Morgunblaðið - 05.02.2018, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður
Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRA
RUSLAGÁMUR STEYPU SÍLÓ GEYMSLUBOX
Galvaniseraðir
ruslagámar
Til á lager
Auðveldar
steypuvinnu.
Til í ýmsum stærðum
Frábær lausn til að
halda öllu til haga á
byggingarsvæði.
Aukahlutir fyrir byggingakrana
Kvarna-tengi
70 kr stk m/vsk.
Ég er stödd á Balí tilað halda upp á af-mælið mitt ásamt
konunni minni, Sigríði
Björk Þormar,“ segir Guð-
rún Ó. Axelsdóttir, viður-
kenndur bókari, en hún á
50 ára afmæli í dag.
„Þetta er í annað sinn sem
ég kem hingað, mér finnst
þetta algjör paradís og
ákvað þess vegna að halda
upp á afmælið mitt hér.
Ég veit ekki við hvað ég á
að líkja þessum stað,
kannski helst við himna-
ríki, hér er svo ótrúlega
fallegt, hlýtt veður, fallegt
og kærleiksríkt fólk. Við
finnum ekki mikið fyrir
miklum túrisma, stundum
erum við bara nánast einar á ströndinni. Kannski af því að þetta ætti
að vera regntímabil en við höfum verið þokkalega heppnar. Sól og
30 stig. Sumir fæðast í röngum líkama en ég fæddist í röngu landi
því hér hefði ég átt að fæðast en ekki í Eyjum.“
Guðrún er bókari hjá bakaríinu Sandholt, auk þess sem hún rekur
sálfræðiþjónustuna Sálfræðingarnir á Lynghálsi, ásamt konu sinni,
en Sigríður er doktor í áfallasálfræði. „Við erum tvö pör sem eigum
núna sálfræðistofuna, Agnar Már Jónsson og Soffía Dóra Sigurðar-
dóttir sálfræðingur, og það starfa hjá okkur átján sálfræðingar á
stofunni. Úrvals sálfræðingar sem við erum stolt af að hafa hjá
okkur.“
Guðrún hefur verið handboltaþjálfari í yngri flokkum kvenna í
meira en 27 ár, síðast hjá Stjörnunni, en tók sér frí í haust. „Ég
sakna handboltans og ég sný örugglega aftur, hann er hluti af mér.“
Ég má ekki fá að vita það því Sirrý mín ætlar að koma mér á
óvart,“ segir Guðrún spurð hvað hún ætli að gera á sjálfum afmælis-
deginum á Balí. „Mér heyrist hún ætla að taka sólarhring í þetta.
Því það eina sem ég veit er að ég á að vera tilbúin á sunnudags-
kvöld, kvöldið fyrir afmælið. Ég hlakka mjög mikið til enda mikið
afmælisbarn og Sirrý spáir mikið í smáatriðin,“ sagði Guðrún þegar
blaðamaður ræddi við hana fyrir helgi.
„Ég og Adolf tvíburabróðir minn stefnum svo á að halda upp á 100
árin saman í vor eða í kringum afmælisdag bestu vinkonu minnar,
Önnu Jónsdóttur sem lést fyrir 10 árum.“
Börn Guðrúnar eru Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, Soffía
Guðlaugardóttir og Anna Kristín Guðlaugardóttir og stjúpsynir Guð-
rúnar eru Sigurður Hrannar Björnsson og Tómas Atli Björnsson og
barnabörnin eru orðin tvö, Kría og Ylfa.
Á Balí Guðrún (til hægri) ásamt konu
sinni, Sigríði Björk Þormar.
Nýtur lífsins á Balí
Guðrún Axelsdóttir er fimmtug í dag
H
eiðdís fæddist í
Reykjavík 5.2. 1943
en ólst upp í Hvera-
gerði: „Hveragerði
var ungur og fámenn-
ur þéttbýlisstaður þegar ég var að
alast þar upp. Staðurinn varð sér
hreppur árið 1947. Þarna var nóg af
leikfélögum og við krakkarnir gátum
skottast úti í náttúrunni allan liðlang-
an daginn.
Seinna heyrði maður talað um
„Skáldabæinn“ Hveragerði, en í
Hveragerði var reyndar talað um
„Skáldagötuna“. Þar bjuggum við og
foreldrar mínir voru bæði skáld, auk
þess sem Jóhannes úr Kötlum, Krist-
ján frá Djúpalæk, Kristmann Guð-
mundsson og séra Helgi Sveinsson
bjuggu allir við þessa götu.
En þótt bæjarbúar kölluðu götuna
„Skáldagötu“ skírði hreppurinn hana
Frumskógar.“
Heiðdís var í Barnaskólanum í
Hveragerði, í fjórða bekk Kvenna-
skólans, lauk prófum frá Fóstruskóla
Sumargjafar 1962, stundaði fram-
haldsnám í stjórnun og ráðgjöf við
Fósturskóla Íslands 1984 og lauk
stúdentsprófum frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands 1987.
Heiðdís var leikskólastjóri á Siglu-
firði sumarið 1962, deildarstjóri í
leikskólanum Laufásborg í Reykja-
vík 1962-63, leikskólastjóri í sum-
arleikskóla sumarið 1967, sem rekinn
var í Barnaskólanum á Selfossi á veg-
um Kvenfélags Selfoss, leik-
skólastjóri Leikskóla Selfoss, sem nú
heitir Glaðheimar, frá opnun hans,
1968-78, síðasta árið í samstarfshópi,
og var leikskólafulltrúi Selfosskaup-
staðar, síðar sveitarfélagsins Árborg,
frá 1978-2008.
Heiðdís sat í stjórn Fóstrufélags
Íslands 1962-63, var fyrsti formaður
Foreldra- og kennarafélags Gagn-
fræðaskólans á Selfossi, formaður
Félags opinberra starfsmanna á
Heiðdís Gunnarsdóttir, fyrrv. leikskólafulltrúi í Árborg – 75 ára
Fjölskyldan Heiðdís ásamt eiginmanni sínum, Árna Óskarssyni, og börnum sínum, Elísabetu og Gunnari.
Hefur yndi af félags-
málum og ferðalögum
Afmælisbarnið Heiðdís á ferðalagi.
Jón Finnur Ólafsson, Sigurður Logi Sigursveinsson, Rúnar Ingi Jóhannsson,
Dagur Nökkvi Hjaltalín og Böðvar Thor Guðmundsson héldu tombólu fyrir utan
Bónus á Selfossi og söfnuðu þar 8.978 kr. + 1 dollara. Strákarnir gáfu Rauða
krossinum á Selfossi söfnunarpeninginn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is