Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
F
asteignafélagið Reginn er ungt félag
en rataði snemma á lista Creditinfo
yfir framúrskarandi fyrirtæki. Fé-
lagið hefur vaxið hratt og reksturinn
gengið vel allt frá stofnun þess árið 2009 en
í dag á Reginn samtals 120 fasteignir og
hefur rösklega 322.000 fermetra í útleigu.
„Reginn verður til í kjölfar hrunsins og
var félagið stofnað til að halda utan um
fasteignir og fasteignafélög sem Lands-
bankinn yfirtók á árunum eftir hrun,“ segir
Helgi S. Gunnarsson, sem hefur verið for-
stjóri Regins frá upphafi. „Landsbankinn
ákvað síðan að selja félagið í heild sinni
með skráningu þess á markaði árið 2012. Í
framhaldi af skráningu þá varð félagið mjög
virkt á fasteignamarkaði, félagið seldi og
keypti eignir og stækkaði með samrunum,
en bjó að vel samsettu safni fasteigna þegar
félagið var skráð. Vöxturinn hefur haldið
áfram síðan þá og er eignasafnið núna tæp-
lega 96 milljarða króna virði en var metið á
26 milljarða við skráningu.“
Vinna samkvæmt skýrri stefnu
Helgi skrifar árangurinn m.a. á það að
Reginn hefur ætíð starfað samkvæmt skýrri
langtímasýn sem stýrir bæði rekstrar-
viðhorfum sem og fjárfestingum. Er út-
leiguhlutfallið núna í kringum 95% og hefur
jafnvel verið hærra en það á köflum: „Af-
koman hefur stöðugt farið batnandi og allar
kennitölur styrkjast ár frá ári. Rekstrar-
kostnaður hefur verið á niðurleið, nýting
fasteigna á uppleið og félagið að eflast mik-
ið fjárhagslega á sama tíma og það hefur
vaxið gífurlega.“
Stefna Regins er að eignasafnið sé þannig
samsett að verslunarhúsnæði myndi þriðj-
ung, skrifstofuhúsnæði þriðjung og loks að
þriðjungur eigna sé húsnæði af öðrum toga
s.s. fyrir hótelrekstur, opinbera geirann eða
grófari atvinnustarfsemi. Segir Helgi að
Reginn hafi m.a. átt góðu gengi að fagna í
útboðum hins opinbera og eru rúmlega 20%
af leigutekjum félagsins tryggð af opin-
berum aðilum.
„Með því að stækka með samrunum höf-
um við getað vaxið á sama
tíma og við aukum við eig-
ið fé og kaupum fleiri
eignir. Reginn hefur unnið
jafnt og þétt að því að
bæta eignasafnið, bæði
með kaupum og sölu,
þannig voru fasteignir fyr-
ir um einn milljarð króna
seldar á síðasta ári. Sam-
hliða höfum við slípað til
innri verkferla okkar, aukið afköst og gæði,
og t.d. höfum við náð mjög góðum árangri
við alla okkar fjármálaferla sem og við
tekjuöflun, s.s. útleiguferla.“
Veðja á bjarta framtíð
miðborgarinnar
Ein nýjasta viðbótin við eignasafnið er
verslunar- og þjónustuhúsnæði á Hafnar-
torgi, það er á nýja miðbæjarsvæðinu á
besta stað í hjarta Reykjavíkur. Fyrir á
Reginn Smáralind og segir Helgi að með
kaupunum á Hafnartorgi sé félagið að veðja
á möguleika miðbæjarins til að styrkjast
enn frekar sem miðstöð verslunar og þjón-
ustu. „Við tilkynntum á dögunum um samn-
ing við H&M sem mun leigja af okkur
verslunarhúsnæði á Hafnartorgi og erum
við núna að vinna að því að raða verslunum
og veitingastöðum í þessar eignir.“
Ljóst er að mikil tækifæri eru á svæðinu,
og ekki er sama hvaða fyrirtæki koma sér
fyrir á Hafnartorginu. Til að þar verði
blómlegt svæði þarf blandan að vera góð og
fyrirtækin þurfa að höfða til almennings
sem og annarra markhópa sem er þar að
finna, svo sem ferðamanna. „Við megum
ekki leyfa okkur það að reikna með að
Hafnartorg muni slá í gegn á fyrsta degi og
því er mikilvægt að fá inn aðila sem hafa
þolinmæði til að vera með rekstur á svæði
sem gæti tekið einhvern tíma að byggja
upp.“
Helgi á samt ekki von á öðru en að
Hafnartorg muni dafna vel. „Verslun er að
þjappast mikið saman á punktum eins og
Smáralind, Kringlu og Miðbænum. Þá felast
mikil sóknarfæri í fjölgun ferðamanna, sem
leita einkum í miðborgina.“
Stór hluti í gjöld og skatta
Þegar hann er spurður um erfiðleika í
rekstrarumhverfinu nefnir Helgi að hækkun
fasteignagjalda hafi reynst félögum eins og
Regin byrði. „Um gríðarlega háar fjárhæðir
er að ræða og eru fasteignagjöld lang-
stærsti útgjaldaliður fasteignafélaga, en um
15% af tekjum okkar fara beint í að greiða
fasteignagjöld og fasteignaskatta.“
Á móti kemur að efnahagslífið er sterkt
og rekstrarforsendurnar góðar að flestu
leyti: „Vöxturinn er mikill á öllum sviðum
og skuldsetning félaga og einstaklinga ekki
að aukast. Á sama tíma eru vanskil í sögu-
legu lágmarki.“
ai@mbl.is
Hafa bætt verkferla og aukið gæði
Morgunblaðið/Hari
8. Sæti
Reginn
Helgi S. Gunnarsson
Við megum ekki leyfa okkur það
að reikna með að Hafnartorg muni
slá í gegn á fyrsta degi og því mikilvægt
að fá inn aðila sem hafa þolinmæði til að
vera með rekstur á svæði sem gæti tekið
einhvern tíma að byggja upp.
Meðal þess sem gerir rekstur Regins erfiðari
er að fasteignagjöld og -skattar eru mikil byrði
og kosta sem nemur 15% af tekjum félagsins.
Helgi segir að á móti komi að efnahagslífið er
sterkt og vanskil í sögulegu lágmarki.
Að svo stöddu mun Reginn halda áfram
á sömu braut en Helgi segir ekki útilokað
að félagið muni horfa til annarra flokka
fasteigna í framtíðinni og mögulega fjár-
festa í íbúðarhúsnæði. „Ég trúi því að
eitthvað af skráðu fasteignafélögunum
fari á einhverjum tíma út í íbúðar-
húsnæðismarkaðinn, en get ekki sagt til
um hvort það verður eftir tvö ár eða tíu.
Mörg fordæmi eru frá Skandinavíu þar
sem svipuð fasteignafélög hafa íbúðar-
húsnæðiseiningu sem hluta af sinni
samstæðu. Við erum stöðugt að skoða
ný tækifæri og nýja möguleika, og það er
hluti af okkar starfi að vera vakandi yfir
nýjum tækifærum. Það þarf hins vegar
að skoða þau af mikilli nákvæmni og
greina tækifæri og ógnanir vel.“
Fjárfesting í
íbúðarhúsnæði
kæmi til greina