Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 17

Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Fjöldi skipa var gerður út af örkinni frá Kína í gær til þess að reyna að hreinsa upp hráolíu, sem lekið hefur úr flaki íranska olíuflutningaskipsins Sanchi, sem sökk á sunnudaginn. Sérfræðingar telja að hér geti verið um að ræða einn stærsta olíuleka sögunnar, en um 136.000 af hráolíu voru í birgðatönkum skipsins þegar það sökk. Talin er veruleg hætta á því að lekinn muni hafa hræðileg áhrif á lífríki hafsins í kringum flak- ið. Samkvæmt upplýsingum kín- verska ríkissjónvarpsins CCTV lá olíubrákin aðallega austan megin við staðinn þar sem skipið sökk, og þek- ur hún hafsvæði sem er um 129 fer- kílómetrar að stærð. Unnu tvö skip að því að sprauta sérstökum efnum á brákina, sem ætlað er að leysa olíuna upp. Lu Kang, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði að hreinsistarfið væri í algjörum for- gangi hjá kínverskum stjórnvöldum. Skipverjarnir taldir af Íranskir embættismenn tilkynntu í gær að þeir teldu ekki lengur neina von til þess að neinn af skipverjunum 32 sem voru um borð í Sanchi myndi finnast á lífi. Olli tilkynningin mikilli sorg og reiði meðal aðstandenda skipverjanna í Íran, sem komu sam- an í höfuðborginni Teheran. 30 skip- verja voru frá Íran en hinir tveir voru ættaðir frá Bangladess. Á þeim tíu dögum sem liðnir eru frá því að Sanchi rakst á flutninga- skipið CF Crystal hafa einungis þrjú lík fundist. Er talið líklegast að skip- verjarnir hafi allir látist innan við klukkustundu eftir áreksturinn, en mikill eldur blossaði strax upp, sem erfiðlega gekk að slökkva. Sökk skipið að lokum án þess að tekist hefði að ná tökum á eldinum. Ma Jun, stjórnandi umhverfis- stofnunarinnar Institute of Public and Environmental Affairs, sagði við dagblaðið Global Times að það hefði verið versta mögulega útkoma, að skipið skyldi hafa sokkið án þess að meira af olíunni hefði brunnið. Væri það ekki síst vegna þess að olían sem var um borð var svonefnd létt hrá- olía, en hún flýtur ekki öll á yfirborð- inu þegar hún lekur í sjó, heldur myndar stóran flekk neðansjávar. Því sé óvíst að öll umhverfisáhrifin muni koma strax í ljós. Létt hráolía er talin sérstaklega eitruð fyrir lífríki sjávar og telja sér- fræðingar að líklegt sé að olíulekinn muni hafa víðtæk áhrif á fjölda dýra- tegunda, sem hafa hrygningarstöðv- ar sínar á þessum slóðum. Umhverfisslys í uppsiglingu  Íranska olíuflutningaskipið Sanchi var með 136.000 tonn af hráolíu innanborðs  Allir skipverjarnir hafa verið taldir af  Reyna að lágmarka umhverfisáhrifin AFP Stórslys Þessi ljósmynd var tekin um helgina áður en Sanchi sökk. Innanborðs voru 136.000 tonn af olíu og er ótt- ast að áhrif slyssins á lífríki hafsvæðisins í kring geti orðið umtalsverð, en olían þekur um 129 ferkílómetra svæði. Hin 76 ára gamla Vezire Gjeladni sést hér kyssa minn- ingarplatta með mynd af syni hennar, en hann var einn af 45 Kósóvó-Albönum sem voru myrtir af serbneskum hermönnum hinn 15. janúar 1999 í þorpinu Racak. Fjöldamorðin eru meðal annars sögð hafa orðið til þess að Atlantshafsbandalagið ákvað að skerast í leikinn. AFP Sorgin verður ævinlega til staðar Nítján ár liðin frá fjöldamorðunum í Racan Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hót- aði því í gær að Tyrkir myndu leggja í eyði 30.000 manna herlið, sem Bandaríkjastjórn hyggst þjálfa upp í norður- hluta Sýrlands, en ráðgert er að Kúrdar muni vera þar í miklum meirihluta. Sagði Er- dogan að slíkur liðsafli yrði „hryðjuverkaher“ sem Tyrkir yrðu að kæfa í fæðingu. Yfirlýstur til- gangur herliðsins er sá að sinna landamæravörslu. Hótar að eyða „hryðjuverkaher“ Recep Tayyip Erdogan TYRKLAND Oscar Perez, þyrluflugmaður sem varpaði fjór- um hand- sprengjum á Hæstarétt Vene- súela í júní síð- astliðnum, var í gær umkringdur af öryggis- sveitum landsins. Sagði Perez að leyniskyttur lögreglunnar væru að skjóta á sig og félaga sína þrátt fyr- ir að þeir hefðu gefið til kynna að þeir vildu gefast upp. Perez var í sérsveit lögreglunnar þar til hann gekk úr henni síðasta sumar. Handsprengjumað- urinn umkringdur Oscar Perez VENESÚELA Lögreglan í Danmörku ákærði í gærmorgun 1.005 ungmenni fyrir dreifingu barnakláms. Um er að ræða tvö myndskeið og eina ljós- mynd, en svo virðist sem ung- mennin hafi sent þau einkum áfram í samskiptaforritinu Face- book. Tildrög málsins eru þau að í mars 2015 ákvað 15 ára stúlka, sem nefnd hefur verið Sofie í dönskum fjölmiðlum, að sofa hjá jafnaldra sínum. Að samförunum loknum birtust fjórir vinir piltsins óvænt og réðust á hana á ósæmi- legan hátt. Var árásin tekin upp og fóru myndböndin í kjölfarið í almenna dreifingu á netinu, en vegna ungs aldurs stúlkunnar var litið á málið sem barnaklámsmál. Rannsókn málsins hófst þegar forsvarsmenn Facebook tóku eftir því að sömu myndskeiðin væru að dreifast ört á milli fólks. Gerðu þau lögregluyfirvöldum í Banda- ríkjunum viðvart, sem sendu upp- lýsingarnar áfram til dönsku lög- reglunnar. Það er til marks um hina miklu dreifingu sem efnið fékk, að ákærurnar ná til ung- menna í 11 af 12 lögregluumdæm- um Danmerkur. Lau Thygesen, varðstjóri hjá lögreglunni í Norð- ur-Sjálandi og stjórnandi rann- sóknarinnar, sagði í fréttatilkynn- ingu frá lögreglunni að málið væri mjög umfangsmikið og flókið. Það hefði tekið langan tíma í rannsókn, ekki síst vegna þess hversu margir hefðu legið undir grun. „Við litum málið mjög alvarlegum augum, ekki síst vegna þess að það hefur miklar afleiðingar fyrir þá sem málið varðar þegar svona efni dreifist. Og það verður að stöðva.“ Yfir þúsund ungmenni ákærð  Mjög umfangsmikið og flókið hefniklámsmál í Danmörku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.