Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 10
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Maður spyr sig auðvitað hver rök- stuðningurinn sé fyrir hærra gjaldi hér í Reykjavík en annars staðar,“ segir Harpa Stefánsdóttir hundaeig- andi. Harpa flutti nýverið úr Garðabæ til Reykjavíkur. Tíkin Tanja flutti að sjálfsögðu með eiganda sínum en flutningarnir höfðu það í för með sér að Harpa þarf að greiða umtalsvert hærra eftirlitsgjald en hún hefur átt að venjast. Í Garðabæ greiddi Harpa 12.800 krónur á ári í eftirlitsgjald en í Reykjavík þarf hún að greiða 19.850 krónur. Munurinn er 7.050 krónur, eða 55 prósent. Morgunblaðið kannaði verðið í nokkrum sveitarfélögum. Eins og sjá má í meðfylgjandi grafi er verðið langhæst í höfuðborginni. Harpa greindi frá þessu í færslu í Facebook-hópnum Hundasamfélag- ið og spunnust þar upp miklar um- ræður. „Já, það er hiti í mörgum hundaeigendum,“ segir Harpa. Yfir helmingur óskráður Guðfinna Kristinsdóttir, stjórn- andi hjá Hundasamfélaginu, segist hafa gert athugasemdir við þetta háa gjald hjá borginni. „Þeir gefa sér af því að þeir eru stærsta sveitarfélagið að þar sé mest af hundum og þeir fái mest af kvört- unum. Þar af leiðandi þurfi að borga meira þar en í öðrum sveitarfélög- um. Það er hins vegar halli á rekstri þessa hundaeftirlits á hverju ári svo það er greinilega ekki að koma nóg inn til að halda uppi því starfi sem þeir framfylgja. Ég held persónu- lega að gjöldin séu svona há því þá vantar peninga – og fólk skráir ekki hundana af því að gjöldin eru svo há,“ segir Guðfinna. Hún segir að áætlað sé að helm- ingur hunda á Reykjavíkursvæðinu sé skráður. Sjálf telji hún fleiri óskráða. Tími er kominn á úrbætur, að mati Guðfinnu. „Það er almenn óánægja með þetta gjald. Það er kominn tími á hagræðingu og endurskoðun á kerfinu. Það er úrelt. Fyrsta mál á dagskrá ætti að vera að taka upp raf- ræna skráningu. Það myndi minnka skjalavinnslu. Mörgum finnst sér- stakt að gjaldið sé svo hátt hér, ann- ars staðar á Norðurlöndunum er ým- ist lágt árgjald eða jafnvel bara skráningargjald.“ Gjaldskrá tekur mið af kostnaði En í hvað fara þessir peningar? „Í hundaleyfisgjöldunum er allur umsýslukostaður og þessi venjulegi rekstrarkostnaður, laun, húsnæði, rekstur bíla og fleira sem hundeig- endum ber að standa undir auk kostnaðar við geymslu handsamaðra hunda, tryggingar vegna tjóns gegn þriðja aðila, prentun á skiltum og merkjum, dýralæknaþjónusta og fleira,“ segir Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir- lits Reykjavíkur, sem heldur utan um hundahald í Reykjavík. Hún segir að gjaldskráin taki mið af „raunkostnaði“ við rekstur hunda- eftirlitsins miðað við fjölda skráðra hunda. Þeir eru 2.600 talsins en þar af fær um helmingur hundeigenda 50% af- slátt af árgjaldi vegna þess að þeir ásamt hundum sínum hafa farið á viðurkennt námskeið. Hiti í hundaeigendum vegna hárra gjalda í höfuðborginni  55% hærra eftirlitsgjald fyrir hunda í Reykjavík en í Hafnarfirði og Garðabæ Morgunblaðið/Hari Hundaganga Þær Gunnur og Sædís Embla fóru út að ganga með hundana Irridín, Venus og Orion á dögunum í fallegu og sólríku vetrarveðri. Gjald fyrir hundahald Krónur Skráningar gjald Árlegt eftirlitsgjald Reykjavík 20.800 19.850 Garðabær Hafnarfjörður Kópavogur 14.500 12.800 Seltjarnarnes 12.000 14.500 Akureyri 8.700 10.000 Ísafjörður 11.096 8.877 Skráningargjald gildir jafnan sem árgjald fyrsta árið. Þá er jafnan veittur helmingsafsláttur af árgjaldi ef hund- ar og eigendur hafa farið á námskeið. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018 Framboðsfrestur í forvali Vinstri- hreyfingarinnar – græns fram- boðs fyrir borgarstjórnar- kosningar í vor rann út á laugar- daginn en kjör- nefnd bárust ell- efu framboð. Aðeins er eitt framboð í efsta sæti framboðslist- ans, Líf Magneudóttir borgar- fulltrúi. Þetta kemur fram í fréttatil- kynningu frá flokknum. Forvalið fer fram 24. febrúar. Frambjóðendur eru: Líf Magneudóttir borgarfulltrúi, 1. sæti. Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi, 2. sæti. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsnemi, 2.-4. sæti. Hermann Valsson grunnskólakennari, 3. sæti. Björn Teitsson blaðamaður, 3. sæti. Þorsteinn V. Einarsson æskulýðsfulltrúi, 3. sæti. Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskóla- kennari, 3.-5. sæti. Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm leikkona, 4. sæti. René Biasone, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, 4. sæti. Jakob S. Jónsson leiðsögumaður, 4.-5. sæti og Ragnar Karl Jó- hannsson, uppeldis- og tómstunda- fræðingur, 4.-5. sæti. Líf gefur kost á sér í oddvitann Líf Magneudóttir  Ellefu vilja vera á lista VG í borginni Á 18. lands- þingi Lands- sambands framsóknar- kvenna (LFK) sem haldið var í Reykjavík 3. febrúar síðast- liðinn var Linda Hrönn Þóris- dóttir kjörin formaður LFK. Linda Hrönn er með MA-próf í uppeldis- og menntunarfræðum og B.Ed-gráðu í leikskólakenn- arafræðum. Hún starfar sem sérfræðingur hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi en hefur um tuttugu ára reynslu sem kennari og stjórnandi í leikskólum. Linda Hrönn hefur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum fyrir Framsóknar- flokkinn, hefur verið í miðstjórn frá árinu 2014, er í launþegaráði og situr í menntamálahópi flokks- ins. Aðrir í framkvæmdastjórn eru Bjarnveig Ingvadóttir, Helga Rún Viktorsdóttir, Hjördís Guðný Guðmundsdóttir og Ólöf Pálína Úlfarsdóttir. Til vara eru Jó- hanna María Sigmundsdóttir og Sæbjörg Erlingsdóttir. Í fréttatilkynningu segir að þingið hafi verið vel sótt og að mikil málefnavinna hafi farið þar fram. Fjöldi ályktana var sam- þykktur og m.a. lýst yfir stuðn- ingi við nýstofnaða nefnd stjórn- málaflokkanna um jafnréttismál, húsnæðisáætlun ríkisstjórnar- innar var fagnað og þá var lýst yfir áhyggjum af kennaraskorti í leik- og grunnskólum. Linda Hrönn var kjörin formaður Landssambands framsóknarkvenna Linda Hrönn Þórisdóttir VISTVÆNAR BARNAVÖRUR Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég var beðinn um að mæta á fund verkefnisstjórnar Miðborgar til þess að segja frá upplifun okkar á svæð- inu í kringum Hlemm – Mathöll. Við höfðum áður óskað eftir úrlausnum og svörum varðandi úrbætur í mál- efnum útigangsfólks sem heldur sig nálægt Hlemmi,“ segir Ragnar Egilsson, framkvæmdastjóri Hlemms – Mathallar um fund sem hann var boðaður á hjá verkefnis- stjórn Miðborgar 23. janúar til þess að ræða „óæskilega gesti á Hlemmi – Mathöll,“ eins og segir í fundargerð verkefnisstjórnarinnar. Hann segir að ástandið á svæðinu hafi batnað mikið frá opnun Mat- hallarinnar. Eflaust hafi lokunin á Hlemmi meðan á framkvæmdum við hana stóð hafi haft sitt að segja. Fagna fjölbreyttu mannlífi „Það eru allir velkomnir á Hlemm – Mathöll en það getur valdið vand- ræðum og truflun fyrir aðra gesti þegar fólk sem ekki er í nógu góðu ástandi sækir staðinn,“ segir Ragnar og bætir við að það sé markmið Hlemms – Mathallar og borgaryfir- valda að taka á málum útigangsfólks á vingjarnlegan og manneskjulegan hátt. „Við fögnum fjölbreyttu mannlífi og bjóðum alla velkomna til okkar, einnig strætófarþega og þá sem eru í viðskiptum í kringum okkur. Við verðum hins vegar að bregðast við þeim gestum okkar sem af og til hafa mætt með landabrúsann í Mathöll- ina. Það er einfaldlega brot á áfengislögum að koma með slíkt inn í Mathöllina,“ segir Ragnar, sem tek- ur það skýrt fram að engin alvarleg tilfelli hafi komið upp frá því að staðurinn var opnaður. „Mathöllin hefur gengið gríðar- lega vel og jákvæður andi í kringum staðinn. Við nýttum fyrstu sex mán- uðina í rekstrinum til þess að fín- pússa og bæta staðinn,“ segir Ragnar. Unnið með útigangsfólk Stefán Eiríksson, formaður verk- efnastjórnar Miðborgar, segir að Ragnar hafi verið boðaður á fund verkefnisstjórnarinnar þar sem Hlemmur – Mathöll hafi óskað eftir að fara yfir málefni útigangsmanna í nágrenninu. Stefán segir verkefna- stjórnina rétta vettvanginn til þess að ræða slík mál. Á fundinum með Ragnari hafi komið fram að ástandið væri nú mun betra. „Það er aðallega vegna þeirrar vinnu sem verið hefur í gangi á veg- um Velferðarsviðs Reykjavíkur- borgar og þjónustumiðstöðvanna gagnvart útigangsfólki,“ segir Stef- án og bætir við að áherslan í vinnunni um málefni útigangsfólks sé að aðstoða og styðja fólk eftir þörfum eins og kostur sé. Mæta með landabrúsa  „Óæskilegir gestir“ Mathallarinnar við Hlemm voru rædd- ir á fundi  Tekið verði á málum á manneskjulegan hátt Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlemmur Mathöll með veitingasölu og matvörumarkaði er nú í aðal- hlutverki á Hlemmi, sem gegnir áfram hlutverki strætóstoppistöðvar. Hlemmur » Hefur þjónað hlutverki strætóstöðvar og gerir enn. » Hefur löngum verið staður þar sem utangarðsfólk gat hist og leitað skjóls. » Nú er þar rekin lifandi mat- höll. Þar eru 10 veitingastaðir, barir og kaffihús, ásamt matarmarkaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.