Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 12
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Lilja Steingrímsdóttir, hjúkr-unarfræðingur og Art ofLiving-öndunar- og jóga-kennari, segir að heilsan sé
á ábyrgð einstaklingsins
„Heilsan er á mína ábyrgð og
mér bæði líður betur og ég skila
meira vinnuframlagi þegar ég er í
betra jafnvægi,“ segir Lilja en hún
hefur nýtt sér styrkjandi öndunar-
tækni Art of Living til þess að draga
úr streitu.
Lilja segir Art of Living, sem
stofnað var af Sri Sri Ravi Shankar,
kenna fólki styrkjandi öndunartækni
ættaða frá Indlandi í bland við jóga.
„Sem hjúkrunarfræðingi finnst
mér oft vanta að hugað sé að andlegu
hliðinni. Það er auðveldara að líma
plástur yfir einkennin en að taka á
djúpu vandamálunum í sál og líkama.
Það kostar meiri orku og þarf meiri
starfskraft til þess að vinna vefsál-
ræna vinnu,“ segir Lilja.
Lilja kynntist Art of Living-
önduninni í Sviss fyrir tilviljun
„Ég bjó á þeim tíma í Sviss. Ég
var nýskilin en ákvað að búa áfram í
landinu til þess að börnin gætu átt
samskipti við föður sinn. Ég var
hrikalega stressuð, í fullri vinnu og að
byggja hús. Ég veit ekki hvernig ég
fór að þessu,“ segir Lilja sem rakst á
lítinn bækling þar sem spurt var
hvort ekki væri kominn tími til þess
að slaka á í gegnum öndunina og læra
jóga.
„Ég fór á námskeiðið og sé ekki
eftir því. Þar fann ég hamingjuna á
ný með því að læra að slaka á í gegn-
um öndun. Við nýtum ekki öndunina
nema að litlu leyti,“ segir Lilja sem
Öndunartækni hjálpar
til við streitulosun
Lilja Steingrímsdóttir kynntist Art of Living-öndunartækninni þegar hún bjó í
Sviss og stóð á erfiðum tímamótum í lífinu. Lilja hefur notað öndunartæknina
við hjálparstörf á Haítí. Öndunartæknin hjálpar Lilju að standa í lappirnar eins
og hún orðar það og hún vill gjarnan kenna hana í fangelsum landsins. Hana
dreymir líka um að koma öndunartækninni inn á sjúkrahús á Íslandi.
Hjálparstarf Lilja hjúkrar konu sem slasaðist eftir að hús hennar hrundi í
jarðskjálftunum á Haítí árið 2013. Við hlið hennar situr eiginmaðurinn.
Lífsgleði Lilja ásamt dönskum öndunartæknikennara bregður á leik að
loknu námskeiði en Lilja fann hamingjuna á ný með ástundun Art of Living.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018
Þessir einu sönnu gæða hitablásarar.
Bjóðum úrval alvöru hitablásara bæði fyrir
gas og diesel/steinolíu.
Eigum líka hitastilla fyrir MASTER hitablásara.
Viðurkennd viðgerða- og varahlutaþjónusta.
HITABLÁSARAR
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnesi 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Borgarbókarsafnið stendur fyrir fjöl-
breyttri dagskrá í menningarhúsum
sínum á meðan vetrarfrí grunnskól-
anna í Reykjavík stendur 15. og 16.
febrúar.
Það verður Allt í drasli-hljóðfæra-
smiðja í Grófinni þar sem búið er að
safna saman ýmsum hlutum og börnin
fá að kynnast hljóðfærum og tónlist
með því að búa til eigin hljóðfæri úr
plasti, tré og öðru ódýru hráefni eða
jafnvel efni að heiman.
Þau hljóððfæri sem hugsanlega er
hægt að búa til eru flautur, horn,
trompet, slagverk og einföld strengja-
hljóðfæri.
Hljóðfærasmiðjan verður í umsjá
Pamelu de Sensi flautuleikara sem
unnið hefur mikið með börnum og
kennt flautuleik í Reykjavík. Hún hefur
staðið fyrir tónleikaröðinni Töfrahurð-
inni og fjölda annarra tónleika, auk
þess að koma að útgáfu barnabók-
anna Karnivals dýranna, Englajóla,
Strengja á tímaflakki, Töfraflautunnar,
Bjartar í Sumarhúsi og Péturs og úlfs-
ins.
Það verður líka allt í drasli í blikk-
smiðjunni í Grófinni í vetrarfríinu þar
sem einnig er búið að safna saman
ýmsum hlutum sem verða nýttir til
þess að skapa eitthvað fallegt og
skemmtilegt.
Ninna Margrét Þórarinsdóttir, teikn-
ari og hönnuður, og Ingibjörg Ösp Ótt-
arsdóttir barnabókarvörður leiðbeina
börnunum við að búa til alls kyns
skemmtilegar furðuverður úr draslinu
sem annars færi á ruslahaugana. Þau
börn sem vilja geta spreytt sig á því að
búa til einfaldar rafrásir og tengja þær
við lítil og litrík led-ljós sem blikka.
Í Árbænum verður tækni og til-
raunaverkstæðisfjör. Markmiðið er að
efla tæknilæsi hjá ungmennum og
auka aðgengi að nýrri tækni til að
virkja sköpunarkraftinn og efla sjálfs-
þroska í gegnum tækni og leik. Börn-
unum gefst tækifæri á að fikta með
Pi-tölvur sem tengdar eru Makey Ma-
key-tæknisettum. Einnig verða í boði
Little Bits-tæknikubbar, Bloxels og
legókubbar.
Í Gerðubergi verður búningaskáp-
urinn vinsæli opinn með öllum sínum
ævintýrum innanborðs og fyrir þá sem
ekki hafa áhuga á búningum er hægt
að grípa í spil eða skoða sýninguna
Þetta vilja börnin sjá.
Í Spönginni verður börnunum boðið
upp á vetrarfrísföndur þar sem allt
föndurefni, tæki og tól eru til staðar.
Í Borgarbókasafninu í Kringlunni
verða sagðir brandarar á milli þess
sem spilað verður bingó
Í Borgabókasafninu í Sólheimum
verða skemmtilegheit og krakkabingó
með krúttlegum vinningum. Aðgangur
er ókeypis á alla viðburði og allir vel-
komnir.
Fjölbreytt dagskrá menningarhúsanna
Frí Nóg framboð er af afþreyingu fyrir börn í vetrarfríi skólanna í Reykjavík.
Allt í drasli og hljóðfærasmíði
Café Lingua verður haldið í annað
sinn í febrúar í Veröld – húsi Vigdísar
fimmtudaginn 15. febrúar kl. 18.00
Á Café Lingua gefst gestum færi á
að kynnast einhverjum sem talar
reiprennandi tungumál sem viðkom-
andi langar að læra eða er þegar að
læra.
Café Lingua er líka staður til þess
að deila eigin móðurmáli með ein-
hverjum sem er að reyna að ná tökum
á því máli. Café Lingua er einstakt og
kjörið tækifæri til þess að kynnast
nýjum menningarheimum og heims-
borgurum í Reykjavík og er tilvalinn
vettvangur fyrir þá sem vilja efla
tungumálakunnáttu sína og hafa
áhuga á að spreyta sig á ýmsum
tungumálum. Markmið Café Lingua
er að virkja þau tungumál sem hafa
ratað til Íslands og auðgað mannlíf
og menningu. Fólk með íslensku sem
annað mál fær tækifæri til þess að
tjá sig á íslensku sem og að kynna
móðurmál sitt fyrir öðrum.
Borgarbókasafnið og Veröld – hús
Vigdísar standa saman að verkefn-
inu.
Kynnist nýjum menningarheimum
Veröld – hús Vigdísar gefur tæki-
færi á að hitta heimsborgara
Fjölbreytni Önnur tungumál auðga mannlíf og menningu og Café Lingua er
staðurinn til þess að kynnast nýjum menningarheimum og öðrum tungumálum.