Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 17

Morgunblaðið - 20.02.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 skornirthinir.is LYT NS 4 SEASONS LE FLORIANS 4 SEASONS 100% vatnsheldir am sóli 22.995 ðir: 36-47 6 litir Vibr Verð: Stær OS LE FLORIA VATNSHELDIR SKÓR Hátt í 20.000 manns lögðu leið sína í kirkjuna við Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn í gær og um helgina þar sem kista Hinriks prins, eigin- manns Margrétar Þórhildar Danadrottningar, stóð á líkbörum og vottuðu honum virðingu sína. Hinrik lést 13. febrúar. Hann verður jarðsung- inn frá kirkjunni við Kristjánsborgarhöll í dag. Athöfnin verður fámenn og eingöngu fyrir fjöl- skyldu, vini og nokkra fulltrúa danska ríkisins. AFP Þúsundir vottuðu Hinriki Danaprins virðingu sína Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Hersveitir hliðhollar stjórn Bashars al-Assads Sýrlandsforseta gætu á næstunni skipst á skotum við tyrk- neska herinn. Eru vopnaðar sveitir Kúrda (YPG) nú sagðar hafa náð samkomulagi við Assad um að brjóta á bak aftur sókn tyrkneska hersins inn í norðurhluta Sýrlands. Frétta- veita Reuters greinir frá þessu. Sýrlenskar hersveitir voru í gær sagðar hafa tekið stefnuna á héraðið Afrin sem liggur við landamærin að Tyrklandi. Yrði það í fyrsta skipti frá árinu 2012 sem sýrlenskar hersveitir eru staðsettar þar, en liðsmenn YPG náðu svæðinu úr klóm liðsmanna Ríkis íslams eftir hörð átök. Tyrkir segja að YPG sé útibú Verkamanna- flokks Kúrdistans (PKK) sem barð- ist í áratugi blóðugri baráttu fyrir sjálfstæði Kúrdahéraða í Tyrklandi. Vilja þeir því liðsmenn YPG fjarri landamærum Tyrklands. Badran Jia Kurd, ráðgjafi stjórn- enda Kúrda í norðurhluta Sýrlands, sagði í samtali við Reuters að stjórnarhermenn Sýrlands myndu taka sér stöðu við landamærin í samræmi við áðurnefnt samkomu- lag. Stjórnvöld í Damaskus vildu í gær ekki staðfesta að hernaðarsam- komulag hefði náðst á milli þeirra og YPG. Ekkert mun stöðva Tyrki Mevlut Cavusoglu, utanríkisráð- herra Tyrklands, segir ekkert munu stöðva hersveitir þeirra. „Ef stjórn- arherinn er að fara inn á þetta svæði í þeim tilgangi að hreinsa það af PKK og PYD [stjórnmálaflokkur YPG] þá verða engin vandamál,“ hefur Reuters eftir Cavusoglu á blaðamannafundi sem haldinn var í Jórdaníu. „En ef hann er að koma í þeim tilgangi að verja YPG, þá mun ekkert og enginn geta stöðvað okkur eða hermenn Tyrklands,“ bætti Cavusoglu utanríkisráðherra við. Sameinaðir gegn her Tyrkja  Vopnaðar sveitir Kúrda (YPG) segjast fá aðstoð hersveita Sýrlandsforseta gegn sókn Tyrkja inn í norðurhluta landsins  Í fyrsta sinn frá árinu 2012 sem sýrlenskar hersveitir eru sendar á svæðið AFP Átakavæði Tyrkneskur hermaður við landamærin að Sýrlandi. Donald J. Trump Bandaríkjaforseti segist nú styðja aðgerðir sem gera glæpamönnum erfiðara fyrir að festa kaup á skotvopnum þar vestanhafs. Er um að ræða sameiginlegt frum- varp repúblikana og demókrata og á það að tryggja að ríkis- og alríkis- stofnanir veiti upplýsingar um ein- staklinga sem komist hafa í kast við lögin og ætti sökum þess ekki að vera leyft að kaupa skotvopn. Um vika er liðin frá því að Nikolas Cruz, nítján ára Bandaríkjamaður, varð 17 manns að bana í skotárás á nemendur framhaldsskóla í bænum Parkland á Flórída. Þá hafa yfir 290 skotárásir verið gerðar í skólum í Bandaríkjunum frá janúar 2013, en að meðaltali hefur verið gerð ein slík skotárás á viku. Í kjölfar árásarinnar á Flórída var Trump harðlega gagnrýndur fyrir afstöðu sína þegar kemur að hinni lausbeislaðu byssueign Bandaríkja- manna, en meðal þeirra sem lýstu yf- ir stuðningi við forsetaframboð hans á sínum tíma var félag bandarískra byssueigenda (NRA). Talsmaður Hvíta hússins segir Trump nú styðja aðgerðir sem stuðla eiga að bættri bakgrunnsskoðun kaupenda. End- anleg útfærsla frumvarpsins liggur þó ekki fyrir. „Við segjum kjaftæði“ Á fjölmennum útifundi sem hald- inn var eftir skotárásina tóku meðal annars nemendur skólans til máls. „Þeir segja hert lög gegn byssueign ekki minnka ofbeldi með skotvopn- um – við segjum kjaftæði,“ sagði ung stúlka í ræðu sinni á fundinum. „Hann hefði aldrei meitt svo marga með eggvopni.“ Styður aukið bakgrunnseftirlit  Glæpamenn eignist ekki auð- veldlega skotvopn AFP Forseti Donald J. Trump hefur lengi stutt frjálsa byssueign. Matthew Falder, 29 ára gamall breskur karl- maður, hefur ver- ið dæmdur í 32 ára fangelsi fyrir ýmis afbrot, m.a. fyrir að hafa hvatt til nauðg- ana, ýtt undir kynferðisbrot gegn börnum og fyrir fjárkúgun. Var hann dæmdur fyrir alls 137 afbrot sem ná yfir átta ára tímabil. Segir frá þessu á frétta- vef Sky. Falder framdi öll afbrot sín í gegnum netið þar sem hann setti sig í samband við fólk sem hann að lok- um neyddi til að framkvæma ýmis ódæðisverk sem tekin voru upp á myndbönd og ljósmyndir. Efninu dreifði Falder svo á svokölluðu myrkraneti. Tók það sérfræðinga lögreglunnar um 4 ár að rekja slóð Falders á netinu og handsama hann. Sky hefur eftir lögreglunni að Falder hafi notið þess að kvelja fólk og kúga úr því fé. „Hans helsti drif- kraftur voru völd og að fá að drottna yfir öðrum,“ segir rannsakandi. Níðingur hlaut 32 ára refsidóm Matthew Falder

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.