Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 15
skilyrðum laganna, er tekin skýr af-
staða til þess að veitingarvaldið er
hjá ráðherra en ekki hjá dómnefnd-
inni,“ sagði meðal annars í álitinu.
Ræddu ekki tilnefningarnar
Alþingi samþykkti tillögu ráðherra
1. júní í fyrrasumar, með 31 atkvæði
gegn 22. Átta þingmenn greiddu ekki
atkvæði en tveir voru fjarstaddir.
Fram kom í bréfi skrifstofustjóra Al-
þingis til skrifstofu forseta Íslands 7.
júní 2017 að þingmenn óskuðu ekki
eftir því að fá að ræða einstakar til-
nefningar á dómurunum 15.
Dómnefndin skilaði ráðherra til-
lögum 19. maí í fyrra. Lögum sam-
kvæmt hefur ráðherra tvær vikur til
að yfirfara lista hæfnisnefndar.
Samkvæmt svari frá dómsmála-
ráðuneytinu hefur þessi tveggja
vikna frestur verið í lögum frá gildis-
töku laga nr. 45/2010. „Það frumvarp
var samið á vegum réttarfarsnefndar
að tilhlutan dómsmálaráðherra á
grundvelli tillagna nefndar sem falið
var að gera tillögur um breytingar á
reglum um skipun dómara,“ sagði í
svari ráðuneytisins um þetta efni.
Ráðherra hefði aðeins 11 daga
Minnihluti stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar fjallaði um þessi
tímamörk í áðurnefndu áliti:
„Lögin sníða ráðherra vissulega
þröngan stakk hvað varðar tíma-
fresti í kringum skipan dómara. Það
er mat minnihlutans að bæði ráð-
herra og Alþingi hefðu þurft lengri
tíma til að afgreiða þetta mál sem
snýst um skipan fimmtán nýrra dóm-
ara í Landsrétt þannig að ráðherra
gæti uppfyllt rannsóknarskyldu sína
með óyggjandi hætti og þing gæti
komið saman síðar í sumar til að
ljúka málinu.“
Sambærileg sjónarmið komu fram
í málflutningi ráðherra þegar málin
fóru fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur.
„Við mat á því hvort meginreglum
stjórnsýsluréttarins hafi verið fylgt í
málinu telur stefndi [þ.e. ráðherra]
nauðsynlegt að hafa í huga hinn for-
dæmalausa málshraða sem ráðherra
og Alþingi þurftu að lúta í málinu …
Dómsmálaráðherra barst umsögn
dómnefndar 19. maí 2017, aðeins 11
dögum áður en síðasti þingfundur
átti að vera. Á þessum tíma þurfti
ráðherra að skoða málið og útbúa til-
lögur sínar og þá þurfti Alþingi að fá
tíma til þess að ræða málið. Að mati
stefnda hlýtur að þurfa að taka tillit
til þessa fordæmalausa málshraða
við mat á því hvort almennum reglum
stjórnsýsluréttarins hafi verið fylgt.
Einnig verður að hafa í huga að hér
átti að skipa 15 dómara úr hópi 33
umsækjenda, en ekki einn dómara úr
hópi nokkurra umsækjenda, eins og
4. gr. a. gengur út frá.“
Ólík sýn á aðkomu ráðherra
Sem áður segir dæmdi Hæstirétt-
ur að ráðherrann hefði ekki sinnt
rannsóknarskyldu í málinu.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
var fjallað um mat ráðherrans á um-
ræddum umsækjendum.
„Þá verður enn fremur að hafna
málsástæðu stefnanda um að ráð-
herra hafi vikið frá stjórnsýslufram-
kvæmd með því að leggja annars
konar mat til grundvallar en nefndin
gerði … Í því sambandi er ekki unnt
að líta framhjá því að málatilbúnaður
stefnanda hefur í meginatriðum
byggst á því að leggja hafi átt um-
sögn dómnefndar til grundvallar
mati á hæfni umsækjenda. Þar sem
dómurinn hefur hins vegar fallist á
þau sjónarmið stefnda að mat dóm-
nefndarinnar hafi verið haldið efnis-
legum annmörkum verður það því
ekki lagt til grundvallar niðurstöðu
dómsins að þessu leyti.“
Fram kom í máli Gunnlaugs Claes-
sen, formanns dómnefndar, við mál-
flutninginn að óánægja væri meðal
lögmanna með vægi einstakra mats-
þátta sem liggja dómaravali nefnd-
arinnar til grundvallar.
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
DUX PASCAL SYSTEM
Sérsniðna gormakaerfið
Líkamar allra eru einstakir.
Þess vegna býður Pascal de Luxe yfirdýnan upp á sérsniðin
þægindasvæði sem gerir tveimur einstaklingum kleift að velja fullkomnu
stillinguna fyrir axlirnar, neðra bakið og fótleggina þeirra.
Pascal kerfið er í boði fyrir öll DUX rúm, annað hvort
sem fellt inn í rúmið eða sem sérstök yfirdýna.
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti
í gær tillögu Dags B. Eggertssonar
borgarstjóra um stofnun svokallaðs
manneklupotts. Í tillögunni felst að
veita starfsstöðvum borgarinnar
heimild til að ráða starfsfólk sem
þegar starfar hjá borginni, þó að
starfshlutfall þess fari yfir 100%. Sú
regla hefur síðustu misseri verið
við lýði hjá Reykjavíkurborg að
ekki sé hægt að ráða starfsmenn í
meira en 100% starf. Þessari að-
gerð er ætlað að bæta úr manneklu
sem hrjáð hefur ýmsa starfsstaði í
borginni. Hyggst borgarstjóri
leggja 15 milljónir króna í umrædd-
an pott.
Í greinargerð með tillögunni
kemur fram að innan borgarkerf-
isins séu fjölmörg dæmi þess að
starfsmenn hafi ráðið sig í auka-
vinnu hjá nágrannasveitarfélögum
eða annars staðar þar sem auka-
vinna hafi ekki boðist hjá Reykja-
víkurborg. Samkvæmt kjarasamn-
ingum sé heimilt að ráða
starfsmenn með þeim hætti en ef
vinna þeirra fer umfram 100%
starfshlutfall skuli greiða starfs-
manninum yfirvinnu. Viðbótar-
fjármagn, 15 milljónir króna, þurfi
til að mæta þessu, enda hafi fáir
starfsstaðir fjárhagslagt svigrúm
til að ráða starfsmenn á þeim for-
sendum.
„Framkvæmdin verði með þeim
hætti að starfsstaðir sæki um að fá
greiddan mismun á þeim launum
sem þeir hefðu greitt starfsmann-
inum ef hann væri ekki í öðru starfi
hjá Reykjavíkurborg og yfir-
vinnulaununum. Mannauðsdeild
ráðhúss verði falið að útfæra fram-
kvæmdina nánar og kynna fyrir
starfsstöðum Reykjavíkurborgar í
samstarfi við mannauðsþjónustur
fagsviða,“ segir í greinargerðinni.
„Dæmi um þetta er starfsmaður
sem ráðinn er í tímavinnu og fær
greiddar 1.893 kr. á tímann. Vinni
hann utan hefðbundins vinnutíma
frá kl. 8.00 til 17.00 fær hann greitt
sérstakt álag, ýmist 33%, 55% eða
90% í samræmi við ákvæði viðkom-
andi kjarasamnings. Þar sem 90%
álag á aðeins við um stórhátíðir
miða útreikningar við 33% og 55%
álag. … Má gera ráð fyrir því að
kostnaður við hverja viðbótarstund
geti verið á bilinu 330 til 1.605 kr.
þegar tekið hefur verið tillit til
launatengdra gjalda. Gera má ráð
fyrir því að fyrir hverja milljón sem
sett væri í slíkan pott þá væri hægt
kaupa 619 til 3.030 viðbótarstundir.
Lagt er til að í tilraunaskyni verði
sett 15 m.kr. fjármagn sem gefur
möguleika á því að kaupa 9.300 til
45.450 stundir.“
15 milljónir til að
borga yfirvinnu
Borgarstjóri stofnar manneklupott
Starfsmenn megi vinna yfirvinnu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Borgarstjórn Verja á 15 milljónum
króna í svokallaðan manneklupott.
Talið er að aldrei hafi fleiri Íslend-
ingar verið búsettir en nú í þýska
hafnarbænum Cuxhaven og ná-
grenni. Í ár var stofnað þar formlegt
Íslendingafélag, Félag Íslendinga í
Cuxhaven og nágrenni (Fícon), og er
stefnt að því að halda 17. júní 2018
hátíðlegan og fyrsta stóra þorrablót-
ið verður haldið 17. febrúar með
pomp og prakt. Formaður félagsins
er Óskar Sigmundsson.
Sjávarútvegur er mikilvægur í
Cuxhaven en Íslendingarnir sem þar
Íslendingum í Cuxhaven hefur
farið fjölgandi á síðustu misserum
og þeir hafa verið ötulir við að við-
halda íslenskum venjum hvort sem
það er í formi saumaklúbba, jóla-
föndurs, litlu jóla fyrir alla fjölskyld-
una, kvennahlaups eða skötuveislu
svo eitthvað sé nefnt.
Fjöldi Íslendinga sem búsettir eru
í Þýskalandi mun leggja leið sína til
Cuxhaven til þess að fagna þorr-
anum og þegar í ljós kom í hvað
stefndi var ráðist í að finna íslenska
hljómsveit og veislustjóra. Blótið
verður haldið í veislusal Haapag
Hallen í Cuxhaven en byggingin reis
á árunum 1900-1902.
Nýtt Íslendingafélag í Cuxhaven
Búist við fjöl-
menni á þorrablóti
Hafnarbær Í Cuxhaven á fallegum
degi. Hópur Íslendinga býr þar.
búa tengjast allflestir sjávarútvegi á
einn eða annan hátt. Í janúar sl tók
útgerðarfyrirtækið DFFU, sem er í
eigu Íslendinga, formlega á móti
tveimur nýjum frystitogurum. Cux-
haven er vinabær Hafnarfjarðar.