Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 13

Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 13
minni ánægja með líkamsræktina þar en heilsueflinguna sem henni finnst vera í kórastarfinu. Sigurbjörg hefur eðli málsins samkvæmt starfað með mörgum kórstjórum og undirleikurum. Hún segir engan vafa leika á því að kóra- starfið standi og falli með stjórnand- anum. „Þegar ég fór að líta yfir far- inn veg, þá rifjast það upp að eftir að Herbert H. Ágústsson hættir, sem er fyrsti stjórnandi kórsins, þá verður svolítið los. En þá var ég svo heppin að vera að eiga börn og tók mér frí. Svo þegar Sigvaldi Snær Kaldalóns, barnabarn Sigvalda Kaldalóns, kemur sem kórstjóri þá kemst aftur stöðugleiki í starfið.“ Undanfarin 10 ár hefur Dagný Jónsdóttir stjórnað kórnum og Geir- þrúður Bogadóttir verið undirleik- ari. Kvennakórinn bara fyrir kellingar Ína Dóra Hjálmarsdóttir og Bergný Jóna Sævarsdóttir tengjast með skemmtilegum hætti. Þær bjuggu báðar um skeið í Sandgerði, hafa báðar lært söng en eru nú fluttar á höfuðborgarsvæðið og keyra saman suður til æfinga. Ína Dóra var líka áhrifavaldur í lífi Bergnýjar þegar hún plataði hana í kórinn. „Ég ætlaði nú ekkert í þennan kór. Fyrir mér var Kvennakór Suð- urnesja bara fyrir einhverjar kell- ingar,“ segir Bergný og hlær. „Ég gat ekki séð fyrir mér að ég ætti heima þarna, ekki séns. Svo lét ég undan þrýstingi frá Ínu Dóru og sé sko ekki eftir því.“ Bergný var þá í tónlistarskólanum í Sandgerði í ein- söngsnámi og Ína Dóra er einnig menntuð í söng, auk þess að vera tónlistarkennari í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Bergný hefur ver- ið í kórnum frá 2003 og Ína Dóra frá 2001. Þú hefur því þurft að yfirstíga eigin fordóma, Bergný? „Já, bæði eigin fordóma og hræðslu. Ég vissi ekkert hvort ég væri hæf í kór eða nógu góð. En svo lærir maður bara og það geta allir verið með. Það sem er líka svo skemmtilegt við þennan kór er að þú þarft ekki að vera fluglæs á nót- ur eða fluglærð í söng.“ Ína Dóra segir sama hafa verið upp á teningnum hjá sér, hún hafi aldrei ætlað í kvennakór, af og frá. „Mér fannst kvennakór bara ekkert skemmtilegur. Þegar ég var ung, bara lítil stelpa, áttaði ég mig á því að ég gæti ekki verið í karlakór. Það var mjög mikið áfall. Ég er nefni- lega alin upp við það að fara á karla- kórstónleika. Ég man eftir stund- inni þegar ég sat í Háskólabíói og hugsaði hnuggin, nei, ég get ekki verið í karlakór.“ Mörgum árum seinna fór Ína Dóra í kirkjukórinn í Sandgerði og söng þar nánast þar til kórinn fjar- aði út. Kirkjukórar voru ekki síður í uppeldi hennar en karlakórar, því foreldrarnir sungu lengi vel í kirkju- kór. Leiðin lá svo í Kvennakór Suð- urnesja. „Ég þurfti ekki að fara nema á eina tónleika með Kvenna- kórnum til að ákveða mig. Mér fannst þær mjög skemmtilegar og ég hugsaði, já ég skelli mér bara.“ Það rifjast upp skemmtileg kórferð til Ísafjarðar í maí sl. hjá þeim stöllum þegar kálfurinn sem konurnar óku festist í snjósköflum oftar en einu sinni og aðstoð þurfti við að koma þeim aftur á veginn. Í færðinni sem hefur verið undan- farna daga er ekki úr vegi að spyrja hvað dragi konur langa vegu á kór- æfingar þegar nóg er af kórum á höfuðborgarsvæðinu? „Það er mjög erfitt að yfirgefa fjölskyldu sína. Kórinn er eins og fjölskylda. Það er voða góður andi í þessum kór,“ segja þær stöllur að lokum. Hressandi Sigurbjörg Sveinsdóttir á æfingu með kvennakórnum sem hún segir að kóræfingarnar séu eins og vítamínsprauta fyrir sig. „Þegar ég var ung, bara lítil stelpa, áttaði ég mig á því að ég gæti ekki verið í karlakór. Það var mjög mikið áfall.“ DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ástin í ljóðum og sögum erþema bókmennthátíðar-innar Júlíönu sem haldin verður í Stykkishólmi dagana 22.- 24. febrúar næstkomandi. Þetta er í sjötta sinn sem efnt er til þessarar hátíðar sem notið hefur vinsælda meðal heimamanna og aðkomufólks sem hefur fjölmennt á ýmsa við- burði sem haldnir eru henni sam- hliða. Gamalt og nýtt í Egilsenhúsi „Hólmurinn hefur alltaf verið bókabær, hér hafa sprottið fram allskonar sögur og ýmsir rithöf- undar tengjast bænum. Þessi hátíð er því mjög vel við hæfi og fellur að bæjarbragnum hér,“ segir Gréta Sigurðardóttir sem átti hugmyndina að hátíðinni og ýtti úr vör. Hún er eigandi svonefnds Egilsen-húss í miðbæ Stykkishólms og rekur þar hótel og hefur verið með um- svifamikla starfsemi í ferðaþjónustu í bænum. Frá upphafi og undanfarnar fimm hátíðir voru í undirbúnings- hóp Júlíönuhátíðarinnar, auk Grétu, þær Þórunn Sigþórsdóttir, Dagbjört Höskuldsdóttir og Sigríður Erla Guðmundsdóttir. Tvær þær síðast- nefndu eru nú hættar og í stað þeirra komu inn Nanna Guðmunds- dóttir og Þórhildur Einarsdóttir. Í Egilsenhúsi er gott safn bóka, gamalla og nýrra. Húsið tengist líka ýmsum andans mönnum, en það var byggt 1867 af Agli Egilsen sem strangt til tekið var raunar Svein- björnsson, sonur Sveinbjarnar Eg- ilssonar, rektors Lærða skóla, og er þekktur meðal annars fyrir þýð- ingar sínar og ýmsan skáldskap. Brauðryðjandi og fyrsta leikverkið „Hugsunin með Júlíönuhátíð- inni var svo alltaf að hér í bæ væri vettvangur sem bókum, ljóðum og sögum væri gert hátt undir höfði,“ segir Gréta. Hátíðin í Hólminum er kennd við brautryðjandann Júlíönu Jónsdóttur sem var fædd 1838 og varð fyrst íslenskra kvenna til að fá gefna út bók eftir sig. Það var ljóða- bókin Stúlka sem var gefin út 1876. Einnig samdi hún fyrsta leikverkið eftir konu sem var sett á svið á Ís- landi, það er Víg Kjartans Ólafs- sonar. Það var sýnt 1878 til 1879 í Stykkishólmi en á þeim tíma bjó Júl- íana í Stykkishólmi. Ljóðasamkeppni skáldanna Árlega á setningu Júlíu- hátíðarinnar hefur Hólmari verið heiðraður fyrir framlag vegna ým- issa menningarmála. Þá hefur verið unnið með Grunnskóla Stykkis- hólms til að auka áhuga nemenda á skapandi skrifum. Á síðasta ári kom rapparinn Kött Grá Pjé og sömdu nemendur smásögur þar sem farið var aftur um 150 ár. Í ár er unnið með rapparanum Arnari Frey Frostasyni og útvarpskonunni Sölku Sól en þemað í starfi þeirra og krakkanna er ástin allt um kring. Verður afraksturs þess starfs sýnd- ur að morgni föstudagsins 23. febr- úar í gömlu kirkjunni í Stykkis- hólmi, en atburðir hátíðarinnar eru margir í kirkjunni eða Egilsenhús- inu sem eru í miðbænum í Hólm- inum. – Þá verður stund fyrir leik- skólabörnin þar sem Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir les úr bók sinni fyrir börnin. Frítt er inn á alla viðburði. Jafnhliða Júlíuhátíðinni nú verður efnt til ljóðasamkeppni, rit- höfundarnir Vilborg Davíðsdóttir og Halldóra Thoroddsen lesa úr verkum sínum svo og skáldin Eydís Blöndal, Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Bragi Páll Sigurðsson og Anton Helgi Jónsson sem jafnframt verður með ljóðmyndasýningu. Þá mun Fel- ix Bergsson flytja og fjalla um ljóð Páls Ólafssonar. Júlíana í bókabænum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Frumkvöðull Þessi hátíð er vel við hæfi og fellur að bæjarbragnum hér,“ segir Gréta Sigurðardóttir um Júlíönnuhátíðina sem senn gengur í garð. Til eru óteljandi sögur um ástina og endalaust verða nýjar til. Nokkrar slíkar verða sagðar á Júl- íönu í Stykkshólmi, bók- mennthátíð við Breiða- fjörðinn. Þar lesa skáldin úr verkum sínum og börnin verða virkjuð til þátttöku. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stykkishólmur Horft yfir miðbæinn í Hólminum af Þinghúshöfða. Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.