Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
Hágæða
umhverfisvænar
hreinsivörur
fyrir bílinn þinn
Glansandi
flottur
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Við teljum að sveitarfélögin eigi að
ákveða sjálf fjölda fulltrúa í sveitar-
stjórn,“ segir Jón Gunnarsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, um
frumvarp um breytingu á sveitar-
stjórnarlögum. Í frumvarpinu kemur
fram að sveitarfélög muni fá sjálf-
dæmi um það hvort fjölga eigi
fulltrúum í sveitarstjórn, þó með því
skilyrði að aðalmenn geti aldrei verið
færri en fimm. Þar sem íbúar sveitar-
félags eru færri en 2.000 skulu að-
almenn ekki vera fleiri en sjö.
Jón segir að frumvarpið sé í raun
leiðrétting á gömlum lögum sem hafi
staðið til að laga fyrir nokkrum mán-
uðum. „Þetta eru lög sem voru sett í
tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Það stóð til að leggja þetta
fram í tíð síðustu ríkisstjórnar en það
tók svolítinn tíma að fá samstarfs-
flokkana til að hleypa þessu í þing-
lega meðferð. Það tókst að lokum en
það náðist ekki að klára það í vor.
Síðan lagði ég málið aftur fram í
haust en í kjölfar stjórnarslitanna
dróst það,“ segir Jón sem er með
meðflutningsmenn úr fjórum þing-
flokkum.
Flutningsmenn úr
fjórum flokkum
„Ég leitaði stuðnings meðal þing-
manna úr öllum flokkum. Það voru
síðan þingmenn úr röðum Fram-
sóknarflokks, Miðflokks, Flokks
fólksins og Sjálfstæðisflokks sem
ákváðu að vera meðflutningsmenn
frumvarpsins,“ segir Jón sem vonar
að frumvarpið verði orðið að lögum
fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor.
„Þingið þarf að vinna þetta hratt en
ég tel að ef það næst samstaða um
þetta ætti það að takast. Þetta er mál
sem þarf ekki langa málsmeðferð að
ég tel,“ segir Jón.
Ekki í verkahring Alþingis
Í september sl. samþykkti borgar-
ráð að fjölga borgarfulltrúum í 23 á
næsta kjörtímabili. Í lögum frá árinu
2012 kemur fram að borgarfulltrúar
eigi að vera á bilinu 23 til 31 eftir
næstu kosningar. Tillagan var sam-
þykkt með ellefu atkvæðum gegn
fjórum, en það voru sjálfstæðismenn
sem greiddu atkvæði gegn henni. Í
kjölfarið skoruðu þeir á Alþingi að
breyta lögunum.
Jón segir að það sé mat flutnings-
manna frumvarpsins að ákvörðun
um fjölda sveitarstjórnarfulltrúa eigi
að taka af sveitarfélögum en ekki Al-
þingi. „Sveitarfélögin eru sjálfstæðar
stofnanir og það ber að virða sjálf-
stæði sveitarfélaga. Hér er um að
ræða lagfæringar á lögum sem nú
kveða t.d. á um fjölgun borgarfull-
trúa, en um það hafa verið deildar
meiningar meðal borgarfulltrúa. Við
teljum bara að það eigi að vera á for-
ræði sveitarfélaga hversu margir
fulltrúar eigi að vera og þau eigi síð-
an að svara fyrir það gagnvart sínum
kjósendum,“ segir Jón sem telur það
óeðlilegt að Alþingi sé að íhlutast
með fjölda sveitarstjórnarfulltrúa.
„Það er langeðlilegast að ákvarð-
anir sjálfstæðra stofnana séu teknar
af þeim sjálfum en ekki Alþingi,“ seg-
ir Jón.
Sveitarfélög ráði fjölda fulltrúa
Telja að Alþingi eigi ekki að ákveða fjölda sveitarstjórnarfulltrúa Frumvarpið var fyrst lagt fram
fyrir tæpu ári en dróst í kjölfar stjórnarslita í haust Frumvarpið gæti orðið að lögum fyrir kosningar
Morgunblaðið/Ernir
Borgarstjórnarfundur Frá fundi í
Ráðhúsi Reykjavíkur á dögunum.
Það hefði mátt heyra saumnál detta á Hverfisbarnum þegar tvöfaldur
lokaþáttur Brúarinnar fór í loftið í gærkvöldi. Þættirnir hafa verið sýndir í
Ríkissjónvarpinu síðustu mánudagskvöld.
Þar var samankominn hópur fólks sem fylgst hefur með framvindu þátt-
anna síðustu vikur en forsprakkar samkomunnar voru þær Áslaug Guð-
rúnardóttir og Gerður Kristný.
Mikil spenna var í loftinu á Hverfisbarnum í gærkvöldi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hópur fólks fylgdist með uppgjörinu á Brúnni
Vakt- og lyfjaherbergi á Landspít-
alanum í Fossvogi hefur verið lokað
og öll vinna þar bönnuð sökum raka-
skemmda og fúkkalyktar. Þetta
kemur fram í tilkynningu sem
Vinnueftirlitið hefur sent frá sér, en
skemmdirnar fundust í eftirlits-
heimsókn starfsmanna eftirlitsins á
lungnadeild spítalans. Eyjólfur Sæ-
mundsson, forstjóri Vinnueftirlits-
ins, segir ástandið í herberginu hafa
verið sérlega slæmt og því hafi verið
tekin ákvörðun um að loka því.
„Það hefur verið að koma upp
mygla á nokkrum stöðum á Land-
spítalanum en því hefur verið kippt í
liðinn. Ástandið var mjög slæmt í
þessu ákveðna herbergi. Þarna þótti
heilbrigði starfsmanna vera hætta
búin og því tekin ákvörðun um að
loka herberginu þar til úrbætur hafa
verið gerðar,“ segir Eyjólfur, en að
hans sögn var megn fúkkalykt í
rýminu auk sjáanlegra raka-
skemmda. Í tilkynningu Vinnueft-
irlitsins segir að þrátt fyrir að
starfsmönnum Landspítalans sé
óheimilt að starfa í herberginu hafi
spítalinn fengið leyfi til að vinna að
úrbótum á næstunni.
aronthordur@mbl.is
Þurfa að
loka sök-
um myglu
Heilbrigði starfs-
fólks spítalans í hættu
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
Réttarbeiðni íslenskra stjórnvalda
til spænskra lögregluyfirvalda um að
íslenska lögreglan taki yfir rannsókn
á máli Sunnu Elviru Þorkelsdóttur
hefur verið móttekin af spænskum
yfirvöldum. Morgunblaðið greindi
frá því á laugardag að íslensk lög-
regla myndi taka yfir rannsókn
málsins, en þó með því skilyrði að öll
formsatriði hefðu verið uppfyllt.
Grímur Grímsson yfirlögreglu-
þjónn segir að réttarbeiðni hafi verið
send til spænskra lögregluyfirvalda
og þess sé beðið að þeir fallist á hana.
„Þó svo að þessi réttarbeiðni fari
formlega með þessum hætti, á bréfi
eins og sagt er, erum við auðvitað
búin að vera í samskiptum við yf-
irvöld þar í landi,“ segir Grímur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er þess beðið að spænskir
dómstólar samþykki yfirtöku máls-
ins, en að því loknu er ekkert því til
fyrirstöðu að Sunna Elvira komi til
landsins.
Rannsóknin fari fram á Íslandi
Grímur segir að íslensk lögreglu-
yfirvöld óski eftir því að rannsókn
málsins fari fram á Íslandi.
„Réttarbeiðnin gengur út á það að
við tökum yfir rannsókn þessa máls,
vegna þess að það er ekki í samræmi
við mannréttindasáttmála að sömu
atvik séu rannsökuð á tveimur stöð-
um í einu,“ segir Grímur og bætir við
að það þurfi að gera samkomulag um
það að rannsókn fari einungis fram á
einum stað í tilvikum sem þessum.
Vilja fá Sunnu til landsins
sem fyrst vegna rannsóknar
Þess beðið að spænskir dómstólar samþykki yfirtökuna
Sunna Elvira Sunna hefur legið
lömuð á Spáni í rúman mánuð.