Morgunblaðið - 14.02.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.02.2018, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Mikil gróska einkennirsjálfstæðu leikhópanaum þessar mundir, enþað sem af er ári hafa margar skemmtilegustu, kraftmestu og áhrifaríkustu sýningarnar verið úr þeirra smiðju. Um liðna helgi bættist nýjasta uppfærsla leikhóps- ins RaTaTam í Tjarnarbíói þar í hóp- inn. Sýningin nefnist Ahhh … og hefur undirtitilinn „Ástin er að halda jafnvægi nei fokk ástin er að detta“. Fyrir rúmu ári vann leikhópurinn verkið Suss! sem byggðist á reynslu- sögum þolenda, gerenda og aðstand- enda um heimilisofbeldi, en að þessu sinni er það ástin í öllu sínu veldi sem ræður för og leitar hópurinn fanga í ljóðum og smásögum Elísabetar Kristínar Jökulsdóttur sem birst hafa í átta bókum skáldkonunnar á 25 ára tímabili frá 1989 til 2014. Elísabet er sannkölluð þjóðar- gersemi sem snertir við lesendum með einlægni sinni. Hún lýsir því hvernig er að fuðra upp af ást og hversu hún skammast sín fyrir að verða auðveldlega skotin í öllum sem hún hittir auk þess sem lostinn fær sinn skerf með tilheyrandi stunum og líkamsvessum. En ástin á líka sín- ar skuggahliðar sem tengjast stjórn- semi, þráhyggju, ofbeldi, skömm, höfnun og sorg. Elísabet kemur svo fallega orðum að því hvernig við brynjum okkur til að komast hjá sársauka sem aftur leiðir til þess að við hleypum engum að okkur með tilheyrandi tómleika. Hún lýsir ójafnvæginu sem getur skapast þeg- ar manneskja gefur svo mikið að hún gefur vitlaust og endar með holu inn- an í sér – tóm í hjartanu. Texti Elísabetar er allt í senn fal- legur, fyndinn og erótískur – en fyrst og fremst ávallt ljóðrænn og frumlegur. Elísabet er eins og hirð- fíflið sem leyfist að segja jafnvel hrikalega óviðeigandi hluti sem fær okkur ýmist til að roðna eða skelli- hlæja – en henni leyfist það vegna þess að allt sem hún segir er satt, hvort sem við viljum vita af því eða ekki. Með vísan í hirðfíflið er snjallt að leikhópurinn birtist sem trúðar í svörtum hnébuxum með eldrauðar hárkollur undir svörtum pípuhött- um. Þórunn María Jónsdóttir, sem hannar bæði leikmynd og búninga, lætur leikarana halda buxunum uppi með nokkrum axlaböndum sem minnir okkur á hvernig við getum verið flækt í tilfinningar okkar. Rauði liturinn, sem kallast bæði á við ást og bræði, er allsráðandi í sýning- unni og birtist jafnt í gólfteppinu sem leikið er á og loftháum silki- ströngum sem nýtast ekki aðeins til að klifra og róla í, heldur má flækja ströngunum saman og búa til tré sem minnir jafnvel á æðakerfið sem umvefur hjartað – þennan hnefa- stóra vöðva sem við eignum tilfinn- ingar okkar. Falleg lýsing Arnars Ingvarssonar undirstrikar með áhrifaríkum hætti senu- og stemn- ingsskiptingar. Hljóðheimur Helga Svavars Helgasonar býður upp á skemmtilegar lausnir í leik. Eðli málsins samkvæmt býður efniviðurinn ekki upp á eina línulega frásögn heldur margar litlar myndir. Umgjörð sýningarinnar er kabarett eða sirkus þar sem við hittum fyrir fimleikafólk, dverg, skeggjaða konu og sirkusstjóra að ógleymdum trúð- unum. Undir stjórn Charlotte Bøving leikstjóra skapar leikhóp- urinn röð smámynda sem birtast eins og litríkir flugeldar sem springa út hver á fætur öðrum áhorfendum til mikillar ánægju. Leikarnir fjórir bresta í söng þegar minnst varir og kyrja eins og möntru setningar á borð við „Píkan er vöðvi sem slær eins og hjartað“, leika á hin ýmsu hljóðfæri, stíga dansspor úr smiðju Hildar Magnúsdóttur og detta áreynslulaust inn í ljóða- og texta- flutning sem fléttast saman í eina dásamlega og töfrandi heild. Frygð- in sem birtist í textum Elísabetar er útfærð með húmorískum hætti sem hæfir heildinni vel. Meðal eftirminnilegra mynda sem skapaðar eru í sýningunni er betl- araeintal Laufeyjar Elíasdóttur meðan hún klifrar í silkistranga; ljóð um gleymskuna sem Albert Hall- dórsson flytur í gervi dvergs; rússí- banareið Guðmundar Inga Þorvalds- sonar þar sem hann er fastur í silki- böndum og eintal Halldóru Rutar Baldursdóttur um alvörukonuna sem reynt er að skapa með hæla- háum skóm, andlitsmálningu og korseletti. Meðal fárra leikmuna sem bregður fyrir eru sítrónur sem með ljóðrænum hætti tákna ýmist gullegg eða beiska fortíð sem leynist í farteskinu. Í heild er orkustig sýningarinnar hátt þó að það lækki ögn á stöku stað milli mynda. Uppfærslan tekst hins vegar ávallt á flug þegar skáldlegur texti Elísabetar er í fyrirrúmi. Ahhh … Ástin er að halda jafnvægi nei fokk ástin er að detta er allt í senn meinfyndin, ögrandi, harmræn og ósæmileg, en síðast en ekki síst hjartastyrkjandi sýning – enda gerir það okkur aðeins gott að fá vænan skammt af húmor, losta og ást á nöprum vetrarkvöldum. Ljósmynd/Saga Sig. Hjartastyrkjandi „Ahhh … Ástin er að halda jafnvægi nei fokk ástin er að detta er allt í senn meinfyndin, ögrandi, harmræn og ósæmileg, en síðast en ekki síst hjartastyrkjandi sýning – enda gerir það okkur aðeins gott að fá vænan skammt af húmor, losta og ást á nöprum vetrarkvöldum,“ segir í rýni um nýjustu sýningu leikhópsins RaTaTam. „Píkan er vöðvi sem slær eins og hjartað“ Tjarnarbíó Ahhh … Ástin er að halda jafnvægi nei fokk ástin er að detta bbbbm Eftir leikhópinn RaTaTam. Ljóð og prósi: Elísabet Kristín Jökulsdóttir. Leikstjórn: Charlotte Bøving. Leikmynd og bún- ingar: Þórunn María Jónsdóttir. Lýsing: Arnar Ingvarsson. Hljóðheimur: Helgi Svavar Helgason. Hreyfingar: Hildur Magnúsdóttir. Leikarar: Albert Hall- dórsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Halldóra Rut Baldursdóttir og Laufey Elíasdóttir. Leikhópurinn RaTaTam frumsýndi í Tjarnarbíói 9. febrúar 2018. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Fim 1/3 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Sun 11/3 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas. Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Sun 4/3 kl. 20:00 aukas. Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Fös 9/3 kl. 20:00 aukas. Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Fim 15/2 kl. 20:00 15. s Fös 16/2 kl. 20:00 16. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar! Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Lau 17/2 kl. 20:00 53. s Lau 24/2 kl. 20:00 55. s Lau 3/3 kl. 20:00 Lokas. Mið 21/2 kl. 20:00 54. s Fös 2/3 kl. 20:00 56. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Lóaboratoríum (Litla sviðið) Fim 15/2 kl. 20:00 8. s Sun 18/2 kl. 20:00 9. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas. Í samvinnu við Sokkabandið. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Slá í gegn (Stóra sviðið) Mið 21/2 kl. 19:30 Fors Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Fim 22/2 kl. 19:30 Fors Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Lau 17/2 kl. 19:30 21.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 22.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 18/2 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 16:00 Sun 11/3 kl. 16:00 Síðustu Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Þri 27/2 kl. 19:30 Auka Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 17.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Lau 24/2 kl. 19:30 Auka Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 18/2 kl. 13:00 11.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 15/2 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 22:30 Lau 3/3 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30 Lau 24/2 kl. 22:30 Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 20:00 Sun 25/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 22:30 Fim 1/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 22:30 Sun 18/2 kl. 21:00 Konudagur Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Fim 22/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 22:30 Lau 10/3 kl. 22:30 Fös 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 28/2 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Uppfærsla Norska þjóðleikhússins á Fólk, staðir, hlutir eftir Duncan Macmillan í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar fær fullt hús stiga hjá Nesteren Hasani, gagnrýnanda Vårt Oslo. Segir hún leikrit Macmillan trúverðugt í lýsingu sinni á afvötnun og framsetningu Gísla Arnar hníf- skarpa. „Leikhópurinn skapar dásamlega sýningu á leiksviði sem býður upp á mikið návígi við áhorf- endur,“ skrifar Hasani og tekur fram að ómögulegt sé að láta sér leiðast á sýningunni. „Allir, eldri jafnt sem ungir, ættu að sjá þessa sýningu. Uppfærslan einkennist af hröðu tempói þar sem kærleiksbogi heldur öllu saman,“ skrifar Hasani og tekur fram að öfgar verksins séu miklar og erfitt geti verið að henda reiður á hvað sé satt og hvað logið. Verkið fjallar um leikkonuna Emmu sem er af vinnuveitanda sínum neydd til að fara í afvötnun. Uppfærsla Gísla Arnar fær fullt hús Afvötnun Ine Jansen leikur Emmu. Ljósmynd/Øyvind Eide, Norska þjóðleikhúsið Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.