Morgunblaðið - 24.01.2018, Side 80
80 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
W
ürth á Íslandi var stofnað árið
1988 og hefur þar af leiðandi þjón-
ustað viðskiptavini sína í 30 ár.
Fyrirtækið er hluti af hinni al-
þjóðlegu Würth-samsteypu en hún saman-
stendur af 413 fyrirtækjum í 84 löndum, með
um það bil 77 þúsund starfsmenn. Viðskipta-
módel Würth er nokkuð sérstætt, eins og Har-
aldur Leifsson, framkvæmdastjóri Würth á Ís-
landi, segir frá. Á þessum bæ er algert
grundvallaratriði að eiga fyrir hlutunum. Arð-
semiskrafan er hófstillt frá hendi samsteyp-
unnar og ekki er leyfilegt að taka einhverja
sénsa í rekstrinum, eins og Haraldur segir. Það
er mikill agi og náið fylgst með rekstrinum.
Þessi nálgun er að skila Würth á Íslandi í hóp
framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, fjórða árið
í röð.
„Würth á Íslandi er dæmigerð starfseining
fyrir samsteypuna og í raun erum við öll að gera
það sama,“ segir Haraldur, spurður um fyrir-
tækið hér á landi í samanburði við það sem er-
lendis þekkist. „Við erum að selja lausnir fyrir
iðnaðarmenn, verkfæri, kítti, vinnufatnað og í
raun allt sem þarf til að koma hlutunum
saman.“
Til marks um umfang starfseminnar er sú
staðreynd að samsteypan er alls með um 125
þúsund vörunúmer og fyrirtækið á Íslandi er
með um 9 þúsund slík. „Fjöldi, stærð og velta
eru hlutir sem skipta ekki öllu máli í samheng-
inu. Ef það verða frávik frá væntri afkomu þarf
maður að útskýra hvernig á þeim stendur,
standa skil á því gagnvart samsteypunni. Það er
lagt upp úr því að starfsumhverfið sé gott,
starfsmenn séu ánægðir og allir séu að sinna
sínu. Þá eru allir hamingjusamir,“ bætir Har-
aldur við.
Fyrirtæki þjónustuð með
persónulegum hætti
Haraldur bendir ennfremur á að Würth séu
með mottó sem fangi í raun það sem fyrirtækið
vilji standa fyrir. Það er gæði, hraði og þjón-
usta.
„Þetta er markmið fyrirtækisins á heimsvísu.
Gæðin eru númer eitt, tvö og þrjú; hraðinn á að
vera með þeim hætti að ef verktaka vantar eitt-
hvað frá okkur þá fær hann það mjög fljótt, og
loks að þjónustan sé hundrað prósent og með
þeim hætti að viðskiptavinir komi alltaf aftur.“
Það kemur á daginn að fyrirtækið er um
margt sérstakt og rekstrarformið án hliðstæðu
hér á landi. „Starfsemin gengur út á það að
helmingurinn er sölumenn og þeir fara að heim-
an frá sér á morgnana og sinna sínu tiltekna
sölusvæði. Hver þeirra er með á bilinu 70-150
fyrirtæki á sinni könnu. Sölumennirnir þjónusta
þessi fyrirtæki með persónulegum hætti, fara
til þeirra og skoða lagerstöðuna hverju sinni
hjákomandi fyrirtæki. Eftir þörfum fylla þeir á,
kynna nýjungar og eru bara í viðvarandi þjón-
ustu. Fyrirtækin þurfa þá ekki að vera senda
menn hingað og þangað um bæinn að sækja
hluti. Þvert á móti þá komum við til fyrirækj-
anna og sjáum til þess að staðan sá ávallt góð.“
Heimsóknir sölumanna eru þar af leiðandi
snar þáttur í starfseminni, eins og Haraldur út-
skýrir; reksturinn snýst í raun alfarið um það að
þjónustufulltrúi selur fyrirtækjum og þjónustar
þau meðfram því. Það er því lítið um það að fólk
sé að koma inn af götunni til Würth, eins og
Haraldur orðar það.
Þverþjóðlegir samráðsfundir
Þannig hljómar Würth-rekstrarmódelið á
heimsvísu, og nákvæmlega sami háttur hafður á
hvort sem það er hér á landi eða í tilteknu
Afríkuríki. „Það er gaman að segja frá því að ég
er í grúppu af framkvæmdastjórum hjá Würth
frá átta mismunandi löndum og við erum að
hittast á um það bil þriggja mánaða fresti. Þá
erum við að fara yfir mál hvers lands fyrir sig,
berum saman bækur okkar og skoðum hvað
gengur vel og hvað síður, ef eitthvað er. Í spjall-
inu er svo hægt að fá hugmyndir og innblástur
af öðrum markaðssvæðum, leita í reynslubanka
kollega í öðrum löndum og miðla þekkingu milli
manna og draga lærdóm af.“
Vöruþróun er enn fremur snar þáttur í starf-
semi Würth og sífellt er verið að þróa nýjar
lausnir. Þúsundir nýrra vörunúmera eru kynnt-
ar á hverju ári og svo þarf að velja úr það sem
hentar íslenskum markaði og aðstæðum.
Fagmennirnir koma aftur og aftur
„Skrúfa er til dæmis ekki það sama og
skrúfa,“ bendir Haraldur á. „Sumar þurfa átak
og fyrirhöfn til að vera skrúfaðar í tré en aðrar
geturðu skrúfað á sinn stað á örfáum andar-
tökum. Þetta sparar bæði tíma og afl. Það tekur
í þegar þú þarft að skrúfa hundruð eða þúsundir
af skrúfum í stóru verki. Sama er með kítti.
Kíttið okkar er jafnan talið með betra kítti á
markaðnum og það heldur einstaklega vel. Það
lekur ekkert sem hefur verið kíttað með Würth-
kítti. Það er kannski freistandi fyrir bygging-
araðila að spara og kaupa ódýrt kítti fyrir
gluggana í heilu fjölbýlishúsi. Sá sparnaður fer
hins vegar fyrir lítið þegar þú þarft svo kannski
að skipta út og laga alla gluggana. Þegar allt
kemur til alls eru það gæðin sem gilda, og við
berjumst ekki á lágvöruverðsgrundvelli. Við
leggjum alla áherslu á gæðin,“ segir Haraldur.
„Þegar upp er staðið eru gæðin því ódýrari en
að þurfa að laga það sem aflaga fór. Þetta skilar
sér og það er það sem er mest gefandi í þessu,
að iðnaðarmaðurinn og fyrirtækin koma til okk-
ar aftur og aftur því fagfólkið treystir vörunum
okkar og kann að meta þjónustuna.“
jonagnar@mbl.is
Gæðin oft ódýrari þegar upp er staðið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
118. sæti
Würth
Meðalstórt 6. sæti
Haraldur Leifsson
„Þegar allt kemur til alls eru það gæð-
in sem gilda, og við berjumst ekki á
lágvöruverðsgrundvelli. Við leggjum
alla áherslu á gæðin,“ segir Haraldur
Leifsson, framkvæmdastjóri Wurth.
Undanfarin ár hefur Würth á Íslandi staðið
fyrir skemmtilegum viðburði sem nefnist
„Leitin að harðasta iðnaðarmanninum“.
Eins og gefur að skilja eru margir til kallaðir
en fáir útvaldir og þrír einstaklingar hljóta
svo verðlaun sem þeir hörðustu ár hvert í
sérstakri kosningu, og þar af er sigurveg-
arinn krýndur „Harðasti iðnaðarmaðurinn“.
Haraldur bendir á þá skemmtilegu stað-
reynd að á síðustu þremur árum hefur
harðasti iðnaðarmaðurinn verið kona.
Kastljósið á handverk, iðngreinar
og hörkuduglegar konur
„Það var galvösk kona um sjötugt sem
vinnur í málmiðnaði sem bar sigur úr býtum
í hittífyrra og svo var ung kona sem er bíl-
virki sem vann titilinn fyrir árið 2017,“
bendir hann á, en sigurvegarinn heitir Auð-
ur Linda Sonjudóttir og starfar hjá Bern-
hard. Auk nafnbótarinnar „Harðasti iðn-
aðarmaðurinn 2017“ fékk Auður Linda
inneign að verðmæti 150.000 kr. hjá Würth í
verðlaun ásamt birgðum af Bola.
„Hún er að sögn algert undur fyrir dugn-
að og ósérhlífni, og er mikil fyrirmynd. Því
þótt það sé gaman að beina kastljósinu að-
eins að handverki og iðngreinum er ekki
síður mikilvægt að hamra á þeirri stað-
reynd að konur eiga fullt eins mikið erindi í
iðngreinarnar og karlarnir. Þetta framtak
hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur hjá
viðskiptavinum okkar og hefur gengið
miklu betur en við þorðum að vona í upp-
hafi. Þátttaka er ótrúlega góð og vekur at-
hygli löngu eftir keppnina sjálfa. Það er
engin spurning að leitin að harðasta iðn-
aðarmanninum er komin til að vera.“
Leitin að harðasta iðnaðarmanninum
Auður Linda vann keppnina um harðasta
iðnaðarmanninn 2017 með talsverðum
yfirburðum og hlaut 43% atkvæða.