Morgunblaðið - 20.02.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2018
ROYAL VANILLUBÚÐINGUR
... OG FÆST Í ÖLLUM BETRI
MATVÖRUVERZLUNUM LANDSINS
A�taf góður!
Ríta Freyja Bach, handverkskona í Grenigerði í Borgarfirði, á75 ára afmæli í dag. Ríta hefur búið þar ásamt eiginmanni sín-um, Páli Jenssyni, í 40 ár. Í Grenigerði búa þau til vandaðar
handgerðar vörur úr hreindýrahornum, kindahornum, hrosshárum,
ull og kanínufiðu. Til dæmis tölur, nálahús, hálsmen, íleppa, inniskó
og úlnliðshlífar. Þau selja vörur sínar til að mynda á þremur stöðum í
Reykjavík, hjá Handprjónasambandinu, í Þjóðminjasafninu og
KRAUM hjá Hönnunarsafni Íslands..
„Við erum líka með jurtaliti og það gengur mjög vel og seljum þá í
Ullarselinu á Hvanneyri. Við höfum líka verið með garðyrkjubýli hér í
Grenigerði, en erum að hætta því smám saman.“
Ríta og Páll eru bæði frá Jótlandi í Danmörku, Ríta er frá Brandi
og Páll er frá Ringköbing. Þau kynntust á Fimmvörðuhálsi á hvíta-
sunnu árið 1963, en þá voru þau bæði að vinna hér á landi. Þau ákváðu
síðan að setjast hér að. „Hér var og er meira frjálsræði en í Dan-
mörku. Ég hafði verið að vinna hjá bændum þar og maður þurfti að
vinna allan tímann. Hér á Íslandi er unnið meira í skorpum.“
Börn Rítu og Páls eru Kristján Vagn og Guðríður Ebba, sem búa
bæði í Borgarnesi með sinni fjölskyldu.
Í dag ætlar Ríta að sitja heima og spinna, en hún spinnur úr hunda-
hárum, kanínuhárum og lambsull. „Ég er búin að halda upp á afmælið
og kom fjölskyldan saman hérna á laugardaginn.“
Hjónin Ríta og Páll í vinnustofu sinni í Grenigerði.
Situr heima í Greni-
gerði og spinnur
Ríta Freyja Bach er 75 ára gömul í dag
M
agnús fæddist í
Reykjavík 20.2.
1928 og ólst þar upp
í Vesturbænum.
Auk þess dvaldi
hann í sveit á sumrin í Eyvík í Gríms-
nesi.
Magnús gekk í Austurbæjarskól-
ann í Reykjavík. Hann fékk ungur
brennandi áhuga á flugi: „Ég byrjaði
mitt flugnám með því að læra að
fljúga á svifflugu í seinni heimsstyrj-
öldinni. Þá kynntist ég breskum her-
flugmanni í Reykjavík, árið 1944, og
hann tók mig í kvöldnám á Link flug-
þjálfa sem notaður var við þjálfun
hjá breska hernum. Ég fór í mitt
fyrsta flug árið 1944 og keypti mína
fyrstu flugvél, ásamt öðrum, í stríðs-
lok. Það var Stearman PT-17.
Árið 1946 ákvað ég að fara í flug-
nám til Englands. Til að fjármagna
námið fékk ég uppáskrifaðan víxil
sem bankinn keypti af mér. Þá var
haldið til Englands með togara
haustið 1946. Ég byrjaði í flugskól-
anum AST í bænum Hamble í
Hampshire, ekki langt frá South-
ampton. Mér var síðan boðið að
flytja mig yfir til Marshall-
flugskólans í Cambridge. Ástæðan
var sú þjálfun sem ég hafði aflað mér
heima í breska flugþjálfanum, auk 50
flugtíma á Stearman-flugvélinni.“
Magnús útskrifaðist sem flug-
maður í júní 1947 og kom heim á
þjóðhátíðardaginn: „Ég var ráðinn
til reynslu hjá Loftleiðum um sum-
arið. Reynslutíminn stóð í þetta sinn
Magnús Norðdahl, fyrrv. flugstjóri – 90 ára
Með börnunum Talið frá vinstri: Magnús Steinarr, Jóna María, Guðmundur, Magnús, Guðrún og Sigurður.
Flogið gegnum lífið
meðan lífið flýgur hjá
Hjónin Magnús og María fyrir nokkrum árum, en María lést í fyrravor.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.