Morgunblaðið - 20.02.2018, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
Siglt í höfn Hrafn GK-111 kemur til hafnar í Grindavík í ölduróti. Átta metra ölduhæð var á þessum slóðum í gær.
Eyjólfur Vilbergsson
Vindasamt er á Ís-
landi, segja menn og
hafa lög að mæla.
Greinarheitið er eftir
Guðlaug Arason rithöf-
und og óvíst að allir
samþykki innihald
þess. Eftir því sem
þrengir að orkukostum
með vatnsafli eða jarð-
varma ber meira á
könnun á vind-
orkukostum og um-
ræðum um þess konar orkuöfl-
unarleið, jafnvel á nýjum verkefnum.
Vindorkuver eru nýlunda
Fáeinir bændur riðu á vaðið í
smáum stíl, Landsvirkjun reisti tvær
stórar vindmyllur í tilraunaskyni NV
af Búrfelli og einkaaðilar hafa t.d.
rekið tvær vindmyllur í Þykkvabæ.
Rekstrarkannanir sýna, ásamt úttekt
Einars Sveinbjörnssonar veðurfræð-
ings á ólíkum veðurfars- og ísing-
arsvæðum, að vindorka
getur verið veruleg við-
bót við orkuöflun á Ís-
landi. Hve langt það
kann að ganga er háð
kostnaði, orkuþörf,
skipulagsmálum, stað-
bundnum umhverfis-
málum og fleiri þáttum.
Vísindalegur grunnur
vindorkustöðva verður
að vera traustur. Þá er
ekki aðeins átt við stað-
setningu vindmylla og
lágmörkun umhverf-
isárifa á áhrifasvæði
þeirra. Líka verður að leita erlendra
gagna um raunverulegt vistspor, frá
öflun smíðaefna til tækjanna allt til
niðurrifs og förgunar. Til þess þarf
svokallaða lífsferlisgreiningu (LCA).
Vindmyllur – hvar?
Sjáanleg verkefni eða hugmyndir,
aðrar en eins konar heimarafstöðvar,
eru tvenns konar. Í einn stað vindl-
undir eða vindorkuver með einum
eða mörgum tugum vindmylla. Þeim
er safnað í hóp eða keðju og aflgetan
er tugir eða örfá hundruð MW. Þann-
ig er vindlundur Landsvirkjunar
vestan Hofsjökuls í nýtingarflokki 3.
áfanga Rammaáætlunar og hug-
myndir einkafjárfesta um stærri
vindlund í Dölum vestur. Í annan
stað er um að ræða fyrirspurnir eða
verkefni á hugmyndastigi líkari því
sem sést í Þykkvabæ; ein eða nokkr-
ar stórar myllur sem framleiða t.d. 1
til 5 MW hver. Ýmist eiga sveit-
arfélög eða einkaaðilar þar hlut að
máli. Sveitarfélög og aðra vantar
bæði laga- og reglugerðarramma ut-
an um slík verkefni sem og sér-
fræðiráðgjöf við ákvarðanir og samn-
inga. Telja má víst að vindmyllur
verða umdeildar hér á landi sem ann-
ars staðar. Hér ber að geta þess að
orkuver með afli yfir 10MW eiga
heima undir smásjá verkefn-
isstjórnar Rammaáætlunar. Þar er
nú Búrfellslundur í biðflokki.
Framsækin markmið
Núna er laga- og reglugerðar-
umbúnaður vindorku sundurlaus og
óreyndur að ýmsu leyti. Vissulega
falla vindorkuvirkjanir undir raf-
orkulög, skipulagslög, lög um flutn-
ingskerfið og lög um mat á umhverf-
isáhrifum framkvæmda. Þær eru þó
svo ólíkar vatns- og jarðvarmavirkj-
unum, og nýjar af nálinni, að brýn
þörf er á að taka heildstætt á lagaum-
hverfinu, reglugerðum og leyfis-
málum, áður en lengra er haldið.
Þess vegna segir í sáttmála ríkis-
stjórnar Katrínar Jakobsdóttur að
setja skuli lög um beislun vindorku,
auk þess sem heildstæð orkustefna
fyrir landið verði unnin. Til viðbótar
vindorku ber þar að líta til annarra
orkugjafa, sjávarins (hverflar í sjó,
líkir vindmyllum, eða ölduaflsnemar)
og varmadæla sem sækja t.d. varma í
lághita á landi eða volgan sjó og nýt-
ast aðallega til húshitunar. Í þeim
efnum er til nýsköpun í landinu, t.d.
sjávarhverflar Valorku og stór
varmadæla sem gagnast mun Eyja-
mönnum, þróuð í samstarfi við Ný-
sköpunarmiðstöðina.
Skýrslubeiðni í farvegi
Til þess að styðja við laga- og
reglugerðarskrif um vindorku og til
skoðunar á sjávarorku og varma-
dæluvirkjunum, og til þess að styðja
við mótun orkustefnu, legg ég á Al-
þingi fram beiðni um skýrslugerð.
Safna á saman fróðleik um helstu
þætti fyrrgreindra leiða til orkuöfl-
unar. Beiðnin verður vafalítið sam-
þykkt og mun atvinnuráðuneytið þar
með láta vinna skýrsluna á sex til sjö
mánuðum. Vandséð er að ráðist verði
í byggingu vindorkuvera, stórra eða
smárra, fyrr en grunnstefna, lagaum-
gjörð, og reglur liggja fyrir.
Eftir Ara Trausta
Guðmundsson » Vandséð er að ráðistverði í byggingu
vindorkuvera, stórra
eða smárra, fyrr en
grunnstefna, laga-
umgjörð, og reglur
liggja fyrir.
Ari Trausti
Guðmundsson
Höfundur er þingmaður VG.
„Vindur, vindur vinur minn“
Það var merkilegt
viðtal í Silfrinu hjá
Agli Helgasyni sunnu-
daginn 11. febrúar sl.
Þar ræddi Egill við
Zoe Konstantopoulou,
fyrrverandi forseta
gríska þingsins, um
ástandið í Grikklandi
eftir hrunið 2008. Eg-
ill, sem kallar nú ekki
allt ömmu sína og er
að auki Grikklandsvinur, sat op-
inmynntur og pírði augun og mátti
sig hvergi hræra í einhverju merki-
legasta viðtali sem ég hef horft á
lengi.
Þvílík meðferð á einu elsta menn-
ingarríki Evrópu og eins og Zoe
sagði: „Grikklandi var fórnað.
Grikklandi var slátrað, því var
stungið í skuldabrunn-
inn,“ þar sem Ísland
átti reyndar líka að
verma botninn. En lýð-
ræðið virkaði á Íslandi,
sagði hún, en ekki í
Grikklandi, ný stjórn-
völd þar gengu undir
öxina. Meðan öflugir
andófsmenn hér risu
til baráttu og svo
stöðvaði þjóðin með
þjóðaratkvæðagreiðslu
í tvígang að taka á sig
skuldir sem henni ekki
bar. Grikklandi var hins vegar
nauðgað af Þjóðverjum og Frökkum
og seðlabanka ESB. Hér urðu hins
vegar strax þáttaskil með neyð-
arlögunum, Alþingi virkaði haustið
2008. Neyðarlögin urðu bjarghring-
urinn og þeim fylgdi lífróður
margra til að bjarga málstað og
frelsi lands okkar. Þjóðin hafnaði
svo Icesave og megi fyrrverandi
forseti vor Ólafur Ragnar Grímsson
hafa eilífa þökk fyrir kjark sinn og
áræði að ganga gegn íslenskum
ráðamönnum innan þings og utan
með því að setja í tvígang af stað
þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.
Sú atkvæðagreiðsla var lokaslag-
urinn um framtíð Íslands og svo
kom EFTA-dómstóllinn og felldi
þann dóm að okkur hafi aldrei borið
að borga Icesave. Lýðræðið vann
hér en ESB og alþjóðleg fjármálaöfl
töpuðu orustunni.
Ísland á að taka
málstað Grikklands
Ég vil þakka Ögmundi Jónassyni,
fyrrv. alþingismanni og ráðherra,
fyrir að bjóða Zoe Konstantopoulou
til Íslands. Þessi samanburður Zoe
á stöðu Íslands og Grikklands var
magnaður en minnir okkur á að það
munaði sáralitlu að bæði ríkin yrðu
sett í svarthol skuldanna. Ísland
fékk á sig að auki hryðjuverkalög
Bretanna sem var eitraðasta árás
ríkis á annað ríki innan NATO frá
því heimsstyrjöldinni lauk, og enga
fyrirgreiðslu var að fá hjá ESB eða
Bandaríkjunum. Við áttum svo okk-
ar sérfræðinga sem drógu upp
svartnættissviðsmyndir. Eða hafa
menn nokkuð gleymt því að Ísland
átti að verða „Kúba norðursins“,
krónan átti að hrynja, atvinnuleysi
yrði viðvarandi og nánast allt að
fara fjandans til ef Icesave yrði
hafnað.
Ég skora á alla að fara inn á Silfr-
ið og horfa á þetta einstaka viðtal.
Ísland á svo að leggjast með Grikk-
landi opinberlega og krefjast þess
að það verði dregið upp úr skulda-
feninu. ESB á ekki að líðast að fara
svona með hið gamla lýðræðis- og
menningarríki. Grikklandi bar ekki
frekar en okkur að greiða skuldir
„óreiðumanna“, í Þýskalandi og
Frakklandi. Kæra RÚV, eðlilegt
væri að fjalla meira um baráttu
þessarar einstöku konu og opna um-
ræðu um stöðu og meðferðina á
Grikklandi í miðlinum sem var og er
lögum samkvæmt þjóðarútvarp/
sjónvarp okkar.
Eftir Guðna
Ágústsson » Þessi samanburður
Zoe á stöðu Íslands
og Grikklands var
magnaður en minnir
okkur á að það munaði
sáralitlu að bæði ríkin
yrðu sett í svarthol
skuldanna.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fv.
alþingismaður og ráðherra.
Grikklandi var slátrað í hruninu en Ísland slapp
Brýnt er að allar
mögulegar leiðir séu til
skoðunar til þess að
leysa umferðaröng-
þveiti borgarinnar.
Það hefur núverandi
meirihluti í borginni,
með Dag B. Eggerts-
son í broddi fylkingar,
ekki gert. Þvert á móti
hefur verið þrengt að
bílum borgarbúa með
sífelldu stoppi vegna umferðarljósa
á umferðarþyngstu götum borg-
arinnar. Þrenging gatna á öðrum
fjölförnum götum hefur ekki verið til
að bæta ástandið. Þá hefur sam-
komulag við ríkið frá 2013 um tíu ára
framkvæmdastopp í samgöngu-
málum valdið því að endurnýjun og
viðhald á stofnbrautum borgarinnar
hefur ekki verið í neinu samræmi við
aukið umferðarálag.
Afleiðingin af þessu er sú að tafa-
tími borgarbúa í umferðinni hefur
stóraukist á kjörtímabilinu. Sam-
hliða hefur mengun vegna bíla-
umferðar náð nýjum hæðum. Ástæð-
an er einföld, samkvæmt
bandarískum og kanadískum rann-
sóknum mengar bíll í hægagangi (ca.
5-15 km hraði) að jafnaði tvöfalt
meira á hvern ekinn kílómetra en
bíll sem ekur í umferðinni á eðlileg-
um hraða (50-60 km
hraði). Við erum því
ekki bara með óásætt-
anlegan tafatíma í um-
ferðinni heldur einnig
mikla óþarfa mengun.
Hver vill búa við það?
Öll viljum við græna
borg og vistvænar sam-
göngur. Tryggja þarf
samgöngukerfi sem
styður við þau mark-
mið, m.a. með upp-
byggingu almennings-
samgangna. Í því felst einnig að
einkabíllinn, sem er samgöngumáti
76% íbúa á höfuðborgarsvæðinu,
komist með eðlilegum hætti á milli
staða. Algert áhugaleysi meirihlut-
ans í borginni á að greiða götu
einkabílsins, á sama tíma og íbúum á
höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað
um 7% frá 2011 og fjöldi ferðamanna
tvöfaldast á liðnu kjörtímabili, er óá-
sættanlegt.
Mengun í boði
borgarstjóra
Eftir Arndísi
Kristjánsdóttur
Arndís Kristjánsdóttir
» Afleiðingin af þessu
er sú að tafatími
borgarbúa í umferðinni
hefur stóraukist á kjör-
tímabilinu.
Höfundur er formaður Hvatar, félags
sjálfstæðiskvenna í Reykjavík.