Morgunblaðið - 24.01.2018, Qupperneq 86
86 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
K
etill Berg Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Festu, segir Festu
miðstöð um samfélagsábyrgð sem
hafi þann megintilgang að styðja við
fyrirtæki sem vilji innleiða ábyrga starfshætti.
Stuðningurinn er í formi námskeiða, funda,
tengslanets og hvatningarverkefna. Festa var
stofnuð árið 2011 af sex fyrirtækjum sem vildu
gera betur í þessum málum.
„Á þessum tíma voru málefni samfélags-
ábyrgðar mikið í umræðunni, Sameinuðu þjóð-
irnar höfðu lagt Global Compact samninginn
fram við upphaf aldarinnar og talsverð vitund-
arvakning varð hér eftir hrun. Fyrirtækin sem
komu að stofnun Festu voru Síminn, Lands-
bankinn, Landsvirkjun, Rio Tinto, Össur og
Íslandsbanki,“ segir Ketill Berg.
Spurður hversu mörg fyrirtæki séu í Festu í
dag segir hann þau vera 96 talsins, úr öllum
greinum.
Samvinna Creditinfo og Festu
Samvinna Creditinfo og Festu kom til þar
sem Festa nálgaðist fyrirtækið með það að
leiðarljósi að velta upp hvort ekki væri hægt
að mæla árangur fyrirtækja með samfélags-
lega ábyrgð í huga líkt og fjárhagslegu mæli-
kvarðarnir voru notaðir til að úrskurða hvort
fyrirtækin næðu á listann Framúrskarandi
fyrirtæki.
„Festa lagði Creditinfo lið með því að að-
stoða við að móta ramma til að tilnefna fyrir-
tæki, sem eru á listanum Framúrskarandi fyr-
irtæki og hafa að auki gengið lengra en önnur
við að innleiða samfélagslega ábyrgð. Í ár
verður fyrirtæki í fyrsta skipti veitt viður-
kenning fyrir þennan árangur sinn.“
Ísland eftir á í þessum málum
En hvernig standa íslensk fyrirtæki sig al-
mennt í málefnum samfélagslegrar ábyrgðar?
„Með stofnun Festu voru tekin fyrstu skref-
in í því að vinna að samfélagsábyrgð með
markvissum hætti hér á landi. Að setja mark-
mið og mæla árangur er mikilvægur þáttur
samfélagsábyrgðar. Fyrirtækin í Festu hafa
verið að leggja vinnu í að skoða hvar þau hafa
áhrif, axla ábyrgð á þeim áhrifum sem rekst-
urinn hefur á umhverfið og fólkið sem verður
fyrir áhrifum fyrirtækisins.“
Að mati Ketils Berg eru íslensk fyrirtæki
stutt á veg komin. „Við getum alltaf gert bet-
ur. Of fá fyrirtæki hafa fléttað sjálfbærni inn í
viðskiptastefnu sína. Þetta er of oft aukaverk-
efni. Víða eru t.d. óþarfa plastumbúðir sem
síðan enda í náttúrunni eða úti í hafi og menga
strendur og sjó í kringum landið. Tökum
ferðaþjónustuna sem dæmi. Þessi stóra at-
vinnugrein hefur vaxið mjög hratt, og því mið-
ur eru þar víða vaxtaverkir. Margir eru að
vanda sig en inni á milli er fólk sem virðist ein-
göngu hugsa um skjótan gróða.“
Réttast að mati Ketils er að horfa á báða
mælikvarða, þann efnahagslega og þann sam-
félagslega.
„Rannsóknir styðja að fyrirtæki sem setja
sér markmið, eru með ósviknar vörur, sem
framleiddar eru á umhverfisvænan hátt, við-
hafa gegnsæi, réttlæti og jafnrétti og koma á
góðum viðskiptavenjum uppskeri eftir því.
Það þarf svo sannarlega ekki að gefa upp
hagnaðarvon þó að maður vilji breyta rétt.
Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja er góð fyrir
viðskiptin.“
Ábyrgð er arðsöm
En fyrst það er raunin, af hverju eru þá
ekki allir til fyrirmyndar í þessu? „Ég held
það sé misskilningur hjá sumum að maður
þurfi að fórna arðsemi til að leggja samfélag-
inu lið. Tökum IKEA sem dæmi hér; það hef-
ur sett sér langtímamarkmið um umhverfis-
vernd, vill hjálpa heimilum að verða
umhverfisvæn, axla ábyrgð á öllu fram-
leiðsluferlinu og leggja áherslu á öryggi vör-
unnar, þú veist að hverju þú gengur. Það selur
mikið magn og það væri því dýrkeypt að vera
stöðugt að fá vörurnar gallaðar í hausinn.
IKEA gerir hlutina vel og áreiðanlega og upp-
sker eftir því.“
Á morgun, 25. janúar stendur Festa fyrir
Janúarráðstefnu sinni í Hörpu undir yfir-
skriftinni „Ábyrgð er arðsöm“. Þar mun for-
svarsfólk níu íslenskra fyrirtækja og tveggja
erlendra stórfyrirtækja, Coca Cola og Novo
Nordisk, ræða arðsemi samfélagsábyrgðar og
hvernig hún tengist stefnumótun, mannauðs-
málum, nýsköpun og fjárfestingum fyrir-
tækja. Þetta er í fimmta skipti sem við höldum
slíka ráðstefnu og finnum fyrir auknum áhuga
og vaxandi þekkingu á málefninu í íslenskum
fyrirtækjum.“
Heimsmeistarar í jafnrétti
En hverju erum við góð í? „Við erum góð í
jafnrétti. Í raun heimsmeistarar í jafnrétti, en
við getum alls ekki lagt árar í bát á því sviði. Á
mörgum sviðum jafnréttis verðum við að gera
betur. Við sjáum með #metoo-byltingunni að
kynferðisofbeldi er allt of algengt í samfélag-
inu og konum er of víða haldið niðri út af
valdabrölti karla á vinnustöðum. Stjórnendur
fyrirtækja bera ábyrgð á því að tryggja
öruggt vinnuumhverfi án mismununar – og
það borgar sig líka fjárhagslega að fá hæfasta
einstaklinginn til að vinna verkin. Við erum
einnig mjög góð þegar kemur að nýtingu fisk-
auðlinda, með fiskveiðistjórnunarkerfinu okk-
ar höfum við viðurkennt að fiskurinn er tak-
mörkuð auðlind og nýtum hana af ábyrgð.
Þetta kerfi er að mínu mati eitt af því merki-
legasta sem við höfum lagt fram. Þó að ég vilji
halda undanskilinni umræðunni um hvernig
skiptingu á aðgengi í þessa auðlind er háttað.“
Mælikvarðar mikilvægir
Spurður um þau fyrirtæki sem tilnefnd voru
í flokknum um samfélagsábyrgð segir hann
fyrirtækin þurfa að hafa sett sér stefnu og
markmið og unnið markvisst í að ná árangri í
samfélagsábyrgð. „Það er jákvætt ef þau hafa
birt upplýsingar, verið gegnsæ og opin með
markmið og hafa ramma til að mæla nið-
urstöður. Dómnefnd skipuð þremur aðilum
velur fyrirtæki af lista Creditinfo um fram-
úrskarandi fyrirtæki sem hlýtur viðurkenn-
inguna framúrskarandi ábyrgð,“ segir Ketill
Berg að lokum.
elinros@mbl.is
Framúrskarandi á sviði
samfélagslegrar ábyrgðar
Viðurkenning
fyrir nýsköpun
Ketill Berg Magnússon
dómnefndarmaður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Festa lagði Creditinfo lið með því að aðstoða
við að móta ramma til að tilnefna fyrirtæki, sem
eru á listanum Framúrskarandi fyrirtæki og að
auki hafa gengið lengra en önnur við að inn-
leiða samfélagslega ábyrgð,“ segir Ketill Berg.