Morgunblaðið - 20.02.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.02.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Kærunefnd lausafjár- og þjónustu- kaupa hefur hafnað öllum kröfum Karls Sigurhjartarsonar á hendur Orkuveitu Reykjavíkur vegna hit- unarkostnaðar sumarhúss Karls í Borgarfirði. Vatnið sem hann hefur um árabil keypt af OR er aðeins 55° heitt en ekki 80° líkt og vatn sem Orkuveitan af- hendir nágrönn- um hans. Ágreiningur Karls við OR hefur staðið yfir í fjögur ár og lýsir hann tilraunum til að fá úrskurð í málinu sem þrauta- göngu um ranghala stjórnsýslunn- ar. Hann segir bæði framgöngu OR og að það skuli hafa tekið mörg ár að komast að þessari niðurstöðu fá- ránlegt. Þetta sé í raun engin nið- urstaða. Karl segir að OR hafi afhent hon- um mun kaldara vatn en öðrum en engu að síður rukkað fyrir það sama verð og benti hann á í erindi sínu til nefndarinnar að OR geri honum í skjóli einkaleyfis að greiða tvöfalt meira en aðrir greiði í hita- kostnað fyrir sumarhúsið. Húsið hefur verið tengt hitaveitu frá árinu 2000 og veitti Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar (HAB) honum fyrstu árin afslátt, svokall- aða hitastigsleiðréttingu, sem hann segir að hafi verið viðurkenning á því að vatn afhent með lægra hita- stig en 80°C væri undir viðmiðum HAB. Var veittur afsláttur sem nam 2 prósentustigum fyrir hverja gráðu sem vatnið var undir 80°C. Þegar OR eignaðist HAB og tók við rekstri á svæðinu árið 2002 hafi þessi leiðrétting verið einhliða og orðalaust felld niður. Karl segir nefndina víkja sér undan að svara hvort hún telji þessa niðurfellingu lögmæta. „Ræður ekki við eðli vatnsins“ Ráðstafanir sem gerðar voru til að hækka inntakshitastig vatnsins hafa engum árangri skilað og er haft eftir OR í úrskurði nefndarinn- ar að ekki sé unnt að hækka hita- stigið frekar þar sem um tilvik sé að ræða þar sem seljandi ,,ræður ekki við eðli vatnsins“. Tilraunir Karls til að fá úrlausn sinna mála hafa eins og fyrr segir staðið yfir í fjögur ár. Fyrst leitaði hann til umboðsmanns Alþingis, sem vísaði á innanríkisráðuneytið, sem vísaði á atvinnumálaráðuneyt- ið, sem vísaði á kærunefnd lausa- fjár- og þjónustumála, en þar hafi erindi hans legið í þrjú ár, þar af í 18 mánuði eftir að umboðsmaður Alþingis úrskurðaði að fyrri frávís- un nefndarinnar væri ólögmæt. Bendir hann á að nefndinni beri reglum skv. að skila áliti innan átta vikna. Stætt á að selja 55°C vatn á sama verði og 80°C vatn? Karl fór annars vegar fram á að fá álit nefndarinnar á því hvort OR hefði verið heimilt að fella einhliða niður leiðréttinguna á verði vegna lágs hitastig við afhendingu vatns- ins. Síðari spurningin sem hann lagði fyrir nefndina var sú hvort OR væri stætt á að selja 55°C vatn á sama verði og 80°C. Þá beri að líta til þess að OR sé í opinberri eigu og hafi einkaleyfi til þessarar þjónustu á svæðinu, sem ætti að leggja henni auknar skyldur á herðar hvað varði sanngirni og góða viðskiptahætti. Karl segir að kærunefndin virðist ekki hafa skoðun á þessu en telji rétt að styðjast við þá viðmiðun sem OR hafi sjálf sett sér. Nefndin óski ekki eftir rökstuðningi OR á því hvers vegna 50° lágmarksviðmið sé réttara en 80° sem HAB hafi talið vera rétt. Hann segir að fyrir liggi að sveitarstjórn Borgarbyggðar hafi óskað eftir því við OR að hún endurskoði þessa afstöðu sína. Ekki sett skilyrði um hitastig eða þrýsting í orkulögum Í niðurstöðu nefndarinnar er m.a. vitnað til þess að í orkulögum séu ekki sett skilyrði um hitastig eða þrýsting vatns. Í reglugerð sem sett sé á grundvelli orkulaga segi að OR sé ekki skylt að veita afslátt af sölu heits vatns vegna lágs hitastigs þess á afhendingarstað ,,enda geri Orkuveita Reykjavíkur þær ráðstaf- anir sem má ætlast til af henni til að halda hitastiginu í eðlilegu horfi“. OR kveðst hafa gert allar tiltæk- ar ráðstafanir til að tryggja hita- stigið hjá álitsbeiðanda og það sé hærra en 50 gráður. Af gögnum málsins virðist mega ráða að hita- stigið sé að jafnaði um 55 gráður. Nefndin segir að ekki sé til að dreifa opinberum viðmiðum um hitastig á heitu vanti á afhending- arstað. OR hafi sett sér viðmiðun og ekki sé hægt að slá því föstu að heitt vatn sem Karl fær afhent sé haldið galla í skilningi laga. Karl segir að nú fjórum árum eft- ir að hann leitaði til ráðuneytisins og svo kærunefndarinnar sé hann engu nær. Hann segist vissulega íhuga næsta skref, sem væri þá að leita til dómstóla en það sé kostn- aðarsamt og ójafn leikur. Segist engu nær eftir 4 ára þrautagöngu  Kröfum vegna hitastigs vatns hafnað Karl Sigurhjartarson Skál fyrır hollustu LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR * Til að DHA skili jákvæðum áhrifum þarf að neyta 250 mg á dag. OMEGA-3 FYRIR SJÓN OG AUGU Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi sem er einkumætlað að viðhalda eðlilegri sjón. Omega-3 augu inniheldur lútein, zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla að viðhaldi eðlilegrar sjónar. Fæst í öllum helstu apótekum landsins. Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt framboð til setu í framkvæmda- stjórn UNESCO, Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóð- anna fyrir tímabilið 2021-2025. Framboðið nýtur stuðnings Norðurlandanna en þau hafa sam- eiginlega lagt áherslu á að ríkin eigi sæti í stjórn UNESCO. Norður- löndin hafa skipst á að taka sæti í stjórninni frá upphafi. Ísland átti síðast sæti í stjórn UNESCO 2001- 2005 en áður átti landið sæti 1981- 1987. Ísland býður fram til fram- kvæmdastjórnar UNESCO Morgunblaðið/Ómar Heimsminjaskrá Þingvellir og Surtsey eru á lista UNESCO. Bankasýsla ríkisins hefur sent til- lögu á fjármála- og efnahagsráð- herra þess efnis að ríkissjóður selji Kaupskilum, stærsta eiganda Arion banka, 13% hlut ríkisins í bankanum. Söluverðið er 23,4 milljarðar króna. Það sé gert á grundvelli kaupréttar Kaupskila samkvæmt hluthafasam- komulagi frá árinu 2009. Bendir stofnunin í bréfi til ráð- herra á að Kaupskil hafi einhliða, ótvíræðan og fortakslausan samn- ingsbundinn rétt til að kaupa hlut- inn. Í bréfinu er í fyrsta sinn opinberað með hvaða hætti verð hlutarins skuli reiknað en hingað til hefur fyrrnefnt hluthafasamkomulag verið birt án þess ákvæðis sem tók á virðismati hlutarins. Þannig segir Bankasýslan að rík- issjóður skuli skv. samkomulaginu ávaxta upphaflegt hlutafjárframlag á þeim árafjölda sem líði milli stofn- dags bankans í október 2008 og þess dags er kauprétturinn yrði virkjað- ur, þannig að miðað sé við vexti á ríkisskuldabréfinu RIKH 18 1009 að viðbættu 5% álagi að frádregnum hlut ríkisins í arðgreiðslum bankans á tímabilinu. Segir stofnunin, að fengnu áliti Grant Thornton, að út- reikningur Kaupskila á kaupverðinu sé réttur. Þrátt fyrir söluna á hlutn- um mun ríkissjóður enn hafa sér- stakan tilsjónarmann með söluferl- inu á Arion banka sem framundan er og mun honum ætlað að tryggja hagsmuni ríkisins á grundvelli stöð- ugleikasamkomulagsins frá 2015. Það kveður m.a. á um hlutdeild ríkis- sjóðs í söluandvirði bankans. Leggur til sölu á hlut ríkisins  Bankasýslan leggur til uppgjör kaupréttar vegna Arion

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.