Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 82
82 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
C
handrika Gunnarsson er eigandi og
stofnandi Austur Indíafélagsins. Hún
segir fyrirtækið í stöðugum vexti og
lykillinn að góðum árangri sé að
þjóna Íslendingum vel og að breyta ekki því
sem gengur vel í gegnum árin.
Hvað stendur upp úr á síðasta rekstrarári hjá
fyrirtækinu og hverju þakkið þið helst árang-
urinn?
„Það sem stendur upp úr að mínu mati er
tryggð viðskiptavina okkar. Við höfum vaxið
jafnt og þétt á milli ára. Okkar tryggu við-
skiptavinir hafa aukið komur sínar og meirihluti
gesta okkar er heimamenn. Við fáum einnig
talsvert af ferðamönnum, en við erum hér þökk
sé heimamönnum og byggjum reksturinn á því.
Það eru engar töfralausnir í þessum geira.
Það tekur langan tíma að byggja upp tryggan
hóp viðskiptavina og lykillinn að því er að við-
halda stöðugleika. Við minnum okkur reglulega
á mikilvægi þess að breyta ekki því sem gengur
vel og reynum stöðugt að bæta okkur. Austur
Indíafjelagið er nú á 25. starfsári sínu. Við
höfum rekið fyrirtækið undir sömu kennitölu öll
árin, á sama staðnum og að stórum hluta með
sama starfsliði. Það hefur reynst okkur vel. Við-
skiptavinir okkar eru ákaflega þakklátir fyrir
að sama hvað breytist í samfélaginu, þá vita
þeir að hverju þeir ganga hjá okkur. Þó er
mikilvægt að staðna ekki og vera ávallt opin
fyrir nýjungum sem gera upplifun gesta enn
betri.“
Markaðshlutdeild vex jafnt og þétt
Hver hefur þróunin verið á markaðshlutdeild
ykkar og arðsemi síðustu misserin?
„Vöxtur ferðaiðnaðarins hefur breytt um-
hverfi veitingahúsa mjög mikið á síðustu árum.
Við höfum notið góðs af því eins og aðrir, en
eins og fyrr greindi er meirihluti viðskiptavina
okkar heimamenn. Við höfum litlu breytt til að
höfða sérstaklega til ferðamanna og alls ekki á
kostnað þess sem við höfum byggt upp fyrir
landsmenn sem þekkja okkur.
Auk Austur Indíafjelagsins rekum við fjóra
veitingastaði undir merki Hraðlestarinnar og
hafa allir fimm veitingastaðir vaxið í veltu. Hvað
markaðshlutdeild varðar stöndum við vel þegar
kemur að indverskum mat. Við bjóðum upp á
ekta indversk krydd, menningu og mat sem
minnir á hjarta matargerðar í Indlandi. Mat-
reiðslumeistarar okkar eru þeir bestu á sínu
sviði á Indlandi og svo mætti lengi áfram telja.“
Að höfða til ungu kynslóðarinnar
Hvað er á döfinni á þessu ári?
„Það er nokkur óvissa um hvernig framtíð
veitingageirans mun þróast á þessu ári. Sem
dæmi þá er ómögulegt að sjá fyrir hvað muni
gerast varðandi kjör starfsmanna á árinu. Í dag
er áskorunin helst sú að vinnuafl er dýrt í land-
inu og hráefnisverð hátt. Við munum þó halda
okkar striki og reyna að gera það sem við erum
góð í; að viðhalda stöðugleika á öllum sviðum
rekstursins og bjóða gestum okkar góðan mat,
fagmannlega þjónustu og einstaka upplifun á
stöðunum okkar.
Það er mikil velta í veitingahúsaiðnaðinum.
Ný fyrirtæki eru að verða til, sem er ánægju-
legt, en því miður eru einnig fyrirtæki að hætta.
Við verðum varkár þegar kemur að því að vaxa,
en erum með einhverjar hugmyndir um slíkt
sem við nálgumst af varfærni á nýju ári. Við
munum leggja okkur fram við að halda áfram
að njóta tryggðar okkar viðskiptavina, en setj-
um okkur það markmið að ná til ungu kyn-
slóðarinnar sem mun erfa landið. Vonandi velur
hún okkur eins og fyrri kynslóðir hafa gert í
gegnum áratugina,“ segir hún að lokum.
elinros@mbl.is
Samkvæmni er lykillinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
399. sæti
Austur
Indíafélagið
Lítið 21. sæti
Chandrika Gunnarsson
„Við höfum litlu breytt til að
höfða sérstaklega til ferða-
manna,“ segir Chandrika.