Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
efni í Finnlandi, Bandaríkjunum
eða þar sem besta efnið býðst.
Hönnunarferlið er mikil og tíma-
frek vinna og maður er stöðugt
með hugann við hvernig maður
getur útfært hugmyndir sínar.“
Að þessu sögðu bætir hún við
að sníðagerðin og saumaskapurinn
sé heldur ekki bara leikur einn,
vanda þurfi vel til verka frá upp-
hafi til enda. „Ég sauma mest
kjóla, yfirhafnir úr ull og silki-
slæður; klassískar flíkur úr vönd-
uðum efnum og reyni að nota sem
mest íslenskt hráefni,“ segir
Hulda Fríða.
Draumur hennar er að geta
hannað og framleitt tvær fatalínur
á ári og selt bæði í verslunum hér
heima og erlendis.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í vinnustofunni Hulda Fríða skartar sinni eigin hönnun á vinnustofu sinni;
viskós-kjól og léttri og leikandi silkislæðu í sama stíl.
Facebook: FRIDA Hönnun
Þema útskriftarverkefnis Huldu Fríðu frá Margrethe-skólanum í Kaup-
mannahöfn árið 2013 var japönsk bardaga-geisja og lífið í hafinu. Hún
kallaði línuna Ocean Bugeisha og lýsti henni og tilurð hennar á sínum
tíma á þessa leið: „Bugeisha var stríðsmaður sem tilheyrði japanskri efri
stétt. Hún tók þátt í bardögum samhliða Samúræjum til að verja heimilið
og fjölskyldu sína. Ég fékk einnig innblástur af mýkt og litbrigðum hafs-
ins; andstæðunni við hvassar og geómetrískar
línur sem einkenna gjarnan japanska tísku, en
áhrifin eru m.a. frá origami-pappírslist-
inni. Með Ocean Bugeisha línunni
vildi ég sameina og finna jafn-
vægið milli þessara tveggja
ólíku heima.“
Japönsk bardaga-geisja
OCEAN BUGEISHA
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Dönsk hönnun
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
Sími 775 1832 | Happie furniture - húsgögn
Sérsmíðuð húsgögn
fyrir heimili og fyrirtæki
Happie furniture
Draumasmíði
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
heldur sína tónleika, þá fyrstu á
þessu ári, í Seltjarnarneskirkju á
sunnudaginn klukkan 17. Þar verður
frumflutt verkið Átta lítil eyrnablik
eftir hina norsku Birgit Djupedal,
meistaranema í tónsmíðum í
Listaháskóla Íslands. Flutningi á því
verki stjórnar Ari Hróðmarsson.
Öðrum flutningi á tónleikunum
stýrir aðalhljómsveitarstjóri sveit-
arinnar, Oliver Kentish, en á efnis-
skránni eru sellókonsert í a-moll
eftir Robert Schumann þar sem
Ólöf Sigursveinsdóttir leikur einleik
og svo sinfónía númer 88 eftir Jo-
seph Haydn. Aðgangseyrir að tón-
leikunum er 2.000 krónur, frítt er
fyrir börn, afsláttarverð 1.000 krón-
ur fyrir nemendur og eldri borgara.
Jafnan eru á bilinu 40 til 60
manns í Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna sem var stofnuð haustið
1990 og hefur starfað óslitið síðan.
Í sveitinni er fólk sem flest hefur
atvinnu af öðru auk þess sem hún
er vettvangur nemenda og tónlist-
arkennara til að iðka tónlist og við-
halda færni sinni. Haldnir hafa verið
5-7 tónleikar á ári, en auk þess hef-
ur hljómsveitin komið fram við ýmis
tækifæri svo sem við athafnir í Há-
skóla Íslands, kirkjulistahátíðir og
hátíðarguðsþjónustur. Þá hefur
frumflutningur íslenskra verka ver-
ið mikilvægur þáttur í starfinu og
verk hafa verið samin fyrir hljóm-
sveitina, sem er mikilvægur uppeld-
isstaður fyrir ungt tónlistarfólk.
Margir þeirra sem nú hafa atvinnu
af tónlist hafa þar fengið mikilvæga
þjálfun og oft senda kennarar nem-
endur sína á þennan stað svo þeir
öðlist góða þjálfun í hljómsveit-
arleik.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna í Seltjarnarneskirkju á sunnudaginn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Strengir Fiðla lögð að vanga á æfingu Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna í kirkjunni á Nesinu nú í vikunni.
Átta lítil eyrnablik, Schumann og Joseph Haydn