Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI F asteignafélagið Reginn er ungt félag en rataði snemma á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki. Fé- lagið hefur vaxið hratt og reksturinn gengið vel allt frá stofnun þess árið 2009 en í dag á Reginn samtals 120 fasteignir og hefur rösklega 322.000 fermetra í útleigu. „Reginn verður til í kjölfar hrunsins og var félagið stofnað til að halda utan um fasteignir og fasteignafélög sem Lands- bankinn yfirtók á árunum eftir hrun,“ segir Helgi S. Gunnarsson, sem hefur verið for- stjóri Regins frá upphafi. „Landsbankinn ákvað síðan að selja félagið í heild sinni með skráningu þess á markaði árið 2012. Í framhaldi af skráningu þá varð félagið mjög virkt á fasteignamarkaði, félagið seldi og keypti eignir og stækkaði með samrunum, en bjó að vel samsettu safni fasteigna þegar félagið var skráð. Vöxturinn hefur haldið áfram síðan þá og er eignasafnið núna tæp- lega 96 milljarða króna virði en var metið á 26 milljarða við skráningu.“ Vinna samkvæmt skýrri stefnu Helgi skrifar árangurinn m.a. á það að Reginn hefur ætíð starfað samkvæmt skýrri langtímasýn sem stýrir bæði rekstrar- viðhorfum sem og fjárfestingum. Er út- leiguhlutfallið núna í kringum 95% og hefur jafnvel verið hærra en það á köflum: „Af- koman hefur stöðugt farið batnandi og allar kennitölur styrkjast ár frá ári. Rekstrar- kostnaður hefur verið á niðurleið, nýting fasteigna á uppleið og félagið að eflast mik- ið fjárhagslega á sama tíma og það hefur vaxið gífurlega.“ Stefna Regins er að eignasafnið sé þannig samsett að verslunarhúsnæði myndi þriðj- ung, skrifstofuhúsnæði þriðjung og loks að þriðjungur eigna sé húsnæði af öðrum toga s.s. fyrir hótelrekstur, opinbera geirann eða grófari atvinnustarfsemi. Segir Helgi að Reginn hafi m.a. átt góðu gengi að fagna í útboðum hins opinbera og eru rúmlega 20% af leigutekjum félagsins tryggð af opin- berum aðilum. „Með því að stækka með samrunum höf- um við getað vaxið á sama tíma og við aukum við eig- ið fé og kaupum fleiri eignir. Reginn hefur unnið jafnt og þétt að því að bæta eignasafnið, bæði með kaupum og sölu, þannig voru fasteignir fyr- ir um einn milljarð króna seldar á síðasta ári. Sam- hliða höfum við slípað til innri verkferla okkar, aukið afköst og gæði, og t.d. höfum við náð mjög góðum árangri við alla okkar fjármálaferla sem og við tekjuöflun, s.s. útleiguferla.“ Veðja á bjarta framtíð miðborgarinnar Ein nýjasta viðbótin við eignasafnið er verslunar- og þjónustuhúsnæði á Hafnar- torgi, það er á nýja miðbæjarsvæðinu á besta stað í hjarta Reykjavíkur. Fyrir á Reginn Smáralind og segir Helgi að með kaupunum á Hafnartorgi sé félagið að veðja á möguleika miðbæjarins til að styrkjast enn frekar sem miðstöð verslunar og þjón- ustu. „Við tilkynntum á dögunum um samn- ing við H&M sem mun leigja af okkur verslunarhúsnæði á Hafnartorgi og erum við núna að vinna að því að raða verslunum og veitingastöðum í þessar eignir.“ Ljóst er að mikil tækifæri eru á svæðinu, og ekki er sama hvaða fyrirtæki koma sér fyrir á Hafnartorginu. Til að þar verði blómlegt svæði þarf blandan að vera góð og fyrirtækin þurfa að höfða til almennings sem og annarra markhópa sem er þar að finna, svo sem ferðamanna. „Við megum ekki leyfa okkur það að reikna með að Hafnartorg muni slá í gegn á fyrsta degi og því er mikilvægt að fá inn aðila sem hafa þolinmæði til að vera með rekstur á svæði sem gæti tekið einhvern tíma að byggja upp.“ Helgi á samt ekki von á öðru en að Hafnartorg muni dafna vel. „Verslun er að þjappast mikið saman á punktum eins og Smáralind, Kringlu og Miðbænum. Þá felast mikil sóknarfæri í fjölgun ferðamanna, sem leita einkum í miðborgina.“ Stór hluti í gjöld og skatta Þegar hann er spurður um erfiðleika í rekstrarumhverfinu nefnir Helgi að hækkun fasteignagjalda hafi reynst félögum eins og Regin byrði. „Um gríðarlega háar fjárhæðir er að ræða og eru fasteignagjöld lang- stærsti útgjaldaliður fasteignafélaga, en um 15% af tekjum okkar fara beint í að greiða fasteignagjöld og fasteignaskatta.“ Á móti kemur að efnahagslífið er sterkt og rekstrarforsendurnar góðar að flestu leyti: „Vöxturinn er mikill á öllum sviðum og skuldsetning félaga og einstaklinga ekki að aukast. Á sama tíma eru vanskil í sögu- legu lágmarki.“ ai@mbl.is Hafa bætt verkferla og aukið gæði Morgunblaðið/Hari 8. Sæti Reginn Helgi S. Gunnarsson Við megum ekki leyfa okkur það að reikna með að Hafnartorg muni slá í gegn á fyrsta degi og því mikilvægt að fá inn aðila sem hafa þolinmæði til að vera með rekstur á svæði sem gæti tekið einhvern tíma að byggja upp. Meðal þess sem gerir rekstur Regins erfiðari er að fasteignagjöld og -skattar eru mikil byrði og kosta sem nemur 15% af tekjum félagsins. Helgi segir að á móti komi að efnahagslífið er sterkt og vanskil í sögulegu lágmarki. Að svo stöddu mun Reginn halda áfram á sömu braut en Helgi segir ekki útilokað að félagið muni horfa til annarra flokka fasteigna í framtíðinni og mögulega fjár- festa í íbúðarhúsnæði. „Ég trúi því að eitthvað af skráðu fasteignafélögunum fari á einhverjum tíma út í íbúðar- húsnæðismarkaðinn, en get ekki sagt til um hvort það verður eftir tvö ár eða tíu. Mörg fordæmi eru frá Skandinavíu þar sem svipuð fasteignafélög hafa íbúðar- húsnæðiseiningu sem hluta af sinni samstæðu. Við erum stöðugt að skoða ný tækifæri og nýja möguleika, og það er hluti af okkar starfi að vera vakandi yfir nýjum tækifærum. Það þarf hins vegar að skoða þau af mikilli nákvæmni og greina tækifæri og ógnanir vel.“ Fjárfesting í íbúðarhúsnæði kæmi til greina
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.