Morgunblaðið - 14.02.2018, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018
Frost á Fróni Fólk á göngu á ísilagðri Reykjavíkurtjörn fyrir framan Íslandslíkanið í öllu sínu veldi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Líkanið laðar að sér fjölmarga ferðamenn allan ársins hring.
Árni Sæberg
Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri er sá
stjórnmálamaður sem
mesta ábyrgð ber á
því ófremdarástandi
sem ríkir í húsnæðis-
málum í Reykjavík.
Helsta birtingarmynd
þessa vanda er að það
er ekki lengur á færi
meðallaunafólks, hvað
þá tekjulágra, að festa
kaup á góðri íbúð í Reykjavík.
Borgarmálin voru til umfjöll-
unar í Kastljósi í síðustu viku og
þar gagnrýndi Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálfstæðisflokksins,
frammistöðuleysi Samfylking-
arinnar í málaflokknum. Það segir
sitt um málefnastöðu Dags að
hann svaraði gagn-
rýninni með skætingi
og sakaði Sjálfstæðis-
flokkinn um að hafa
ekki gætt hagsmuna
efnaminna fólks í
þessum efnum. Það er
ekki nýtt að Dagur
reynir að verja eigin
klúður með því að
varpa sökinni yfir á
minnihluta borgar-
stjórnar.
Hugmyndafræðingur
húsnæðisstefnunnar
Dagur hefur verið borg-
arfulltrúi í sextán ár, þar af tólf í
meirihluta. Á þessum tíma hefur
hann haft mikil áhrif á mótun hús-
næðisstefnu borgarinnar, t.d. sem
formaður skipulagsráðs, formaður
borgarráðs og borgarstjóri. Þegar
Dagur var formaður skipulagsráðs
var lóðaframboð mjög takmarkað í
Reykjavík en þær fáu lóðir sem
buðust voru hins vegar boðnar upp
í því skyni að borgin fengi sem
hæst verð fyrir. Þetta hafði að
sjálfsögðu í för með sér að húsnæð-
isverð stórhækkaði og vítahringur
myndaðist á húsnæðismarkaði sem
enn sér ekki fyrir endann á.
Ungt fólk á í miklum vandræð-
um með að eignast íbúð og neyðist
annaðhvort til að búa hjá for-
eldrum sínum óeðlilega lengi eða
leigja íbúð á uppsprengdu verði.
Síðustu tvö kjörtímabil borgar-
stjórnar hafa einkennst af klúðri
og misheppnaðri húsnæðisstefnu
sem Dagur hefur átt stærstan þátt
í að móta. Allan þennan tíma hefur
Dagur gefið innantóm loforð um að
mikil uppbygging sé hafin eða við
það að hefjast. Ekkert bólar t.d. á
þeim 2.500-3.000 leiguíbúðum sem
hann lofaði fyrir síðustu kosningar.
Ótrúlegt er að helsti hugmynda-
fræðingur þeirrar húsnæðisstefnu,
sem Reykvíkingar súpa nú seyðið
af, telji sig vera rétta manninn til
að leysa vandann. Að minnsta kosti
er ljóst að sá borgarstjóri, sem
hefur slíka stefnu að leiðarljósi,
vinnur ekki í þágu tekjulágs fólks
heldur fremur í þágu fjársterkra
aðila, sem hafa verið í aðstöðu að
sanka að sér byggingarlóðum og
selja íbúðir þar á uppsprengdu
verði.
Tími til að breyta
Það þarf að taka upp nýja hús-
næðisstefnu í Reykjavík og gera
sem flestum kleift að eignast eigin
íbúð. Tryggja þarf fjölbreytilegt
framboð lóða á góðu verði. Sam-
hliða þéttingu byggðar á að gefa
öllum kost á að kaupa ódýrar lóðir
í nýjum hverfum, hvort sem menn
vilja byggja sjálfir, kaupa af öðrum
eða taka þátt í byggingarsam-
vinnufélögum án hagnaðarsjón-
armiða. Ýmsum hentar betur að
leigja og að sjálfsögðu þarf einnig
að sjá til þess að í Reykjavík þrífist
heilbrigður leigumarkaður.
Eftir Kjartan
Magnússon » Sá borgarstjóri, sem
hefur slíka hús-
næðisstefnu að leiðar-
ljósi, vinnur ekki í þágu
tekjulágs fólks.
Kjartan Magnússon
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
kjartan@reykjavik.is
Borgarstjóri ber höfuðábyrgð á húsnæðisvandanum
Í janúar síðastliðnum
voru 25 ár frá því að Al-
þingi samþykkti lög um
Evrópska efnahags-
svæðið [EES] og tóku
þau gildi í byrjun árs
1994. Um það verður
vart deilt að við Íslend-
ingar höfum notið góðs
af samstarfi EFTA-
ríkjanna við Evrópu-
sambandið á grunni
EES, en um leið þurft að sætta okkur
við ýmsa ókosti. Að nokkru höfum við
greitt kostnaðinn af göllunum vegna
eigin sinnuleysis en einnig vegna
brotalama sem m.a. komu í ljós í
regluverki ESB um fjármálamarkaði.
Lífskjör og efnahagur okkar Ís-
lendinga byggist á tryggu aðgengi að
erlendum mörkuðum og sanngjörnum
aðgangi erlenda aðila að íslenskum
markaði. Frelsi í viðskiptum við önnur
lönd er forsenda góðra lífskjara og því
hefur EES-samningurinn reynst okk-
ur mikilvægur. Í samvinnu við aðrar
vestrænar þjóðir og ekki síst með
varnarsamningi við Bandaríkin og
þátttöku í Atlantshafsbandalaginu,
hefur öryggi og frelsi landsins verið
tryggt allt frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar.
Davíð Þór Björgvinsson, dómari við
Landsrétt og fyrrverandi dómari við
Mannréttindadómstól Evrópu, hélt
því fram í grein hér í Morgunblaðinu
20. apríl 2013 að EES-samningurinn
hefði styrkt stöðu fyrirtækja og byndi
hendur stjórnvalda og þrengdi „mikið
svigrúm þeirra til að taka tillit til sér-
tækra hagsmuna einstakra fyrirtækja
í opinberum ákvörð-
unum“. Davíð Þór telur
engan vafa leika á því
að þetta hafi „leitt til
stórkostlegra réttar-
bóta til handa öllum al-
menningi í landinu og
aukið gegnsæi í starfs-
umhverfi fyrirtækja“.
En með þátttöku í
EES höfum við þurft að
„sætta“ okkur við áhrif
Evrópusambandsins á
íslenska laga- og reglu-
gerðarsetningu, sem
virðist aukast frá ári til árs. Bent hef-
ur verið á að slíkt geti í mörgum til-
fellum gengið gegn stjórnarskrá.
Vegið að grunnstoðum EES
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, lýsti því yfir á
þingi í síðustu viku að tímabært væri
að Alþingi tæki til skoðunar stöðu
EFTA-ríkjanna á grundvelli EES-
samningsins þegar Evrópusam-
bandið krefðist þess ítrekað að „við
Íslendingar fellum okkur við að sæta
boðvaldi, úrslitavaldi, sektarákvörð-
unum eða með öðrum hætti skip-
unum frá alþjóðastofnunum sem Evr-
ópusambandið hefur komið sér upp
en við eigum enga aðild að“. Með því
sé verið að vega að grunnstoðum
EES-samningsins. Um leið glími
EFTA við þann vanda hversu fá ríki
standi að baki stofnunum sambands-
ins.
Augljóst er að formaður Sjálfstæð-
isflokksins telur að Alþingi og stjórn-
völd gefi EES-samstarfinu ekki
nægjanlega athygli. Undir það skal
tekið og á stundum virðist sem við af-
greiðum EES-reglugerðir á færi-
bandi, eftir takmarkaðan undirbúning
og könnun.
Að nokkru erum við að súpa seyðið
af þeirri ofurtrú sem eitraði íslenska
utanríkisstefnu og leiddi til stöðnunar
– ofurtrú á að lausn allra vandamála
okkar fælist í aðild að Evrópusam-
bandinu. Í stað þess að móta stefnu í
utanríkisviðskiptum sem hefði það að
markmiði að fjölga kostunum í sam-
skiptum við aðrar þjóðir, var skipu-
lega reynt að fækka þeim. „Stóra-
lausnin“ átti að vera evra og Evrópu-
sambandið.
Óskaniðurstaða
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráð-
herra, er á því að vandi EFTA-
ríkjanna í samskiptum við Evrópu-
sambandið sé „tregða af hálfu stjórn-
enda þessara ríkja [EFTA] til að láta
reyna á sérstöðu þeirra“ á grunni
EES. Síðastliðinn mánudag skrifaði
Björn meðal annars á heimasíðu sína:
„Á meðan ESB-aðildarbröltið var
stundað af hálfu íslenskra stjórnvalda
hlóðust upp óafgreidd EES-mál innan
stjórnkerfisins. Í raun hefur aldrei
tekist að hrinda nægilega vel í fram-
kvæmd sjálfstæðri stefnu íslenskra
stjórnvalda í samskiptum við ESB á
grundvelli EES-samningsins.
Hófsamleg niðurstaða í Brexit-
viðræðunum þjónar hagsmunum
EFTA-ríkjanna best. Verði viður-
kennt meira svigrúm til að hafna inn-
leiðingu ESB-reglna fellur það að
helstu gagnrýninni á EES-fyrir-
komulagið eins og það er nú – þetta
svigrúm er þó einskis virði sé aldrei
gerð tilraun til að nýta það og henni
fylgt eftir á skipulegan hátt.“
Ég er sammála Birni um að „óska-
niðurstaða“ okkar Íslendinga í Brexit
sé að Bretar gangi til liðs við EFTA
og að nýr EES-samningur verði gerð-
ur með aðild Breta og jafnvel einnig
Svisslendinga. „Fyrir þessu einfalda
og skýra markmiði ættu íslensk
stjórnvöld að beita sér,“ skrifar Björn
en þess má geta að Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra hefur
hvatt Breta til að ganga til liðs við
EFTA.
Sjálfstæð fastanefnd um EES
Í sáttmála ríkisstjórnar Katrínar
Jakobsdóttur segir að eitt mikilvæg-
asta hagsmunamál Íslands sé „að
sinna framkvæmd EES-samningsins
vel“ og að Alþingi þurfi „að vera virk-
ara á því sviði“.
Flestir geta verið sammála um
nauðsyn þess að auka áhrif Íslands á
fyrstu stigum tillagna um nýja Evr-
ópulöggjöf. Í skýrslu utanríkis-
ráðherra á síðasta ári, „Utanríkis-
þjónusta til framtíðar“, er bent á að
huga þurfi að þremur meginþáttum í
þessum efnum. Í fyrsta lagi verði ís-
lensk stjórnvöld að vera ávallt á varð-
bergi gagnvart stefnumótun innan
ESB. Í öðru lagi þurfi að efla skipu-
lagt samráð við Alþingi, hags-
munaaðila og samstarfsríki Íslands í
EFTA. Í þriðja lagi verði „að vinna
með skipulegri hætti að því að koma
sjónarmiðum Íslands á framfæri í
umræðu um stefnumótun Evrópu-
sambandsins innan stofnana þess og
gagnvart aðildarríkjunum og nýta þá
möguleika sem Ísland hefur, m.a. á
grundvelli EES-samningsins, til að
taka virkan þátt í mótun löggjafar
ESB“.
Við sem sitjum á Alþingi þurfum að
horfast í augu við þá staðreynd að
hægt er að standa betur að verki þeg-
ar kemur að afgreiðslu EES-mála –
þingsályktunartillögum og laga-
frumvörpum. Sterk rök eru fyrir því
að koma á fót sérstakri fastanefnd á
vegum þingsins – EES-nefnd – sem
hafi það hlutverk að fylgjast með
framkvæmd EES-samningsins, vinna
ítarlegar greiningar á nýrri Evrópu-
löggjöf, jafnt á fyrstu stigum og áður
en þær eru teknar upp hér á landi. Í
störfum sínum hefði nefndin samráð
við aðrar þingnefndir, eftir efni máls
og við hagsmunaaðila. Með sérstakri
fastanefnd um EES væri betur
tryggt að staðinn væri vörður um sér-
stöðu Íslands.
Það væri við hæfi að ný fastanefnd
tæki til starfa þegar þing kemur sam-
an í september næstkomandi – fjór-
um mánuðum áður en haldið er upp á
að aldarfjórðungur er liðinn frá gild-
istöku laga um Evrópska efnahags-
svæðið. Eitt fyrsta verk nefndarinnar
ætti að vera sjálfstæð og víðtæk út-
tekt á reynslunni af EES, ekki bara
efnahagslega, heldur ekki síður
stjórnsýslulega um leið og svarað er
spurningum um hvernig fullveldi
landsins verður best varið á komandi
árum.
Eftir Óla Björn
Kárason » Á stundum virðist
sem við afgreiðum
EES-reglugerðir á færi-
bandi. Að nokkru erum
við að súpa seyðið af of-
urtrú sem eitraði ís-
lenska utanríkisstefnu.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
EES-samningur á krossgötum