Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 34

Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Hafdís Vala Freysdóttir, forstöðumaður áhættustýringar oghlítingar hjá Kortaþjónustunni, á 40 ára afmæli í dag. Korta-þjónustan, eða KORTA, er greiðslustofnun sem sér um færsluhirðingu fyrir söluaðila. Hafdís hefur starfað hjá KORTA frá árinu 2014 en hún er með BA-gráðu í viðskiptalögfræði frá Bifröst. „Starf mitt felst að stærstum hluta í að tryggja að fyrirtækið fram- fylgi þeim lögum og reglum sem eru um starfsemina sem og að skoða tilvonandi viðskiptavini bæði áður en af samningi verður og svo fylgja þeim eftir ef af samningi verður.“ Áhugamál Hafdísar eru helst þessa stundina að vera með sonunum, fjölskyldu og vinum. Hafdís er einnig í sóknarnefnd Fella- og Hóla- kirkju. „Okkar hlutverk í sóknarnefndinni er að hlutast til um að efla starf okkar kirkju, erum við t.d. nýlega búin að ráða nýjan prest til okkar. Því fylgir formfast ferli sem þarf að fylgja. Ég hef lengi verið viðloðandi kirkjuna hérna. Ég ólst upp í Hólahverfi og hef alltaf búið hér fyrir utan þann tíma er ég var í námi. Bý ég nú með fjölskyldu minni í sama húsi og ég ólst upp í.“ Sambýlismaður Hafdísar er Hilmar Freyr Hilmarsson, sjálfstætt starfandi smiður. Börn Hafdísar eru Ásbjörn Freyr Jónsson tvítugur, Felix Freyr Hilmarsson sjö ára og Alex Freyr Hilmarsson fimm ára. Þá á Hafdís tvo stjúpsyni, þá Óliver Mána sautján ára og Elías Dag ell- efu ára. Hafdís ætlar að fagna afmælinu á morgun með fjölskyldu, vinum og samferðafólki. „Í dag ætla ég eftir vinnu að sjá „Breiðholt’s Got Tal- ent“ þar sem sonur minn er að keppa með vinum sínum, en það er hæfileikakeppni frístundaheimila í Breiðholti.“ Fjölskyldan Hafdís, Hilmar og börn stödd á Tenerife 2016. Býr í sama húsi og hún ólst upp í Hafdís Vala Freysdóttir er fertug í dag Á rbjörn Magnússon fædd- ist á Seyðisfirði 9.2. 1943 og ólst þar upp: „Við strákarnir vorum nú mest að slæpast niðri í fjöru og á bryggjunni, að fylgjast með bátunum og aflabrögðum. Svona gekk þetta til með stráka í öllum fiski- og útgerðarplássum á Íslandi þá. Við lékum okkur líka mikið með trébíla á hjólum sem við drógum á eftir okkur í taumi. Þetta voru vöru- bílar og eftirlíkingar af herjeppum, allt heimasmíðuð leikföng og sumir þeirra listasmíði. Pabbi smíðaði t.d. mína bíla sem ég var stoltur af. Svona farartæki þurftu svo vegi þannig að við gleymdum stað og stund í bílaleik og vegagerð. Ég var svo eitt sumar í sveit hjá móðursystur minni í Bessastaðagerði. Þar fékk maður að reka kýrnar og atast í heyskap.“ Árbjörn Magnússon, skipstjóri á Eskifirði – 75 ára Við jólahús á sumri Árbjörn og Hansína með barnabörnunum Bryndísi Tinnu, Árbirni, Axel og Hansínu Steinunni. Skipstjórnarmaður og sundkappi á árum áður Hjónin Árbjörn og Hansína í fríi í útlöndum. Þau hafa verið gift í rúm 52 ár. Reykjavík Ívar Andri Lárusson fæddist 7. nóv- ember 2017 kl. 12.47. Hann vó 3.820 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Anna Lind Þórðardóttir og Lárus Ívar Ívarsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. )553 1620 Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum upp á úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið höfð að leiðarljósi. Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Við bjóðum m.a. upp á: Súpur Grænmetisrétti Pastarétti Fiskrétti Kjötrétti Hamborgara Samlokur Barnamatseðil Eftirrétti Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.