Morgunblaðið - 24.01.2018, Síða 34
J
ökulsárlón hefur ekki farið varhluta af
stórauknum fjölda erlendra ferða-
manna en hefur gætt þess að halda
rétt á spöðunum um leið. Fyrir bragð-
ið er fyrirtækið nú á lista yfir framúrskar-
andi fyrirtæki.
„Helst ber að þakka því hversu mjög hefur
fjölgað erlendum ferðamönnum til landsins,“
segir Ágúst Elvarsson framkvæmdastjóri
þegar við tökum tal saman um árið sem var
hjá fyrirtækinu. „Þeir skila sér margir á
Jökulsárlón og þar af leiðandi fara fleiri far-
þegar í ferðirnar okkar. Fyrirtækinu hefur
því gengið mjög vel.“
Ágúst bætir því við að einnig hafi mark-
visst verið stefnt að því að auka eiginfjárhlut-
fall fyrirtækisins.
„Þær fjárfestingar sem við höfum farið í
eru því ekki fjármagnaðar með lántöku held-
ur með eigin fé.
Að sjálfsögðu reynum við líka að vanda
okkur eins og hægt er að veita viðskiptavin-
um okkar fyrsta flokks upplifun og þjónustu.
Við erum stanslaust að reyna að bæta okkur
á öllum sviðum sem ég tel mjög mikilvægt.
Passa þarf að gleyma sér ekki þegar vel
gengur og vera alltaf á tánum varðandi það
sem má bæta.“
Einn fallegasti staður landsins
Jökulsárlón er einstakur staður á heims-
vísu, og þótt til séu einhver jökullón sem eru
svipuð telur Ágúst að nánast sé hægt að full-
yrða að ekkert sé jafn aðgengilegt gestum.
„Starfsemi okkar fer fram alveg við þjóðveg-
inn. Hægt er að leggja bílnum og vera kom-
inn út á lón á hjólabát 20 mínútum seinna.
Lónið er að mínu mati einn fallegasti staður
landsins og oft á tíðum sjá ferðamenn eitt-
hvað sem þeir hafa aldrei séð neitt í líkingu
við. Svæðið felur í sér svo mikla andstæðu við
umhverfi sitt. Þú ferðast frá hálfgerðri vin í
eyðimörkinni, sem er Skaftafellsþjóðgarður, í
gegnum svarta sanda þar sem jöklar taka á
móti þér. Á leiðinni sérðu bæði græn tún,
hvíta og bláa jökla, svört fjöll og sanda og
svo held ég að ferðamenn upplifi oft þetta
„wow“-augnablik þegar þeir koma loksins að
brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi þar
sem lónið birtist þeim nánast úr engu.“
Þetta þekkja allir sem reynt hafa; aðkom-
an að lóninu er engu lík.
„Ég hef oft sett mig í spor ferðamanns sem
er að sjá allt þetta í fyrsta skipti og ég held
að fyrir þá sé þetta mögnuð upplifun. Lónið
tekur líka sífelldum breytingum og náttúran
skapar nýja skúlptúra úr ísnum daglega.“
Ágúst bætir því við að Jökulsárlón fari
ekki varhluta af loftslagsbreytingum, nokkuð
sem hann horfir upp á frá degi til dags.
„Jökulsárlón sýnir á mjög skýran hátt
áhrif hlýnunar jarðar enda hefur það stækk-
að mjög hratt og jökullinn hopað mikið. Þetta
er því fyrir marga staður sem þeir vilja upp-
lifa áður en það er of seint. Lónið og jökull-
inn verður auðvitað þarna áfram næstu 1-2
kynslóðir en ef hlýnunin heldur áfram gæti
hann verið svo gott sem horfinn eftir það.
Sama hvað gerist verður landslagið og ásýnd
jökulsins mjög ólík því sem hún er nú.“
Vel má vera að þetta spili að einhverju
leyti inn í aukna aðsókn hin seinni ár en
Ágúst segir farþegum hafa fjölgað mikið síð-
ustu ár.
„Farþegum hefur fjölgað mikið undanfarin
ár og meðalfjölgunin er rúm 16% á ári.
Mestur var vöxturinn 25,5% milli áranna
2015 og 2016 en 2017 hægði aðeins á fjölg-
uninni og var hún ekki nema 6%,“ segir
Ágúst og bætir því við að heildarfjöldi far-
þega árið 2017 hafi verið rúmlega 165
þúsund.
Langflestir útlendir og
langflestir á sumrin
Hlutfall Íslendinga af heildarfarþegafjölda
hefur lækkað töluvert undanfarin ár sam-
hliða fjölgun á erlendum gestum, að sögn
Ágústs.
„Ég held að fjöldi Íslendinga á ári hafi
haldist nánast sá sami síðastliðin fimm ár en
sem hlutfall af heildarfjöldanum er það sjálf-
sagt komið niður í um 2%.“
Gestir koma að Jökulsárlóni allt árið þótt
þeir séu langflestir yfir sumarmánuðina.
„Um 80% af farþegum okkar fara í siglingar
frá byrjun júní og út september. Við hefjum
siglingar á lóninu í byrjun maí þótt það hafi
gerst að við getum byrjað aðeins fyrr eða í
lok apríl þegar aðstæður eru hagstæðar.“
Ágúst bendir í framhaldinu á að engu að
síður hafi fjölgað mikið þeim sem koma á
jaðartíma.
„Maímánuður er til dæmis orðinn svipað
stór og júní var fyrir nokkrum árum. Eins
hefur orðið algjör sprenging í komu ferða-
manna á Jökulsárlón yfir háveturinn. Á þess-
um tíma getum við þó ekki siglt þar sem lón-
ið er meira eða minna ísilagt.
Það sem flestir ferðamenn eru að sækja í
yfir háveturinn eru gríðarlega vinsælar ís-
hellaferðir en mörg fyrirtæki fara í með
ferðamenn í íshella í Breiðamerkurjökli.“
Nauðsynlegar úrbætur á aðstöðunni
Þegar árið fram undan ber á góma – hvað
helst er á döfinni hjá Jökulsárlóni – koma
Ágústi strax í hug nokkur atriði er varða
uppbyggingu aðstöðunnar.
„Því miður höfum við ekki fengið leyfi fyrir
þeim viðbótum sem við viljum gera. Veitinga-
skálinn við Jökulsárlón og öll aðstaða er
löngu sprungin, gerði það í raun fyrir meira
en 10 árum. Áður en jörðin fór á uppboð hef-
ur fyrirtækið verið tilbúið með uppbyggingu
upp á 1,5 milljarða. Þessi uppbygging felst í
þjónustubyggingum, salernisaðstöðu, starfs-
mannaaðstöðu, bættu bílastæði og fleira. Við
ætlum þó að reyna að bæta það við Jökuls-
árlón sem við mögulega getum. Mestu breyt-
ingarnar eru í „starfsmannabúðum“ fyrir-
tækisins, sem við getum kallað svo. Jökuls-
árlón á sveitabæ sem er í um 10 km fjarlægð
frá lóninu þar sem um 45 starfsmenn búa
saman yfir háannatímann. Þar eru miklar
framkvæmdir núna við að bæta aðstöðuna
svo um munar.“
jonagnar@mbl.is
Nýir skúlptúrar daglega
Morgunblaðið/RAX
Fjöldi ferðamanna nýtur fegurðar lónsins á degi
hverjum. Langflestir eru erlendir ferðamenn;
heimamenn telja ekki nema um 2% af gest-
unum hjá Ágústi og samstarfsfólki hans.
101. sæti
Jökulsárlón
Meðalstórt 2. sæti
Ágúst Elvarsson
Morgunblaðið/RAX
„Farþegum hefur fjölgað mikið undanfarin ár og meðal-
fjölgunin er rúm 16% á ári,“ segir Ágúst.
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI