Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
Svissnesk-íslenski myndlistarmað-
urinn Christoph Büchel, sem var
fulltrúi Íslands á Feneyjatvíær-
ingnum fyrir þremur árum með hið
umdeilda verk „Moskan“, hóf á
dögunum undirskriftasöfnun í
Bandaríkjunum þar sem farið er
fram á að prufuútgáfur sem reistar
hafa verið við landamæri Mexíkó af
landamæravegg Donalds Trumps
forseta verði friðaðar sem þjóð-
arlistaverk. Segir hann þær mik-
ilvæg umhverfislistaverk.
Jafnframt skipulagði Büchel með
samtímalistasafninu í San Diego
skoðunarferðir að veggbútunum
þar sem þeir eru skoðaðir bæði
norðan og sunnan landamæranna.
Nú hafa Büchel og samstarfs-
menn hans hrundið annarri undir-
skriftasöfnun um málið af stað og
að þessu sinni á vef Hvíta hússins
sem ætlaður er fyrir undirskriftir
sem þessar en hann lá niðri þegar
herferðin fór fyrst af stað.
Undirtektir hafa, samkvæmt The
Art Newspaper, ekki verið miklar
en hinsvegar hafa nokkur hundruð
listamenn, kennarar og sýning-
arstjórar undirritað opið bréf þar
sem hugmyndum Büchels er harð-
lega mótmælt, þótt kaldhæðnar
séu. Þar segir að ekkert sem reist
er í nafni hvítar einangrunar-
hyggju og ofbeldis, eins og téður
landamæraveggur, eigi að styðja í
nafni listamanna og listastofnana
og eru Büchel, blaðamaður The
New York Times, sem fjallaði um
herferðina, og samtímalistasafnið í
San Diego harðlega gagnrýnd.
Landamærin Sýnishornin af mögu-
legum landamæraveggjum blasa við sunn-
an landamæra Mexíkó og Bandaríkjanna.
Herferð Büchels harðlega gagnrýnd
Listamannatvíeykið Holly og Rúna
er komið í undanúrslit alþjóðlegrar
myndlistarsamkeppni, Arte Lag-
una, sem haldin er í tólfta skipti í ár
og er kennd við lónið í Feneyjum
þar sem eru höfuðstöðvar sam-
keppninnar. Verkið sem þær sendu
í keppnina nefnist „Volucris“ en
það merkir fugl á latínu.
Holly and Rúna kalla þær Holly
Tong ljósmyndari og blómaskreyt-
ingakonan Rúna Lind Kuru Krist-
jónsdóttir sig þegar þær vinna sam-
an að listrænum ljósmyndaverkefn-
um á Nýja-Sjálandi, þar sem þær
eru búsettar. Þær hafa starfað þar
saman í átta ár og skapa stór verk
af blómum.
Ljósmyndaverk eftir 25 ljós-
myndara eða samstarfsaðila hafa
verið valin til sýningar í lokakepni
Arte Laguna en sýningin verður
opnuð 17. mars næstkomandi í hin-
um frægu sýningarsölum Arsenale
í Feneyjum, þar sem Feneyjatvíær-
ingurinn í myndlist er einnig settur
upp. Keppt er í níu flokkum mynd-
listar og eru sýnd verk eftir alla þá
sem komast í undanúrslit. Einnig
eru veitt verðlaun fyrir málaralist,
gjörninga, vídeóverk, stafræna
grafík, list í náttúru, list í borgar-
umhverfi, skúlptúra og innsetn-
ingar, auk listar í sýndarveruleika.
Volucris Prent Holly and Rúna af verkinu
í undanúrslitum Arte Laguna-keppninnar.
Verk eftir Holly og Rúnu í undanúrslit
Fifty Shades Freed
Þriðja kvikmyndin í Fifty Shades-
syrpunni sem hófst með Fifty Shad-
es of Grey og byggð var á sam-
nefndri skáldsögu E.L. James. Enn
segir af sambandi Christians og
Anastasiu sem ganga í hjónaband
og halda í brúðkaupsferð til Suður-
Evrópu. Þar njóta þau lífsins en
þegar heim er komið á ný, til
Seattle, sækja á þau fortíðardraug-
ar sem stefna hjónabandinu í
hættu. Leikstjóri myndarinnar er
James Foley og með aðalhlutverk
fara Dakota Johnson og Jamie
Dornan.
Metacritic: 34/100
The 15:17 to Paris
Nýjasta kvikmynd Clints East-
woods og byggð á sannsögulegum
atburði. Hinn 15. ágúst árið 2015
unnu fimm karlar hetjudáð þegar
þeim tókst að koma í veg fyrir
hryðjuverk í lest á leið frá Amst-
erdam til Parísar. Þeir yfirbuguðu
mann sem hóf skothríð í lestinni og
ætlaði sér að myrða fjölda farþega.
Þrír mannanna voru bandarískir,
einn Breti og einn Frakki. Með að-
alhlutverk fara Spencer Stone, Ant-
hony Sadler og Alek Skarlatos,
sömu Bandaríkjamenn og stöðvuðu
hryðjuverkamanninn á sínum tíma.
Metacritic: 52/100
50 skuggar og hetjudáð
í lest á leið til Parísar
Bíófrumsýningar
Bjargvættir Úr The 15:17 to Paris sem segir af því er nokkrum mönnum
tókst að yfirbuga hryðjuverkamann í lest á leið til Parísar árið 2015.
Wild Mouse
Georg missir vinnuna sem
tónlistargagnrýnandi á
þekktu dagblaði í Vínarborg.
Bíó Paradís 20.00
Call Me By Your
Name
Athugið að myndin er ekki
með íslenskum texta.
Metacritic 93/100
IMDb 8,3/10
Bíó Paradís 22.00, 22.30
Óþekkti
hermaðurinn
Sögusviðið er stríðið milli
Finnlands og Sovétríkjanna
1941-1944.
Morgunblaðið bbbnn
Bíó Paradís 17.30, 20.00,
22.30
In the Fade
Metacritic 63/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 17.45
Raiders Of The Lost
Ark
Bíó Paradís 20.00
Beuys
Bíó Paradís 17.45
Fifty Shades Freed 16
Metacritic 34/100
IMDb 3,6/10
Sambíóin Kringlunni 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.20
Smárabíó 12.00, 16.30,
19.00, 19.50, 21.30, 22.20
Háskólabíó 21.00
Den of Thieves 16
Metacritic 50/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.30, 22.10
The 15:17 to Paris 12
Bandarískir hermenn kom-
ast að áætlun hryðjuverka-
manna um að ráðast á lest á
leið til Parísar.
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.10
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.35
Sambíóin Keflavík 20.00
Maze Runner: The
Death Cure 12
Metacritic 52/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 20.00
Smárabíó 19.40, 22.40
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.40
Molly’s Game 16
Metacritic 7/100
IMDb 7,6/10
Laugarásbíó 19.50, 22.35
Háskólabíó 20.40
Pitch Perfect 3 12
Morgunblaðið bbnnn
IMDb 6,3/10
Smárabíó 20.10
Three Billboards
Outside Ebbing,
Missouri 16
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 88/100
IMDb 8,4/10
Smárabíó 17.30, 22.20
Háskólabíó 18.00, 20.50
Bíó Paradís 22.00, 22.30,
22.45
Jumanji: Welcome to
the Jungle 12
Metacritic 58/100
IMDb 7,0/10
Laugarásbíó 17.00
Smárabíó 17.10, 20.00
Svanurinn 12
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 7,0/10
Háskólabíó 18.10
Insidious:
The Last Key 16
IMDb 5,8/10
Metacritic 49/100
Smárabíó 22.40
The Greatest
Showman 12
Metacritic 48/100
IMDb 8,0/10
Háskólabíó 18.10
Star Wars VIII – The
Last Jedi 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 85/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.30
Sambíóin Egilshöll 17.00
Lói – þú flýgur aldrei
einn Lói er ófleygur þegar haustið
kemur og farfuglarnir fljúga
suður á bóginn.
Morgunblaðið bbbbn
Laugarásbíó 15.50, 18.00
Smárabíó 15.20, 17.30
Sambíóin Keflavík 18.00
Borgarbíó Akureyri 18.00
Ævintýri í
Undirdjúpum IMDb 4,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.50
Sambíóin Akureyri 17.50
Paddington 2 Metacritic 89/100
IMDb 8,1/10
Laugarásbíó 15.50, 17.45
Sambíóin Keflavík 17.40
Smárabíó 15.00, 17.20
Ferdinand Metacritic 58/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 15.00
Coco Metacritic 81/100
IMDb 8,7/10
Sambíóin Egilshöll 17.40
Svona er lífið Morgunblaðið bbbbn
Háskólabíó 18.00, 20.40
Yfirhylming sem náði yfir setu fjögurra Banda-
ríkjaforseta í embætti, varð til þess að fyrsti
kvenkyns dagblaðaútgefandinn og metnaðar-
fullur ritstjóri, lentu í eldlínunni.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 83/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 18.30, 21.00
Sambíóin Akureyri 17.30
The Post 12
Winchester 16
Sérlunduð kona sem erfir
fyrirtæki sem framleiðir
skotvopn, telur að draugar
fólks sem var drepið með
Winchester rifflum, ásæki
sig.
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.10, 22.30
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.20
Sambíóin Akureyri 22.10
Sambíóin Keflavík 22.20
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Darkest Hour
Í upphafi seinni heimsstyrjald-
arinnar hvíla örlög hins frjálsa
heims á öxlum óreynds for-
sætisráðherra Bretlands, Win-
stons Churchills.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Sambíóin Kringlunni 17.00, 19.40, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna