Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 18
E
ignamiðlun var ein af fáum fasteigna-
sölum sem komust tiltölulega klakk-
laust í gegnum kreppuna. „Hrun varð í
sölu fasteigna árið 2008 og markaður-
inn ákaflega erfiður næstu árin þar á eftir. Við
fórum á hinn bóginn ekki í felur heldur vorum
áfram úti á markaðnum og tókum að okkur ým-
is verkefni samhliða fasteignasölu,“ segir Kjart-
an Hallgeirsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins. „Mikil eftirspurn var eftir verðmati á
fasteignum, bæði vegna skuldaleiðréttinga og til
að meta eignasafn bankanna fyrir kröfuhafa.“
Þegar markaðurinn byrjaði að taka við sér
hafði fasteignasölum fækkað, og aðstæður því
nokkuð góðar fyrir þá sem höfðu náð að þrauka
í gegnum mestu lægðina. Kjartan segir núna
góðar horfur á fasteignamarkaði: „Veltan er
nokkuð eðlileg og gefur fyrirheit um stöðug-
leika á komandi árum. Von er á að framboð á
eignum aukist, vextir eru á niðurleið og ekki
annað að sjá en næstu ár verði góð fyrir bæði
kaupendur og seljendur.“
Eignamiðlun er elsta starfandi fasteignasalan
á Íslandi, stofnuð 1957, og hefur verið lengi á
lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki. Í
ár er fyrirtækið efst á listanum í flokki lítilla fyr-
irtækja. Kjartan segir að þessi viðurkenning sé
mikils virði fyrir fyrirtækið, stjórnendur og
starfsmenn og til marks um að reksturinn
standi vel. „Við fengum viðurkenninguna fyrst
þegar markaðurinn var miklu brothættari en
hann er í dag og hafði þá enn meiri þýðingu að
geta sýnt með þessu móti að starfsemi fyrirtæk-
isins væri í góðu lagi,“ segir hann. „Í dag er ár-
ferðið betra og fleiri fyrirtæki komast á lista
Creditinfo, en okkur þykir áfram vænt um að fá
þessi verðlaun og að fá það heilbrigðisvottorð
sem í þeim felst.“
Ríkari kröfur gerðar
Spurður um rekstrarumhverfi Eignamiðl-
unar og hvar skórinn kreppir hjá fasteigna-
sölum á Íslandi segir Kjartan að samkeppnin sé
harðari en margir geri sér grein fyrir og fast-
eignasalar verði að hafa sig alla við. „Lagaum-
hverfi fasteignasala hefur á margan hátt tekið
jákvæðum breytingum á undanförnum árum og
með nýjum lögum var gerð ríkari krafa um
menntunarstig þeirra sem sinna milligöngu um
sölu fasteigna. Þetta veitir kaupendum og selj-
endum aukna vernd og dregur stórlega úr hætt-
unni á að ekki sé gengið rétt frá sölu fasteigna,“
útskýrir Kartan.
Fóru ekki í felur í niðursveiflunni
Morgunblaðið/Ómar
235. Sæti
Eignamiðlun
Lítið 1. sæti
Kjartan Hallgeirsson
Kjartan segir eðlilega veltu á fasteignamarkaði í dag og ágætar horfur. Mynd úr safni.
Hann segir brýnt að leidd verði í lög ákvæði
um ástandsskoðun fasteigna. „Það er mikilvægt
réttindamál fyrir jafnt kaupendur sem selj-
endur að ástandsskoðun sé lögbundin og myndi
það tryggja að öllum sem að viðskiptunum
koma sé fyllilega ljóst í hvaða ástandi fasteignin
er. Sams konar ákvæði þekkjast víða í ná-
grannalöndunum: á Norðurlöndunum er venjan
að ástandsskoðun liggi fyrir strax og eign er
auglýst til sölu, en í Bandaríkjunum hefur verið
farin sú leið að öll tilboð í fasteignir eru gerð
með fyrirvara um ástandsskoðun og síðan samið
um verðið ef skoðunin leiðir í ljós galla eða
skemmdir.“
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Það er mikilvægt réttindamál fyrir jafnt kaupendur
sem seljendur að ástandsskoðun sé lögbundin og
myndi það tryggja að öllum sem að viðskiptunum
koma sé fyllilega ljóst í hvaða ástandi fasteignin er.
Sams konar ákvæði þekkjast víða í nágranna-
löndunum,“ segir Kjartan Hallgeirsson.
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Starf fasteignasala mun halda áfram að
þróast og hefur t.d. internetið gjörbreytt
fasteignamarkaðnum og gert fólki mun
auðveldara að kynna sér áhugaverðar
fasteignir. „Það er ekki lengra síðan en
1998-2000 að fasteignasölurnar fóru á
netið og áfram er unnið að því að þróa
nýjar lausnir og betri leiðir fyrir væntan-
lega kaupendur að skoða eignir vel áð-
ur en þeir mæta til að skoða þær í eigin
persónu,“ segir Kjartan.
En þrátt fyrir alla möguleika tækninn-
ar reynir sala fasteigna áfram umfram
allt á mannlega þáttinn og segir Kjartan
þann hluta starfsins munu seint takast
að sjálfvirknivæða: „Oft eru fasteigna-
salar að fylgja fólki að taka sín stærstu
skref í lífinu, þ.e. að koma sér upp
framtíðarheimili þar sem fjölskyldan
getur vaxið og dafnað. Starfið kallar því
á góð mannleg samskipti og mikið
traust. Fátt er ánægjulegra en þegar
traustið sem skapast verður til þess að
börnin sem fluttu í nýtt hús með for-
eldrum sínum leita aftur til okkar þegar
kemur að því að þau sjálf kaupa sína
fyrstu fasteign.“
Að sama skapi segir Kjartan að fast-
eignasalar beri mikla ábyrgð: „Eins og
því getur fylgt mikil hamingja og gleði
að kaupa fasteign og eignast húsnæði
til margra ára, þá getur það orðið upp-
spretta endalausra vandræða og leið-
inda ef í ljós koma óvæntir gallar eða
önnur vandræði við kaupin. Vegna
þessa er mikilvægt að hafa ábyrga og
vel menntaða fasteignasala, en það er
nokkuð sem Eignamiðlun hefur lengi
lagt mikla áherslu á.“
Með fólki á
mikilvægum
tímamótum