Morgunblaðið - 05.02.2018, Blaðsíða 14
Flökt Bannið snertir ekki debetkort.
Stöðva rafmyntakaup
með kreditkortum
● JPMorgan Chase, Citigroup og
Bank of America ákváðu um helgina
að hætta að leyfa kaup á rafmyntum
með kreditkortum sem gefin eru út af
bönkunum þremur. Munu korthafar
ekki geta notað kreditkort til að versla
við rafmyntamarkaði en geta þó áfram
notað debetkort til viðskiptanna.
Bloomberg segir þetta m.a. gert til
að verja bankana gegn mögulegu tjóni
sem gæti hlotist af því ef viðskiptavinir
sem nota greiðslukortaheimildir sínar
til að kaupa rafmyntir veðja rangt, tapa
á viðskiptunum og geta ekki staðið í
skilum þegar kortareikningurinn berst.
ai@mbl.is
Bandarísk hlutabréf
tóku skarpa dýfu
Vikan endaði ekki vel á hlutabréfa-
mörkuðum vestanhafs. Við lokun
markaða á föstudagskvöld hafði Dow
Jones vísitalan lækkað um 2,5% eða
666 stig og hefur ekki misst fleiri stig
á einum degi síðan í fjármálakrepp-
unni 2008. Eru 20 mánuðir frá því að
Dow Jones lækkaði um jafn mörg
prósentustig á einum degi.
S&P 500 vísitalan missti 2,1% eða
2.762 stig og Nasdaq-vísitalan 2%
eða 7.241 stig að því er FT greinir
frá.
Að sögn Reuters er helsta ástæða
lækkunarinnar á föstudag sú að þá
voru birtar nýjar tölur sem sýna að
fjölgun starfa í janúar var meiri en
markaðsgreinendur á Wall Street
höfðu reiknað með, og eins að laun
höfðu hækkað meira en búist var
við. Voru laun í janúar 2,9% hærri en
í sama mánuði í fyrra og virðast vera
vísbendingar um að lítið atvinnu-
leysi sé farið að ýta launum upp, sem
síðan gæti stuðlað að aukinni verð-
bólgu. Byrji verðbólga að hækka
hressilega er líklegt að það leiði til
þess að bandaríski seðlabankinn
gangi harðar fram í að hækka stýri-
vexti á árinu.
Nokkur stór fyrirtæki áttu líka
þátt í að draga vísitölurnar niður:
Exxon Mobil lækkaði um 5,1%,
Chevron um 5,6%, Alphabet um 5,3%
og Apple um 4,3% eftir að þau ollu
fjárfestum vonbrigðum með
rekstrartölum fjórða ársfjórðungs.
ai@mbl.is
AFP
Eldrautt Starfsmaður NYSE hugsi yfir látunum á Wall Street á föstudag.
Óttast vaxandi launaskrið og verðbólgu
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018
ROYAL KARAMELLUBÚÐINGUR
... OG FÆST Í ÖLLUM BETRI
MATVÖRUVERZLUNUM LANDSINS
A�taf góður!
5. febrúar 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 99.87 100.35 100.11
Sterlingspund 141.99 142.69 142.34
Kanadadalur 81.13 81.61 81.37
Dönsk króna 16.746 16.844 16.795
Norsk króna 13.01 13.086 13.048
Sænsk króna 12.69 12.764 12.727
Svissn. franki 107.28 107.88 107.58
Japanskt jen 0.9085 0.9139 0.9112
SDR 145.51 146.37 145.94
Evra 124.65 125.35 125.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.7282
Hrávöruverð
Gull 1345.0 ($/únsa)
Ál 2217.5 ($/tonn) LME
Hráolía 68.43 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
STUTT
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þróunin á sviði fjármálatækni (e.
FinTech) er ör og virðast ótalmargir
sprotar komnir í stellingar til að
hrista rækilega upp í fjármálageir-
anum. Stjórnvöldum er vandi á
höndum enda
þarf að skapa um-
hverfi sem hvetur
til framfara og
bættrar þjónustu,
en á sama tíma
tryggja að þær
nýju lausnir sem
líta dagsins ljós
falli að regluverk-
inu og skapi ekki
mögulega hættu fyrir viðskiptavini.
Fjármálaeftirltitið efnir til ráð-
stefnu á föstudag, þar sem rætt
verður um tækifæri og áskoranir á
sviði fjármálatækni.
Svigrúm og samstarf
Jón Þór Sturluson, aðstoðarfor-
stjóri FME, segir greinileg vaxtar-
tækifæri fólgin í fjármálatækni og
að víða um heim hafi stjórnvöld
reynt gagngert að hlúa að nýsköpun
á þessu sviði. „Lönd eins og Ástralía
hafa farið svo langt að veita fjár-
málatæknifyritækjum sérstakar
undanþágur frá gildandi reglum og
þannig búið til n.k. „sandkassa“ fyrir
tilraunastarfsemi og nýsköpun gegn
því að viðkomandi fyrirtæki starfi
náið með fjármálaeftirlitinu í öllu
þróunarferlinu. Við höfum ekki tekið
ákvörðun um sams konar úrræði hér
á landi, en værum spennt fyrir þess-
ari aðferð ef fyrirtækin hér á landi
reynast áhugasöm.“
Sem dæmi um hvað hlutirnir geta
gerst hratt í fjármálatækniheimin-
um, og hve mikið er í húfi, þá gaf
FME nýlega út viðvörun til almenn-
ings um viðskipti með bitcoin og aðr-
ar sýndarmyntir. Áður hafa systur-
stofnanir FME víða um heim gefið
út sambærilegar viðvaranir og jafn-
vel gripið til sérstakra ráðstafana til
að aðskilja hinn almenna fjármála-
markað kirfilega frá rafmyntamark-
aðinum. Eins og lesendur vita hækk-
aði bitcoin mikið í verði á síðasta ári
og verð sýndarmynta hefur verið
mjög sveiflukennt. „Með viðvörun-
inni erum við ekki á nokkurn hátt að
mæla gegn bálkakeðjutækninni (e.
blockchain) sem sýndarmyntirnar
byggja á, enda merkileg tækni sem
gæti haft mikið notgaildi. Það sem
viðvörunin gerir, aftur á móti, er að
minna á að um er að ræða fjárfest-
ingar utan gildandi regluverks, sem
taldar eru sérstaklega áhættusam-
ar,“ segir Jón Þór.
Framþróun fylgja hættur
Í fyrra gaf FME út bækling þar
sem stofnunin lýsir áherslum sínum
og sýn á fjármálamarkaðinn fram til
2020 og má segja að með ráðstefnu
föstudagsins sé verið að fylgja efni
bæklingsins eftir. Jón Þór segir að í
bæklingnum setji FME fram tvenns
konar sýn á þróunina fram undan:
„Annars vegar eru þau miklu tæki-
færi sem eru til staðar fyrir
framþróun markaðarins, og mögu-
leikinn á að skapa meiri fjölbreyti-
leika, meiri samkeppni og betri
þjónustu fyrir almenning. Hins veg-
ar eru þeir möguleikar sem snúa að
aukinni nýtingu upplýsingatækni á
fjármálasviðinu, og sú áhætta sem
því fylgir.“
Jón Þór segir þó ekki stefnt að því
að semja séríslenskar reglur til að
búa í haginn fyrir fjármálatækni-
byltinguna, heldur fylgja frekar
þeirri þróun sem á sér stað úti í
heimi. „Unnið er gott starf innan
evrópska eftirlitskerfisins og von á
tillögum að umbótum á regluverk-
inu, sem eiga bæði að styðja við
þetta nýja svið og taka á hættunum
sem fjármálatækni gæti skapað.“
Eitt hefur FME þó gert í millitíð-
inni og það er að setja á laggirnar
sérstakt þjónustuborð fyrir fjár-
málatæknifyrirtæki. „Fyrirtæki og
frumkvöðlar geta því leitað beint til
okkar og fengið svör um að hve
miklu leyti verkefni þeirra eru leyf-
isskyld eða mögulega á skjön við
regluverkið. Þau geta þá vitað betur,
áður en lagst er í mikla vinnu, hvar
hætta er á árekstrum við gildandi
reglur og leitað leiða til úrbóta.“
Fylgja þróuninni úti í heimi
AFP
Framfarir Viðskiptavinur notar rafrænt veski til að kaupa í matinn í Kína. Fjármálatæknin er á fleygiferð.
Peningabylting
» Mörg lönd reyna að hlúa
sérstaklega að fjármálatækni.
» Hætta er á árekstrum við
gildandi regluverk.
» FME varaði nýlega við við-
skiptum almennings með raf-
myntir.
Það mætti reyna að bjóða upp á „sandkassa“ þar sem fjármálatæknifyrirtæki
gætu starfað með undanþágum frá gildandi reglum, háð ákveðnum skilyrðum
Jón Þór Sturluson