Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 12
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Þ að þykir kannski ekki saga til næsta bæjar þótt Margrét Lísa Sig- þórsdóttir hafi fært sveitunga sínum frá Vopnafirði snotra tösku að gjöf á dögunum. Ofurlítið forvitnilegt þó því taskan er framsóknartaska, sérhönnuð af henni sjálfri handa framsóknarkonunni og þingkon- unni Þórunni Egilsdóttur. „Mér fannst taska með grænum tíglum hæfa henni mjög vel,“ segir Mar- grét Lísa og tekur fram að ekki hafi samt hvarflað að sér að skreyta töskuna með Framsóknar- merkinu. Að þessu sögðu leikur grunur á hinu gagnstæða. „Öllu má nú líka ofgera,“ áréttar hún sposk á svip. Margrét Lísa vissi alveg hvað hún söng, enda grænt litur Fram- sóknarflokksins eins og flestum er kunnugt. Raunar er taska Þór- unnar kannski ekki alveg dæmi- gerð fyrir töskurnar sem Margrét Lísa hefur dundað sér við að búa til síðustu tvö árin. Og segir því ekki meira af henni eða eigand- anum hér. Aðferðin er að vísu sú sama, efniviðurinn af sömu gerð; pappír, plast og girni, og verkfær- in skæri og skapalón úr plexígleri. Fyrir helstu þarfaþingin „Töskurnar mínar eru yf- irleitt mjög „myndarlegar“ og skrautlegar. Í stórum dráttum þá nota ég skapalónið til að klippa út ræmur, til dæmis úr dagblöðum, tímaritum eða teiknimyndasögum. Síðan brýt ég þessar 90 ræmur, sem fara í hverja tösku, saman þannig að miðarnir verði allir 3x2,5 cm, plasta hvern fyrir sig og sauma þá saman með girni. Kúnstin felst svolítið í því að myndirnar, sem ég vel á miðana á töskurnar utanverðar passi ná- kvæmlega í þessa 3x2,5 cm ramma,“ útskýrir Margrét Lísa og fer að hætti fagmannsins nánar ofan í saumana á verklaginu. Þeg- ar fléttur ber á góma fara lýsing- arnar þó að hljóma of flóknar til að hafa þær eftir. Stærðin er útpæld eins og allt annað, taskan þarf að geta með góðu móti hýst helstu þarfaþing kvenna: varalit, snjallsíma, banka- kort og lykla. Margrét Lísa próf- aði að búa töskurnar til í ýmsum stærðum, en niðurstaðan varð sú að hafa þær svipaðar og hefð- bundnar samkvæmistöskur, 13 cm á hæð og 25 cm á breidd, og lok- aðar og með tveimur segul- smellum. Hugmyndin að töskunum kviknaði þegar hún sá konu með tösku, sem búin var til með sama hætti úr kaffipokum. „Eftir þó- nokkra leit rambaði ég á síðu á netinu þar sem aðferðin var kennd og fór að prófa mig áfram. Mein- ingin var að safna svolitlum lager og stofna Facebook-síðu með myndum af töskunum, en svo fór að þær stöldruðu stutt við því vin- ir og vandamenn tóku þær gjarn- an með sér heim.“ Víðförul menningartaska Loks, eftir tveggja ára vinnu, hefur Margréti Lísu þó tekist að halda hjá sér nokkrum töskum til að sitja fyrir á mynd fyrir facebo- ok, sem hún hyggst senn setja í loftið. Hún þjáist ekki af hug- myndaskorti, nema síður sé. „Ég hef búið til töskur með alls konar þemum, bæði umbeðnum og öðr- um sem mér hefur dottið í hug sjálfri. Vinkona mín ein á sextugs- aldri, sem sækir mikið á tónleika og aðra menningarviðburði, bað mig um að búa til handa sér tösku Prins Valíant, Andrés Önd, bækur, nótur, arki- tektúr, Ísland og landakort eru m.a. þemu á „myndar- legum“ og tískulegum tösk- um úr pappír og plasti sem Margrét Lísa Sigþórsdóttir er býsna lunkin að búa til. Stundum lætur hún þem- un þó lönd og leið og notar myndir og textabrot úr öll- um áttum. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018 Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt ís- lenskrar menningar sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkostur- inn fer sístækkandi og samanstendur að mestu leyti af nytjamunum og/ eða skrautmunum. Einnig eru á safninu lík-ön þar sem hugmynda-flug hönnuðar hefurfengið lausan tauminn, eins og líkan, sem Einar Þorsteinn Ásgeirsson hannaði árið 1974, af íbúðum fyrir prestkandídata á Hallgrímskirkju. Í Hönnunarsafninu er líkanið skráð með eftirfarandi hætti: Líkan/Model Einar Þorsteinn Ásgeirsson (1942- 2015) Íbúðir prestskandídata á Hall- grímskirkju / 1974 . . . . Hugmynd Einars frá 1974 að byggja kúlulaga íbúðir utan á Hall- grímskirkju fyrir prestkandídata er gáskafull. Einar Þorsteinn lýsti því fyrir vini sínum, Trausta Vals- syni arkitekt, hvernig kirkjan, í líki móður, hefði hangandi prests- efnin utan á sér. Móðurkirkja er einnig ágætt orð fyrir þessa tákn- rænu útfærslu á stærstu kirkju landsins, þar sem kirkjuskipinu með áföstum kúlunum mætti líkja við skip með plastbelgi á skips- hliðum – skipsskrokknum til varn- ar þegar lagst er að bryggju. Einar Þorsteinn Ásgeirsson var einn frumlegasti arkitekt okkar Ís- lendinga. Snemma fór hann að kalla sig hönnuð og vann að rann- sóknum á rúmfræði og burðarþoli. Kúluhús Einars eru mjög þekkt og má finna á nokkrum stöðum hér á Íslensk hönnun | Hönnunarsafn Íslands 1974 Íbúðir prestkandídata á Hallgrímskirkju eftir Einar Þorstein Ásgeirsson Töskur úr tímaritum og teiknimyndasögum Mæðgur Margrét Lísa og Berglind með sína töskuna hvor. Skrípó Berglind, sex ára dóttir hönnuðarins, er hæstánægð með Andrésar Andar töskuna sína. Súr hvalur og harðfiskur Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.