Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
H
agar náðu sér nokkuð fljótt á strik
eftir hrunið, enda þurfti félagið
ekki að fara í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu. Hafa sum
undirfélög samsteypunnar afrekað það að
vera frá upphafi á lista Creditinfo yfir fram-
úrskarandi fyrirtæki. Hagar komust aftur á
listann fyrri nokkrum árum og segir Finnur
Árnason, forstjóri fyrirtækisins, að um mikil-
væga viðurkenningu sé að ræða. „Að komast
á listann byggist ekki bara á árangri eins
árs, heldur þurfa ákveðin hlutföll í rekstri og
efnahag að vera góð og stöðug til lengri
tíma,“ segir hann. „Fyrirtæki Haga eru í
grunninn rótgróin íslensk fjölskyldufyrirtæki
og njótum við þess að hafa á frábæru starfs-
fólki að skipa, sem leggur metnað sinn í að
þjóna viðskiptavinum félagsins á hverjum
degi.“
Viðurkenningin sem veitt er í ár byggist á
rekstrartölum ársins 2016 sem Finnur segir
að hafi verið prýðilegt ár, rétt eins og árin
þar á undan. „Síðan þá hefur gefið aðeins á
bátinn en reksturinn er enn góður og stöð-
ugur og við höfum lagt áherslu á kjarna-
starfsemina samhliða því að greiða niður
skuldir.“
Undir Haga heyra matvöruverslanakeðj-
urnar Bónus og Hagkaup, og að auki kjöt-
verkandinn Ferskar kjötvörur, vöru- og
dreifingarfyrirtækið Aðföng, innflytjandinn
Bananar, vöruhúsið Hýsing, íþrótta- og úti-
vistarvöruverslunin Útilíf og tískuverslunin
Zara. Rekstrarskilyrði margra af þessum fé-
lögum hafa breyst töluvert á undanförnum
misserum, bæði til hins betra og til hins
verra.
Breyttur markaður með fatnað
Finnur nefnir að með batnandi efnahag
þjóðarinnar hafi fataverslun færst í auknum
mæli til útlanda. „Hærri ráðstöfunartekjur
þýða að fólk getur ferðast meira og keypt
sér föt erlendis. Netverslun hefur líka aukist
og aðgangur neytenda að fatnaði er orðinn
allt annar en hann var áður. Á móti kemur
að stjórnvöld felldu niður tolla á fatnaði og
afnámu með því þann tvöfalda toll sem verið
hefur á megninu af þeim fatnaði sem fluttur
er inn til landsins,“ segir Finnur og útskýrir
að þar sem íslenski markaðurinn reiði sig
mikið á birgja í Evrópu, sem kaupi fatnaðinn
frá öðrum heimshlutum, hafi iðulega verið
greiddir tollar í tvígang af sömu flíkinni.
„Lagður er tollur á vöruna þegar hún kemur
til Evrópu, og hér áður bættist við 15% toll-
ur á Íslandi.“
Styrking krónunnar hefur líka hjálpað
verslununum að verða samkeppnishæfari:
„Ef við skoðum verslun eins og Zöru hefur
einingaverð fyrir sambærilega vöru í mörg-
um tilvikum lækkað hér á landi um 30% á
síðastliðnum þremur árum.“
Sveiflur í gengi krónunnar hafa ekki jafn
afgerandi áhrif á matvörumarkaði enda
myndar innlend vara að jafnaði um 60-70%
af innkaupakörfu íslenskra heimila. „Þar
hafa kostnaðarhækkanir, bæði vegna launa-
hækkana og annars kostnaðar, valdið því að
hækkun hefur orðið á innlendum vörum.“
Salan dróst saman um 5%
Koma Costco fór ekki framhjá neinum og
hafði innkoma bandaríska risans nokkur
áhrif á verslun Íslendinga á síðasta ári. Hag-
ar birtu síðast afkomutölur í janúar fyrir
tímabilið mars til nóvember og kom þar í
ljós að sölusamdráttur mældist 5% þegar
horft er til sömu búða. „Við erum að halda
kúnnafjöldanum en hver viðskiptavinur
kaupir minna, auk þess sem almenn verð-
hjöðnun er á dagvöru,“ segir Finnur. „Það
skiptir okkur miklu máli að þrátt fyrir að fá
þennan nýja keppinaut inn á markaðinn, og
félag sem er 150-200 sinnum stærra en Hag-
ar, hefur okkur tekist að vera áfram með
lægsta dagvöruverðið á Íslandi. Bónus hefur
frá upphafi verið með lægsta matvöruverðið,
er með sama verðið í 32 verslunum um land
allt, og hafa sjö nýlegar verðkannanir ASÍ
og fjölmiðla staðfest að Bónus er oftar en
nokkur önnur matvöruverslun með lægsta
verðið.“
Fækka fermetrum og kaupa olíufélag
Finnur segir rekstur Haga hafa verið frek-
ar íhaldssaman undanfarin ár, og m.a. hefur
samsteypan bæði fækkað verslunum sínum
og minnkað aðrar. „Síðastliðin tvö ár hefur
verslunarfermetrum okkar fækkað um 20.000
og skýrist meðal annars af minnkun verslana
Hagkaups í Kringlunni og Smáralind, lokun
Útilífs í Glæsibæ og Debenhams, auk tísku-
verslana og Outlet-verslunar í Korputorgi.
Að því sögðu þá hafa Hagar líka ráðist í
fjárfestingar á nýjum sviðum til að renna
sterkari stoðum undir reksturinn. Í apríl
voru tilkynnt kaup Haga á Olís og er sá
samningur nú í meðferð hjá Samkeppnis-
eftirlitinu. Finnur er vongóður um að kaupin
gangi eftir og segir hann mikil samlegðar- og
sóknarfæri fólgin í því að bæta rekstri Olís
við samsteypuna. Síðastliðið sumar stöðvaði
Samkeppniseftirlitið aftur á móti kaup Haga
á Lyfju en talin var hætta á að kaupin
myndu hafa neikvæð áhrif á samkeppni á
snyrtivörumarkaði í ákveðnum landshlutum.
„Það mál fór því á núllpunkt hjá ríkissjóði
sem seljanda og bíðum við átekta,“ segir
Finnur.
ai@mbl.is
Hafa lækkað skuldir og lagt
áherslu á kjarnastarfsemi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
10. sæti
Hagar
Finnur Árnason
„Við erum að halda
kúnnafjöldanum en
hver viðskiptavinur
kaupir minna, auk þess
sem almenn verð-
hjöðnun er á dagvöru,“
segir Finnur Árnason.
Fyrirtæki Haga eru
í grunninn rótgróin
íslensk fjölskyldufyrirtæki
og njótum við þess að hafa á
frábæru starfsfólki að skipa,
sem leggur metnað sinn í
að þjóna viðskiptavinum
félagsins á hverjum degi.
Finnur getur bent á ýmislegt sem mætti
betur fara í rekstrarumhverfi matvöru-
og tískuverslana á Íslandi. Fyrst af öllu
nefnir hann að auka mætti viðskiptafrelsi
með nauðsynjavörur með því að lækka
tolla á innflutningi. „Einnig er tímabært
að leyfa matvöruverslunum að selja
áfengi beint til neytenda. Um við-
kvæman vöruflokk er að ræða og þyrfti
þessi breyting að vera gerð í góðri sátt
við samfélagið, t.d. með skilyrðum um
hvernig sölunni skuli vera háttað, en það
er staðreynd að ótalmargir aðilar geta í
dag selt áfengi, s.s. íþróttafélög, félags-
heimili, skyndibitastaðir og bensín-
stöðvar, og fá rök eru fyrir því að mat-
vöruverslanir geri það ekki líka. Verði
sala áfengis gefin frjáls munum við selja
þessa vöru af ábyrgð og fagmennsku,
og er af og frá – eins og sumir hafa hald-
ið fram – að áfengið fari beint í mjólkur-
kælinn eða nammmilandið.“
Auka þarf
frelsið