Morgunblaðið - 05.02.2018, Page 13
úr gamalli nótnabók frá árinu
1907. Þessi taska hefur víða farið
og ef hún er ekki á ferðinni, segist
vinkona mín hafa hana sem stofu-
stáss, en setja þó ofan í skúffu
þegar barnabörnin koma í heim-
sókn.“
Rétt fyrir jólin í hittifyrra tók
Margrét Lísa sér Bókatíðindi 2016
til handargagns. Myndirnar af
bókunum smellpössuðu í rammana
og úr varð þessi líka fína bóka-
taska. Kunningjakona Margrétar
Lísu, sem er dóttir rithöfundar, sá
sér leik á borði og keypti töskuna
handa mömmu sinni.
Af öðrum þemum sem ratað
hafa á töskurnar má nefna alls
konar teiknimyndafígúrur, Prins
Valíant hefur til dæmis komið
sterkur inn og sömuleiðis Andrés
Önd, sem prýðir tösku yngstu
dóttur Margrétar Lísu. „Ég hef
gert töskur þar sem Ísland er í
brennidepli, núna er ég að ljúka
við eina með þemanu innanhús-
arkitektúr, stundum bý ég til
töskur með tískuþema og þar
fram eftir götunum,“ segir Mar-
grét Lísa.
Fékk bakteríuna í hús-
mæðraskóla
Taskan sem hún sérhannaði
handa kunningjakonu sinni og
starfsmanni hér á Morgunblaðinu
er með nokkrum M-um í Morgun-
blaðslógóinu sem og myndum af
innlendu sem erlendu fólki í frétt-
um blaðsins. Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra fær sinn ferning,
og hefur vitaskuld ekki hugmynd
um að hann er töskuskraut og
meira að segja á árshátíðartösku.
Margrét Lísa býr ásamt
manni sínum og fjórum dætrum í
Kópavogi og hefur verið heima-
vinnandi í sex ár eða síðan yngsta
dóttirin fæddist. Hún segist vera
sveitastelpa í húð og hár og fari til
heimahaganna í sauðburð og hey-
skap hvenær sem hún fái því við-
komið. „Og svo er ég handavinnu-
fíkill, fékk bakteríuna í Hús-
mæðraskólanum á Hallormsstað í
gamla daga,“ upplýsir hún og
kveðst jöfnum höndum prjóna og
hekla. Töskugerðin er þó það
handverk sem heillar hana mest
um þessar mundir.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018
Olnbogabörnin standa fyrir opnum
fundi um málefni barna í vanda kl. 20 í
kvöld, mánudaginn 5. febrúar, að
Stangarhyl 7, Reykjavík.
Samtökin Olnbogabörnin voru sett
á stofn sem vettvangur fyrir aðstand-
endur unglinga sem sýna áhættu-
hegðun. Með áhættuhegðun er m.a.
átt við misnotkun vímuefna, afbrot og
tengdar athafnir. Tilgangurinn er að
skapa málefnalega umræðu og beita
yfirvöld þrýstingi til að bæta úrræði í
meðferðarmálum ungs fólks, efla for-
varnir og auka stuðning.
Á fundinum verður farið yfir hvað
búið er að gera, hvað er framundan og
hvernig samtökin geti nýtt sér Face-
book-hópa. Allir velkomnir sem hafa
áhuga á bæta úrræði fyrir ungmenni.
.
Vefsíðan www.olnbogabornin.is
Morgunblaðið/Eggert
Hörmungar Lögreglan þarf stundum að hafa afskipti af unglingum sem sýna
áhættuhegðun og leiðast út í vímuefnanotkun og kannski afbrot af ýmsu tagi.
Málefni barna sem sýna
áhættuhegðun í brennidepli
landi. Samvinna Einars Þorsteins
með Ólafi Elíassyni myndlistar-
manni var gjöful, Harpa tónlistar-
og ráðstefnuhús er klædd formi
er styðst við gullinfang, formein-
ingu sem Einar Þorsteinn þróaði.
Árið 2014 færði Einar Þorsteinn
Hönnunarsafninu módelsafn sitt
og ýmis gögn um verkefni sín og
störf.
Ljósmynd/Andrew Murray
Kúlur Prestkandídatarnir ættu ekki langt að fara í messu úr þessum íbúðum.
Við vinnuna Margrét
Lísa gerir töskur með alls
konar þemum; t.d. tísku,
landafræði og tónlist.
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra fær
sinn ferning og hefur
vitaskuld ekki hugmynd
um að hann er tösku-
skraut og meira að
segja á árshátíðar-
tösku.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Skraflfélag Íslands, félagsskapur
áhugafólks um skrafl, efnir til skrafl-
kvölds kl. 19-22 í kvöld, mánudaginn
5. febrúar, í Veðurbar/café, Klappar-
stíg 33, Reykjavík.
Skrafl, eða Scrabble eins og sumir
kalla orðaspilið stundum upp á enska
móðinn, kom fram á sjónarsviðið árið
1948. Arkitektinn Alfred Mosher
Butts skoðaði forsíður The New York
Times um skeið og sá hversu oft ein-
staka stafir komu fyrir. Hann ákvarð-
aði hversu mörg stig hver stafur gat
gefið eftir því hversu algengur hann
var á forsíðunni. Spilið sem hann þró-
Endilega . . .
Morgunblaðið/Ómar
Orðaspil Skrafl er leikur að orðum.
. . . skraflið á Veðurbar/café
aði er ekki aðeins spennandi og
skemmtilegt, heldur eykur það mál-
vitund fólks og orðaforða.