Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI H agar náðu sér nokkuð fljótt á strik eftir hrunið, enda þurfti félagið ekki að fara í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. Hafa sum undirfélög samsteypunnar afrekað það að vera frá upphafi á lista Creditinfo yfir fram- úrskarandi fyrirtæki. Hagar komust aftur á listann fyrri nokkrum árum og segir Finnur Árnason, forstjóri fyrirtækisins, að um mikil- væga viðurkenningu sé að ræða. „Að komast á listann byggist ekki bara á árangri eins árs, heldur þurfa ákveðin hlutföll í rekstri og efnahag að vera góð og stöðug til lengri tíma,“ segir hann. „Fyrirtæki Haga eru í grunninn rótgróin íslensk fjölskyldufyrirtæki og njótum við þess að hafa á frábæru starfs- fólki að skipa, sem leggur metnað sinn í að þjóna viðskiptavinum félagsins á hverjum degi.“ Viðurkenningin sem veitt er í ár byggist á rekstrartölum ársins 2016 sem Finnur segir að hafi verið prýðilegt ár, rétt eins og árin þar á undan. „Síðan þá hefur gefið aðeins á bátinn en reksturinn er enn góður og stöð- ugur og við höfum lagt áherslu á kjarna- starfsemina samhliða því að greiða niður skuldir.“ Undir Haga heyra matvöruverslanakeðj- urnar Bónus og Hagkaup, og að auki kjöt- verkandinn Ferskar kjötvörur, vöru- og dreifingarfyrirtækið Aðföng, innflytjandinn Bananar, vöruhúsið Hýsing, íþrótta- og úti- vistarvöruverslunin Útilíf og tískuverslunin Zara. Rekstrarskilyrði margra af þessum fé- lögum hafa breyst töluvert á undanförnum misserum, bæði til hins betra og til hins verra. Breyttur markaður með fatnað Finnur nefnir að með batnandi efnahag þjóðarinnar hafi fataverslun færst í auknum mæli til útlanda. „Hærri ráðstöfunartekjur þýða að fólk getur ferðast meira og keypt sér föt erlendis. Netverslun hefur líka aukist og aðgangur neytenda að fatnaði er orðinn allt annar en hann var áður. Á móti kemur að stjórnvöld felldu niður tolla á fatnaði og afnámu með því þann tvöfalda toll sem verið hefur á megninu af þeim fatnaði sem fluttur er inn til landsins,“ segir Finnur og útskýrir að þar sem íslenski markaðurinn reiði sig mikið á birgja í Evrópu, sem kaupi fatnaðinn frá öðrum heimshlutum, hafi iðulega verið greiddir tollar í tvígang af sömu flíkinni. „Lagður er tollur á vöruna þegar hún kemur til Evrópu, og hér áður bættist við 15% toll- ur á Íslandi.“ Styrking krónunnar hefur líka hjálpað verslununum að verða samkeppnishæfari: „Ef við skoðum verslun eins og Zöru hefur einingaverð fyrir sambærilega vöru í mörg- um tilvikum lækkað hér á landi um 30% á síðastliðnum þremur árum.“ Sveiflur í gengi krónunnar hafa ekki jafn afgerandi áhrif á matvörumarkaði enda myndar innlend vara að jafnaði um 60-70% af innkaupakörfu íslenskra heimila. „Þar hafa kostnaðarhækkanir, bæði vegna launa- hækkana og annars kostnaðar, valdið því að hækkun hefur orðið á innlendum vörum.“ Salan dróst saman um 5% Koma Costco fór ekki framhjá neinum og hafði innkoma bandaríska risans nokkur áhrif á verslun Íslendinga á síðasta ári. Hag- ar birtu síðast afkomutölur í janúar fyrir tímabilið mars til nóvember og kom þar í ljós að sölusamdráttur mældist 5% þegar horft er til sömu búða. „Við erum að halda kúnnafjöldanum en hver viðskiptavinur kaupir minna, auk þess sem almenn verð- hjöðnun er á dagvöru,“ segir Finnur. „Það skiptir okkur miklu máli að þrátt fyrir að fá þennan nýja keppinaut inn á markaðinn, og félag sem er 150-200 sinnum stærra en Hag- ar, hefur okkur tekist að vera áfram með lægsta dagvöruverðið á Íslandi. Bónus hefur frá upphafi verið með lægsta matvöruverðið, er með sama verðið í 32 verslunum um land allt, og hafa sjö nýlegar verðkannanir ASÍ og fjölmiðla staðfest að Bónus er oftar en nokkur önnur matvöruverslun með lægsta verðið.“ Fækka fermetrum og kaupa olíufélag Finnur segir rekstur Haga hafa verið frek- ar íhaldssaman undanfarin ár, og m.a. hefur samsteypan bæði fækkað verslunum sínum og minnkað aðrar. „Síðastliðin tvö ár hefur verslunarfermetrum okkar fækkað um 20.000 og skýrist meðal annars af minnkun verslana Hagkaups í Kringlunni og Smáralind, lokun Útilífs í Glæsibæ og Debenhams, auk tísku- verslana og Outlet-verslunar í Korputorgi. Að því sögðu þá hafa Hagar líka ráðist í fjárfestingar á nýjum sviðum til að renna sterkari stoðum undir reksturinn. Í apríl voru tilkynnt kaup Haga á Olís og er sá samningur nú í meðferð hjá Samkeppnis- eftirlitinu. Finnur er vongóður um að kaupin gangi eftir og segir hann mikil samlegðar- og sóknarfæri fólgin í því að bæta rekstri Olís við samsteypuna. Síðastliðið sumar stöðvaði Samkeppniseftirlitið aftur á móti kaup Haga á Lyfju en talin var hætta á að kaupin myndu hafa neikvæð áhrif á samkeppni á snyrtivörumarkaði í ákveðnum landshlutum. „Það mál fór því á núllpunkt hjá ríkissjóði sem seljanda og bíðum við átekta,“ segir Finnur. ai@mbl.is Hafa lækkað skuldir og lagt áherslu á kjarnastarfsemi Morgunblaðið/Árni Sæberg 10. sæti Hagar Finnur Árnason „Við erum að halda kúnnafjöldanum en hver viðskiptavinur kaupir minna, auk þess sem almenn verð- hjöðnun er á dagvöru,“ segir Finnur Árnason. Fyrirtæki Haga eru í grunninn rótgróin íslensk fjölskyldufyrirtæki og njótum við þess að hafa á frábæru starfsfólki að skipa, sem leggur metnað sinn í að þjóna viðskiptavinum félagsins á hverjum degi. Finnur getur bent á ýmislegt sem mætti betur fara í rekstrarumhverfi matvöru- og tískuverslana á Íslandi. Fyrst af öllu nefnir hann að auka mætti viðskiptafrelsi með nauðsynjavörur með því að lækka tolla á innflutningi. „Einnig er tímabært að leyfa matvöruverslunum að selja áfengi beint til neytenda. Um við- kvæman vöruflokk er að ræða og þyrfti þessi breyting að vera gerð í góðri sátt við samfélagið, t.d. með skilyrðum um hvernig sölunni skuli vera háttað, en það er staðreynd að ótalmargir aðilar geta í dag selt áfengi, s.s. íþróttafélög, félags- heimili, skyndibitastaðir og bensín- stöðvar, og fá rök eru fyrir því að mat- vöruverslanir geri það ekki líka. Verði sala áfengis gefin frjáls munum við selja þessa vöru af ábyrgð og fagmennsku, og er af og frá – eins og sumir hafa hald- ið fram – að áfengið fari beint í mjólkur- kælinn eða nammmilandið.“ Auka þarf frelsið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.