Morgunblaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.02.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Íslensk, færeysk og grænlenskt loðnuskip voru í gær að veiðum út af Vík, en lítið næði hefur verið til veiða þar vegna veðurs síðan á sunnudag og veðurútlit er ekki gott í vikunni. Þokkalegur afli fékkst fyrir suðurströndinni fyrir helgi, en skipin hafa veitt fyrir manneldis- vinnslu. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var í gær norður af Horni eftir að hafa verið við loðnu- mælingar fyrir Norðurlandi síðustu vikuna. Meðal annars var farið inn á Öxarfjörð og Skjálfanda í síðustu viku, þar sem Norðmenn hafa verið að veiðum. Grunnt með ströndinni. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er spjallað við Geir Zoëga, skip- stjóra á Polar Amaroq, og segir hann m.a. frá því að síðasta veiði- ferð hafi gengið vel og þeir hafi sett met í afköstum við frystinguna um borð, farið yfir 200 tonn á sólar- hring í fyrsta sinn. Þeir hafi síðan krussað fjörurnar í samstarfi við Hafró og mælt loðnuna. Ljóst sé að mikið sé á ferðinni og hún gangi mjög grunnt með ströndinni. Mest hafi verið að sjá í kring- um Ingólfshöfða. Aðallega hafi þetta verið tvær lengjur, hvor um sig um 20 mílur og alls staðar mikið líf, fuglar og hvalir. Austast hafi þeir séð lóðningar innan við Hrollaugs- eyjar. Að auki hafi menn séð loðnu dýpra og skipverjar á Berki og Bjarna Ólafssyni hafi orðið varir við loðnu á siglingu austur af miðunum. Haft er eftir Geir að vegna veðurs sé hann alvarlega að velta fyrir sér að halda til veiða fyrir norðan land að löndun lokinni. Eftir deyfð á loðnumiðum í nokkurn tíma rættist úr hjá norsku veiðiskipunum í síðustu viku. Þau tilkynntu alls um 43.200 tonn og megnið fékkst í góðu veðri á síðustu þremur dögum vikunnar. Loðnan veiddist að stórum hluta skammt frá landi á Öxarfirði og Skjálfanda. Mikil áta fyrir norðan Á sunnudagskvöld var afli Norðmanna kominn upp í 61.700 tonn og eiga þeir þá eftir að veiða 12.100 tonn. Þeir hafa tíma til fimmtudagskvölds til að ná þeim afla, en á sunnudagskvöld áttu ell- efu norsk skip eftir að ná kvóta sín- um. Mikið er af átu í loðnunni fyrir norðan land og fer mest af aflanum í bræðslu, ýmist hjá íslenskum eða norskum fyrirtækjum. Tvö íslensk skip, Guðrún Þor- kelsdóttir SU og Beitir NK, voru í gær að kolmunnaveiðum í írskri lög- sögu, hátt í þúsund mílur frá Aust- fjarðahöfnum. Vel fiskaðist á þeim slóðum. Lítið næði til loðnu- veiða vegna veðurs Morgunblaðið/Albert Kemp Vertíð Á sunnudag var loðnu landað á Fáskrúðsfirði úr Hoffelli SU, en einnig norskum og færeyskum skipum.  Norðmenn að ná kvóta sínum eftir hressilega viku Örfirisey RE er nú í höfn í Hammerfest í Norður- Noregi en þangað kom frystitogarinn um helgina eftir að vart varð við enn eina bil- unina í vélbúnaði skipsins. Frystitogarinn Kleifaberg ÓF dró Örfirisey til hafnar, að því er kemur fram á vef HB Granda. Þar segir Herbert Bjarnason tæknistjóri ljóst að eitthvað hafi mis- farist þegar aðalvél Örfiriseyjar var tekin upp á vegum framleiðenda vél- búnaðarins fyrir áramótin. Það skýri einnig bilunina sem varð fyrir rúmri viku. Herbert segir að skipið hafi þá verið statt um 30 sjómílur norður af Hammerfest og hafi Kleifabergið verið fengið til að draga skipið upp að landi þar sem dráttarbátur tók við því. „Þegar farið var að taka búnaðinn í sundur kom í ljós að orsakavaldurinn núna er bilun í þrýstilegu á kambásn- um. Bilunin veldur því að ásinn getur færst langsum í vélinni og valdið óeðlilegri þvingun á tannhjólin í tíma- gírnum. Verið er að vinna í að meta tjónið en talið er að skipta þurfi um kambás ásamt öllum tannhjólum, leg- um og öxlum í tímagír,“ segir Her- bert. Örfirisey bilar öðru sinni á einni viku Frystitogarinn Örfirisey RE 4. Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra skipaði í gær Arnald Hjartarson, aðstoðarmann dómara við EFTA dómstólinn, í embætti héraðsdómara sem hafa mun fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dóm- ara mat Arnald hæfastan til að gegna embættinu. Hann er 34 ára. Í umsögn dómnefndarinnar segir m.a. að Arn- aldur eigi að baki glæsilegan námsferil, bæði við Há- skóla Íslands og Yale-háskóla. Þá hafi hann á skömmum tíma náð verulegum árangri í fræðimennsku. Einnig sé ljóst af meðmælum að hann eigi auðvelt með mannleg samskipti og gott orð fari af honum innan og utan starfs. Umsóknarfrestur var til 11. desember og barst 31 umsókn. Sex umsækj- endur, sem skipaðir höfðu verið í embætti héraðsdómara frá 9. janúar, drógu umsóknir sínar til baka. Arnaldur skipaður héraðsdómari Arnaldur Hjartarson Bílar          www.tonastodin.is Landsins mesta úrval af trommum         faglega þjónustu,        Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Túnikur Kr. 4.990 Str: S-XXL Litir: Blátt og svart HVAÐ HENTAR ÞÍNU STARFSFÓLKI? Hjá okkur færðu ljúffengan mat úr fyrsta flokks hráefni. • Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti. • llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum. • Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi. • Brakandi fersk salöt og ávexti. • Við komum til móts við ykkar óskir kryddogkaviar.is kryddogkaviar@kryddogkaviar.is Sími 515 0702 og 515 0701

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.