Morgunblaðið - 05.02.2018, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2018
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
Hjólalegur
öxlar
driflokur
2012
-2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hugsanir hafa vald og þú verður
að ná stjórn á þeim, áður en þær ná
stjórn á þér. Allir hafa gott af tilbreytingu
svona öðru hvoru. Sættu þig við það.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur gert margar málamiðlanir
að undanförnu. Skilyrði til hvers kyns
samninga munu batna þegar líður á
daginn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hafðu gætur á fjármálunum og
vertu óhræddur við að horfast í augu við
hlutina eins og þeir eru. Vertu staðfastur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allir segja að þú verðir að leggja
hart að þér til að fá það sem þú vilt, en
kannski á það ekki við þig núna. Hlustaðu
á hjartað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Lífið einfaldlega flæðir áfram þegar
þú vinnur einn. Ef einhver lætur þér líða
illa, er viðkomandi sennilega ekki réttur
félagsskapur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur lagt þig fram um að starf
þitt spilli í engu heildarárangrinum. Lærðu
að skipuleggja næsta skref og síðan allt
lífið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að gera það upp við þig
hvað skiptir þig mestu máli í lífinu. Allt
gengur að óskum en ekki taka að þér
verkefni sem þú átt aldrei eftir að geta
lokið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samtöl við nána vini gætu
tekið óvænta stefnu í dag. Ekki ómaka þig
með reiði eða pirringi ef þau ganga ekki
eins og smurð.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Jafnvægið sem þú færir öðrum
er mikilvægara en þín innri ró. Partí,
daður, vetrarleyfi og þátttaka í uppá-
komum mun veita þér ánægju.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ástin er hafin yfir allar skil-
greiningar, algerlega frábær og geggjuð. Ef
þú gætir þess að halda þér vakandi munu
ást og auðæfi falla þér í skaut.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú mátt búast við einhverju
spennandi í lífi þínu í dag. Hugsaðu vel um
heilsuna og gefðu þér tíma til að stunda
líkamsrækt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Skilaboð virðast týnast núna, hvort
sem þau eru á töflunni, í símanum eða
krotuð á miða. Reyndu að líta upp úr smá-
atriðunum og fá yfirsýn yfir verkið í heild.
Guðmundur Arnfinnsson segirfrá því á Boðnarmiði að stund-
um hafi hann reynt að þýða erlend-
an kveðskap sér til dundurs, sumt af
þessu hafa fleiri eða færri þýtt áður
og er alþekkt eins og kvæði það,
sem hann dirfist nú að birta á
Boðnarmiði, en það er sjálf Lórelei
eftir Heinrich Heine:
Ég veit ei hví sorgin sára
sækir nú fast að mér,
en saga frá örófi ára
mér aldrei úr huga fer.
Í húmi vex kul að kveldi
og kyrrlát streymir Rín,
gnúpurinn orpinn eldi
af aftanroða skín.
Ungmeyja fögur sér unir
þar efst á klettsins brún,
glitfagrir glóa munir,
sitt gullhár kembir hún.
Með kambinum gyllta greiðir
glóhadd og syngur brag,
og alla svo ómblítt seiðir
hið undurfagra lag.
Farmann á litlu fleyi
það fyllir hamstola þrá,
svo grynninga gáir eigi,
gnúpinn hann starir á.
Mig uggir, að fley hans fyllti
og færist í boðanna þröng,
því Lórelei vélráð villti
með voldugum töfrasöng.
Þetta er snjöll þýðing og ekki í lít-
ið ráðist þar sem ekki færri skáld en
sjö hafa áður spreytt sig á Lorelei
og er þýðing Steingríms Thor-
steinssonar kunnust. Fyrstur var
Gísli Brynjúlfsson (1827-1888). Um
hann segir í „Íslenzku skáldatali“ að
hann „var í kveðskap sínum framan
af undir allsterkum áhrifum frá By-
ron, og kemur þá „heimshryggð“
rómantískra skálda sem og þjóð-
frelsisandi glöggt fram í ljóðum
hans. Alloft notaði hann fornhætti
og fyrnti þá mál sitt.“ Hér var hann
„á reið um Flóann um nótt“:
Þessa eg lengsta lifði nótt,
ljótir eru flóar,
að mér hafa alltaf sótt
armir vætukjóar.
Neðan ormar nöguðu mig
og nörtuðu fætr mjóar,
en mér á höfuð settu sig
saurugir vætukjóar.
Þó að mjög sé ljótt og leiðt
að lenda í sorta flóum,
verra í heim eg veit ei neitt
en verða fyrir kjóum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simne.is
Vísnahorn
Lórelei og armir vætukjóar
„GEITIN HJÁLPAÐI TIL, EN TÖLURNAR
FÓRU FYRST AÐ SKJÓTAST VERULEGA UPP
UM HAUSTIÐ, EFTIR MANNFÓRNINA.“
„MÉR GENGUR ALDREI VEL MEÐ LIFANDI
HLUTI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú hefur eldað
og hann fer að vaska
upp!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AF HVERJU ERTU
KOMINN AFTUR Í
BÓLIÐ?
DUH, ÞAÐ ER
DIMMT ÚTI
STUNDUM ER ÉG FJARVERANDI FRÁ
FJÖLSKYLDU MINNI Í MARGAR VIKUR!
ÞAU EIGA BETRA SKILIÐ EN ÞAÐ!
ÞANNIG AÐ ÞÚ ÆTLAR AÐ VERA
LENGUR Í BURTU?
Í fréttum í síðustu viku var sagt fráþví að þriðjungur nemenda við
þrjá stærstu háskóla landsins væri
með einkenni þunglyndis. Þann
sjúkdóm má skilgreina á ýmsa vegu
og mælikvarðar eru eflaust margir,
rétt eins og orsakirnar. Var nefnt að
ein af þeim gæti verið sú að nem-
endum mæta miklar kröfur í verk-
efnaskilum og prófum. Annars veltir
Víkverji fyrir sér hvort þar liggi
hundurinn grafinn; það er hvort í há-
skólanámi sé oftar en ekki fólk sem
er hreinlega ekki á réttri hillu og
hefur ekki getu til þess að vera í
stífu námi með öllu sem því fylgir.
Fólk á að forðast aðstæður sem það
ræður ekki við og að játa sig sigr-
aðan lýsir styrk einstaklings fremur
en vanmætti hans. Og líf fólks getur
orðið ljómandi gott þó engin verði
háskólagráðan.
x x x
Ánægjulegt var að lesa frétt íMogga á laugardag um endur-
bætur við Grafarvogslaug í Reykja-
vík og að ýmsar framkvæmdir væru
fram undan í Breiðholts- og Ár-
bæjarlaug. Fyrir fáum vikum var
Sundhöllin við Barónsstíg opnuð að
nýju eftir umskipti og fleiri staði
mætti þá tiltaka. Sundlaugarnar eru
bestu staðir borgarinnar, í senn fé-
lagsmiðstöðvar og líkamsrækt, sem
þúsundir sækja daglega. Það er vel
gert hjá Reykjavíkurborg að sinna
sundlaugunum vel.
x x x
Víkverji brá undir sig betri fæt-inum á föstudagskvöld og fór í
miðborgina og kom við í ýmsum
þeim menningarsetrum sem opin
voru á Vetrarhátíð. Sérstaklega var
áhugavert að koma í Hafnarhúsið,
þar sem undramyndir Errós þekja
heilu veggina. Hvalasafnið á Grand-
anum var líka skemmtilegt að skoða.
En nú að lokinni góðri hátíð mætti
taka til skoðunar að í stað Safna-
nætur að kvöldi föstudags, þegar
flestir eru dauðþreyttir eftir langa
og stífa vinnuviku, væru söfnin opin
á laugardeginum og þungi hátíðar-
innar þá. Sú tímasetning myndi
sennilega henta til dæmis fjöl-
skyldum, foreldrum og börnum,
betur en núverandi fyrirkomulag.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef elskað yður eins og faðirinn
hefur elskað mig. Verið stöðug í elsku
minni.
(Jóh: 15.9)