Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2748
loggildurmalari@gmail.com
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Styrkir úr Vísindasjóði
Krabbameinsfélags Íslands
www.krabb.is
Vísindasjóður Krabbameins-
félags Íslands auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum
er að efla íslenskar rannsóknir
á krabbameinum með því að
styrkja með fjárframlögum
rannsóknir á orsökum krabba-
meina, forvörnum, meðferð og
lífsgæðum sjúklinga.
Með hliðsjón af því stofnframlagi sem kom
úr sjóði Kristínar Björnsdóttur fyrrverandi
starfsmanns Sameinuðu þjóðanna er sér-
staklega tekið fram að hluti styrkveitinga úr
sjóðnum skal vera til að styðja við rann-
sóknir krabbameina í börnum og unglingum
og aðhlynningu krabbameinssjúkra barna.
Stofnfé Vísindasjóðs Krabbameinsfélags
Íslands er 250 milljónir króna og í samræmi
við ákvæði í stofnskrá sjóðsins mun stjórn
sjóðsins úthluta allt að 100 milljónum króna
til vísindarannsókna og annarra verkefna á
fyrstu þremur starfsárum hans. Stjórn sjóðsins
mun veita styrki til smærri verkefna og rann-
sókna en einnig til umfangsmeiri vísinda-
rannsókna. Hámarksupphæð styrks til viða-
meiri vísindarannsókna er 10 milljónir króna
Umsóknareyðublað, stofnskrá, úthlutunar-
reglur og aðrar upplýsingar um Vísindasjóð
Krabbameinsfélags Íslands er að finna á
heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands,
www.krabb.is/visindasjodur/.
Umsóknir skal senda rafrænt á
Umsóknir um styrki vegna vísindarannsókna
verða sendar Vísindaráði Krabbameinsfélags
Íslands til skoðunar, sem fer yfir allar um-
sóknir og veitir stjórn sjóðsins umsögn um
þær, eins og nánar er fjallað um í úthlutunar-
reglum sjóðsins. Umsóknum um styrki vegna
aðhlynningar krabbameinssjúkra barna skal
skila á sama umsóknareyðublaði og fylltir út
þeir reitir sem við eiga. Úthlutun úr sjóðnum
verður í byrjun maí nk. á aðalfundi Krabba-
meinsfélags Íslands.
Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins
1. mars nk. kl. 16:00.
Reykjavík, 4. febrúar 2018
Stjórn Vísindasjóðs
Krabbameinsfélags Íslands
í annað sinn. Markmið sjóðsins
á ári.
visindasjodur@krabb.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, Kraftur í KR kl. 10.30 (leikfimi
allir velkomnir og frítt inn). Útskurður og myndlist kl. 13 og félagsvist
er spiluð í matsalnum kl. 13.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Ganga um nágrennið kl. 11.
Handavinna með leiðbeinandi kl. 12.30-16. Félagsvist með vinningum
kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
S. 535-2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Spjall-
hópur Boðans kl. 15.
Dalbraut 18-20 Brids kl. 13
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30-12.30, Bókabíllinn á
svæðinu kl. 10-10.30, Handaband, opin vinnustofa með leiðbeinend-
um ókeypis og öllum opið kl. 10.-12, frjáls spilamennska kl. 13. Bók-
band kl. 13-17. Söngstund við píanóið kl. 13.30-14.15, Kaffiveitingar kl.
14.30, handavinnuhópur kl. 15-19. Velkomin á Vitatorg, s. 411-9450.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617-
1503. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.40/8.20/15.15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.05. Stólaleikfimi Sjálandi kl. 9.50. Kvennaleikfimi Ásgarði kl.
10.40. Bridse í Jónshúsi kl. 13. Tiffany námskeið í Kirkjuhvoli kl. 13.
Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Mánudagur Opin handavinnustofan kl. 8.30-16.
Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Línudans kl. 13-14. Kóræfing kl.
14.30-16.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handa-
vinna, brids kl. 13. Jóga kl. 18. Félagsvist kl. 20.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi. Léttar erobik-
æfingar hjá Milan kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45. Jóga hjá Carynu kl.
10, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, spilað brids kl. 13, eftirmið-
dagskaffi kl. 14.30, jóga hjá Ragnheiði kl. 16.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, línudansnámskeið kl. 10, ganga kl. 10 myndlistarnámskeið hjá
Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félags-
vist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri, nánari
upplýsingar í síma 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, ganga frá Grafar-
vogskirkju, Borgum og í Egilshöll kl. 9. Postulínsnámskeið með Ástu
Lilju hefst kl. 9 í Borgum. Línudans kl. 11 í Borgum. Ferðakynning
Tenerife-ferð kl. 12.30 í Borgum, allir velkomnir. Félagsvist kl. 13 í
Borgum og skartgripagerð með Sesselju kl. 13 í Borgum. Tréútskurð-
ur kl. 13 á Korpúlfsstöðum, kóræfing Korpusystkina kl. 16. í Borgum.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og
meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega vel-
komnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur
og kaffi í króknum Skólabraut kl. 10.30. Jóga salnum kl. 11. handa-
vinna salnum kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Skráning í
,,óvissuferðina" sem farin verður fimmtudaginn 15. febrúar, stendur
yfir. Farið verður að Hulduhólum á heimili og gallerí listakonunnar
Steinunnar Marteinsdóttur. Skráning og uppl. í síma 8939800.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?
Góð vinkona
mín, Sólveig
Berndsen, lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Ísafold í
Garðabæ, þann 17. janúar. Við
vorum jafngamlar, fæddar í
mars og apríl árið 1936 í
Austurbænum í Reykjavík.
Kynni okkar hófust þegar við
vorum saman í fyrsta bekk í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
þá 13 ára gamlar. Uppfrá því
varð til sönn vinátta sem entist
ævina alla.
Við vorum um margt líkar,
báðar langyngstar af systkinum
okkar og svolitlar dekurrófur.
Við brölluðum margt saman
eins og ungum stúlkum er tamt;
gistum saman, fórum í bíó,
göngutúra í bæinn að fá okkur
ís og skemmtum okkur. Glens
og gaman var ávallt með í för.
Sautján ára gamlar fórum við
saman í okkar fyrstu utanlands-
ferð þegar við sigldum með
Gullfossi til Edinborgar. Var
það sannkölluð ævintýraferð og
mikil lífsreynsla fyrir okkur.
Sólveig
Berndsen
✝ Sólveig Bernd-sen fæddist 24.
apríl 1936. Hún lést
17. janúar 2018.
Sólveig var jarð-
sungin 26. janúar
2018.
Oft var minnst á
þessa ferð og hleg-
ið að uppátækjum
okkar Sólveigar
eins og t.d. þegar
við pöntuðum okk-
ur mat eða drykk
þá pöntuðum við
það sem við gátum
borið vel fram eða
hljómaði betur, en
ekki það sem okkur
þótti endilega best.
Á kvöldin færðum við komm-
óðuna fyrir káetudyrnar til ör-
yggis svo enginn kæmist nú inn.
Við fórum á dansæfingar í
Reykjavík eins og þá var títt.
Þannig kynntumst við eigin-
mönnum okkar. Við vorum báð-
ar óskaplega heppnar með
menn, þá Geira (Sigurgeir
Kristjánsson) og Gunnar (Úlfar
Gunnar Jónsson). Þeim varð
strax vel til vina og áttu gott
skap saman.
Varð til ævilöng vinátta okk-
ar hjóna sem aldrei bar skugga
á. Við giftum okkur báðar 1956
og eignuðumst okkar frum-
burði. Börnin komu svo eitt af
öðru, Sólveig með sex og ég
þrjú. Við hjónin vorum mikið
saman; í kvöldheimsóknum,
veislum, afmælum, alltaf borð-
uðum við saman þorramat og
hittumst lengi vel í bollukaffi og
svona mætti lengi telja. Sólveig
og Geiri fluttu í Garðabæinn og
oft var mikið annríki í barna-
uppeldinu og þá kom síminn sér
vel og oft var spjallað klukku-
stundum saman. Við ferðuð-
umst mikið um landið á sumrin
með börnin með okkur. Við fór-
um í tjaldútilegur, sumarhús og
hótelgistingar um landið þvert
og endilangt. Aldrei var vín haft
um hönd, bara taumlaus gleði
og hlátur að ógleymdum
draugasögunum, sem Geiri
kunni svo margar. Þegar börnin
uxu úr grasi nutum við þess að
ferðast bara fjögur. Vestfirðirn-
ir og Strandirnar voru ómiss-
andi hvert sumar og margar
voru hringferðirnar farnar. Það
var oft hlegið að því að við ferð-
uðumst alltaf á tveimur bílum
þó bara fjögur værum, en svona
vildum við Sólveig hafa það.
Við fórum saman eina utan-
landsferð til Danmerkur og var
það mjög skemmtileg og eftir-
minnileg ferð.
Elsku Sólveig, við höfum
fylgst að í gegnum allt lífið með
gleði og gaman að leiðarljósi og
höfum styrkt og stutt hvor aðra
á erfiðum tímum. Eiginmenn
okkar létust með tiltölulega
stuttu millibili árin 2013 og
2014 og þá hvarfst þú líka smátt
og smátt inn í þinn heim.
Við áttum samt oft góðar
stundir saman þegar ég leit inn
til þín á Ísafold. Þú þekktir mig
alltaf, elsku vinkona, þó það
væri ekki alltaf í sama tíma og
rúmi. Þessar stundir gáfu mér
mikið. Ég sakna ykkar. Ástar-
kveðjur,
Charlotta (Dódó).