Morgunblaðið - 05.02.2018, Síða 32
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 36. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1.Skilið ástarkveðju!
2.Reynt að hafa fé af grandalausu ...
3.Sögulegt mark hjá Jóhanni
4.Vinsælasti partíréttur í heimi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fyrstu hádegistónleikar ársins
2018 í Hafnarborg fara fram á morg-
un og marka upphaf 15. starfsárs
tónleikaraðarinnar. Hallveig Rúnars-
dóttir sópran flytur aríur eftir Moz-
art, Dvorák og Strauss með Antoníu
Hevesí píanóleikara. Tónleikarnir
bera yfirskriftina Dívur í dulargervi
og eiga aríurnar það sameiginlegt að
tengjast konum sem á einn eða ann-
an hátt villa á sér heimildir.
Dívur í dulargervi
Blúskvöld Blús-
félags Reykjavík-
ur verður haldið í
kvöld kl. 21 í Vox
Club-salnum á
Hilton Reykjavík
Nordica hótelinu.
Fram koma hljóm-
sveitin Hráefni og
Tryggvi Hübner,
Halldór Bragason, Björgvin Ploder og
Jón Ólafsson og söngvarinn Páll Rós-
inkranz verður sérstakur gestur.
Hráefni og fleiri blús-
arar á Blúskvöldi
Vilhelm Vilhelmsson, doktor í
sagnfræði frá Háskóla Íslands, heldur
fyrirlesturinn „Brothætt frá upphafi.
Byggðarsaga Borðeyrar við Hrúta-
fjörð“ á morgun kl. 12.05
í fyrirlestrarsal Þjóð-
minjasafns Íslands.
Vilhelm mun rekja
byggðarsögu staðarins
og velta vöngum yfir
því hvers vegna byggð
á Borðeyri hafi
reynst jafn brot-
hætt og raun ber
vitni.
Fjallar um brothætta
byggð á Borðeyri
Á þriðjudag Vestan 8-15 m/s og él, en léttskýjað A-til. Dregur úr
éljum eftir hádegi. Frost 2 til 15 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.
Snýst í vaxandi S-átt V-til á landinu um kvöldið með hlýnandi veðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG SV 13-20 m/s og éljagangur, en þurrt að
mestu NA-lands. Heldur hvassara og meiri úrkoma V-til á landinu
um tíma síðdegis. Frost 1-8 stig um kvöldið, kaldast í innsveitum.
VEÐUR
„Ég vissi ekki hvort markið
var gilt fyrr en ég var um-
kringdur af liðsfélögum mín-
um í fagnaðarlátum. Það var
geggjuð stund, en það var
töluvert skemmtilegra að
vinna úrslitaleikinn,“ sagði
Vignir Svavarsson sem varð
danskur bikarmeistari í
gær. Hann kom Hol-
stebro í úrslitaleikinn
með ótrúlegu marki.
Vignir kveðst ekki hættur
í landsliðinu. » 1
Tveir frábærir
dagar hjá Vigni
„Ég er ánægðust með að hafa unnið
þessa hollensku því ég er ekkert
brjálæðislega ánægð með tímann. Ég
get svo sem sjálfri mér um kennt því
ég fór allt of hægt af stað. Mér finnst
alltaf gaman að vinna á heimavelli.
Einnig er sterkt að vinna stelpu eins
og Hovenkamp sem á miklu betri
tíma í greininni en ég,“
sagði Arna Stefanía
Guðmundsdóttir úr FH
eftir sigurinn í 400
metra hlaupi á
Reykjavíkurleik-
unum um
helgina. »4-5
Arna hafði betur gegn
ólympíufaranum
Litlu munaði á Val og ÍR þegar liðin
mættust í 16. umferð Olísdeildar
karla í handbolta í gærkvöld. Munur-
inn var aldrei meiri en í blálokin þeg-
ar Valsmenn lönduðu þriggja marka
sigri, 30:27. Grótta vann dýrmætan
sigur á Stjörnunni í neðri hlutanum,
26:24, en Haukar völtuðu yfir Fram-
ara, 34:24, rétt eins og FH gegn Vík-
ingi, 35:22. »2
Þriggja marka munurinn
í lokin var sá mesti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Benedikt Máni Möller er 13 ára,
bráðum 14, einhverfur nemandi í 8.
bekk í Holtaskóla í Reykjanesbæ. Á
rúmu ári hefur hann náð mikilli færni
í að tálga dýr, fólk og alls kyns kynja-
verur úr afgangsvið og greinum og
nú eru valdir gripir úr smiðju Bene-
dikts Mána til sýnis og sölu á Bóka-
safni Reykjanesbæjar.
Áhuginn á að tálga kviknaði þegar
hann horfði á jólamynd. „Myndin var
um strák sem tálgaði. Mig langaði til
að gera eins og hann og pabbi minn
gaf mér tálguhníf,“ segir Benedikt
Máni. Síðan þá hafa ýmis tól og verk-
færi til að tálga bæst í safnið og hann
hefur komið sér upp góðri vinnu-
aðstöðu heima hjá sér.
Efniviðinn fær Benedikt Máni víða
að, til dæmis er hann ávallt með aug-
un opin fyrir skóglendi og trjám þeg-
ar hann ferðast með fjölskyldu sinni
um landið á sumrin og hann hefur
fengið aðgang að afgangsvið sem að
öðrum kosti yrði hent. Hann hefur
prófað sig áfram með ýmsar teg-
undir af við og segir ösp henta afar
vel til að tálga. „Hún er svo mjúk.
Svo er birkitréð líka gott.“
Og hugmyndirnar fær hann víða,
m.a. úr myndböndum á YouTube.
„Svo koma þær stundum bara upp í
hugann á mér,“ útskýrir hann fyrir
blaðamanni. Geturðu tálgað hvað
sem er? „Nei, kannski ekki alveg. En
ég get tálgað næstum því allt.“
Rétt handtök mikilvæg
Hann segir afar mikilvægt að
haldið sé rétt á hnífnum, að öðrum
kosti geti farið illa. „Maður getur
skorið sig mjög illa. Ég skar mig svo-
lítið í byrjun en er eiginlega hættur
því. Núna finnst mér stundum eins
og hnífurinn sé orðinn fastur við mig,
ég er búinn að tálga svo mikið.“
Að mati Benedikts Mána ættu
flestir að geta náð færni í að tálga en
mikilvægt sé að vera iðinn við að æfa
sig. „Ef maður getur lært að beita
hnífnum rétt þá held ég að allir geti
gert þetta. Svo er gott að vera góður
í að teikna,“ segir Benedikt Máni,
sem einnig teiknar mikið.
Sýningin hefur fengið geysigóðar
viðtökur og verður opin næstu vik-
urnar. Hann hefur þegar selt all-
nokkra gripi og geta áhugasamir lagt
inn pantanir hjá honum á netfanginu
stinastud1@simnet.is.
Spurður hversu langan tíma taki
að tálga hvern grip segir Benedikt
Máni það nokkuð mismunandi, en al-
gengt sé að það taki um klukkustund.
„Það fer eftir því hvað hann er stór
og hvernig hann á að vera.“
Tálgarðu á hverjum degi? „Já. Ég
er sjúkur í það!“
„Get tálgað næstum því allt“
Benedikt Máni,
13 ára, skapar lista-
verk úr afgangsvið
Listamaður Benedikt Máni Möller byrjaði að tálga fyrir rúmu ári og heldur um þessar mundir sölusýningu á verk-
um sínum í Bókasafni Reykjanesbæjar. Hann tálgar á hverjum degi og segist vera „sjúkur í það“.
Listaverk „Ef maður getur lært að beita hnífnum rétt held ég að allir geti
gert þetta,“ segir Benedikt Máni um hvernig ná eigi tökum á að tálga.
Morgunblaðið/Hari