Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 18
E ignamiðlun var ein af fáum fasteigna- sölum sem komust tiltölulega klakk- laust í gegnum kreppuna. „Hrun varð í sölu fasteigna árið 2008 og markaður- inn ákaflega erfiður næstu árin þar á eftir. Við fórum á hinn bóginn ekki í felur heldur vorum áfram úti á markaðnum og tókum að okkur ým- is verkefni samhliða fasteignasölu,“ segir Kjart- an Hallgeirsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. „Mikil eftirspurn var eftir verðmati á fasteignum, bæði vegna skuldaleiðréttinga og til að meta eignasafn bankanna fyrir kröfuhafa.“ Þegar markaðurinn byrjaði að taka við sér hafði fasteignasölum fækkað, og aðstæður því nokkuð góðar fyrir þá sem höfðu náð að þrauka í gegnum mestu lægðina. Kjartan segir núna góðar horfur á fasteignamarkaði: „Veltan er nokkuð eðlileg og gefur fyrirheit um stöðug- leika á komandi árum. Von er á að framboð á eignum aukist, vextir eru á niðurleið og ekki annað að sjá en næstu ár verði góð fyrir bæði kaupendur og seljendur.“ Eignamiðlun er elsta starfandi fasteignasalan á Íslandi, stofnuð 1957, og hefur verið lengi á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki. Í ár er fyrirtækið efst á listanum í flokki lítilla fyr- irtækja. Kjartan segir að þessi viðurkenning sé mikils virði fyrir fyrirtækið, stjórnendur og starfsmenn og til marks um að reksturinn standi vel. „Við fengum viðurkenninguna fyrst þegar markaðurinn var miklu brothættari en hann er í dag og hafði þá enn meiri þýðingu að geta sýnt með þessu móti að starfsemi fyrirtæk- isins væri í góðu lagi,“ segir hann. „Í dag er ár- ferðið betra og fleiri fyrirtæki komast á lista Creditinfo, en okkur þykir áfram vænt um að fá þessi verðlaun og að fá það heilbrigðisvottorð sem í þeim felst.“ Ríkari kröfur gerðar Spurður um rekstrarumhverfi Eignamiðl- unar og hvar skórinn kreppir hjá fasteigna- sölum á Íslandi segir Kjartan að samkeppnin sé harðari en margir geri sér grein fyrir og fast- eignasalar verði að hafa sig alla við. „Lagaum- hverfi fasteignasala hefur á margan hátt tekið jákvæðum breytingum á undanförnum árum og með nýjum lögum var gerð ríkari krafa um menntunarstig þeirra sem sinna milligöngu um sölu fasteigna. Þetta veitir kaupendum og selj- endum aukna vernd og dregur stórlega úr hætt- unni á að ekki sé gengið rétt frá sölu fasteigna,“ útskýrir Kartan. Fóru ekki í felur í niðursveiflunni Morgunblaðið/Ómar 235. Sæti Eignamiðlun Lítið 1. sæti Kjartan Hallgeirsson Kjartan segir eðlilega veltu á fasteignamarkaði í dag og ágætar horfur. Mynd úr safni. Hann segir brýnt að leidd verði í lög ákvæði um ástandsskoðun fasteigna. „Það er mikilvægt réttindamál fyrir jafnt kaupendur sem selj- endur að ástandsskoðun sé lögbundin og myndi það tryggja að öllum sem að viðskiptunum koma sé fyllilega ljóst í hvaða ástandi fasteignin er. Sams konar ákvæði þekkjast víða í ná- grannalöndunum: á Norðurlöndunum er venjan að ástandsskoðun liggi fyrir strax og eign er auglýst til sölu, en í Bandaríkjunum hefur verið farin sú leið að öll tilboð í fasteignir eru gerð með fyrirvara um ástandsskoðun og síðan samið um verðið ef skoðunin leiðir í ljós galla eða skemmdir.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Það er mikilvægt réttindamál fyrir jafnt kaupendur sem seljendur að ástandsskoðun sé lögbundin og myndi það tryggja að öllum sem að viðskiptunum koma sé fyllilega ljóst í hvaða ástandi fasteignin er. Sams konar ákvæði þekkjast víða í nágranna- löndunum,“ segir Kjartan Hallgeirsson. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Starf fasteignasala mun halda áfram að þróast og hefur t.d. internetið gjörbreytt fasteignamarkaðnum og gert fólki mun auðveldara að kynna sér áhugaverðar fasteignir. „Það er ekki lengra síðan en 1998-2000 að fasteignasölurnar fóru á netið og áfram er unnið að því að þróa nýjar lausnir og betri leiðir fyrir væntan- lega kaupendur að skoða eignir vel áð- ur en þeir mæta til að skoða þær í eigin persónu,“ segir Kjartan. En þrátt fyrir alla möguleika tækninn- ar reynir sala fasteigna áfram umfram allt á mannlega þáttinn og segir Kjartan þann hluta starfsins munu seint takast að sjálfvirknivæða: „Oft eru fasteigna- salar að fylgja fólki að taka sín stærstu skref í lífinu, þ.e. að koma sér upp framtíðarheimili þar sem fjölskyldan getur vaxið og dafnað. Starfið kallar því á góð mannleg samskipti og mikið traust. Fátt er ánægjulegra en þegar traustið sem skapast verður til þess að börnin sem fluttu í nýtt hús með for- eldrum sínum leita aftur til okkar þegar kemur að því að þau sjálf kaupa sína fyrstu fasteign.“ Að sama skapi segir Kjartan að fast- eignasalar beri mikla ábyrgð: „Eins og því getur fylgt mikil hamingja og gleði að kaupa fasteign og eignast húsnæði til margra ára, þá getur það orðið upp- spretta endalausra vandræða og leið- inda ef í ljós koma óvæntir gallar eða önnur vandræði við kaupin. Vegna þessa er mikilvægt að hafa ábyrga og vel menntaða fasteignasala, en það er nokkuð sem Eignamiðlun hefur lengi lagt mikla áherslu á.“ Með fólki á mikilvægum tímamótum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.