Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 17

Morgunblaðið - 14.02.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Úsbeskur hælisleitandi játaði fyrir rétti í Stokkhólmi í gær að hafa vís- vitandi ekið á vegfarendur í miðborg Stokkhólms í apríl á síðasta ári og ætlað að verða sem flestum að bana. Fimm létu lífið og tíu særðust í árás- inni. Réttarhöld yfir manninum, sem heitir Rakhmat Akilov, hófust í þing- rétti í Stokkhólmi í gær. Mikil örygg- isgæsla var við og í dómhúsinu þegar Akilov var leiddur þangað inn í hand- járnum, klæddur grænum fangelsis- samfestingi og krúnurakaður. Akilov, sem verður fertugur í dag, var synjað um hæli í Svíþjóð árið 2016. Hann lýsti yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams þegar hann gerði árásina í Stokk- hólmi en samtökin lýstu þó aldrei yf- ir ábyrgð á verknaðnum. Rétt ákæra Akilov stal bjórflutningabíl að kvöldi föstudagsins 7. apríl í fyrra og ók inn á Drottningargötu, göngu- götu í miðborg Stokkhólms, þar sem hann reyndi að aka á sem flesta veg- farendur. Við upphaf réttarhaldanna lýsti Johan Eriksson, lögmaður hans, því yfir að ákæran væri rétt. „Akilov tók bílinn traustataki … og ók honum … Hann varð fimm manns að bana og slasaði tíu,“ sagði Eriksson við upphaf réttarhaldanna. „Líf fjölda manna voru í hættu. Til- gangurinn var að valda ótta og fá Svía til að hætta aðild að bandalag- inu gegn Ríki íslams,“ sagði Eriks- son. Akilov ók að lokum á verslunarhús og sprengdi síðan heimatilbúna sprengju í bílnum. Sprengjan var þó ekki öflug. Akilov flúði af vettvangi en var handtekinn nokkrum klukku- stundum síðar eftir að til hans sást á öryggismyndavélum. Hann játaði verknaðinn við yfirheyrslur lögreglu og sagðist hafa reiknað með því að láta sjálfur lífið í árásinni. Saksóknarar segjast ætla að fara fram á það að Akilov verði dæmdur í ævilagt fangelsi og að honum verði vísað frá Svíþjóð. Að jafnaði jafngild- ir ævilangur dómur 16 ára fangelsi í Svíþjóð. Eriksson sagði að skjól- stæðingur hans myndi ekki andmæla þessum kröfum. Hans Ihrman sak- sóknari lagði fram í réttinum mynd- skeið, sem vegfarendur tóku eftir árásina, en á þeim sést lík á götunni og skelfingu lostið fólk. Einnig voru spilaðar hljóðupptökur af tilkynn- ingum fólks til neyðarlínu. Ættingj- ar þeirra sem létu lífið og fórnarlömb fylgdust með réttarhöldunum í hlið- arherbergi. Margir héldust í hendur og grétu. Saksóknarar lögðu einnig fram skrár úr símum, sem Akilov notaði, og samtöl hans á ýmsum samfélags- miðlum og spjallvefjum þar sem hann ræddi m.a. um sjálfsmorðs- árásaráform. Saksóknarar telja samt að hann hafi verið einn að verki og hafa því aðeins ákært hann. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi fram í maí og dómur verði kveðinn upp í júní. Akilov mun ávarpa réttinn 20. febrúar. Akilov kom til Svíþjóðar árið 2014 en eiginkona hans og fjögur börn urðu eftir í Úsbekistan. Eftir að um- sókn hans um hæli var hafnað fór hann huldu höfði en vann þó á nokkr- um stöðum í byggingarvinnu. AFP Beðið Öryggisvörður stendur framan við fréttamenn utan við réttarsalinn þar sem réttað er yfir Rakhmat Akilov. Játaði að hafa framið hryðjuverk í Stokkhólmi  Rakhmat Akilov játaði að hafa orðið fimm manns að bana í miðborg Stokkhólms fyrir tæpu ári  Ætlaði að fá Svía til að hætta baráttu gegn samtökum íslamista Í réttarsalnum Teikning sem sýnir upphaf réttarhaldanna í gær. Norski olíusjóðurinn, stærsti eftir- launasjóður í heimi, hvatti í gær fyr- irtæki, sem sjóðurinn á hlut í, til að herða aðgerðir gegn spillingu, þar á meðal með því að veita uppljóstrur- um betri vernd. „Við búumst við því af öllum fyrir- tækjum, sem við fjárfestum í, að hafa komið sér upp raunhæfum vörnum gegn spillingu,“ sagði Yngve Slyngstad, forstjóri sjóðsins í yfir- lýsingu. „Fyrirtæki ættu að hafa reglur um uppljóstrara, sem gera þeim kleift að koma upplýsingum á framfæri þegar hefðbundnar leiðir eiga ekki við eða þegar uppljóstrar- inn vill njóta nafnleyndar.“ Fram kemur á vef blaðsins Aften- posten að stjórn sjóðsins sendi í haust bréf til 500 stærstu fyrirtækj- anna í eigu sjóðsins þar sem þessar reglur voru kynntar. 105 þúsund milljarðar Í olíusjóðinn rennur stærstur hluti af tekjum norska ríkisins af olíuvinnslu. Sjóðurinn á hlut í um 9000 fyrirtækjum og eignir hans eru metnar á 8.128 milljarða norskra króna, 105 þúsund milljarða ís- lenskra króna. Til samanburðar nema eignir íslenska lífeyrissjóða- kerfisins um 900 milljörðum ís- lenskra króna. Sjóðurinn er í umsjón norska seðlabankans og hefur sett sér strangar fjárfestingarsiðareglur. Samkvæmt þeim má sjóðurinn ekki kaupa hlutabréf í fyrirtækjum, sem hafa orðið uppvís að alvarlegum mannréttindabrotum, framleitt kjarnavopn eða önnur „ómannúð- leg“ vopn, framleiða kol eða tóbaks- afurðir svo nokkuð sé nefnt. Fram kom í skýrslu sjóðsins, sem birt var í gær, að á síðustu sex árum hafi hann selt hlutabréf í yfir 200 fyrirtækjum, sem samræmdust ekki ofangreindum siðareglum. Þar af sex fyrirtækjum á síðasta ári. Olíuvinnsla Einn margra olíu- borpalla í eigu Norðmanna. Hvetur fyrirtæki til að berjast gegn spillingu Hinrik prins, eig- inmaður Mar- grétar Dana- drottningar, hefur verið flutt- ur af Rigshospit- alet í Kaup- mannahöfn í Fredensborgar- höll á Sjálandi. Fram kom í til- kynningu frá dönsku konungsfjölskyldunni í gær að heilsa Hinriks væri slæm og að hann vildi verja síðustu dögum sín- um í höllinni. Danska ríkisútvarpið hefur eftir Peter Qvortrup Geisling, lækni og blaðamanni, að þetta bendi til þess að prinsinn sé með meðvitund en fái nú líknandi meðferð. Hinrik, sem er 83 ára, greindist nýlega með góðkynja æxli og sýk- ingar í lunga. Á síðasta ári greindist hann með heilabilun. Hinrik flutt- ur í Fredens- borgarhöll Hinrik prins. Vel gengur að sprengja svo- nefnd Austureyj- argöng í Fær- eyjum en þau liggja frá Hvíta- nesi á Straumey, skammt norðan við höfuðstaðinn Þórshöfn, til Runavíkur og Stranda á Aust- urey. Fyrsta sprengingin var fyrir tæpu ári og nú hefur verið lokið við þriðj- ung ganganna, sem verða alls rúm- lega 11 km löng. Gangagerðinni á að ljúka 2020. Göngin munu stytta leiðina milli Þórshafnar og Runavíkur úr 55 km í 17 km. Kostnaður við göngin er áætlaður um 17 milljarðar íslenskra króna og gert er ráð fyrir að fram- kvæmdin verði fjármögnuð með veg- gjöldum. Vel gengur að sprengja Tölvumynd af Aust- ureyjargöngum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.