Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 15

Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 Ólöf Ragnarsdóttir olofr@mbl.is Í gildandi íþróttalögum, sem eru frá árinu 1998, er ekkert fjallað um kynjasjónarmið, þó svo að legið hafi fyrir bæði þingsályktun frá 1992 og tillögur sérstakrar nefndar sem skipuð var 1996 til þess að auka hlut kvenna í íþróttum. Þetta er á meðal þess sem kom fram á málþinginu „Kynjajafnrétti í íþróttum – hlutverk ríkisvaldsins“ í Háskólanum í Reykjavík í gær. Frummælandi var María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur og dokt- orsnemi við Sussex-háskóla, sem kynnti niðurstöður rannsóknar um hlutverk ríkisvaldsins við að tryggja kynjajafnrétti í íþróttum. Í framhaldi erindis Maríu voru niðurstöðurnar ræddar af Lilju Al- freðsdóttur, mennta- og menningar- málaráðherra, Lárusi Blöndal, for- seta Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, og Guðna Bergssyni, for- manni Knattspyrnusambands Ís- lands, sem voru þátttakendur í pall- boði. Þær niðurstöður sem María kynnti í gær lutu aðeins að hluta rannsóknarinnar sem snýr að hlut- verki ríkisvaldsins. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að stjórnvöld hafi beina skyldu til þess að tryggja jafnrétti í íþróttum. Þá kemur fram að ríkið horfi almennt ekki til kynjasjónarmiða þegar kem- ur að lagasetningu og úthlutun fjár- muna í tengslum við íþróttir. „Engan kynbundinn greinarmun á heimildum eða skyldum hvað varðar íþróttir, er að finna í gildandi löggjöf. Ekki er heldur fjallað um jafnréttis- mál, eða stöðu kynjanna, með sér- stökum hætti í löggjöfinni. Þannig er ekki gerður lagalegur greinarmunur á íþróttaiðkun kynjanna, fjármunum sem skuli leggja til íþróttaiðkunar eða annarra sjónarmiða sem eiga rætur í jafnrétti kynjanna í gildandi íþróttalögum.“ Gildandi íþróttalög voru sett árið 1998 og þrátt fyrir að bæði ítarleg gögn og þingsályktun frá Alþingi frá 1992 um að stjórnvöld ættu að beita sér fyrir því að jafn- rétti kynjanna yrði aukinn þáttur í lagasetningunni lægju fyrir hafi ekki verið tekið tillit til þeirra. „Þarna er eitthvað í gangi sem lögfræðin getur ekki útskýrt,“ sagði María. Hún varpaði einnig ljósi á það að sömu ályktunarefni hafi komið fram, með tuttugu ára millibili, frá nefnd til að auka hlut kvenna og stúlkna í íþrótt- um, árin 1996 og 2006. „Tuttugu ár- um síðar er þingið að fela fram- kvæmdavaldinu að vinna að sömu málum, aftur getur lögfræðin ekki svarað hvers vegna það er.“ Morgunblaðið/Ómar Jafnrétti Samkvæmt rannsókn sem kynnt var í gær er ekki fjallað um kynjasjónarmið í gildandi íþróttalögum. Íþróttalögin taka ekki til kynjasjónarmiða  Stjórnvöld hafi beina skyldu til þess að tryggja jafnrétti Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Þetta uppgötvaðist í daglegu, reglubundnu eftirliti og við þessu var strax brugðist með því að tæma kvína,“ segir Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarlax, en í ljós kom bilun í búnaði í einni lax- eldiskví fyrirtækisins í Tálknafirði í síðustu viku. Í tilkynningu segir að bilunin hafi falist í því að einn af flothringjum kvíarinnar hafi brotn- að, en að engin net hafi rofnað og engin hætta skapast á að fiskur slyppi. Að sögn Víkings gekk vel að færa laxinn úr kvínni. „Ákvörðun var tekin um að tæma hana strax. Það var engin þannig hætta á slysasleppingu, en það er vetur og stormur svo þetta var ákveðið.“ Hann segir að einhver afföll hafi verið en fyrirtækið sé ekki komið með stöðu á hve mikil þau hafi ver- ið. „Það er ekkert óeðlilegt. Við það að taka fisk upp úr kví verða ein- hver afföll. En allt sem fór í gang gekk upp og þetta var tilkynnt þó að ekki hafi verið um slysaslepp- ingu að ræða,“ segir Víkingur, en í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að atvikið hafi verið tilkynnt til Fiski- stofu og Matvælastofnunar og að þeim hafi verið haldið upplýstum á meðan aðgerðir stóðu yfir. Tjón fyrirtækisins mun vera óljóst, en kvíin sem um ræðir verð- ur ekki notuð aftur. „Þetta er að- allega tjón á búnaði sem við lendum í. Svona er þetta bara og ekkert óeðlilegt, við tökum enga sénsa svo um leið og við sáum að þessi kví var löskuð tókum við hana úr um- ferð.“ Kvíin mun verða dregin í land við fyrsta tækifæri og ástæður bilunar rannsakaðar. Engin hætta á að fiskur slyppi  Bilun í búnaði Arnarlax í Tálknafirði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Laxeldi Tæma þurfti kvína sem bil- aði í síðustu viku í Tálknafirði. Mögnuð rafmagnsverkfæri og frábært verð ÞÓR FH REYKJAVÍK: Krókháls 16 Sími 568-1500 AKUREYRI: Baldursnes 8 Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Fyrirvari er settur vegna hugsanlegra ritvillna. Sleðasög 230 V með tveimur löndum Model SP6000 Mótor 1300 W Sagarblað 165 mm Sagdýpt 90° 57mm 2 x 140 cm lönd fylgja Kr. 76.000,- með VSK Sleðasög 2x18V Model DSP600PT2J1 Mótor 18V x 2 Sagarblað 165 mm Sagdýpt 56 mm 2 x 5 AMP rafhlöður og hleðslutæki fylgja Kr. 139.000,- með VSK FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 O ttó A u g lýsin g astofa Stoppar 90% óhreininda Dyra og hreinsimottur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.