Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 20

Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018 Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Í Silfrinu á RÚV 11. febrúar sl. mætti til við- tals, væntanlega í vin- samlegu boði Egils stjórnanda, embættis- laus og umboðslaus grísk stjórnmálakona, Zoe Konstantopoulou. Sagt er að Ögmundur Jónasson, sá ágæti maður, hafi beitt sér fyrir komu konunnar til landsins og er erfitt að skilja hvað hafi vakað fyrir honum með boðinu. Auðvitað ná menn ekki alltaf áttum. Það er oft áhugavert að kynnast nýju fólki, fá nýjar upplýsingar, hlusta á önnur sjónarmið; víkka sjón- deildarhringinn. Í þessu tilviki sýndi það sig þó að undantekningin sannar regluna. Það liggur við að ég segi að í þessu viðtali hafi bullið og ruglið flætt yfir bakkana. Egill reyndi að lauma inn orði, svona inn á milli, spurningum, eins og vera ber hjá góðum stjórnanda, og voru sumar góðar, en þær drukknuðu meira og minna í orðaflaumi valkyrj- unnar sem í raun svaraði engri þeirra nema með gagnspurningum eða ógrunduðum fullyrðingum sem margar voru ævintýralegar og hrein- lega út í hött. Þandi hún mikinn barminn í leiðinni og virtist það draga mátt úr Agli sem ekki virðist vera af ætt nafna síns Skallagríms- sonar. Áhugasömum er bent á að þetta makalausa viðtal er enn hægt að sjá á Sarpinum á RÚV. Annar merkismaður, Björn Bjarnason, auðvitað ekki gallalaus frekar en Ögmundur og við hinir, skrifaði svo langa grein um þessa val- kyrju og Grikkland í Moggann 9. febrúar. Fyrirsögnin er „Skuldafjötrar hvíla enn á Grikkjum“. Virðist Björn undrandi á þessari stöðu Grikkja þó að hann ætti að vita að Grikkir væru skuldsettasta þjóð Evrópu ef ekki al- heimsins enda lifðu þeir lengi vel langt um efni fram. Ég fylgdist grannt með Grikk- landsvandamálinu, það var eitt heit- asta málið í Þýzkalandi, þar sem ég bjó meðan á björgunarátökum stóð. Grikkir urðu með- limir ESB 1981 og sóttu það fast að fá evr- una, eins og margar Evrópuþjóðir aðrar, þegar hún kom 1999. Vildu menn auðvitað komast í það aukna ör- yggi og þann stöðug- leika, sem evran veitir. Skilyrðin fyrir heim- ild til upptöku evr- unnar skv. Maastricht-samkomulag- inu voru ströng. T.a.m. mátti í mesta lagi vera 3% halli á ríkisrekstri um- sóknarþjóðar. Á árabilinu 1997 til 1999, en um- sókn Grikkja byggðist á þessu ára- bili, gáfu þeir upp 4% halla fyrir 1997, 2,5% halla fyrir 1998 og 1,8% fyrir 1999. Þótti þetta flott þróun og fínar tölur, og gekk evruumsóknin fljótt og vel eftir. 2004 urðu stjórnarskipti í Grikk- landi. Ný ríkisstjórn fór þá ofan í út- reikninga fyrri ríkisstjórnar. Kom í ljós, að réttar tölur um halla á ríkis- rekstri voru 6,4% fyrir 1997, 4,1% fyrir 1998 og 3,4% fyrir 1999. M.ö.o. Grikkir hefðu aldrei átt að fá heimild til að taka upp Evruna! Við bættist, að 2003 var hallinn 4,6% og 2004 5,3%. Voru Grikkir þarna búnir að eyða langt um efni fram og brjóta alla aðildarskilmála evru í bak og fyrir. Í Maastricht-samkomulaginu var ekki gert ráð fyrir að nein aðildar- þjóð myndi beita blekkingum við um- sókn um evruaðild og lágu því engin viðurlög við brotinu. Eins var komin ný stjórn sem hafði upplýst um mis- ferlið og lofað bót og betrun. ESB vildi því leysa málið með vin- semd og samvinnu enda um ESB- systurþjóð að ræða en auðvitað átti þetta misferli, ásamt með ýmsu öðru skrýtnu athæfi, vafasömum kerfum og útbreiddri spillingu í Grikklandi, eftir að vinda upp á sig. Skuldavandi Grikkja magnaðist þannig árin þar á eftir og „kúlmíner- aði“ svo í banka- og fjármálakrepp- unni 2008/2009. Fór þjóðin þá nánast í þjóðargjaldþrot, en metnaður Merkel og ESB var að bjarga Grikkj- um, sem Evrópuþjóð og vöggu lýð- ræðisins, frá hruni og fári, eftir því, sem hægt væri. Eftir harða baráttu síðustu 6-8 ár- in, og með aðhaldi og hjálp ESB, Evrópska Seðlabankans og Alþjóða gjaldeyrisvarasjóðsins, er Grikkland nú, sem betur fer, að ná sér á strik. Í fyrra mun verg þjóðarframleiðsla hafa aukist um 2,1%, og var ríkis- reksturinn jákvæður um 2,2%. Gleði- legt að sjá þetta. Í ár er reiknað með verulegum frekari framförum. Um valkyrjuna skal þetta sagt. Hún sat á þingi fyrir SYRIZA frá 2012 til 2015 og var forseti þingsins, fyrir tilstilli Alexis Tsipras, frá febr- úar fram í ágúst 2015. Þá lenti hún í útistöðum við Tsipras – eins og svo marga aðra – og datt úr af þingi. Í apríl 2016 stofnaði hún nýjan flokk, „Leiðin til frelsisins“ („Course of Freedom“). Af 300 þingmönnum á gríska þinginu hefur þessi flokkur engan. Grikkir eiga 21 þingmann á Evrópuþinginu en einnig þar er flokkurinn á núllinu. Skoðanakönnun haustið 2016 sýndi að flokkurinn var með 2-3% fylgi. Valkyrjan nýtur því meiri hylli hér en í heimalandi sínu. Að lokum stutt saga um valkyrj- una eða móður hennar öllu heldur og kerfin í Grikklandi: 2014 kom í ljós að móðirin hafði fengið barnabætur fyr- ir dóttur sína, Zoe, valkyrjuna, fram í nóvember 2013. Þar sem valkyrjan er fædd í desember 1976, og var að verða 37 ára gömul, var þetta auðvit- að fulllangt. Móðirin húðskammaði svo barnabótasjóðinn fyrir „mistök- in“. Um endurgreiðslu hefur ekkert heyrzt. Skrýtnar sögur, sem tengjast Zoe Konstantopoulou, eru fleiri. Þegar Silfrið varð að brotajárni Eftir Ole Anton Bieltvedt »Með aðhaldi og hjálp ESB, Evrópska Seðlabankans og Al- þjóða gjaldeyrisvara- sjóðsins er Grikkland að ná sér á strik. Gleðilegt að sjá þetta. Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Þennan zíonista- lygaáróður gegn kristn- um Palestínumönnum hefur maður áður heyrt frá Halli Hallssyni á kristilegu útvarpsstöð- inni Lindinni. En eftir að Hallur byrjaði með þessi ósannindi er mað- ur hættur að mæla með kristilegu útvarpsstöð- inni Lindinni. Eins og gefur að skilja vill mað- ur ekki kannast við eða tengjast þess- um svokölluðu kristnu stuðnings- mönnum Zíonista Ísrael, er hafa verið að styðja það að hús og íbúðir krist- inna Palestínumanna og annarra séu lagðar í rúst og eyðilagðar á Vest- urbakkanum og í austurhluta Jerúsal- ems í þessu hernámi zíonista fyrir „Stærra Ísrael“ („Greater Israel“). Einnig er það mjög andkristilegt að styðja Zíonista Ísrael, þegar stjórn- völd í Ísrael fara algjörlega gegn sam- þykkum SÞ með að leyfa ekki kristn- um Palestínuflóttamönnum og öðrum að snúa aftur til heimalands. Þrátt fyrir að kristnir Palestínusöfnuðir hafi reynt að koma öllum þessum skila- boðum og óskum á framfæri með því að gefa út sameiginlegar yfirlýsingar gegn öllu þessu her- og landnámi zíon- ista, og m.a. með „Jerusalem Decl- aration on Christian Zionism“ og „A moment of truth A word of faith, hope and love from the heart of Palestinian suffering“ sem auðvelt er og hefur verið að nálgast á netinu, þá halda þessir kristnu stuðningsmenn Zíon- ista Ísrael hér áfram þessum lygaá- róðri svona líka gegn sínum kristnu Palestínutrúbræðrum. Áróður gegn kristnum Palestínumönnum Ég reikna með að Hallur haldi áfram að dreifa þessum ósannindum, eða þar sem allt er gert til þess að styðja við áframhaldandi hernám gegn kristnum Palestínumönnum og öðrum, svo og til að styðja við frekari fjölgun á Palestínuflóttamönnum. Þrátt fyrir öll þessi ósannindi hans Halls eru allar þessar yfir 160 land- nemabyggðir zíonista algjörlega ólög- legar, svo og allt þetta hernám zíon- ista á Vesturbakkanum og í austurhluta Jerúsalems algjörlega ólöglegt gagnvart alþjóðalögum. Það þarf hins vegar ekki að spyrja þetta kristna stuðningslið fyrir Zíonista Ísr- ael, því að þessu stuðningsliði er skít- sama þó að búið sé að eyðileggja og rústa yfir 48 þúsund íbúðir og hús Pal- estínumanna í þessu hernámi zíonista. Nú og auk þess sér þetta sama stuðn- ingslið ekkert að því þegar stjórnvöld í Ísrael gefa það út opinberlega að til standi að rústa og eyðileggja fleiri hundruð íbúðir Palestínumanna í við- bót á landsvæði Palestínumanna fyrir „Stærra Ísrael“. Það er vitað að þetta stuðningslið mótmælir aldrei Zíon- istum Ísrael, þar sem allt gengur út á það að lofsyngja Zíonista Ísrael. Stuðningsmenn fyrir Zíonista Ísrael líta ekki á kirkjuna sem hina andlegu Ísrael eins og minnst er á í Nýja testa- mentinu, heldur eru það eingöngu hinir jarðneska Zíonistar Ísrael sem skiptir máli, svona líka algjörlega eftir biblíuþýðingarvillum hans C. Scofield fyrir Zíonista Ísrael. Allur þessi stuðningur stuðningsmanna Zíonista Ísrael við áframhaldandi hernám er að skila tilætluðum árangri í því að eyðileggja alla kristna trú þarna, þökk sé stuðningsmönnum Zíonista Ísrael. Lygar til að réttlæta og hvítþvo allt fyrir Zíonista Ísrael Það er talið mjög andgyðinglegt að sleppa að minnast á öll þau afrek sem þetta zíonista-ríki hefur staðið fyrir, en þetta er örugglega eina ríkið í heiminum sem fæddist með hryðju- verkum og djöfulskap hryðjuverkahópanna Stern, Irgun og Hag- anah, er voru í því að drepa og sprengja Pal- estínumenn í tætlur (ifamericaknew.org/ history/origin.html). En Hallur birtir þessar sömu zíonista-lygar um að: „arabaríkin hófu stríð gegn hinu nýstofn- aða ríki …,“ þegar það er staðfest að öll þessi hryðjuverk zíonista byrj- uðu löngu fyrir stofnun Zíonista Ísrael 1948, og aflið á bak við þetta allt sam- an hjá zíonistum hafði ekkert að gera með Guð, ást og kærleika, að drepa fólk og gera u.þ.b. 750 þúsund Palest- ínumenn að flóttamönnum, nú og þ.m.t. voru yfir 50 þúsund kristnir Palestínumenn gerðir að flóttamönn- um. Það væri auk þess mjög andgyð- inglegt af mér að reyna að segja að zíonistar hafi verið einhverjir frið- arsinnar, þegar zíonistar hófu sex- dagastríðið með öðrum eins djöf- ulgangi og látum og að ráðast á flugvelli í Egyptalandi, svo og með skyndiárásum á flugvelli í Sýrlandi og aðra nágranna sína. Hallur passar sig á því að minnast ekki á hverjir byrj- uðu sexdagastríðið, heldur kemur hann með þessi ósannindi frá zíon- istum um að: „Þeir stilltu upp 540 þús- und manna her við landamæri Ísr- aels,“ svona til þess eins að réttlæta allt fyrir Zíonista Ísrael með að hafa byrjað sexdagastríðið. Nú Hallur nefnir þessa fáránlegu tölu 540 þús- und en passar sig síðan á því að minn- ast ekki á öll þau morð er zíonistar stóðu fyrir með að hafa myrt yfir 11 þúsund Egypta, 6 þúsund Jórdani, 1 þúsund Sýrlendinga, eða þar sem að- eins um 700 zíonistar létust í stríðinu er zíonistar hófu með skyndiárásum. Hvað kemur til að Hallur minnist ekki á þær „False flag“-hryðjuverkaárásir zíonista á herskipið USS Liberty, þar sem zíonistar myrtu 34 Bandaríkja- menn, er átti að nota til þess að hvítþvo með því að klína allri sökinni á Egypta? Hallur tilgreinir að yfir 300 ísr- aelskir ríkisborgarar hafi verið myrtir á þessum tveimur árum frá því að Intifada-uppreisnin byrjaði, en hvað kemur til að Hallur minnist ekki á að 9.510 Palestínumenn hafa verið myrtir frá árinu 2000 og til dagsins í dag, þar sem um er að ræða meira en sjöfalt fleiri manndráp á Palestínumönnum en þeim 1,242 zíonistum er hafa verið myrtir? Þetta ólýðræðislega Ísraelsríki er þekkt fyrir að nota lokanir, sérvegi, eftirlitsstöðvar, svo og refsiaðgerðir gegn Palestínumönnum, auk þess sem þetta „Apartheid“-ríki rekur araba – Ísraelsþingmenn út af þingi. Þá hafa Ísraelsmenn hafið hvert stríðið á fætur öðru gegn Líbanon 1982-1985 og 2006, svo og gegn Sýr- landi. Að reyna að segja að þetta séu friðarsinnar eða að Guð sé að leiða þetta fólk til baka er ekkert annað en argasta lygi gagnvart Guði og hans vilja. Þegar Jesús Kristur sagði: „Sælir eru hógværir því að þeir munu jörðina erfa“ átti hann örugg- lega ekki við þessa zíonista land- nema. Athugasemdir við grein Halls Hallssonar Eftir Þorstein Sch. Thorsteinsson Þorsteinn Sch. Thorsteinsson » Allur þessi stuðn- ingur stuðnings- manna Zíonista Ísrael við áframhaldandi her- nám er að skila tilætl- uðum árangri í því að eyðileggja alla kristna trú … Höfundur er margmiðlunarfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.