Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 ✝ Sólveig HelenLund fæddist 24. október 1962 í Ósló í Noregi. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skóg- arbæ 28. janúar 2018. Hún var dóttir Hermod Ingimars Jakob Lund, f. 20. mars 1933, d. 4. ágúst 2000, og Margrétar Kristínar Ásbjarn- ardóttur, f. 11. maí 1941, d. 9. desember 2014. Helen fluttist fjögurra ára gömul, ásamt elstu systur sinni og foreldrum, til Patreksfjarðar frá Noregi og ólst þar upp en fluttist það- an 25 ára gömul til Reykjavík- ur og bjó þar til dánardags. Helen var önnur í röð þriggja systkina, systur hennar eru Martha Edvarda Kristín Lund, f. 25. des. 1960, búsett á Akra- nesi. Maður hennar er Ólafur dísi Fönn Svansdóttur Lund, f. 8. maí 1980. Barn hennar og fyrrverandi maka, Ragnars Halldórs Eiríkssonar, er Hrafnar Jökull Ragnarsson, f. 27. mars 2014. Þau eru búsett í Danmörku. Í maí 1984 hófu Helen og Jó- hann Þorsteinn Bjarnason, f. 13. janúar 1949, sambúð, þau eignuðust saman Tinnu Dögg Jóhannsdóttur, f. 26. nóvember 1994, hún á með fyrrverandi maka sínum, Jóni Ragnari Arn- finnssyni, dótturina Herdísi Eik Jónsdóttur, f. 20. ágúst 2014. Þau eru búsett í Reykja- vík. Síðar kom sonur Helenar og Jóhanns, Jóhann Ingi Jó- hannsson, f. 26. nóvember 1995, búsettur í Reykjavík. Jó- hann og Helen slitum sam- vistum 2004. Helen vann ýmis störf yfir ævina, hún vann frá 14 ára aldri á sumrin við fiskvinnslu og eftir að gagnfræðaskóla lauk starfaði hún við fisk- vinnslu til 25 ára aldurs. Síðar starfaði hún í eldhúsum, í þjón- ustustörfum og við ræstingar. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 9. febr- úar 2018, klukkan 13. Gretar Að- alsteinsson. Martha á barn úr fyrra sambandi með Bjarna Franz Viggóssyni, Huldu Guðrúnu Bjarna- dóttur, f. 22. júlí 1978, og barn með Ólafi Grétari Að- alsteinssyni er Ás- björn Ólafsson, f. 19. ágúst 1987. Yngri systir Helenar er Kristín Áslaug Lund-Hammeren, f. 20. júní 1974, búsett í Noregi. Mað- ur hennar er Ole Lund- Hammeren og saman eiga þau tvíburana Brynju-Marie og Emblu Eddvarda Lund- Hammeren, f. 25. janúar 2006, Tuvu Margréti Lund-Hamm- eren f. 20. febrúar 2008, og Sögu Oleu Lund-Hammeren, f. 21. janúar 2010. Helen trúlof- aðist Svani Guðrúnarsyni og eiga þau saman dótturina Vé- Þá hefur elsku mamma mín kvatt okkur, alltof ung en hún hafði verið mikill sjúklingur í mörg ár og hafði háð harða bar- áttu gegn öllum sínum veikindum og stóð ávallt uppi sem sigurveg- ari. Ef ég ætti að lýsa mömmu í einni setningu fyrir fólki sem ekki þekkti hana myndi ég segja að hún hafi verið mikil baráttukona fram í fingurgóma og trúræknari konu en hana hefði verið erfitt að finna án þess að hún væri prest- ur. Ein af mínum fyrstu minning- um um mömmu og mig úr barn- æsku er þegar við fórum með kvöldbænirnar saman. Eftir á signdi hún mig alltaf og þetta gerði hún við mig fram á fullorð- insaldur, einnig þegar ég gisti hjá henni í heimsóknum mínum til landsins. Þetta varð okkar ritúal, þegar ég ferðaðist til annarra landa keypti ég iðulega Jesú- myndir eða krossa og gaf mömmu. Þetta geymdi hún allt í skríni sem ég gaf henni frá Kúbu og hún hafði á náttborðinu sínu. Þetta voru gersemar í hennar augum og það gladdi mig. Hún kvaddi mig og systkini mín ávallt þegar við vorum að fara út um dyrnar heima eins og þetta væri í síðasta sinn sem hún sæi okkur, maður var kysstur og knúsaður í bak og fyrir og hún átti aldrei bágt með að segja manni að hún elskaði mann. Á unglingsárunum fór þetta í taugarnar á mér en því eldri sem ég varð því vænna þótti mér um þessar kveðjur hennar. Hún leit á okkur börnin sem sína stærstu blessun í lífinu og sagði það við mig en þegar Hrafnar sonur minn fæddist og Herdís hennar Tinnu systur sá ég hvern- ig mamma blómstraði í ömmu- hlutverkinu og hvað börnin gerðu hana hamingjusama og stolta. Hún elskaði þau afar heitt og ég er svo þakklát að hafa fengið að upplifa mömmu í þessu hlutverki, það fór henni svo vel. Mamma var ung þegar hún átti mig og var samband okkar oft á tíðum eins og vinkonusamband, stundum of mikið, stundum of lít- ið en þegar vel lét þá gátum við hlegið svo mikið saman. Hún var með svo góða kímnigáfu og kald- hæðin á svo skemmtilegan hátt, það fór ekki á milli mála þegar við systkinin og mamma komum saman á góðri stundu að við vor- um sameinuð því við vorum ekki hljóðlátasta fólkið þegar hlátra- sköllin dundu á. Þetta eru hlýjar og fallegar minningar sem ég mun bera með mér alltaf. Elsku mamma mín, takk fyrir að hafa kennt mér svo margt um styrk, trú og kærleik. Þú varst þessum kostum gædd ríkulega og gafst vel af þér þegar þú gast og hafðir burði til. Ég veit það í hjarta mínu að þú ert komin til ömmu, afa og fjölskyldu okkar hinumegin, ég veit að þar er eng- in þjáning, sársauki eða veikindi sem þú þarft að kljást við. Ég veit að þar heldur lífið áfram á öðru stigi, þú trúðir því alltaf og inn- rættir í okkur börnin. Ég veit og trúi að þú fylgist með okkur og haldir verndarhendi yfir okkur. Ég veit að þú stendur við það sem ég hvíslaði í eyra þitt þegar þú skildir við og ég hélt í hönd þína og þú kvaddir. Ég elska þig alltaf og sakna þín ávallt, styrkur þinn mun lifa í mér og minning þín lifir áfram í okkur öllum. Ávallt þín Védís og Hrafnar. Helen Lund mamma mín var svo sterk manneskja að þegar ég horfi til baka á ég erfitt með að skilja hvernig hún fór að þessu. Hún fékk erfiða sjúkdóma til að sigrast á oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. En alltaf fór hún í gegnum þá með jákvætt hugar- far og hún sannaði það svo sann- arlega að með viljastyrk og já- kvæðni er hægt að komast í gegnum allt. Ég á margar fallegar minning- ar með henni mömmu en þær sem standa upp úr eru þær sem ég á með henni bæði á meðgöngu og í fæðingu stelpunnar minnar. Ég varð ótrúlega veik þegar ég gekk með stelpuna mína og var rúm- liggjandi mjög stóran hluta af henni, ég gat varla borðað neitt en mamma gafst sko ekki upp á því, hún sat á rúmstokknum mín- um og reyndi eins og hún gat að koma ofan í mig mat, þótt það væri ekki meira en eitt lítið kex þá gafst hún aldrei upp. Í fæðingu stelpunnar minnar var ég ung og að hafa mömmu hjá mér bjargaði svo sannarlega miklu, það var eins og hún hefði bara brett upp ermar og sagt jæja gerum þetta bara. Hún var hjá mér allan tím- ann að hvetja mig áfram og stappa í mig stáli þangað til stelp- an mín kom í heiminn. Það var fallegasta stund lífs míns hingað til og verð ég ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að deila henni með mömmu. Hún var einnig mikið til staðar fyrir mig eftir að ég átti stelpuna mína, ég þurfti aldrei að segja mömmu ef það var eitthvað að hjá mér eða eitthvað að angra mig, hún bara vissi það. Mamma dæmdi mig aldrei. Sem unglingur fór að halla undan fæti hjá mér og ég fór að taka ákvarð- anir um líf mitt sem voru alls ekki gáfulegar, ég fann aldrei fyrir því að mamma dæmdi mig á neinn hátt. Ég fann líka fyrir því hvað það létti á henni þegar ég kom mér á beinu brautina. Mamma sagði mér alltaf að gera ekkert sem ég vildi ekki gera, það væri engin ein rétt leið í lífinu heldur væru milljón leiðir og fólk fyndi það sem hentaði sér hverju sinni. Hún var líka alveg rosalega kær- leiksrík mamma, í dag er ég hvað mest þakklát fyrir það. Hún átti alls ekki erfitt með að sýna okkur systkinum hvað henni þótti vænt um okkur. Mamma reyndi að gefa mér allt sem hún átti og það sem hún átti nóg af var ást. Hún var líka frábær amma og elskaði fátt meira en barnabörnin sín. Hún hafði svo gaman af stelpunni minni og að fá hana í líf sitt sagði hún alltaf að væri svo sannarlega gjöf. Þegar stelpan mín var bara ungbarn sóttist mamma mikið eftir því að sjá um hana, ef það þurfti að skipta á bleyju var hún búin að vinda sér í það áður en hægt var að hugsa sig tvisvar. Ég er alveg ótrúlega þakklát fyrir alla hjálpina og tímann sem ég fékk með mömmu og sérstaklega eftir að ég átti stelpuna mína. Mamma glímdi samt við mikil veikindi en hún lét lítið bera á stóru hlutunum. Mamma mín var frábær amma og mjög góð mamma, og er ég svo þakklát fyrir allar góðu og fallegu minningarnar sem ég á með henni. Hvíldu nú í friði, elsku mamma mín. Þar sem englarnir syngja sefur þú. Tinna Dögg Jóhannsdóttir. Systir okkar hefur lokið för sinni með okkur hér á jörðu. Sam- fylgdinni er lokið, áfangastað er náð. Eftir stöndum við tvær systur, með vitneskju um hve brothætt lífið er. Þrátt fyrir að dauðinn sé óum- flýjanlegur er alltaf óvænt að standa frammi fyrir því að þurfa að kveðja einhvern. Að vera und- irbúinn er í raun ekki hægt. Helen greindist með krabba- mein, illvígan sjúkdóm, sem hún hafði áður sigrast á. Þrjú skipti sigraði hún, mikið af þrjósku og einbeitni sem við öll í ættinni höf- um svo um munar. Þrátt fyrir allt hélt hún já- kvæðni gegnum meðferðina, sársaukann og hrakandi heilsu. Hún var bjartsýn þrátt fyrir að læknarnir hefðu rætt alvarleika þessa lúmska sjúkdóms. Helen var miðdóttir foreldra okkar, fædd í Noregi einungis tveim árum á eftir Mörthu. Fjöl- skyldan fluttist heim á Patreks- fjörð og leit Helen alltaf upp til Mörthu og þær voru mikið saman alla barnæskuna. Helen vandist að vera yngst og var mikil mömmustúlka, það var því kannski ekki bara eintóm gleði og ánægja þegar þær systur tóku á móti mér með föður okkar á eld- húsgólfinu heima þegar Helen var 12 ára. Því miður hef ég ekki margar minningar frá barnæsku, enda mikill aldursmunur, en eitt af lífs- ins augnablikum, sem fyllir mig stolti og gleði, var þegar ég 6 ára gömul fékk yndislegt lítið frænkuskott í fangið, frumburð Helenar, Védísi Fönn. Helen varð móðir 17 ára gömul og byrjaði snemma að búa. Við systurnar höfðum ágæta æsku. Náttúran var leikvöllurinn, fjöllin og fjaran. Nokkrum árum eftir að hún byrjaði að búa fluttist Helen í höf- uðborgina með dóttur sinni og sambýlismanni. Hún naut þeirrar gleði að verða móðir tveggja barna eftir að hún fluttist suður. 32 ára fædd- ist henni dóttir, Tinna Dögg, og ári seinna sonurinn Jóhann Ingi. Þrátt fyrir aldursmuninn vor- um við sem systur flestar, rif- umst, sættumst og rifumst. Sem táningur fann ég plötu sem ég spilaði stanslaust. Auðvitað tilheyrði platan Hel- en systur. Meat Loaf var spilaður endalaust og fyrst þá gat ég séð að við ættum þó tónlistarsmekk sameiginlegan. Það voru mikil samskipti milli okkar þegar ég fluttist til Hafn- arfjarðar. Hverri helgi var eytt hjá Helen og fjölskyldu hennar. Við hlógum, ræddum málin og urðum í raun vinkonur, þeirra tíma sakna ég. Því miður vegna aðstæðnanna hittumst við sjaldan. Ég fluttist til Noregs fyrir 19 árum. Er þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk með Helen í september síð- astliðnum þegar ég heimsótti hana á sjúkrahúsinu. Minning- arnar lifa að eilífu. Helen fékk að njóta þeirrar gleði að verða amma í tvígang sama árið. Fyrst var það lítill drengur, Hrafnar Jökull, sonur Védísar, og síðar sama ár Herdís Eik, dóttir Tinnu. Hún naut hlut- verksins sem amma og var óend- anlega stolt af börnunum. Helen var mamma, amma, systir og vin- kona og skilur eftir sig spor um ókomin ár. Söknuðurinn er sár, en for- eldrar okkar hafa tekið vel á móti henni. Elsku Védís, Tinna og Jóhann. Helen var heppin að eiga ykkur að. Innilegar samúðarkveðjur. Við hittumst síðar, stóra systa. Blessuð sé minning þín. Þín systir, Kristin Lund-Hammeren. Ég kynntist Helen fyrst á ung- lingsárunum þegar ég og Védís urðum vinkonur, stuttu eftir að fjölskyldan flutti í Kópavog. Ég var oft gestkomandi á heimili þeirra og fannst mér sérlega spennandi og skemmtilegt að fylgjast með þegar börnin henn- ar, Tinna og Jóhann, fæddust. Eftir að Védís fluttist til Dan- merkur urðu samskiptin minni en ég hitti Helen oftar síðari ár í veislum og annað. Helen hafði skemmtilega kímnigáfu og var alltaf glöð þegar ég hitti hana. Hún bjó yfir miklum styrk sem endurspeglaðist helst í baráttu hennar við veikindi seinni árin. Það duldist ekki nokkrum manni að hún var afar stolt af börnum sínum og barnabörnum og vöktu þau hjá henni mikla hamingju. Elsku Védísi, Tinnu, Jóhanni og öðrum aðstandendum vil ég votta mína innilegustu samúð. Mikill missir er að Helen en minning um góða konu lifir í hjörtum okkar allra. Megi guð og allar góðar vættir styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Helga María. Æskuvinkona og frænka, elsku Helen, það er svo sárt að horfa á eftir þér. Ég og þú höfum alla ævi verið vinkonur, man ekki eftir öðru. Þegar ég kom heim nóttina sem þú fórst leitaði ég uppi sendibréf frá þér og myndir. Anika dóttir mín kom þá til mín og ég fór ósjálfrátt að rifja upp gamlar góðar stundir sem ég og þú höfum átt saman í gegnum tíð- ina, sem spannar þó nokkuð mörg ár. Fyrsta minningin var þegar við vorum börn, þá fengum við stundum að fara í baðkarið hjá Mörtu ömmu þinni sem bjó á efri hæðinni í sama húsi og þú, það fannst mér sko aldeilis notalegt því amma þín leyfði okkur að fylla alveg baðkarið af vatni og vera þann tíma sem við þurftum. Þetta var þvílíkur lúxus að mér fannst. Þegar við fórum á unglingsárin, þá var sko spennandi þegar mamma þín spáði fyrir okkur, við vildum vita allt um barneignir og eiginmenn og hvort við yrðum ekki rosalega ríkar. Manstu þeg- ar við lásum Hvunndagshetjuna eftir Auði Haralds? Ég kom til þín á hverju kvöldi og þegar litla Védís var sofnuð hófst lesturinn og við grenjuðum og veltumst um af hlátri. Guð, það var svo gaman að fíflast og hlæja með þér. Það var svosem ekkert erfitt að fá þig í gríngírinn, þótt þú værir orðin hálfmáttlaus í rúminu undir það síðasta, alltaf stutt í húmorinn og brosið. Það sem ég virti mest við þig var trygglyndi þitt og heið- arleiki, þú sýndir mér alltaf hvað þér þótti vænt um mig og þú sagðir mér alltaf hvað ég væri frábær, þakka þér fyrir það, elsku Helen, þú varst alltaf í öll- um kringumstæðum vinkona mín. Tryggð og virðing framar öllum, mikil gleði með hlátrasköllum, oft var sorg en mest var gaman, góðar stundir við fengum saman. Elsku Védís, Tinna og Jóhann, ég bið algóðan guð að gefa ykkur styrk í gegnum sorgina og sökn- uðinn eftir mömmu ykkar. Guðfinna Bjarnadóttir. „Ég hef lesið um land þar sem enginn lengur þjáist af sjúkdó- mastríði, enginn styrjaldarang- istarkvíði, innan skamms, innan skamms verð ég þar. Hallelúja, þá hjörtu vor fagna, hallelúja, öll vantrú er farin. Sérhver freist- ingarrödd þá mun þagna, þar hjá Guði um eilífð ég er.“ Brot úr þessum fallega sálmi á vel við hana Helen okkar, trúuð var hún og sagði að þegar sínu sjúkdómastríði lyki yrði hún í umsjá Guðs um eilífð alla. Helen var dóttir Möggu Ásbjarnar, sem var eins og systir okkar alla tíð, og Hermods Lund. Rætur henn- ar liggja vestur á Patreksfjörð því þar ólst Helen upp eftir að foreldrar hennar fluttu frá Nor- egi með hana og eldri systurina, Mörtu. Kristín, þriðja systirin, fæddist á Patreksfirði. Það var yndislegt fyrir Mörtu og Ásbjörn að fá einkadótturina heim í Að- alstræti 21 með þessar fallegu, hárprúðu hnátur, ljóshærða Mörtu með slöngulokka og Helen með sitt rauða fallega hár sem amma hennar vissi ekki hvaðan gæti komið. Það eru forréttindi að alast upp í fjölskylduhúsi eins og þær systur nutu. Amma og afi á efri hæðinni og Magga og fjöl- skylda á þeirri neðri. Drauma- bakkelsið var hjá ömmu meðan hún hafði heilsu til: Kóngsins Há- kon-kökur, gyðingakökur, spesí- ur og hálfmánar svo fátt eitt sé nefnt. En hringrás lífsins stöðvar enginn og fyrr en varði voru tát- urnar farnar að aðstoða ömmu og afa, og flugu síðan úr hreiðrinu. Í stúlknahópinn fríða bættist þegar Helen eignaðist frumburð sinn, duglegu Védísi Fönn, með Svani Guðrúnarsyni en þeim auðnaðist ekki áframhaldandi samvera. Mæðgurnar bjuggu um hríð á Patreksfirði en héldu síðan suður á bóginn. Þetta varð flökkulíf hjá þeim mæðgum úr einum stað í annan en eitt brást ekki, alltaf var hægt að leita í ör- yggið á Aðalstræti 21 þar sem stór og hlýr ömmufaðmur beið. Það liðu 14 ár þangað til nýtt ljós kviknaði hjá Helen en þá fæddist henni og sambýlismanni hennar, Jóhanni Þorsteini Bjarnasyni, lít- il falleg stúlka, Tinna Dögg, og seinna um árið kom prinsinn, Jó- hann Ingi. Við tóku ár festu í Grafarvogi og flest lék í lyndi þar til Helen veiktist af brjóstakrabbameini. Síðan þá var heilsa hennar bág og hver sjúkdómurinn á fætur öðr- um herjaði á hana. Það er ekki öllum gefið að sætta sig við heilsuleysi en Helen bar sig alltaf vel. Yndi hennar og ánægja voru barnabörnin, Herdís og Hrafnar. Herdís dvaldi oft hjá ömmu og Helen saknaði fleiri Sólveig Helen Lund Vegna rangs nafns í undirskrift birtum við eftirfar- andi minningar- grein aftur og biðjumst velvirð- ingar á mistökunum. Elsku amma okkar. Takk fyr- ir að hafa alltaf verið svo ynd- isleg og blíð, þú með alla þína ást og kærleika í garð okkar og barna okkar. Þegar við vorum litlar stelpur, áður en við fluttum til Danmerk- ur, fannst okkur svo gaman að heimsækja þig í Álftamýrina. Við dáðumst að öllu fallega föndrinu sem þú gerðir og skemmtum okkur við að renna Ólöf Þórðardóttir ✝ Ólöf Þórðar-dóttir fæddist 4. febrúar 1927. Hún lést 29. janúar 2018. Útför Ólafar fór fram 8. febrúar 2018. okkur niður hand- riðið í ganginum. Ekki má gleyma öllum sumarkvöld- unum og gleðinni í Danmörku sem við nutum með þér. Þú varst alltaf fjörug og glöð, og þín lífsgleði og orka hefur alltaf fylgt okkur öllum í fjöl- skyldunni. Þú elskaðir að hafa alla fjöl- skylduna í kringum þig, það gerði þig svo hamingjusama. Þú varst mjög sterk og um- hyggjusöm kona og við munum alla tíð minnast faðmlaga þinna og kossa. Elsku amma, þú ert nú falleg björt stjarna á himni og við munum alla tíð elska og sakna þín. Blessuð sé minning þín, elsku amma. Knús og kossar. Eva Lind og Elsa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.