Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Sorpkvarnir
í vaska
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Árni Tryggvason, skíðakappi og stjórnarmaður í
Skíðagöngufélaginu Ulli, treður tveggja kíló-
metra langa braut á Klambratúni. Að auki tróð
hann 750 metra langa braut í Laugardalnum.
Kvaðst hann hafa séð fjölda manns á gönguskíð-
um á Klambratúninu í framhaldinu, en skíða-
ganga verður sívinsælli á meðal Reykvíkinga þá
sjaldan veður og aðstæður leyfa. Gönguskíða-
brautir í Reykjavík eru nú tíu kílómetrar alls.
Aðstæður nú með besta móti fyrir skíðagöngu á Klambratúninu og í Laugardalnum
Morgunblaðið/Eggert
Tróð brautir fyrir skíðagöngu í miðri höfuðborginni
„Ég er auðvitað alsæl með þetta. Það var rosa gaman
að fá þessar fréttir,“ segir Rósa Þórhallsdóttir, einn
fimm vinningshafa sem dregnir voru út í áskriftar-
leik Árvakurs og WOW air í gær.
Rósa vann sér inn ferð til Tel Aviv með WOW air
og þó borgin sú sé spennandi áfangastaður telur
Rósa líklegt að hún breyti flugmiðanum.
„Ég á son sem er við nám í Los Angeles og gæti
hugsað mér að heimsækja hann. Það verður nóg af
fólki sem vill koma með mér. Kannski ég taki pabba
hans með en strákurinn á líka tvö börn hér á landi
sem ég gæti tekið með,“ segir Rósa sem starfar við
skrifstofustörf og er „amma í hálfu starfi,“ segir hún
stolt. Rósa á fimm börn og 14 barnabörn.
Rósa og eiginmaður hennar hafa verið áskrifendur
að Morgunblaðinu í áratugi. „Okkur finnst ómögu-
legur morgunninn ef það er ekkert Morgunblað í lúg-
unni.“
Auk Rósu hrepptu fjórir aðrir áskrifendur flug til
Tel Aviv, þau Jóhannes Bjarnason, Birgir Þormóðs-
son, Ásta Andrésdóttir og Þorsteinn Sverrisson. Búið
er að hafa samband við vinningshafana.
Á næstu vikum eiga áskrifendur Morgunblaðsins
möguleika á að hreppa ferð til Detroit, Cincinnati, St.
Louis, Dublin og Dallas með WOW air. Fjallað verður
um hverja borg fyrir sig á síðum blaðsins á fimmtu-
dögum meðan á leiknum stendur.
Hafa verið áskrifendur í áratugi
Rósa Þórhallsdóttir vann
ferð með WOW air til Tel Aviv
Morgunblaðið/Eggert
Útdráttur Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgun-
blaðsins, dró út vinningshafa í hljóðveri K100.
Hæstiréttur
kvað í gær upp
dóm í máli þar
sem ein-
staklingur
krafði sveitarfé-
lagið annars
vegar um bið-
laun vegna nið-
urlagningar
stöðu hans sem
deildarstjóra
við skóla í sveitarfélaginu og hins
vegar miskabætur vegna ætlaðs
brots sveitarfélagsins við ráðningu
í stöðu skólastjóra við skólann en
maðurinn var meðal ellefu umsækj-
enda um starfið. Hafði héraðs-
dómur komist að þeirri niðurstöðu
að ekki væru uppfyllt skilyrði til að
fallast á kröfu hans um biðlaun en
féllst á kröfu hans um miskabætur.
Sneri Hæstiréttur þeirri niður-
stöðu við og taldi að hann ætti rétt
á biðlaunum í tólf mánuði sam-
kvæmt þeim kjarasamningi sem
gilti þegar uppsögnin kom til fram-
kvæmda. Hins vegar var ekki talið
að hann hefði hnekkt því mati sveit-
arfélagsins að þeir sex umsækj-
endur sem boðaðir voru í viðtöl
vegna skólastjórastöðunnar hefðu
staðið honum framar samkvæmt
þeim menntunar- og hæfniskröfum
sem gerðar voru í auglýsingu um
stöðuna. Var kröfu mannsins um
miskabætur því hafnað.
Biðlaun dæmd en
miskabótum hafnað
í Hæstarétti
Hæstiréttur Dómi
undirréttar snúið.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Lyf sem er nauðsynlegt átta ára
gömlu barni er ekki til hjá lyfjaheild-
sölunni í þeim styrkleika sem það
þarf að fá. Lyfið gæti verið fáanlegt í
einhverjum apótekum, samkvæmt
upplýsingum frá Lyfjastofnun, en þó
ekki alls staðar, t.d. í þeim apótekum
þar sem barnið býr. Móðir þess greip
því í tómt þegar hún ætlaði að sækja
fyrirframpantaðan skammt af lyfinu í
apótek í vikunni. Þar fékk hún þau
svör að lyfið væri hvergi til og kæmi
ekki a.m.k. næstu tvær vikurnar.
Samkvæmt upplýsingum frá lyfja-
heildsölunni hefur lyfið ekki verið til
hjá framleiðanda en er væntanlegt til
landsins um næstu mánaðamót.
Lyfið nefnist Metjoectpen og þarf
barnið nauðsynlega á því að halda
vegna barnaliðagigtar og augnbólgna
sem geta fylgt sjúkdómnum. Um 12,5
mg sprautupenna er að ræða og seg-
ist móðirin halda að ekkert annað lyf
geti komið í staðinn fyrir það. Þrátt
fyrir þessi óvæntu svör í apótekinu
segir móðirin að lyfjaskorturinn
hamli ekki meðferðinni næstu tvær
vikurnar því tveir sprautupennar hafi
verið til á heimilinu en oft hefur hún
leyst lyfið út sama dag og hún ætlaði
að nota það. Barnið virðist vera laust
við augnbólgur sem áður hafði orðið
vart við, en sú óvissa sem hlé á lyfja-
gjöfinni myndi skapa er nokkuð sem
móðirin má ekki hugsa til.
Skylt að eiga nægar birgðir
Tímabundinn skortur á einstaka
lyfjum er algengur, segir Lyfjastofn-
un, og alls ekki bundinn við Ísland.
Ástæður fyrir því að lyf skortir geta
verið margvíslegar. „Lyfjastofnun
beitir sér stöðugt fyrir því að hér á
landi séu skráð þau lyf sem eru í sam-
felldri og umtalsverðri notkun. Hins
vegar gildir hér á landi eins og í svo
mörgum öðrum löndum að ekki eru
öll lyf skráð og ekki eru öll skráð lyf
alltaf fáanleg. Fyrirkomulag við af-
greiðslu beiðna vegna undanþágu-
lyfja hér á landi gerir hins vegar að
verkum að raunverulegur lyfjaskort-
ur er ekki algengur,“ segir í upplýs-
ingum frá Lyfjastofnun.
Löggjöf um lyfjaskráningu á Ís-
landi er hin sama og í öðrum EES-
ríkjum og henni er fyrst og fremst
ætlað að tryggja að lyf hér á landi
uppfylli settar kröfur um gæði, ör-
yggi og verkun. Í lyfjalögum kemur
fram að lyfjaheildsölum er skylt að
eiga nægar birgðir, að mati heilbrigð-
isyfirvalda, af tilteknum nauðsynleg-
um lyfjum sem veitt hefur verið
markaðsleyfi fyrir hér á landi. Þar
segir jafnframt að lyfjaheildsala skuli
útvega, eins fljótt og kostur er, lyf
sem ekki eru til í birgðum og veita öll-
um landshlutum sambærilega þjón-
ustu.
Takmarkaðar kröfur eru gerðar til
umboðsfyrirtækja samkvæmt ís-
lenskum lögum um að tryggja lyfja-
öryggi, segir Lyfjastofnun. Ítarlegar
kröfur eru gerðar til markaðs-
leyfishafa sem snúa að öryggi lyfja,
gæðum og virkni. „Í sumum tilfellum
felur markaðsleyfishafi umboðs-
manni sínum hér á landi tilteknar
skyldur til að uppfylla þessi skilyrði
en slík ráðstöfun undanskilur þó
aldrei markaðsleyfishafa undan
ábyrgð sinni. Að tryggja framboð
lyfja er ekki ein þessara krafna sam-
kvæmt íslenskum lögum og reglum,“
segir í upplýsingum frá Lyfjastofn-
un.
Greip í tómt í apótekinu
Lyf sem er nauðsynlegt barni með barnaliðagigt ófáanlegt um tíma Skapar óvissu að sögn
móðurinnar Tímabundinn skortur á einstaka lyfjum er algengur að sögn Lyfjastofnunar
Morgunblaðið/Sverrir
Lyf Tímabundinn skortur á lyfjum
er algengur að sögn Lyfjastofnunar.