renault Trafic og láttu sölumenn okkar gera þér tilboð í nýjan atvinnubíl. www.renault.is *M ið að vi ð up pg ef na r tö lu r fra m le ið an da um el ds ne yt is no tk un íb lö nd uð um ak st ri RENAULT TRAFIC STUTTUR 1,6 L. DÍSIL, 115 HESTÖFL Verð:2.943.548 kr. án vsk. 3.650.000 kr.m. vsk. Eyðsla frá, 6,5 l/100 km*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.