Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 80

Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 80
80 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI W ürth á Íslandi var stofnað árið 1988 og hefur þar af leiðandi þjón- ustað viðskiptavini sína í 30 ár. Fyrirtækið er hluti af hinni al- þjóðlegu Würth-samsteypu en hún saman- stendur af 413 fyrirtækjum í 84 löndum, með um það bil 77 þúsund starfsmenn. Viðskipta- módel Würth er nokkuð sérstætt, eins og Har- aldur Leifsson, framkvæmdastjóri Würth á Ís- landi, segir frá. Á þessum bæ er algert grundvallaratriði að eiga fyrir hlutunum. Arð- semiskrafan er hófstillt frá hendi samsteyp- unnar og ekki er leyfilegt að taka einhverja sénsa í rekstrinum, eins og Haraldur segir. Það er mikill agi og náið fylgst með rekstrinum. Þessi nálgun er að skila Würth á Íslandi í hóp framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, fjórða árið í röð. „Würth á Íslandi er dæmigerð starfseining fyrir samsteypuna og í raun erum við öll að gera það sama,“ segir Haraldur, spurður um fyrir- tækið hér á landi í samanburði við það sem er- lendis þekkist. „Við erum að selja lausnir fyrir iðnaðarmenn, verkfæri, kítti, vinnufatnað og í raun allt sem þarf til að koma hlutunum saman.“ Til marks um umfang starfseminnar er sú staðreynd að samsteypan er alls með um 125 þúsund vörunúmer og fyrirtækið á Íslandi er með um 9 þúsund slík. „Fjöldi, stærð og velta eru hlutir sem skipta ekki öllu máli í samheng- inu. Ef það verða frávik frá væntri afkomu þarf maður að útskýra hvernig á þeim stendur, standa skil á því gagnvart samsteypunni. Það er lagt upp úr því að starfsumhverfið sé gott, starfsmenn séu ánægðir og allir séu að sinna sínu. Þá eru allir hamingjusamir,“ bætir Har- aldur við. Fyrirtæki þjónustuð með persónulegum hætti Haraldur bendir ennfremur á að Würth séu með mottó sem fangi í raun það sem fyrirtækið vilji standa fyrir. Það er gæði, hraði og þjón- usta. „Þetta er markmið fyrirtækisins á heimsvísu. Gæðin eru númer eitt, tvö og þrjú; hraðinn á að vera með þeim hætti að ef verktaka vantar eitt- hvað frá okkur þá fær hann það mjög fljótt, og loks að þjónustan sé hundrað prósent og með þeim hætti að viðskiptavinir komi alltaf aftur.“ Það kemur á daginn að fyrirtækið er um margt sérstakt og rekstrarformið án hliðstæðu hér á landi. „Starfsemin gengur út á það að helmingurinn er sölumenn og þeir fara að heim- an frá sér á morgnana og sinna sínu tiltekna sölusvæði. Hver þeirra er með á bilinu 70-150 fyrirtæki á sinni könnu. Sölumennirnir þjónusta þessi fyrirtæki með persónulegum hætti, fara til þeirra og skoða lagerstöðuna hverju sinni hjákomandi fyrirtæki. Eftir þörfum fylla þeir á, kynna nýjungar og eru bara í viðvarandi þjón- ustu. Fyrirtækin þurfa þá ekki að vera senda menn hingað og þangað um bæinn að sækja hluti. Þvert á móti þá komum við til fyrirækj- anna og sjáum til þess að staðan sá ávallt góð.“ Heimsóknir sölumanna eru þar af leiðandi snar þáttur í starfseminni, eins og Haraldur út- skýrir; reksturinn snýst í raun alfarið um það að þjónustufulltrúi selur fyrirtækjum og þjónustar þau meðfram því. Það er því lítið um það að fólk sé að koma inn af götunni til Würth, eins og Haraldur orðar það. Þverþjóðlegir samráðsfundir Þannig hljómar Würth-rekstrarmódelið á heimsvísu, og nákvæmlega sami háttur hafður á hvort sem það er hér á landi eða í tilteknu Afríkuríki. „Það er gaman að segja frá því að ég er í grúppu af framkvæmdastjórum hjá Würth frá átta mismunandi löndum og við erum að hittast á um það bil þriggja mánaða fresti. Þá erum við að fara yfir mál hvers lands fyrir sig, berum saman bækur okkar og skoðum hvað gengur vel og hvað síður, ef eitthvað er. Í spjall- inu er svo hægt að fá hugmyndir og innblástur af öðrum markaðssvæðum, leita í reynslubanka kollega í öðrum löndum og miðla þekkingu milli manna og draga lærdóm af.“ Vöruþróun er enn fremur snar þáttur í starf- semi Würth og sífellt er verið að þróa nýjar lausnir. Þúsundir nýrra vörunúmera eru kynnt- ar á hverju ári og svo þarf að velja úr það sem hentar íslenskum markaði og aðstæðum. Fagmennirnir koma aftur og aftur „Skrúfa er til dæmis ekki það sama og skrúfa,“ bendir Haraldur á. „Sumar þurfa átak og fyrirhöfn til að vera skrúfaðar í tré en aðrar geturðu skrúfað á sinn stað á örfáum andar- tökum. Þetta sparar bæði tíma og afl. Það tekur í þegar þú þarft að skrúfa hundruð eða þúsundir af skrúfum í stóru verki. Sama er með kítti. Kíttið okkar er jafnan talið með betra kítti á markaðnum og það heldur einstaklega vel. Það lekur ekkert sem hefur verið kíttað með Würth- kítti. Það er kannski freistandi fyrir bygging- araðila að spara og kaupa ódýrt kítti fyrir gluggana í heilu fjölbýlishúsi. Sá sparnaður fer hins vegar fyrir lítið þegar þú þarft svo kannski að skipta út og laga alla gluggana. Þegar allt kemur til alls eru það gæðin sem gilda, og við berjumst ekki á lágvöruverðsgrundvelli. Við leggjum alla áherslu á gæðin,“ segir Haraldur. „Þegar upp er staðið eru gæðin því ódýrari en að þurfa að laga það sem aflaga fór. Þetta skilar sér og það er það sem er mest gefandi í þessu, að iðnaðarmaðurinn og fyrirtækin koma til okk- ar aftur og aftur því fagfólkið treystir vörunum okkar og kann að meta þjónustuna.“ jonagnar@mbl.is Gæðin oft ódýrari þegar upp er staðið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 118. sæti Würth Meðalstórt 6. sæti Haraldur Leifsson „Þegar allt kemur til alls eru það gæð- in sem gilda, og við berjumst ekki á lágvöruverðsgrundvelli. Við leggjum alla áherslu á gæðin,“ segir Haraldur Leifsson, framkvæmdastjóri Wurth. Undanfarin ár hefur Würth á Íslandi staðið fyrir skemmtilegum viðburði sem nefnist „Leitin að harðasta iðnaðarmanninum“. Eins og gefur að skilja eru margir til kallaðir en fáir útvaldir og þrír einstaklingar hljóta svo verðlaun sem þeir hörðustu ár hvert í sérstakri kosningu, og þar af er sigurveg- arinn krýndur „Harðasti iðnaðarmaðurinn“. Haraldur bendir á þá skemmtilegu stað- reynd að á síðustu þremur árum hefur harðasti iðnaðarmaðurinn verið kona. Kastljósið á handverk, iðngreinar og hörkuduglegar konur „Það var galvösk kona um sjötugt sem vinnur í málmiðnaði sem bar sigur úr býtum í hittífyrra og svo var ung kona sem er bíl- virki sem vann titilinn fyrir árið 2017,“ bendir hann á, en sigurvegarinn heitir Auð- ur Linda Sonjudóttir og starfar hjá Bern- hard. Auk nafnbótarinnar „Harðasti iðn- aðarmaðurinn 2017“ fékk Auður Linda inneign að verðmæti 150.000 kr. hjá Würth í verðlaun ásamt birgðum af Bola. „Hún er að sögn algert undur fyrir dugn- að og ósérhlífni, og er mikil fyrirmynd. Því þótt það sé gaman að beina kastljósinu að- eins að handverki og iðngreinum er ekki síður mikilvægt að hamra á þeirri stað- reynd að konur eiga fullt eins mikið erindi í iðngreinarnar og karlarnir. Þetta framtak hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur hjá viðskiptavinum okkar og hefur gengið miklu betur en við þorðum að vona í upp- hafi. Þátttaka er ótrúlega góð og vekur at- hygli löngu eftir keppnina sjálfa. Það er engin spurning að leitin að harðasta iðn- aðarmanninum er komin til að vera.“ Leitin að harðasta iðnaðarmanninum Auður Linda vann keppnina um harðasta iðnaðarmanninn 2017 með talsverðum yfirburðum og hlaut 43% atkvæða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.