Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 82

Morgunblaðið - 24.01.2018, Page 82
82 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI C handrika Gunnarsson er eigandi og stofnandi Austur Indíafélagsins. Hún segir fyrirtækið í stöðugum vexti og lykillinn að góðum árangri sé að þjóna Íslendingum vel og að breyta ekki því sem gengur vel í gegnum árin. Hvað stendur upp úr á síðasta rekstrarári hjá fyrirtækinu og hverju þakkið þið helst árang- urinn? „Það sem stendur upp úr að mínu mati er tryggð viðskiptavina okkar. Við höfum vaxið jafnt og þétt á milli ára. Okkar tryggu við- skiptavinir hafa aukið komur sínar og meirihluti gesta okkar er heimamenn. Við fáum einnig talsvert af ferðamönnum, en við erum hér þökk sé heimamönnum og byggjum reksturinn á því. Það eru engar töfralausnir í þessum geira. Það tekur langan tíma að byggja upp tryggan hóp viðskiptavina og lykillinn að því er að við- halda stöðugleika. Við minnum okkur reglulega á mikilvægi þess að breyta ekki því sem gengur vel og reynum stöðugt að bæta okkur. Austur Indíafjelagið er nú á 25. starfsári sínu. Við höfum rekið fyrirtækið undir sömu kennitölu öll árin, á sama staðnum og að stórum hluta með sama starfsliði. Það hefur reynst okkur vel. Við- skiptavinir okkar eru ákaflega þakklátir fyrir að sama hvað breytist í samfélaginu, þá vita þeir að hverju þeir ganga hjá okkur. Þó er mikilvægt að staðna ekki og vera ávallt opin fyrir nýjungum sem gera upplifun gesta enn betri.“ Markaðshlutdeild vex jafnt og þétt Hver hefur þróunin verið á markaðshlutdeild ykkar og arðsemi síðustu misserin? „Vöxtur ferðaiðnaðarins hefur breytt um- hverfi veitingahúsa mjög mikið á síðustu árum. Við höfum notið góðs af því eins og aðrir, en eins og fyrr greindi er meirihluti viðskiptavina okkar heimamenn. Við höfum litlu breytt til að höfða sérstaklega til ferðamanna og alls ekki á kostnað þess sem við höfum byggt upp fyrir landsmenn sem þekkja okkur. Auk Austur Indíafjelagsins rekum við fjóra veitingastaði undir merki Hraðlestarinnar og hafa allir fimm veitingastaðir vaxið í veltu. Hvað markaðshlutdeild varðar stöndum við vel þegar kemur að indverskum mat. Við bjóðum upp á ekta indversk krydd, menningu og mat sem minnir á hjarta matargerðar í Indlandi. Mat- reiðslumeistarar okkar eru þeir bestu á sínu sviði á Indlandi og svo mætti lengi áfram telja.“ Að höfða til ungu kynslóðarinnar Hvað er á döfinni á þessu ári? „Það er nokkur óvissa um hvernig framtíð veitingageirans mun þróast á þessu ári. Sem dæmi þá er ómögulegt að sjá fyrir hvað muni gerast varðandi kjör starfsmanna á árinu. Í dag er áskorunin helst sú að vinnuafl er dýrt í land- inu og hráefnisverð hátt. Við munum þó halda okkar striki og reyna að gera það sem við erum góð í; að viðhalda stöðugleika á öllum sviðum rekstursins og bjóða gestum okkar góðan mat, fagmannlega þjónustu og einstaka upplifun á stöðunum okkar. Það er mikil velta í veitingahúsaiðnaðinum. Ný fyrirtæki eru að verða til, sem er ánægju- legt, en því miður eru einnig fyrirtæki að hætta. Við verðum varkár þegar kemur að því að vaxa, en erum með einhverjar hugmyndir um slíkt sem við nálgumst af varfærni á nýju ári. Við munum leggja okkur fram við að halda áfram að njóta tryggðar okkar viðskiptavina, en setj- um okkur það markmið að ná til ungu kyn- slóðarinnar sem mun erfa landið. Vonandi velur hún okkur eins og fyrri kynslóðir hafa gert í gegnum áratugina,“ segir hún að lokum. elinros@mbl.is Samkvæmni er lykillinn Morgunblaðið/Árni Sæberg 399. sæti Austur Indíafélagið Lítið 21. sæti Chandrika Gunnarsson „Við höfum litlu breytt til að höfða sérstaklega til ferða- manna,“ segir Chandrika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.