Morgunblaðið - 16.01.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun
kvenna, voru afhent í tólfta sinn í
Höfða í gær. Í flokki fagurbókmennta
var valin best skáldsaga Kristínar Ei-
ríksdóttur, Elín, ýmislegt. Vertu
ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels eftir
Kristínu Helgu Gunnarsdóttur var
valin sú besta í flokki barna- og ung-
lingabókmennta, og bók Unnar Jök-
ulsdóttur, Undur Mývatns – um fugla,
flugur, fiska og fólk, valin sú besta í
flokki fræðibóka og rita almenns eðlis.
Verðlaunahafar fengu gripi gerða
af listakonunni Koggu og gjafabréf
fyrir dvöl á Kolkuósi í Skagafirði.
„Er upp með mér “
Auk skáldsögu Kristínar Eiríks-
dóttur, Elín, ýmislegt, voru ljóðabæk-
urnar Flórída eftir Bergþóru Snæ-
björnsdóttur og Slitförin eftir Fríðu
Ísberg tilnefndar í flokki fagur-
bókmennta. Í rökstuðningi dómnefnd-
ar segir um verðlaunabókina: „Á
einkar næman og áhrifaríkan hátt er
hér fjallað um skynjun manneskj-
unnar á veruleikanum, flóttaleiðir
hugans, einsemd, hið gleymda og
falda. Frásagnartæknin er í senn út-
hugsuð og áreynslulaus. Elín, ým-
islegt […] er gríðarlega vel skrifuð
skáldsaga sem lifir áfram með lesand-
anum.“
Kristín segist afar þakklát fyrir
verðlaunin og segir þau mikilvæg.
„Um þrjátíu prósent af útgefnum höf-
undum nú eru konur og það er ekki
vegna þess að konur skrifi minna eða
hafi minna að segja. Það er ennþá þörf
fyrir þessi verðlaun; ég er upp með
mér og glöð yfir að fá þessa við-
urkenningu, úr þessari átt,“ segir
Kristín.
Hún hefur á síðustu árum skrifað
jöfnum höndum skáldsögur, leikrit og
ljóð. „Og það heldur mér áhugasamri
að fara þar á milli. Mér finnst
skemmtilegt að kljást við ólík form og
fæ mikið út úr því,“ segir hún.
Kristín segir það vera langt ferli að
skrifa sögu. „Öll verk eru partur af
lengra ferli og þau hanga saman, eru
einhvernveginn tengd. Þau verða til
út úr hverju öðru – þetta er marg-
arma monster. Maður er alltaf í
vinnunni, þótt sjálfur skriftartíminn
þurfi ekki að vera langur. Það opnast
fyrir manni heimur sem er tiltekið
verk og svo raðast í hann. Það tekur
tíma og er lífrænt ferli.“
Þegar spurt er hvort verðlaun sem
þessi séu mikilvæg, svarar Kristín að
Kristín, Unnur og Kristín
Helga hrepptu verðlaunin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðlaunahöfundar Unnur Jökulsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir og Kristín Eiríksdóttir fengu Fjöruverðlaun-
in. Með þeim eru Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Brynhildur Heiðar og Ómarsdóttir, formaður verðlaunanna.
á einhverju veraldlegu plani séu við-
tökurnar mjög mikilvægar. „Þær gefa
mér tilvistarleyfi og það er hvatning í
því. Viðtökurnar eru ekki forsenda
fyrir verkinu og það er ekki hægt að
keppa í listum eins og listamenn vita.
En þetta er hvatning og heiður, og
gaman. Á veraldlegu plani er þetta
frábært.“
Þykir vænt um Fjöruverðlaunin
Í rökstuðningi dómnefndar um
verðlaunabók Unnar Jökulsdóttur,
Undur Mývatns – um fugla, flugur,
fiska og fólk, segir: „Í bókinni skynjar
lesandinn töfra og fegurð Mývatns.
Unnur ber djúpa virðingu fyrir nátt-
úrunni og lýsir henni af ástríðu og
hrifningu. […] Bókin Undur Mývatns
er dýrmæt perla rétt eins og vatnið
sjálft.“
„Ég var mjög sátt og ánægð með
tilnefninguna en það er ennþá
skemmtilegra að fá verðlaunin. Ekki
síst þegar ég var í svona góðu komp-
aníi,“ segir Unnur en auk bókar henn-
ar voru tilnefndar Íslenska lopapeys-
an: Uppruni, saga og hönnun, eftir
Ásdísi Jóelsdóttur, og Leitin að
klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í
fimm aldir, eftir Steinunni Kristjáns-
dóttur.
Unnur hefur dvalið við Mývatn og
starfað á sumrin síðan 2005. Þegar
spurt er um uppleggið, segist hún
hafa verið mikið með vísindamönnum
sem voru að gera allskonar rann-
sóknir á lífríki vatnsins og náttúrunni
og hafi komist að svo mörgu stórkost-
legu og ævintýralegu sem henni
fannst að þyrfti að komast til fólks.
„Þessi vísindi vilja oft felast í vís-
indagreinum sem fáir lesa og mig
langaði til að koma þessu á létt og að-
gengilegt mál. Svo eru þarna ýmsar
ævisögur og frásagnir af stórbrotnum
örlögum, og æðra samhengi sem mig
langaði að reyna að ná utan um.
Kannski má líta á Mývatn sem lítið
módel af náttúrunni sem má heim-
færa á alla Jörðina.“ Og þegar spurt
er hvort líta megi á bókina sem eins-
konar varnarrit fyrir þá merku perlu
sem Mývatn er þá játar Unnur því.
Unnur segir að verðlaunin hvetji
sig til frekari verka. „Mér finnst mjög
vænt um Fjöruverðlaunin. Við vitum
að það þarf að berjast fyrir því að kon-
ur standi jafnfætis við karla í sam-
félaginu, ekki bara hvað varðar laun
og réttindi, heldur líka til dæmis með
verðlaun og athygli. Það var ekki van-
þörf á því að stofna þessi verðlaun og
mér finnst einstaklega mikill heiður
að fá þau,“ segir hún.
Þurfa ennþá sérstakt kastljós
Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishma-
els eftir Kristínu Helgu Gunnars-
dóttur, sem hreppti Fjöruverðlaunin í
flokki barna- og unglingabókmennta,
segir frá Ishmael, 15 ára dreng á
flótta frá Sýrlandi, og Salí, sýrlenskri
stúlku sem býr í Kópavogi. Í umsögn
dómnefndar segir að sagan fjalli „öðr-
um þræði um hörmungar en fyrst og
fremst um mennsku og mannhelgi
[…] Bókin er einstaklega vel byggð,
persónusköpun trúverðug og afar
raunsæ og fjallar um málefni sem
brennur á okkur öllum.“ Einnig voru
tilnefndar Lang-elstur í bekknum eft-
ir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og
Gulbrandur Snati og nammisjúku
njósnararnir eftir Brynhildi Þórarins-
dóttur.
„Það er dásamlegt að fá svona við-
urkenningu og kastljós á verk sem
fjallar um þessa stóru hluti. Það skipt-
ir miklu máli,“ segir Kristín Helga og
bætir við að málefni flóttamanna hafi
lengi brunnið á sér.
„Við heyrum þessar fréttir alveg
frá því að stríð brýst út en verðum
ónæm fyrir tungutakinu, fréttaflutn-
ingurinn verður einsleitur, orðfærið
fjarlægir mann atburðunum. Það leit-
aði á mig að fá svör fyrir sjálfa mig við
allskonar stórum spurningum og þá
fór ég að velta fyrir mér öllu þessu
unga fólki sem er að skríða hratt upp
á fullorðinsárin og er með þennan
veruleika í fanginu: styrjaldir á fram-
andi slóðum sem samt eru svo nálægt
okkur.
Um leið og ég vildi svara spurn-
ingum sem brunnu á mér um líf flótta-
manna, um að þurfa að hlaupa af stað
með lífið í lúkunum, þá langaði mig að
eiga samtal við ungt fólk sem er að
erfa þennan heim.“
Kristín Helga segir skáldskap góða
leið til að ná til ungmenna. „Sagan er
alltaf besta leiðin. Saga manneskj-
unnar, ferðalagið þitt og mitt. Þeirra
saga er okkar saga. Með skáld-
skapnum má leggja raunverulega at-
burði í fangið á lesendum, og þá finn-
um við fyrir ábyrgðinni sem við
berum á hverju öðru.“
Og hún segir mikilvægt að Fjöru-
verðlaunin séu kvennaverðlaun. „Ég
var áður efins um að kyngreina bók-
menntirnar með þessum hætti en eftir
því sem tíminn líður og ég öðlast meiri
þroska, þá sé ég að verðlaun sem
þessi eru nauðsynleg. Konur þurfa
ennþá sérstakt kastljós til að rödd
þeirra sé sterk og heyrist,“ segir
Kristín Helga.
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, afhent í gær
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas.
Síðustu sýningar leikársins!
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Mið 31/1 kl. 20:00 10. s
Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s
Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Medea (Nýja sviðið)
Þri 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 5. s Sun 28/1 kl. 20:00 7. s
Mið 17/1 kl. 20:00 4. s Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s
Ástir, svik og hefndarþorsti.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fim 18/1 kl. 20:00 45. s Lau 20/1 kl. 20:00 47. s Fös 2/2 kl. 20:00 49. s
Fös 19/1 kl. 20:00 46. s Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Lau 3/2 kl. 20:00 50. s
Draumur um eilífa ást
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas.
Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Allra síðustu sýningar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 20/1 kl. 13:00 5. s Lau 27/1 kl. 13:00 7. s
Sun 21/1 kl. 13:00 6. s Sun 28/1 kl. 13:00 8. s
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00
Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn
Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 8/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 7.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 Auka
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Hafið (Stóra sviðið)
Fim 18/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn
Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Faðirinn (Kassinn)
Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn
Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn
Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00
Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Ég get (Kúlan)
Lau 20/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn
Lau 20/1 kl. 15:00 4.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 19/1 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 22:30 Lau 3/2 kl. 22:30
Fös 19/1 kl. 22:30 Lau 27/1 kl. 20:00 Fim 8/2 kl. 20:00
Lau 20/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 20:00
Lau 20/1 kl. 22:30 Fim 1/2 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30
Sun 21/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00
Fim 25/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 22:30
Fös 26/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Efi (Kassinn)
Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 13.sýn
Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka
Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS