Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 19

Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Frost á Fróni Fólk á göngu á ísilagðri Reykjavíkurtjörn fyrir framan Íslandslíkanið í öllu sínu veldi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Líkanið laðar að sér fjölmarga ferðamenn allan ársins hring. Árni Sæberg Dagur B. Eggerts- son borgarstjóri er sá stjórnmálamaður sem mesta ábyrgð ber á því ófremdarástandi sem ríkir í húsnæðis- málum í Reykjavík. Helsta birtingarmynd þessa vanda er að það er ekki lengur á færi meðallaunafólks, hvað þá tekjulágra, að festa kaup á góðri íbúð í Reykjavík. Borgarmálin voru til umfjöll- unar í Kastljósi í síðustu viku og þar gagnrýndi Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, frammistöðuleysi Samfylking- arinnar í málaflokknum. Það segir sitt um málefnastöðu Dags að hann svaraði gagn- rýninni með skætingi og sakaði Sjálfstæðis- flokkinn um að hafa ekki gætt hagsmuna efnaminna fólks í þessum efnum. Það er ekki nýtt að Dagur reynir að verja eigin klúður með því að varpa sökinni yfir á minnihluta borgar- stjórnar. Hugmyndafræðingur húsnæðisstefnunnar Dagur hefur verið borg- arfulltrúi í sextán ár, þar af tólf í meirihluta. Á þessum tíma hefur hann haft mikil áhrif á mótun hús- næðisstefnu borgarinnar, t.d. sem formaður skipulagsráðs, formaður borgarráðs og borgarstjóri. Þegar Dagur var formaður skipulagsráðs var lóðaframboð mjög takmarkað í Reykjavík en þær fáu lóðir sem buðust voru hins vegar boðnar upp í því skyni að borgin fengi sem hæst verð fyrir. Þetta hafði að sjálfsögðu í för með sér að húsnæð- isverð stórhækkaði og vítahringur myndaðist á húsnæðismarkaði sem enn sér ekki fyrir endann á. Ungt fólk á í miklum vandræð- um með að eignast íbúð og neyðist annaðhvort til að búa hjá for- eldrum sínum óeðlilega lengi eða leigja íbúð á uppsprengdu verði. Síðustu tvö kjörtímabil borgar- stjórnar hafa einkennst af klúðri og misheppnaðri húsnæðisstefnu sem Dagur hefur átt stærstan þátt í að móta. Allan þennan tíma hefur Dagur gefið innantóm loforð um að mikil uppbygging sé hafin eða við það að hefjast. Ekkert bólar t.d. á þeim 2.500-3.000 leiguíbúðum sem hann lofaði fyrir síðustu kosningar. Ótrúlegt er að helsti hugmynda- fræðingur þeirrar húsnæðisstefnu, sem Reykvíkingar súpa nú seyðið af, telji sig vera rétta manninn til að leysa vandann. Að minnsta kosti er ljóst að sá borgarstjóri, sem hefur slíka stefnu að leiðarljósi, vinnur ekki í þágu tekjulágs fólks heldur fremur í þágu fjársterkra aðila, sem hafa verið í aðstöðu að sanka að sér byggingarlóðum og selja íbúðir þar á uppsprengdu verði. Tími til að breyta Það þarf að taka upp nýja hús- næðisstefnu í Reykjavík og gera sem flestum kleift að eignast eigin íbúð. Tryggja þarf fjölbreytilegt framboð lóða á góðu verði. Sam- hliða þéttingu byggðar á að gefa öllum kost á að kaupa ódýrar lóðir í nýjum hverfum, hvort sem menn vilja byggja sjálfir, kaupa af öðrum eða taka þátt í byggingarsam- vinnufélögum án hagnaðarsjón- armiða. Ýmsum hentar betur að leigja og að sjálfsögðu þarf einnig að sjá til þess að í Reykjavík þrífist heilbrigður leigumarkaður. Eftir Kjartan Magnússon » Sá borgarstjóri, sem hefur slíka hús- næðisstefnu að leiðar- ljósi, vinnur ekki í þágu tekjulágs fólks. Kjartan Magnússon Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. kjartan@reykjavik.is Borgarstjóri ber höfuðábyrgð á húsnæðisvandanum Í janúar síðastliðnum voru 25 ár frá því að Al- þingi samþykkti lög um Evrópska efnahags- svæðið [EES] og tóku þau gildi í byrjun árs 1994. Um það verður vart deilt að við Íslend- ingar höfum notið góðs af samstarfi EFTA- ríkjanna við Evrópu- sambandið á grunni EES, en um leið þurft að sætta okkur við ýmsa ókosti. Að nokkru höfum við greitt kostnaðinn af göllunum vegna eigin sinnuleysis en einnig vegna brotalama sem m.a. komu í ljós í regluverki ESB um fjármálamarkaði. Lífskjör og efnahagur okkar Ís- lendinga byggist á tryggu aðgengi að erlendum mörkuðum og sanngjörnum aðgangi erlenda aðila að íslenskum markaði. Frelsi í viðskiptum við önnur lönd er forsenda góðra lífskjara og því hefur EES-samningurinn reynst okk- ur mikilvægur. Í samvinnu við aðrar vestrænar þjóðir og ekki síst með varnarsamningi við Bandaríkin og þátttöku í Atlantshafsbandalaginu, hefur öryggi og frelsi landsins verið tryggt allt frá lokum síðari heims- styrjaldarinnar. Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Landsrétt og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, hélt því fram í grein hér í Morgunblaðinu 20. apríl 2013 að EES-samningurinn hefði styrkt stöðu fyrirtækja og byndi hendur stjórnvalda og þrengdi „mikið svigrúm þeirra til að taka tillit til sér- tækra hagsmuna einstakra fyrirtækja í opinberum ákvörð- unum“. Davíð Þór telur engan vafa leika á því að þetta hafi „leitt til stórkostlegra réttar- bóta til handa öllum al- menningi í landinu og aukið gegnsæi í starfs- umhverfi fyrirtækja“. En með þátttöku í EES höfum við þurft að „sætta“ okkur við áhrif Evrópusambandsins á íslenska laga- og reglu- gerðarsetningu, sem virðist aukast frá ári til árs. Bent hef- ur verið á að slíkt geti í mörgum til- fellum gengið gegn stjórnarskrá. Vegið að grunnstoðum EES Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lýsti því yfir á þingi í síðustu viku að tímabært væri að Alþingi tæki til skoðunar stöðu EFTA-ríkjanna á grundvelli EES- samningsins þegar Evrópusam- bandið krefðist þess ítrekað að „við Íslendingar fellum okkur við að sæta boðvaldi, úrslitavaldi, sektarákvörð- unum eða með öðrum hætti skip- unum frá alþjóðastofnunum sem Evr- ópusambandið hefur komið sér upp en við eigum enga aðild að“. Með því sé verið að vega að grunnstoðum EES-samningsins. Um leið glími EFTA við þann vanda hversu fá ríki standi að baki stofnunum sambands- ins. Augljóst er að formaður Sjálfstæð- isflokksins telur að Alþingi og stjórn- völd gefi EES-samstarfinu ekki nægjanlega athygli. Undir það skal tekið og á stundum virðist sem við af- greiðum EES-reglugerðir á færi- bandi, eftir takmarkaðan undirbúning og könnun. Að nokkru erum við að súpa seyðið af þeirri ofurtrú sem eitraði íslenska utanríkisstefnu og leiddi til stöðnunar – ofurtrú á að lausn allra vandamála okkar fælist í aðild að Evrópusam- bandinu. Í stað þess að móta stefnu í utanríkisviðskiptum sem hefði það að markmiði að fjölga kostunum í sam- skiptum við aðrar þjóðir, var skipu- lega reynt að fækka þeim. „Stóra- lausnin“ átti að vera evra og Evrópu- sambandið. Óskaniðurstaða Björn Bjarnason, fyrrverandi ráð- herra, er á því að vandi EFTA- ríkjanna í samskiptum við Evrópu- sambandið sé „tregða af hálfu stjórn- enda þessara ríkja [EFTA] til að láta reyna á sérstöðu þeirra“ á grunni EES. Síðastliðinn mánudag skrifaði Björn meðal annars á heimasíðu sína: „Á meðan ESB-aðildarbröltið var stundað af hálfu íslenskra stjórnvalda hlóðust upp óafgreidd EES-mál innan stjórnkerfisins. Í raun hefur aldrei tekist að hrinda nægilega vel í fram- kvæmd sjálfstæðri stefnu íslenskra stjórnvalda í samskiptum við ESB á grundvelli EES-samningsins. Hófsamleg niðurstaða í Brexit- viðræðunum þjónar hagsmunum EFTA-ríkjanna best. Verði viður- kennt meira svigrúm til að hafna inn- leiðingu ESB-reglna fellur það að helstu gagnrýninni á EES-fyrir- komulagið eins og það er nú – þetta svigrúm er þó einskis virði sé aldrei gerð tilraun til að nýta það og henni fylgt eftir á skipulegan hátt.“ Ég er sammála Birni um að „óska- niðurstaða“ okkar Íslendinga í Brexit sé að Bretar gangi til liðs við EFTA og að nýr EES-samningur verði gerð- ur með aðild Breta og jafnvel einnig Svisslendinga. „Fyrir þessu einfalda og skýra markmiði ættu íslensk stjórnvöld að beita sér,“ skrifar Björn en þess má geta að Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur hvatt Breta til að ganga til liðs við EFTA. Sjálfstæð fastanefnd um EES Í sáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur segir að eitt mikilvæg- asta hagsmunamál Íslands sé „að sinna framkvæmd EES-samningsins vel“ og að Alþingi þurfi „að vera virk- ara á því sviði“. Flestir geta verið sammála um nauðsyn þess að auka áhrif Íslands á fyrstu stigum tillagna um nýja Evr- ópulöggjöf. Í skýrslu utanríkis- ráðherra á síðasta ári, „Utanríkis- þjónusta til framtíðar“, er bent á að huga þurfi að þremur meginþáttum í þessum efnum. Í fyrsta lagi verði ís- lensk stjórnvöld að vera ávallt á varð- bergi gagnvart stefnumótun innan ESB. Í öðru lagi þurfi að efla skipu- lagt samráð við Alþingi, hags- munaaðila og samstarfsríki Íslands í EFTA. Í þriðja lagi verði „að vinna með skipulegri hætti að því að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri í umræðu um stefnumótun Evrópu- sambandsins innan stofnana þess og gagnvart aðildarríkjunum og nýta þá möguleika sem Ísland hefur, m.a. á grundvelli EES-samningsins, til að taka virkan þátt í mótun löggjafar ESB“. Við sem sitjum á Alþingi þurfum að horfast í augu við þá staðreynd að hægt er að standa betur að verki þeg- ar kemur að afgreiðslu EES-mála – þingsályktunartillögum og laga- frumvörpum. Sterk rök eru fyrir því að koma á fót sérstakri fastanefnd á vegum þingsins – EES-nefnd – sem hafi það hlutverk að fylgjast með framkvæmd EES-samningsins, vinna ítarlegar greiningar á nýrri Evrópu- löggjöf, jafnt á fyrstu stigum og áður en þær eru teknar upp hér á landi. Í störfum sínum hefði nefndin samráð við aðrar þingnefndir, eftir efni máls og við hagsmunaaðila. Með sérstakri fastanefnd um EES væri betur tryggt að staðinn væri vörður um sér- stöðu Íslands. Það væri við hæfi að ný fastanefnd tæki til starfa þegar þing kemur sam- an í september næstkomandi – fjór- um mánuðum áður en haldið er upp á að aldarfjórðungur er liðinn frá gild- istöku laga um Evrópska efnahags- svæðið. Eitt fyrsta verk nefndarinnar ætti að vera sjálfstæð og víðtæk út- tekt á reynslunni af EES, ekki bara efnahagslega, heldur ekki síður stjórnsýslulega um leið og svarað er spurningum um hvernig fullveldi landsins verður best varið á komandi árum. Eftir Óla Björn Kárason » Á stundum virðist sem við afgreiðum EES-reglugerðir á færi- bandi. Að nokkru erum við að súpa seyðið af of- urtrú sem eitraði ís- lenska utanríkisstefnu. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. EES-samningur á krossgötum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.