Morgunblaðið - 05.02.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.02.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Stokkalausn var sett á ís  Oddviti sjálfstæðismanna gagnrýnir fjárfestingar við grjótgarða við Miklu- braut á sama tíma og unnið var að kynningarmyndbandi um stokkalausn Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stokkalausn á Miklubraut var ein af þeim vegaframkvæmdum sem frestað var þegar sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sömdu við ríkið um að leggja fé í tilraunaverkefni um efl- ingu strætó. Eyþór Laxdal Arnalds, nýkjörinn oddviti framboðslista Sjálfstæðis- flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, gagnrýnir að lagt hafi ver- ið í mikinn kostnað við Miklubrautina á sama tíma og undirbúnar voru tillög- ur um að taka upp gömlu hugmyndina um að leggja Miklubraut í stokk. „Það er ekki trúverðugt að rúmum 100 dögum fyrir kosningar sé borgarstjórnar- meirihlutinn að dusta rykið af gamalli hug- mynd um Miklubraut í stokk, hugmynd sem sjálfstæðismenn studdu en meirihlutinn tók af dagskrá árið 2012. Mér finnst ekki trú- verðugt að þegar verið er að ljúka fram- kvæmd upp á hálfan milljarð við grjótgarða sitthvorumegin við Miklubrautina fjárfesti borgin í kynningarmyndbandi um Miklu- braut í stokk, einmitt þá tillögu sem borgar- stjórnarmeirihlutinn afskrifaði,“ segir Ey- þór. Kostar 21 milljarð Í minnisblaði sem lagt var fram við gerð samnings ríkis og sveitarfélaganna á höfuð- borgarsvæðinu um eflingu almenningssam- gangna í apríl 2012 eru listaðar upp þær fjárfreku vegaframkvæmdir sem frestast. Þær eru taldar upp hér til hliðar. Ekki náð- ist í Dag B. Eggertsson borgarstjóra við vinnslu fréttarinnar, en hann kynnti mögu- legar breytingar á Miklubraut á fundi með íbúum Hlíða fyrir helgi. Stokkurinn myndi ná frá Snorrabraut og austur fyrir Kringlu, um 1.750 metra leið, með tveimur akreinum í hvora átt. Borgargata yrði á yfirborði fyrir bílaumferð, strætó, hjólastíga og gang- stéttir. Kostnaður er áætlaður 21 milljarður króna, að því er fram kom á fundinum. Glatað tækifæri Eyþór segir að það veki einnig furðu sína að sami meirihluti hafi ekki nýtt gullið tæki- færi á síðasta ári, þegar framkvæmdir stóðu yfir við Hörpureit og Hafnartorg, til að setja Geirsgötu í stokk og tryggja þannig greiða umferð frá Vesturbænum, framhjá Hörpu, bæði fyrir fólks- og flutningabíla. „Segja má að þetta sé eitt dapurlegasta dæmið á síðustu árum um glatað tækifæri,“ segir Eyþór Arnalds. Eyþór Laxdal Arnalds Framkvæmdir sem frestað var vegna samninga um Strætó » Mislæg gatnamót á Vesturlandsvegi við Hallsveg, Korpúlfsstaðabraut og Skarhólabraut » Mislæg gatnamót á Suðurlandsvegi við Breiðholtsbraut og Norðlingaholt » Mislæg gatnamót á Hafnarfjarðarvegi við Kringlumýrarbraut og breikkun » Breikkun á Reykjanesbraut sunnan Breiðholtsbrautar og mislæg gatnamót við Bústaðaveg » Stokkalausn á Miklubraut » Göng undir Öskjuhlíð » Ofanbyggðavegur » Vífilsstaðavegur ofan Reykjanes- brautar » Breikkun Stekkjarbakka milli Reykja- nesbrautar og Höfðabakka » Hallsvegur milli Víkurvegar og Vestur- landsvegar » Sundabraut frá Sæbraut og upp á Kjalarnes Lúðrasveitartónar hljómuðu í óvenjulegu umhverfi í Laugar- dalslaug á laugardagskvöld þegar Skólahljómsveit Austur- bæjar spilaði fyrir gesti sundlaugarinnar. Lúðrablástur hljómsveitarinnar var hluti af sundlauganótt sem tilheyrir dagskrá Vetrarhátíðar í Reykjavík sem fram fór 1. til 4. febrúar. Skólahljómsveit Austurbæjar er ein af fjórum skóla- hljómsveitum í Reykjavík. Hljómsveitin hefur aðalaðsetur sitt í Laugarnesskóla í austurbæ Reykjavíkur. Sundlaugargestir hlýddu á hressandi lúðrahljóm Morgunblaðið/Árni Sæberg Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is Lögmaður hefur lagt fram kröfu í Landsrétti um að Arnfríður Ein- arsdóttir dómari víki sæti í dóms- máli vegna vanhæfis. Arnfríður er einn af fjórum dómurum Lands- réttar sem dómsmálaráðherra lagði til við Alþingi að yrðu skipaðir en voru ekki á lista sérstakrar dóm- nefndar yfir þá umsækjendur sem hún mat hæfasta. Björn L. Bergsson, skrifstofu- stjóri Landsréttar, segir að tekin verði afstaða til málsmeðferðarinn- ar í dag en dómsmálið er á dagskrá Landsréttar á morgun. Það er dóm- aranna sjálfra að úrskurða um eigið hæfi. Jóhannes Sigurðsson og Þor- geir Ingi Njálsson eiga að dæma í málinu, auk Arnfríðar, en þeir voru á 15 manna lista dómnefndarinnar. Vísað til dóma í Evrópu Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður veitti í gærkvöldi ekki upplýsingar um rök sín fyrir kröfu um að Arnfríður víki sæti í málinu. Í fréttum RÚV sagði að krafan væri meðal annars rökstudd með vísan til nýlegs dóms Evrópudóm- stólsins þar sem skipun dómara í starfsmannarétt dómstólsins var talin ólögmæt. Einnig hefði verið vísað til nýlegs dóms EFTA-dóm- stólsins sem og dóma Hæstaréttar í málum tveggja umsækjenda um embætti dómara við Landsrétt en þeir fengu dæmdar miskabætur vegna málsmeðferðar dómsmála- ráðherra. Dómari víki sæti vegna skipunar  Deilur um skipan dómara í Landsrétti koma til kasta réttarins á morgun Landsréttur Rétturinn er til húsa í Vesturvör 2 í Kópavogi. Morgunblaðið/Hanna Skörp veðurskil verða á milli vesturhluta og austurhluta landsins í dag. Á vesturhlutanum verður hvassviðri og éljagangur en austan til verður heldur hægari vindur og lítil sem engin úrkoma. „Þá má nánast draga línu frá norðri til suðurs yfir miðju landinu. Þeir sem búa austan við sleppa ágætlega en þeir sem búa vestan við fá leiðindaveður,“ sagði Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, við mbl.is í gærkvöldi. Búast má við frosti á Hellisheiði og að Vegagerðin muni loka henni á einhverjum tímapunkti, að mati Óla Þórs. Leiðindaveður á vesturhluta landsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.