Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
au fyrirtæki sem rata á lista Creditinfo
yfir framúrskarandi fyrirtæki eru
metin á grundvelli rekstraráranna
2014-2016. Hljóðið var almennt gott í
íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum árin 2014
og 2015 en síðan tók að halla undan fæti 2016 og
fór Samherji ekki varhluta af því: „Árið 2016 var
snúið að því leyti að Rússlandsmarkaður var
lokaður, og þar með þriðji stærsti fiskmarkaður
Íslendinga – og markaður fyrir tegundir sem er
ekki auðvelt að selja annars staðar. Bæði var
lokunin verulegt högg og sömuleiðis það að
gengi krónunnar styrktist verulega,“ segir Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þrátt fyrir áskoranirnar tókst Samherja að
komast vel í gegnum árið, og er að þessu sinni í
efsta sæti á lista Creditinfo yfir framúrskarandi
fyrirtæki. Þorsteinn Már segir það ekki síst
dýrmæta viðurkenningu fyrir starfsmenn Sam-
herja að vera á listanum yfir framúrskarandi
fyrirtæki enda árangurinn þeim að þakka.
Misstu mikilvæga viðskiptavini
Rekstrarskilyrðin héldu áfram að versna árið
2017: krónan styrktist enn frekar og á erlendum
mörkuðum stóðu verð mikilvægra fisktegunda í
stað. Sjómannaverkfallið í lok árs 2016 og byrj-
un 2017 hafði líka neikvæð áhrif á Samherja, og
vara þessi áhrif enn á verðmætari mörkuðum
félagsins: „Eftir mikla vinnu hafði okkur tekist
að komast inn á verðmæta markaði þar sem
gerð er rík krafa um bæði gæði og afhendingar-
öryggi. Sumir viðskiptavinanna hafa því miður
ekki viljað tala við okkur eftir verkfall og ólík-
legt að við náum að koma þessum viðskipta-
samböndum á aftur. Þetta er dæmi um ósýni-
lega hluti sem valda okkur skaða löngu eftir að
kjaradeilum lýkur.“
Þorsteinn Már er brattur og bjartsýnn en
bendir á að markaðurinn fyrir sjávarafurðir sé í
mikilli þróun og samkeppnin fari harðnandi á
sama tíma og fiskneysla á helstu markaðs-
væðum ýmist stendur í stað eða dregst saman.
Hann segir marga mikilvæga kaupendur vilja
gera langtímasamninga sem binda seljendur til
að afhenda vöru í ákveðnum gæðum, á ákveðnu
verði, og í því magni og á þeim tíma sem um er
samið. „Samherji er tilbúinn í þessar breytingar
og við gerum okkur grein fyrir að það eitt að
bjóða upp á holla og góða vöru dugar ekki leng-
ur til eitt og sér. Markaðurinn gerir meiri kröf-
ur sem þarf að mæta.“
Óvissan skemmir fyrir
Spurður um áskoranirnar á komandi miss-
erum og árum segir Þorsteinn Már að íslenskur
sjávarútvegur þurfi að berjast á tvennum víg-
stöðvum: á alþjóðamarkaði þar sem þjóna þurfi
viðskiptavinum eins vel og frekast er unnt og
glíma við stóra og sterka keppinauta, og síðan
innanlands þar sem tekist sé á um fyrirkomulag
fiskveiða og afnotaréttinn af aflaheimildum sem
séu þær grunnforsendur sem atvinnugreininn
byggi á: „Auðvitað dregur það stundum kraft úr
fólki að stöðugt skuli þurfa að rífast um íslensk-
an sjávarútveg. Við verðum að muna að hvers
kyns óvissa kemur sér illa fyrir greinina enda
verður sjávarútvegurinn að fjárfesta fyrir mikl-
ar fjárhæðir til að geta viðhaldið sínum atvinnu-
tækjum og haldið samkeppnisforskoti á sí-
breytilegum markaði. Það sem greinin þarf
umfram allt er stöðugleiki svo að auðveldara sé
að gera raunhæfar áætlanir til langs tíma,
sækja þannig fram og auka verðmæti.“
Þorsteinn Már bendir líka á að það forskot
sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa á er-
lenda keppinauta fari minnkandi enda sitji þeir
ekki með hendur í skauti. „Norðmenn sækja t.d.
fram af miklum krafti og hafa allar sömu fisk-
tegundirnar og við nema hvað þeir hafa meira af
þeim. Rússarnir hafa líka verið að gera mjög
góða hluti og fjárfest mikið í sjávarútveginum.
Þeir hafa aðgang að miklu magni af fiski og
mörgum tegundum, og virðist hreinlega að
margir hafi gleymt hversu skæðir keppinautar
Rússarnir eru að verða.“
Meðal þess sem Þorsteinn Már kemur auga á
sem gæti styrkt stöðu greinarinnar á komandi
árum er að skapa sterk vörumerki fyrir íslensk-
an fisk. „Í dag eiga Íslendingar ekki lengur nein
stór eða sterk vörumerki í sjávarútvegi. Við
Sjávarútvegurinn þarf stöðugleika
áttum áður vörumerki á borð við Icelandic, en
erum búin að selja þau til erlendra aðila.“
Annað sem Þorsteinn Már telur að geti eflt
greinina á komandi árum er að íslenskur iðn-
aður tengdur sjávarútvegi hefur verið að styrkj-
ast mjög samhliða fjárfestingum útgerðar og
fiskvinnslu á Íslandi undanfarin ár. „Við vorum
til dæmis að fá tvö ný og glæsileg frystiskip af-
hent í Cuxhaven um þarsíðustu helgi og þar
sjáum við fullkominn búnað sem er hugverk
fjölda íslenskra fyrirtækja. Við erum stolt af
þessum hugverkum sem og sjávarútvegi okkar.
Þessi fyrirtæki hafa í samstarfi við íslenskan
sjávarútveg þróað eftirsóttar útflutningsvörur á
alþjóðamarkaði.“
ai@mbl.is
1. sæti
Samherji
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mynd úr safni af þremur nýjum togurum Samherja sem smíðaðir voru í Tyrklandi.
„Við verðum að muna að hvers kyns óvissa kemur
sér illa fyrir greinina enda verður sjávarútvegurinn
að fjárfesta fyrir miklar fjárhæðir til að geta viðhaldið
atvinnutækjum sínum og haldið samkeppnisforskoti
á síbreytilegum markaði. Það sem greinin þarf um-
fram allt er stöðugleiki svo að auðveldara sé að gera
raunhæfar áætlanir til langs tíma, sækja þannig fram
og auka verðmæti,“ segir Þorsteinn Már.